Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1996 Fréttir Líkur aukast á jarðskjálftum til suðurs og vesturs á Hengilssvæðinu: Hvergerðingar geyma skóna sína við rúmið „Við gerum okkar varúðarráð- stafanir hvert í sínu horni. Það er ekki nóg að taka með sér bók í rúm- ið þvi ráðlegt er að geyma skó með sólum nálægt og vasaljós í nátt- borðsskúffunni. Verði stórir skjálft- ar er hætta á slysum vegna gler- brota,“ segir Garðar Hannesson, stöðvarstjóri Pósts- og síma í Hvera- gerði. Nokkrar jarðhræringar hafa verið á Hengilssvæðinu í mars. Á stöðinni er Garðar er viðbúinn með farsíma sem gengur fyrir rafhlöðum ef aðalstöðin fer úr sambandi og segir Hvergerðinga ekki hrædda heldur vitandi um hættuna. Hann segir þá gera ráðstafanir hvern í sínu homi. „Jarðskjálftarnir eru orðnir hluti af umhverfmu eins og er hjá okkur. Við vitum að maðurinn getur ekki hamið náttúruöflin og það besta er að læra að lifa við þetta. Ég vara fólk við því að fyllast skelfíngu. Það er alltaf best að taka á málunum af yfirvegaðri ró. Ég hef ekki orðið vör við að fólk sem dvelur hjá okkur sé hrætt við þessa skjálfta," segir Jóna Einarsdóttir, gjaldkeri á Heilsuhæl- inu í Hveragerði. Fjoldi skjálfta í Ölfusi í marsmánuði Fjöldi 300 250 200 150 100 50 Ö|g|§§ iœmm ‘ 'V ipppp i pæm n - • - K’# Mp 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. mars Kortið er yfir Hengilssvæðið og Öifusið og sýnir fjölda og stærð skjálfta í marsmánuði. Jóna hefur búið í Hveragerði í mörg ár og er orðin vön jarðhrær- ingunum sem Hvergerðingar hafa búið við. „Við mælum mikið af skjálftum en flestir þeirra eru mjög smáir. Stærsti skjálftinn var 3,7 á Richterkvarða 16. mars sl. í mars hefur verið tilhneiging til þess að skjálftavirkni hafi aukist, eða frá tí- unda til sextánda mars,“ segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræð- ingur. Ragnar segir skjálftana í Hvera- gerði í mars vera framhald hrinu sem hefur verið undanfarin ár. Svona mikil hreyfing leggst sem farg á svæðið i kring og við það aukast skjálftalínur á nálægum svæðum, einkanlega til vesturs og suðurs frá Hveragerði. „Núna aukast líkur á því að eitt- hvað gerist til vesturs frá Hengils- svæðinu eða til suðurs frá Hvera- gerði. Þarna aukast líkur á skjálft- um án þess að við reiknum með stórum skjálftum á þessum svæð- um,“ segir Ragnar. -em rrrr1l • m K* ÆBk i m Hi ÆwMHHn:.. Jón Pétursson, útgerðarstjóri Fiskimjöls og lýsis í Grindavík, fyrir framan nýja síldveiðiskipið. Það er búið kældum lestum til að varðveita aflann á löngu heimstími. - DV-mynd BG Fiskimjöl og lýsi í Grindavík: Nýtt kæliskip til síldveiða „Við rekum fiskimjölsverksmiðju og markmiðið með kaupum þessa skips er að koma hráefninu heilu heim þegar langt er að sigla af mið- unum. Þetta getur munað því að hráefnið er heilt en ekki ónýtt þeg- ar heim er komið eftir tveggja sólar- hringa stím úr Síldarsmugunni og hvort úr því sé hægt aö framleiða hágæðamjöl eða ekki,“ segir Jón Pétursson, útgerðarstjóri Fiskimjöls og lýsis í Grindavík, sem hefur fest kaup á síldveiðiskipi með kælibún- aði í lestum. Skipið hefur hlotið nafnið Jón Sigurðsson og var keypt frá Skotlandi og kom til hafnar í Reykjavík sl. fóstudag. Það hét áður Kingls Cross. Kæliskip af þessu tagi er nýjung hér á landi en að sögn Jóns hafa Norðmenn, trar o.fl. verið með slíkan búnað í síldveiðiskipum undanfarin 15-20 ár. Stálsmiðjan í Reykjavík mun gera á því ýmsar breytingar og endur- bætur en síðan fer það til veiða í Síldarsmugunni í kringum 20. apríl. Skipið kostaði 360 milljónir en breytingar fyrir 20-30 milljónir verða gerðar á því. -SÁ Tveir umsækjendur um prófessorsstööu: Háskólinn ekki eftir- sóttur vegna launa „Háskólinn hefur aldrei verið sér- staklega eftirsóttur hvað varðar launakjör. Mikilvægara er að starf- ið er mjög áhugavert. Menn hafa yf- irleitt val á milli þess að vera í leið- inlegu starfi með mjög há laun eða vera í skemmtilegu starfi með lægri laun. Hérna geta menn litið á þetta sem skemmtilegt starf þó launin séu ekki til að hrópa húrra fyrir,“ segir Björn Kristinsson, deildarforseti verkfræðideildar. Aðeins tveir um- sækjendur voru um prófessorsstöðu í rafmagnsverkfræði en umsóknar- frestur rann út fyrir stuttu. Samkvæmt heimildum DV eru mánaðarlaun háskólaprófessora í kringum 140 þúsund. Yfirvinna er í sumum tilfellum af skornum skammti. Fólk sem á að baki margra ára menntun hefur í sum- um tilfellum ekki efni á að ráða sig sem prófessorar við Háskóla ísland. Jón Tómas Guðmundsson og Torfi Þóhallsson sóttu um stöðuna. Ekki er búið að ákveða hvor þeirra hreppir hana. Dómnefnd sem skipuð er aðila frá verkfræðideild, háskólaráði og ráðuneyti á eftir að koma saman og ráða ráðum sínum. Þeir meta um- sóknir og koma að því búnu með til- lögur að því hvor umsækjendanna er hæfari til starfsins. „Ég geri mér ekki grein fyrir hvort þessir umsækjendur eru færri en venjulega. Þetta er mjög mis- munandi eftir greinum," segir Edda Magnúsdóttir, forstöðumaður starfsmannasviðs Háskóla íslands. -em Akranes: Skipasmíðastöð Þ&E komin á beinu brautina DV, Akranesi: Það kom fram á aðalfundi Skipasmíðastöðvar Þorgeirs og Ellerts hf. að hagnaður félagsins fyrsta heila starfsárið nam 7,4 milljónum króna en fýrirtækið var stofnað í júlí 1994. Rekstrar- tekjur félagsins voru 253 milljónir króna en rekstrargjöld 237 milljón- ir. Hagnaður fyrir fjármagnslið, tekjuskatt, eignaskatt og afskrift- ir, var 15,4 milljónir. Aðalfundurinn var haldinn 22.mars. Á síðasta ári störfuðu að meðaltali 52 hjá Þ&E og launa- greiðslur námu 98 milljónum. í dag starfa 70 manns hjá fyrirtæk- inu. Hlutafé félagsins I árslok var 35,6 milljónir og hluthafar um ára- mót 70. Eigin fé félagsins var i árs- lok 41 milljón samanborðið við 12,2 milljónir 1994 og ákveðið var á fundinum að greiða hluthöfum 10% arð. Greiðsla arðsins fer fram með hlutbréfum. í stjórn félagsins voru kosnir Hörður Pálsson, Ingólfur Árnason og Sigurður Bragi Guðmundsson. Framkvæmdastjóri er Þorgeir Jós- efsson viðskiptafræðingur sem beinlínis hefúr unnið kraftaverk hjá fyrirtækinu. Hefur verið iðinn við að fá verkefni og fyrirtækið sér fram á góða verkefnastöðu fram á haust. Velta fyrirtækisins fyrstu tvo mánuði þessa árs er 56,7 milljónir og hagnaður 1,7 milljón. -DÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.