Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1996, Síða 2
i*v fréttir LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1996 Sighvatur Björgvinsson hefur krafist aukafundar í sjávarútvegsnefnd: Nefndin skori á Þor- stein að auka kvóta - sjávarútvegsráöherra bað um frest á utandagskrárumræðum um kvótamálið fram á mánudag „Ég hef krafíst fundar í sjávar- útvegsnefnd Alþingis á mánudags- morgun. Þar ætla ég aö leggja fram tillögu um aö sjávarútvegs- nefnd skori á sjávarútvegsráð- herra aö auka kvótann á yfirstand- andi fiskveiöiári. Annað gengur ekki eftir aö nokkrir þingmenn stjórnarliösins, þar á meðal þing- menn sem eiga sæti í sjávarút- vegsnefnd, hafa látið í ljós þá skoö- un sína aö sjávarútvegsráðherra eigi aö auka þorskkvótann í ár. íslendingar í Blackpool: Einhver glæsi- legasti árangur frá upphafi Miðvikudaginn 10. apríl urðu Davíö Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir í 2. sæti í jive- keppni fyrir 12 ára og yngri. 103 pör hófu keppni. Einnig var aðalkeppnin í stand- arddönsunum fimm í aldursflokk- unum 12-16 ára. Náöu Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Har- aldsdóttir þar bestum árangri og komust í undanúrslit, 193 danspör kepptu i þeim riöli. Aðalkeppnin í suður-amerísk- um dönsum fyrir aldursflokkinn 12-16 ára var fimmtudaginn 11. apríl og hófst kl. 15 og lauk ekki fyrr en kl. hálfeitt um nóttina. Þá | var búiö að skera niður í 8 pör sem dönsuðu úrslitin af þeim 220 pörum sem hófu keppni. íslend- ingar áttu 3 pör í þessum úrslit- um. í 1. sæti urðu Sigursteinn Stefánsson og Elísabet Sif Har- aldsdóttir, í 3. sæti Brynjar Þor- leifsson og Sesselja Sigurðardóttir og í 5. sæti Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir. Þjóðerni hinna paranna í úrslit- | um var eftirfarandi: 2. sæti Ástral- ía, 4. sæti írlandi, 6. sæti Bretland, 7. sæti Ítalía og 8. sæti Slóvenía. Þetta er einhver glæsilegasti ár- angur sem íslendingar hafa náð frá upphafi. Liibberts hvergi nærri - segir ráögjafi Frosta „Staðreyndimar i sambandi við kaup Frosta á Ragnaborg eru ein- faldlega þessar: Frosti kaupir hlutabréf í Ragnaborg af þessum mönnum sem þarna áttu í hlut og það voru bara eölileg viðskipti sem ég og mitt fyrirtæki sáum um að annast fyrir Frosta og koma Lúbberts í Þýskalandi ekkert við. Þeir voru hvergi þar nálægt á nokkum hátt.“ Þetta eru orð Jóns Atla Krist- jánssonar hjá Ráði hf. en hann vísar á bug sem fram kom í frétt DV í gær að tengsl séu á milli kvótaviðskipta Frosta og Lúbberts í Þýskalandi og kaupa Frosta á hlutafélaginu Ragnaborg sem átti húsnæði fiskvinnslu Goðaborgar á Fáskrúðsfirði. -SÁ Svo gerist þaö líka að forsætisráö- herra tekur undir þessa skoðun í blaöaviötali sem birt er í dag. Þor- steinn segir hins vegar að hann ætli ekki aö auka þorskkvótann á þessu fiskveiðiári," sagði Sighvat- ur Björgvinsson í samtali við DV. Hann sagöist hafa beðið um utandagskrárumræður um þetta mál í dag, föstudag, en sjávarút- vegsráðherra baðst undan því. „Hann ber það fyrir sig að beiðni mín sé of seint fram komin, enda þótt forseti Alþingis hafí ver- ið búinn að samþykkja umræð- una. í annan stað sagðist Þor- steinn ekki hafa haft tóm til að ræða við hagsmunaaðila áður en ákvörðun er tekin eins og lög gera ráð fyrir. Við þessu getur maður svo sem lítið gert en hins vegar hefur hann fallist á að umræðan fari fram á mánudaginn. Hann hef- ur jafnfram lofað því að vera þá ekki búinn að taka ákvörðunina um kvótann," sagði Sighvatur Björgvinsson. Hann sagðist hafa fyrir því lof- orð frá fleiri ráðherrum að ákvörðunin um kvótann, hvort sem hann verður aukinn eða ekki, verði ekki tilkynnt fyrr en eftir ut- andagskrárumræðurnar á mánu- daginn. „Það er ekki annaö hægt en fá þessa umræðu eins og málið snýr nú við eftir yfirlýsingar þing- manna Sjálfstæðisflokksins," sagði Sighvatur. -S.dór K 0 P ttrii Fyrsti varaforseti kínverska þingsins, Tian Jiyun, hefur ásamt fríðu föruneyti verið í opinberri heimsókn hér á landi að undanförnu í boði Ólafs G. Einarssonar, forseta Alþingis. Hér gengur Tian fremstur í flokki ásamt Friöriki Ól- afssyni, skrifstofustjóra Alþingis, á leið sinni um Tjörnina til fundar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra í Ráðhúsinu. DV-mynd S Anna Sigurðardóttir þolfimimeistari: Með kvikmyndatilboð ásamt Juliu Roberts - leikstjórinn hreifst af Önnu í Miss Fitness keppninni Anna Sigurðardóttir, þolfimi- kennari og margfaldur meistari í þolfimi, hefur undir höndum tilboð um að leika eitt aðalhlutverkanna i stórri kvikmynd, Crime of Love, sem framleidd verður i Þýskalandi en með ensku tali. Leikstjóri mynd- arinnar, sem er túnisk-ítalskur, sá Önnu í Miss Fitness keppninni á sjónvarpsstöðinni Eurosport og hreifst mjög af henni. Hin heims- þekkta leikkona Julia Roberts hefur sömuleiðis tilboð um að leika eitt aðahlutverkanna í myndinni. Anna vildi lítið tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hana. Hún staðfesti að hún heföi fengið tilboðið og væri að skoða það. Þetta hefði borið mjög skyndilega að og leikstjórinn viljað ganga frá málinu strax. Hún vildi hins vegar hugsa sig vel um áður en einhverjar ákvarðanir væru tekn- ar. Crime of Love er fyrsta stóra kvikmynd leikstjórans, Mabrouk Melitti, og fyrirhugað að dreifa henni um all- an heim. Mabrouk hyggst leika eitt aðahlut- verkið sjálfur. Þetta er spennumynd með róman tísku ívafi og Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já jJ Nel 2] ,r ö d d FOLKSINS 904-1600 Á Friðrik Sophusson að fara í forsetaframboð? fangelsi eftir margra ára vist sem saklaus dæmdur maður. Hann hyggst setja upp söngleik og kynnist þá ungri konu, sem Önnur er ætlað að leika, og verður ást- fanginn af henni. Inn í spilið kemur miðaldra forrík koija sem fjár- magnar söngleikinn og verður hún ástfanginn af manninum. Þá konu mun Julia Roberts að öllum lík- indum leika. Kvimyndin fær síðan mjög dramtísk- an endi. bjb segir frá manni sem kem- ur úr Anna Sigurðardóttir þolfimimeistari er með tilboð um að leika í stórri kvik- mynd. Tilboðið kom eftir að leikstjórinn sá hana á Eurosport í Miss Fitness keppninni. Slógu og spörkuöu í rútubílstjóra Nokkrir piltar fóru inn í rútubíl sem stóð við Engihjalla í Kópavogi í gær og réðust þar að bílstjóranum með höggum og spörkum. Piltarnir hugðust setjast undir stýri en þegar bíl- stjórinn aftraði þeim ffá því skipti engum togum að þeir réð- ust að honum, slógu í hann og spörkuðu. Piltarnir fóru síðan í burtu. Lögreglan kom á vettvang og var bílstjórinn fluttur á slysa- deild. Málið er í rannsókn en lögreglan hafði í gærkvöldi upplýsingar um a.m.k. hver einn piltanna er. -Ótt Bannað áð reikna tekjur Fjármálaráðuneytið hefur með reglugerð bannað úr- vinnslu og birtingu upplýsinga úr álagningar-, virðisauka- og skattskrám. Fjármálaráðherra sagði á Stöð 2 í gærkvöld að reglugerðin yrði endurskoðuð. Forysta Blaðamannafélags ís- lands telur að með reglugerð- inni hafi fjölmiðlum verið bannað að reikna tekjur manna upp úr skránum, eins og m.a. hefur tíðkast í ÐV. Banninu hefur verið mótmælt harðlega. -GHS Viðurkenndu fjársvik og skjalafals Þrír menn viðurkenndu í gær flársvik og skjalafals með því að hafa gefið út og falsað ávísanir úr stolnum heftum með nafni eins þeirra og annars óviðkomandi fólks að undan- fórnu í lögsagnarumdæmi lög- reglunnar á Selfossi. Þeir voru handteknir á heimili eins þeirra í Hveragerði á fimmtu- dagskvöld en tveir mannanna eru úr Reykjavik. Sjö ávísanir, að upphæð 2-20 þúsund krónur, höfðu borist lögreglunni í gær og er ekki talið útilokað að svikin séu meiri. Þremenningarnir notuðu tékkana í viðskiptum við versl- anir, veitingahús og fleiri. Stolnu heftin eru talin koma frá Reykjavík. Tveir mannanna eru 23 ára en einn er rúmlega þrítugur. Að sögn rannsóknarlögreglunnar á Selfossi hafa þeir allir komist í kast við lögin áður. -Ótt stuttar fréttir Flóki áminntur Ragnar Fjalar Lárusson pró- fastur hefur áminnt sr. Flóka Kristinsson vegna ummæla hans rnn Jón Stefánsson org- anista í þættinum Þriðja manninum á rás 2 á dögunum. Viðræður út um þúfur Viðræður Rússa, Norð- manna, íslendinga og Færey- inga í Moskvu um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofnin- um fóru út um þúfur í gær eft- ir að Rússar kröfðust kvóta til jafns viö íslendinga. Nýr fund- ur hefur ekki verið hoðaður. Fangelsi lokað Stjórnvöld hafa ákveðið að loka Síðumúlafangelsinu. Fangar í gæsluvarðhaldi verða vistaðir í öryggisálmu Litla- Hrauns. Stöð 2 greindi frá. Stöð 2 kaupir hús Islenska útvai-psfélagið hef- ur keypt hús, sem þaö hefur haft á leigu, af Plastosi hf. og eru Stöö 2 og Bylgjan þá komn- ar í eigið húsnæði. Útvarpið sagði frá. -bjb/GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.