Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Side 4
24 MÁNUDAGUR 25. MARS 1996 MÁNUDAGUR 25. MARS 1996 25 Iþróttir Handbolti - 2. deild: Fram vantar eitt stig enn Fram vantar nú aðeins eitt stig til að tryggja sér sæti í 1. deild karla í handknattleik að ári eftir stórsigur á Breiðabliki, 16-30, í úrslitakeppni 2. deildar í Smáranum á laugardaginn. Jón Andri Finnsson skoraði 9 mörk fyrir Fram, Jón Þórir Jónsson 7 og Oleg Titov 6. Hjá Blikum var Örvar Amgrímsson markahæstur með 5 mörk. Óskar Elvar skoraði 17 mörk fyrir HK Nær öruggt er að HK fylgi Fram upp en liðið vann öruggan sigur á ÍH í Hafnarflrði, 21-33. Þar var staðan 7-13 í hálfleik. Óskar Elvar Óskarsson, fyrirliði HK, fór hamforum í leiknum og skoraði 17 af mörkum Kópa- vogsliðsins og Gunnleifur Gunn- leifsson kom næstur með 5 mörk. Staðan í úrslitakeppninni: Fram 6 4 2 0 174-115 14 HK 6 5 0 1 178-126 12 Þór A. 7 2 2 3 156-172 7 Fylkir 6 2 2 2 145-138 6 Breiðablik 7 1 2 4 145-191 4 ÍH 6105 111-167 2 -GH/VS Panasorac Ferðatæki RXDS1S Ferðatæki með geislaspilara, 40W magnara, kassettutæki, og útvarpi. JAPISS BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI M Körfubolti kvenna: Oruggur sigur Keflvíkinga - unnu KR í fyrsta úrslitaleiknum, 70-58 DV, Suðurnesjum: Keflavík vann öruggan sigur á KR í fyrsta úrslitaleik liðanna um Islandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik sem fram fór í Kefla- vík í gær, 70-58. Staðan í hálfleik var 41-31, Keflavík í hag. Heima- stúlkur fóru hamfórum í byrjun síð- ari hálfleiks og um hann miðjan var staðan orðin 61-35 og úrslitin ráðin. „Við spiluðum mjög vel, góða vöm og hittum vel. Þá náðum við að stöðva þeirra bestu leikmenn. Við gáfum aðeins eftir i síðari hálfleik en þetta var aldrei spurning. Ég á von á þeim sterkari í næsta leik,“ sagði Anna María Sveinsdóttir, fyr- irliði Keflavíkur, við DV en hún átti stórleik í gær. „Við vorum ekki tilbúnar í byrj- un og voram að komast í gang allan leikinn. Þær slógu okkur út af lag- inu með þriggja stiga körfum,“ sagði Helga Þorvaldsdóttir, fyrirliði KR, við DV. Keflavíkurstúlkurnar spiluðu geysilega vel. Veronica Cook og Anna María áttu frábæran leik og þær Björg Hafsteinsdóttir, Erla Þor- steinsdóttir og Erla Reynisdóttir spiluðu allar vel. Hjá KR var Helga Árnadóttir einna best en hún sýndi góða baráttu eftir að hún fékk tæki- færi í seinni hálfleik. Stig Keflavíkur: Cook 31, Anna María 25, Erla R. 8, Björg 3, Erla Þ. 3. Stig KR: Rupe 15, Guðbjörg 9, Helga Þ. 8, Kristín 8, Kolbrún 7, María 6, Helga Á. 5. -ÆMK Undanúrslitin í handbolta kvenna: Haukastúlkur stefna í úrslit - unnu Fram í Safamýrinni, 13-17 „Við gerðum það sem fyrir okkur var lagt og uppskárum samkvæmt því. Við lékum sterka vörn fyrstu 20 mínútumar og unnum á henni og frábærri liðsheild. Við ætlum að mæta ákveðnar til leiks gegn þeim í Hafnarfirði og reynum að klára dæmið þá,“ sagði Hulda Bjamadótt- ir, leikmaður Hauka, eftir að Hafn- arfjarðarliöið hafði unnið öruggan sigur á Fram, 13-17, í fyrsta leik liö- anna í úrslitakeppni íslandsmóts kvenna í handbolta í Safamýri í gær. Haukar standa vel að vigi eftir þennan sigur á stórveldinu Fram en Haukar hafa aldrei leikið til úrslita í íslandsmótinu. Haukamir voru miklu sterkari í upphafi leiksins og léku þá mjög öfl- uga vöm sem Framarar áttu í mikl- um vandræðum með. Framarar skomðu aðeins eitt mark fyrstu 19 mínútur leiksins og segir það sína sögu. Haukar náðu að komast í 1-7 en Framstúlkur tóku þá aðeins við sér og minnkuðu muninn í 5-8 og þannig stóð í leikhléi. En Haukam- ir hleyptu Frömurum ekki lengra og tryggðu sér öruggan sigur. Hulda og Judith Esztegal léku best í jöfnu og góðu liði Hauka. Vig- dís Sigurðardóttir stóð sig einnig ágætlega í markinu. Hjá Fram vom Hekla Daðadóttir og Kolbrún Jó- hannsdóttir markvörður bestu menn. Mörk Fram: Hekla 5, Ama 4/3, Kristín 1, Ósk 1, Berglind 1, Þórunn 1. Varin skot: Kolbrún 13, Hugrún 1. Mörk Hauka: Judith 6/2, Hulda 4, Auður 2, Heiðrún 2, Thelma 2, Harpa 1. Varin skot: Vigdís 10. -RR 9 0 4 5 0 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. Þú þarft aðeins eitt símtal í Iþróttasíma j DV til að heyra nýjustu úrslitin í fótbolta, j handbolta og körfubolta. þar er einnig j að finna úrslit í NBA deildinni og í enska, j ítalska og þýska boltanum. 9 0 4-5 0 0 0 Júlíus Gunnarsson úr Val reynir að komast fram hjá Alexei Trúfan, hinum öfluga varnarmanni Aftureldingar, f leiknum á laugardaginn. Á litlu myndinni fagna Sigfús Sigurðsson Ifnumaður og Örvar Rúdolfsson varamarkvörður sigri Valsmanna sem mæta nú KA í úrslitaleikjum. DV-myndir Brynjar Gauti íþróttir Alfreð Gíslason þjálfari KA: Meiri líkur á að halda Duranona - Afturelding og Paris SG sýna honum áhuga ■i „Ég myndi segja að það væru helmingslíkur á að við héldum Duranona og ég er kannski bjart- sýnni en áður,“ sagði Alfreð Gislason, þjálfari KA-liðsins í handknattleik, við DV í gær. Félög á Spáni og í Frakklandi hafa veriö með fyrirspurnir um Duranona og samkvæmt heimild- um DV er París SG eitt þeirra liða sem vilja fá Kúbumanninn snjalla. Það eru ekki bara félög erlendis sem vilja fá Duranona því sam- kvæmt heimildum DV vill Aftur- elding fá hann í sínar raðir og heyrst hefur að „kjúklingabænd- ur“ séu reiðubúnir til að leggja fram talsvert fé í að fá hann. „Ég hef heyrt eitthvað aðeins af þessu en ég hef ekki trú á að ef Duranona leikur á annað borð hér á landi leiki hann ekki með neinu öðru félagi en KA,” sagði Alfreð. -GH —— Patrekur Jóhannesson um einvígi KA og Vals: Þetta verður hörð rimma „Þetta var rosalega skemmtilegt í fyrra. Þetta fór í fimm leiki og ég get alveg ímyndað mér að það gerist aft- ur,“ sagði Patrekur Jóhannesson, leikmaður KA, þegar ljóst var að það verða KA og Valur sem leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik annað árið í röð. „Þetta eru sterk lið, með góða heimavelli og ég á von á að þetta verði hörð rimma. Þetta er toppur- inn á tilverunni fyrir alla hand- boltaunnendur að fá þessi lið í úr- slit. Það er komin sérstök stemning á milli þessara liða og hatrömm bar- átta inn á leikvellinum. Ég auðvitað stefni að því að kveðja KA með stæl. Fjórir titlar á tveimur árum yrði frábært ef það tekst að vinna Val. Ég reikna með að þeir sem eru að yflrgefa herbúðir Vals hugsi eins og vilji kveðja sitt félag með einum titli til viðbótar," sagði Patrekur. Fyrsti úrslitaleikur KA og Vals fer fram á Akureyri á fimmtudags- kvöld. -GH Tæpt hjá Stjörnunni - vann nauman sigur á Eyjastúlkum, 22-21 „Þetta var mjög tæpt hjá okkur en það var mikilvægt að sigra í lok- in. Þær hafa verið okkur mjög erfið- ar í gegnum tíðina og það var engin undantekning á í þessum leik. Leikurinn í Eyjum verður erfiður en við erum nú í betri stöðu en þær,“ sagði Guðný Gunnsteinsdótt- ir, fyrirliði Stjömunnar, eftir að lið- ið hafði sigrað ÍBV, 22-21, í fyrsta leik liðanna í undaúrslitum íslands- mótsins í Garðabæ á laugardag. Eft- ir jafnan fyrri hálfleik náðu Stjömustúlkur góðu forskoti í síðari hálfleik sem virtist ætla að duga þeim til gigurs. En baráttuglaðar Eyjastúlkur börðust vel og náðu að setja mikla spennu í leikinn undir lokin. Þegar um hálf mínúta var eftir gerðist mjög umdeilt atvik þeg- ar Malin Lake sendi boltann í net Stjömustúlkna en markið var dæmt af vegna skrefa. Stjömustúlkur náðu að halda fengnum hlut á lokasekúnd- unum og fögnuðu naumum sigri. „Þetta var tekið frá okkur í lokin og það er hreint ótrúlegt þegar full- komlega löglegt mark er tekið af okkur. Malin fittaði sig í gegn og skoraði en þær dæma á hana skref. Þeir dæmdu leikin mjög vel í í rúm- ar 59 mínútur en klikka svo svona hraeðilega. Það er eins og við mætt- um ekki vinna leikinn gegn þeim,“ sagði Sigbjörn Óskarsson, þjálfari ÍBV, reiður eftir leikinn. Guðný var best hjá Stjömunni ásamt Fanneyju Rúnarsdóttir mark- verði en Andrea Atladóttir var lang- best í liði ÍBV. Mörk Stjörnunnar: Guðný 9, Ragnheiður 7/4, Nína 2, Herdís 2, Sigrún 1 og Hmnd 1. Varin skot: Fanney 18/2. Mörk ÍBV: Andrea 8, Malin 4/2, María 3, Ingibjörg 3, Helga 2 og El- ísa 1. Varin skot: Þómnn 6, Laufey 3/1. -RR Valur og KA leika aftur til úrslita um íslandsmeistaratitilinn: Meistarabragur á Val - Afturelding átti aldrei möguleika á Hlíðarenda og Valur vann öruggan sigur Eftir að Valsmenn höfðu betur í leik númer tvö í einvíginu við Aftureld- ingu var ljóst að þeir voru búnir að yf- irvinna skellinn óvænta á heimavelli í fyrsta leiknum. Á laugardaginn gáfu þeir Mosfellingum engin grið í odda- leiknum á Hlíðarenda og unnu 27-21 eftir að hafa náð 7-1 forskoti og mest níu marka mun í seirnli hálfleik. Það verða því Valur og KA sem mætast í úrslitaleikjunum um meist- aratitilinn annað árið í röð, eins og flestir höfðu spáð í byrjun. Valsmenn léku skínandi vel á laug- ardaginn og sýndu einfaldlega þann mun sem er á þessum tveimur liðum. Þeir spiluöu geysilega sterka vörn sem Afturelding fann nánast engar glufur á lengi vel og lokuðu vel á línu- menninn öfluga, Róbert Sighvatsson, sem fékk sig lítið hreyft í leiknum. Þegar svo sóknin gekk líka vel upp, með Dag Sigurðsson óstöðvandi í fyrri hálfleik og hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru dundi á Mosfellingum gat þessi leikur ekki endað nema á einn veg. Nái Valsmenn að spila svona gegn KA í úrslitaleikjunum skyldi enginn veðja gegn því að þeir kræki í meist- aratitilinn fjórða árið í röð. Jafnvel þó það þýði að þeir verði að vinna leik í suðupottinum á Akureyri. Þáttur Dags hefur verið tíundaður, Ólafur Stefánsson var fimasterkur, sem og „bangsinn" á línunni, Sigfús Sigurðs- son, sem er efni í frábæran leikmann. Ekki síst þar sem í vörninni er hann lykilmaður. Svo er það hin mikla ‘breidd sem Valsmenn státa af, þeir notuðu 11 útispilara í leiknum og níu þeirra skoruðu, og þeir hafa það fram- yfir flestöll önnur lið að geta skipt mikið inn á án þess að veikja liðið að ráði. Slíkt getur gert útslagið þegar mest á reynir. Afturelding náði lengra en flestir bjuggust við og það voru hálfgerðir draumórar að sjá liðið fyrir sér í úr- slitaleik. Samt gerðu leikmenn liðsins heiðarlega tilraun og vora með undir- tökin í einvíginu við meistarana þar til 10 mínútur vom eftir af leik númer tvö. Á laugardaginn skorti þá tiltrú á sjálfa sig eftir erfiða byrjun og mikill hluti skota þeirra komst ekki í gegn- um sterka Valsvörnina eða fór fram hjá markinu. Páll Þórólfsson var sá eini sem fann virkilega leið í gegnum múrinn og skoraði góð mörk með óvæntum langskotum. Markvarsla Sebastians Alexanderssonar á lokamínútunum átti síðan mestan þátt í að sigur Vals varð ekki stærri. „Einn af okkar betri leikjum“ „Það engin launung að við emm með sterkara lið en þaö mátti lítið út af bregða, sérstaklega í leiknum upp frá. Það mátti lítið út af bregða, við komum mjög værukærir í fyrsta leik- inn og vorum bara 1-0 undir. Þó við værum að spila við lið sem var slak- ara á pappírunum er mjög auðvelt að vinna slíkt upp á heimavelli og þess vegna vorum við í erfiðri stöðu. En við náðum að klára það og í dag spil- uðum við einn af okkar betri leikjum. Við höfum verið að spila finan bolta í þessum tveimur síðustu leikjum en ég skal ekki segja hvort það merki að við séum uppi á hárréttum tíma,“ sagði Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vals. Um væntanlega úrslitaleiki við KA sagði Dagur: „Þetta em leikirnir sem allir vildu fá og það er hætt við því að það verði mikill slagur og miklir taugaleikir. Núna vinnast ekki allir leikir á heimavelli, við þurfum að vinna leik fyrir norðan og klára heimaleikina. Titilinn ætlum við okk- ur, það er engin spuming." „Brutu okkur á bak aftur í byrjun“ „Við höfðum fulla trú að geta unnið Val aftur hérna á Hlíðarenda en þeir brutu okkur á bak aftur í byrjun og nánast kláruðu leikinn þá. Þeir náðu að halda sterkri 6/0 vöm án þess að fara mikið út og fengu mikið af hraða- upphlaupum. í þessu liggur munur- inn. En miðað við þau meiðsli sem við lentum í getum við ekki annað en ver- ið ánægðir með okkar frammistöðu í úrslitakeppninni. Við náðum að stríða Valsmönnum aðeins, í undanúrslitun- um í fyrra unnum við ekki leik en það gerðum við núna. Við förum bara alla leið í úrslitin á næsta ári,“ sagði Bergsveinn Bergsveinsson, markvörð- ur Aftureldingar. -VS V alur-Afturelding (15-10) 27-21 0-1, 7-1, 8-6, 11-7, 11-9, 13-9, 13-10, (15-10), 15-11, 19-12, 23-14, 24-15, 24-18, 26-19, 27-21. Mörk Vals: Dagur Sigurðsson 7, Ólafur Stefánsson 6/1, Sigfús Sigurðsson 5, Valgarð Thoroddsen 3, Skúli Gunnsteinsson 2, Jón Kristjánsson 1, Sveinn Sigfmnsson 1, Ingi Rafn Jónsson 1, Davið Ólafsson 1. Varin skot: Guðmundur Hrafhkelsson 10. Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfsson 6, Ingúmmdur Helgason 6/4, Jóhann Samúelsson 4, Bjarki Sigurðsson 3, Róbert Sighvatsson 1, Þorkell Guðbrandsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 5, Sebastian Alexandersson 6. Brottvísanir: Valur 8 mín., Afturelding 4 mín. Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefan Amaldsson, mjög öruggir á öllu sinu aö vanda en þó var eins og samúðin væri ögn meö Aft- ureldingu. Ahorfendur: Um 500. Maður leiksins: Dagur Sigurðsson, Val. Sigurður „stútaði“ marka- töflunni Það var erfitt að fylgjast með leiktímanum og stöðunni í leik Stjömunnar og ÍBV í Garðabæ þar sem markataflan í íþróttahús- inu var biluð og ekki nokkur leið að gera við hana. Áhorfendur og blaðamenn uröu því að reyna aö taka tímann sjálfir og telja mörk- in í leiðinni. Raunar hjálpaði kynnir leiksins nokkrum sinnum til með því að lesa upp stöðuna og undir lokin var tilkynnt i tvígang hversu mikill tími væri eftir af leiknum. Engu að síður var þetta mjög óþægilegt fyrir alla aðila. Markataflan mun hafa bilað eftir að Sigurður Bjarnason, leik- maður Stjömunnar, sló fast í tímavarðarborðið, eftir leik sinna manna gegn Aftureldingu á dögunum. Þá skomöu Mosfellingar umdeilt mark þar sem leiktíminn var á mörkunum að vera úti. Sigurður mótmælti eins og fleiri í leikslok og lamdi í borðið og við það fór allt úr sambandi. Einn stuðningsmaður Stjömunnar sagði á laugardag að stefnt væri að því að Sigurður kæmi eftir helgina og lagaði töfluna sjálfur en hann væri eflaust að lesa sér til í raf- magnsfræði á meöan. -RR Þróttarliðin unnu í gær Þróttur úr Reykjavík vann Stjömuna, 3-1, í þriðja úrslita- leik liðanna um íslandsmeistara- titil karla í blaki í gær. Stjarnan hafði sigrað, 3-2, á föstudags- kvöldið og Þróttur er því kom- inn með 2-1 forystu og getur tryggt sér titilinn í næsta leik. Hrinurnar í gær enduðu 10-15, 15-8,15-11 og 15-4. HK og Þróttur N. eru jöfn, 1-1, eftir tvo úrslitaleiki í kvenna- flokki. HK vann í Digranesi á fóstudagskvöldið, 3-2, eftir að Þróttur var 9-13 yfir í odda- hrinu. í Neskaupstað í gær unnu Þróttarstúlkur hins vegar örugg- an sigur, 3-0 (15-8, 16-14, 15-11).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.