Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1996, Page 8
28 MÁNUDAGUR 25. MARS 1996 íþróttir NBA-úrslit Aðfaranótt laugardags: Boston-Denver............99-98 Fox 24 - Washington-Orlando . . . 108-111 - Shaq 49, Hardaway 30. Charlotte-Atlanta.......92-117 Johnson 20 - Smith 27. Toronto-San Antonio . . . 108-120 Stoudamire 23 - Robinson 24, Elliott 24. Detroit-New Jersey .....111-96 Hffl 26, Mffls 19. Indiana-Vancouver ......111-94 Mffler 23, Smith 17 - Milwaukee-Miami .......106-122 Baker 23 - Wffliams 23, Gatling 23. Dallas-Minnesota........84-110 - Rider 21, Gugliotta 26. Utah-Cleveland ..........88-75 Malone 27 - Brandon 23. LA Clippers-Philadelphia . 107-93 Wfflimas 24, Rogers 22 - Maxwell 27. Sacramento-Portland......80-78 Ritchmond 19, Grant 18. Aðfaranótt sunnudags Atlanta-Detroit ........92-84 Smith 27, Long 17, Augmon 15 - Houston 38. Houston-Minnesota .... 103-108 Olajuwon 46 - Rider 19, Webb 17, Mitchell 16, Gugliotta 15. Golden State-Phoenix .... 98-89 Sprewell 27, Marshail 21, Smith 14 - Barkley 25, Johnson 14. Seattle-Philadelphia....129-89 Kemp 20, Hawkins 19 - Weatherspoon 17, Maxwell 16. Ceballos á sjóskíðum Los Angeles Lakers hefur sett Cedric Ceballos í keppnisbann fyrir að stinga af. Frést hefur af honum á sjóskíðum á vatni í Arizona! NBA-deildin í körfuknattleik: Shaq átti s kallaðan stó - skoraði 49 stig og tók 17 fráköst Shaquille O’Neal átti stórleik með Orlando í fyrrinótt þegar liðið lagði Washington í framlengdum leik. Shaq skoraði 49 stig og tók 17 frá- köst og þetta er mesta stigaskor Shaq á þessari leiktíð. Penny Hardaway lék einnig mjög vel, skor- aði 30 stig þar af 5 á síðustu tveim- ur mínútunum i framlengingunni. „Báðar mínar stórstjömur léku stórkostlega og ég er mjög stoltur af liðinu að vinna þennan leik. Við vissum að lið Washington spilar mjög vel á heimavelli og því var ég ánægður að sleppa héðan með sigur í farteskinu," sagði Brian Hill, þjáif- ari Orlando. Walt Williams skoraði 6 þriggja stiga körfur úr sex tilraunum þegar Miami lagði Milwaukee og var þetta þriðji sigur liðsins i röð. Greg Minor tryggði Boston sigur á Denver þegar hann skoraði sigur- körfuna á lokasökúndunni. Rétt áður hafði 3ja stiga karfa frá Reggie Willams komið Denver yfir. SA Spurs vann sinn 12. sigur í röð þegar liðið vann sigur á Tor- onto. Detroit er á miklu skriði og hðið vann 6. sigur sinn í síðustu 8 leikjum. Dcillas tapaði hins vegar 9. leik sínum í röð þegar liðið tapaði stórt fyrir Minnesota. Hakeem skoraði 46 en samt fékk Houston skell Hakeem Olajuwon lék á ný með meisturum Houston í fyrrinótt eftir að hafa misst af síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla. Hakeem fór á kostum, skoraði 46 stig, tók 19 frá- köst og átti 8 stcðsendingar en samt tapaði Houston á heimavelli fyrir Minnesota, 103-108. „Ég er ekki búinn að ná mér alveg en ég verð að sætta mig við sársauk- ann. Ég gat allavega stokkið núna og það eru framfarir," sagði Hakeem sem er meiddur í báðum hnjám. „Við spiluðum frábæra vöm gegn 3ja stiga skyttunum þeirra og þá þurftum við bara að passa að Hakeem næði ekki 50 stigum,“ sagði Flip Saunders, þjáifari Minnesota. Steve Smith var áfram í miklum ham með Atlanta. Hann skoraði 27 stig gegn Detroit og hefur gert 80 stig i þremur leikjum. Golden State vann mikilvægan sigur á Phoenix en liðið berst harðri baráttu við Sacramento og Denver um að komast í úrslita- keppnina. -GH/VS Shaquille O’Neal var í ógurlegum ham þegar Orlando vann Washington í miklum baráttuleik um helgina. Hér skorar Shaq í leik gegn LA Lakers á dögunum. Símamynd Reuter Kwan heimsmeistari Hin kínverskættaða bandaríska stúlka, Michelie Kwan, sem er aðeins 15 ára gömul, varð heimsmeistari kvenna í list- hlaupi á skautum í fyrrinótt. Hún vann Lu Chen frá Kína í miklu einvígi á heims- meistaramótinu í Edmonton í Kanada en þær fengu hæstu einkunn, 6,0, hvað eftir annaö. Irina Slutskaja frá Rússlandi varð þriðja en hin margreynda Surya Bonaly frá Frakklandi varð að sætta sig við fimmta sætið. -VS Afríkubúar bestir Afríkubúar höfðu mikla yflrburði á úr- slitamóti heimsmeistarakeppninnar í víða- vangshlaupi sem fram fór í Stellenbosch í Suður-Afríku á laugardaginn. Gete Wami frá Eþíópíu sigraði i kvennaflokki og afrískar stúlkur urðu í fimm efstu sætun- um. Paul Tergat frá Kenía sigraði í karla- flokki og þar voru afrískir hlauparar í tíu fyrstu sætunum. Tergat varði titil sinn frá því í fyrra en Wami náði titlinum af vin- konu sinni, Derartu Tulu, sem varð í fjórða sæti. -VS Óvænt á Flórída Óvænt úrslit hafa sett svip sin á Lipton- meistaramótið í tennis sem nú stendur yfir í Key Biscayne á Flórída. Thomas Muster frá Austurríki, efsti maður á heimslistan- um, tapaði fyrir Nicolas Pereira, óþekkt- um Venesúelabúa, í 2. umferð og Arantxa Sanchez Vicario, sem er þriðja á heims- lista fyrir kvenna, féll úr keppni fyrir Kar- inu Habsudovu frá Slóvakíu. Andre Agassi var rétt farinn sömu leið en hann slapp naumlega í gegnum leik gegn Bemd Kar- bacher frá Þýskalandi. -VS Svíinn sigraði Magnus Gustafsson frá Svíþjóð vann nokkuð óvæntan sigur á Evegni Kafelni- kov frá Rússlandi í úrslitaleik á opna Pét- ursborgarmótinu sem lauk í Rússlandi í gær. Leikurinn endaði 6-2 og 7-6 og Kafel- nikov, sem er sá 7. besti í heimi í dag mið- að við styrkleikalista, virtist fara á taugum frammi fyrir háværum stuðningsmönnum sínum. Gustafsson er aðeins í 70. sæti á heimslistanum en hann var frá keppni í heilt ár vegna meiðsla og hrapaði þá alla leið niður í 611. sætið. -VS ítafía Sampdoria-Atalanta ...........2-3 1-0 Balleri (43.), 2-0 Chiesa (45.), 2-1 Vieri (52.), 2-2 Morfeo (55.), 2-3 Fortunato (83.) Torino-Cagliari...............1-1 0-1 Oliveira (11.), 1-1 Rizzitelli (19.) Udinese-Inter Milano .........1-2 0-1 Fontolan (23.), 0-2 Carlos (64.), 1-2 Bierhoff (80.) Fiorentina-Juventus...........0-1 0-1 sjálfsmark (28.) Cremonese-Lazio...............2-1 0-1 Negro (46.), 1-1 Tentoni (53.), 2-1 Tentoni (83.) Vicenza-Napoli ...............3-0 1-0 Di Carlo (12.), 2-0 Murgita (21.), 3-0 Ambrosetti (35.) Bari-Padova ..................2-1 1-0 Ripa (31.), 2-0 Protti (38.) AC Milan-Parma................3-0 1-0 Baggio (42.), 2-0 Donadoni (47.), 3-0 Savicevic (71.) Roma-Piacenza.................2-1 1- 0 Delvecchio (19.), 2-0 Cappioli (25.), 2- 1 Cappellini (51.) Staða efstu og neðstu liða: AC Milan 26 16 8 2 44-17 56 Juventus 26 14 6 6 46-25 48 Fiorentina 26 13 8 5 41-24 47 Inter 26 12 8 6 34-19 44 Parma 26 11 10 5 35-25 43 Lazio 26 11 6 9 48-33 39 Roma 26 10 9 7 33-25 39 Atalanta 26 8 6 12 29-42 30 Piacenza 26 7 7 12 26-44 28 Torino 26 5 10 11 25-37 25 Cremonese 26 4 10 12 30-39 22 Bari 26 5 7 14 37-55 21 Padova 26 6 3 17 29-50 21 ítalska knattspyrnan: Staða Milan er orðin enn vænlegri en áður - vann Parma á meðan Fiorentina tapaði fyrir Juventus Meistaravonir AC Milan í ítölsku 1. deildinni í knattspymu jukust enn í gær þegar liðið lagði Parma, 3-0, og á sama tíma varð Fiorentina að láta í minni pokann fyrir meist- umm Juventus. Milan átti ekki i vandræðum meö aö innbyrða þijú stig gegn Parma. Roberto Baggio lét verja frá sér víta- spymu í fyrri hálfleik en náði að koma Milan-mönnum á bragðið þeg- ar hann skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning Savicevic. Þeir Donadoni og Savicevic innsigl- uðu siðan öraggan sigur AC Milan sem ekki virtist sakna þeirra Geor- ge Weah og Alessandro Costacurta sem eru meiddir og leika ekki á með 1 Dejan Savicevic átti stórgóðan leik með AC Milan í gær, skoraði eitt mark og lagði annað upp. liðinu á næstunni. Sjálfsmark réð úrslitum í leik Fiorentina og Juventus en Lorenzo Amoraso varð fyrir því óláni að skora í eigiö mark. Þar með tapaði Fiorentina í fyrsta skipti í 15 heima- leikjum í vetur. Juventus sýndi oft skemmtilega takta og virðist vera komið í sitt gamla form. Atalanta vann frækinn útisigur á Sampdoria eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik. Igor Protti, markahæsti leikmað- ur 1. deildar, skoraði 18. mark sitt í vetur þegar Bari vann Padova í botnslagnum, 2-1. -GH/VS Johnson á möguleika Ný niðurröðun á frjálsíþrótta- keppni ólympíuleikanna í Atl- anta gerir hinum fótfráa Michael Johnson kleift að reyna við ein- stakt afrek. Hann ætlar sér að reyna að verða fyrsti maðurinn sem vinnur bæði 200 og 400 metra hlaup á ólympíuleikum en samkvæmt fyrstu niðurröðun hefði hann ekki átt möguleika á því þar sem greinamar hefðu skarast. Riley sigraði í Portúgal Wayne Riley sigraði á opna portúgalska mótinu í golfi sem lauk í Lissabon í gær. Riley lék á 271 höggi en næstir komu Bret- amir Mark Davis og Martin Gat- es sem báðir léku á 273 höggum. -VS Bayern gegn Barcelona Stórveldin Bayem Múnchen og Barcelona mætast í undanúrslitum UEFA-bikarsins í knattspymu en dregið var til þeirra á fostudag. í hinum leiknum mætast Slavia Prag og Bordeaux. í Evrópukeppni bikarhafa dróst Deportivo Corana gegn Paris St. Germain og Feyenoord leikur við Rapid Vín. Leikimir fara fram 2.-4. og 16.-18. apríl. í Evrópukeppni meistaraliöa leikur Ajax við Panathinaikos og Juventus við Nantes. -VS Papin til Manchester Utd? Þýska sjónvarpstööin SAT 1 greindi frá því um helgina að njósnarar frá Man. Utd. hefðu að undanfomu fylgst með franska landsliðs- manninum Jean-Pierre Papin sem leikur með Bayem Múnchen. „Ég er mjög spenntur fyrir því að spila með United því þar fyrir er félagi minn, Eric Cant- ona, og það væri mikill heiður að fá að spila með einu besta liði á Englandi," sagði Papin í viðtali við SAT 1. -GH Benfica stöðvaði Porto Porto tapaði sínum fyrsta deildarleik í portúgölsku 1. deildinni í 17 mánuði þegar lið- ið varö að láta í minni pokann fyrir hinu fom- fræga félagi, Benfica. Porto, sem er úndir stjórn Bobbys Robsons, hafði ekki tapað í síð- ustu 53 leikjum sínum í deildinni eða síðan í október 1994. Þrátt fyrir' ósigurinn á Porto meistaratitilinn vísan því liðið er með 13 stiga forskot á Benfica þegar sjö umferðum er ólok- ið. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.