Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Side 3
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1996
3
Fréttir
Sænskt par til Grindavíkur:
Ætlar að giftast
! við eld í hofi Urðar
DV, Suðurnesjum:
„Það er orðinn árviss viðburður í
Grindavík að fagna lífi og yl sólar
með hátíð 21. júní en þá er sól hæst
á lofti. Gifting verður i hofinu sem er
í gamla hverfinu. Parið kemur frá
Svíþjóð - Hugrún Guðmundsdóttir
og Bengt Bengtson og athöfnin fer
fram við eld í hofi Urðar,“ sagði
Tryggvi Gunnar Hansen í samtali
við DV. Hann er þekktur fyrir hof
sín í Grindavík.
Þetta er önnur slík gifting í
Grindavík - áður í hofi jarðar og
mánagyðjunnar. Tryggvi Gunnar og
Sigríður Vala Haraldsdóttir voru gef-
in saman á náttúrunnar jólum um
vetrarsólhvörf 22. desember 1995.
Giftingin nú verður kl. 18 hinn 21.
júní og eftir giftingarathöfnina verð-
ur gengið i sólarvé og kveiktur eld-
ur. Síðan verður ljóðasöngur og
hljómsveitin Seiðbandið leikur og
syngur. Uriel West transdansari
dansar og leiðir dans.
„Eftir dansinn verður gengið á
íjallið Þorbjörn og sungið við mið-
nætureld. Um miðnætti verður farið
í Bláa lónið og fólk fær þar bláan
drykk til hressingar. Til að upplifa
sumarsólstöður á sólarhátíð Grind-
víkinga kemur fólk frá vinabæ
Grindavíkur, Penistone á Englandi,
sérstaklega til íslands á hátíðina,"
sagði Tryggvi. ÆMK
f Smásagnakeppnin Tígrapenninn ’96:
Fjölmenni við
verðlaunaafhendinguna
Eftirlitsmenn á herstöðinni í Keflavík:
Ekki ólíklegt
að Rússarnir komi
- segir sérfræðingur um málefni NATO
„Það er ekki ólíklegt eins og
stefna NATO er nú að hingað komi
rússneskir eftirlitsmenn eða tengi-
liðir og fái þá að vera í herstöðinni
við Keflavíkurflugvöll. Ég er sann-
færður um að þetta getur orðið
veruleiki innan ekki langs tima svo
framarlega sem þróunin í Rússlandi
snýst ekki algerlega við,“ sagði
Þórður Ægir Óskarsson, sérfræð-
ingur í málefnum NATO á íslandi.
Vangaveltur hafa verið á lofti um
hvort rússneskir eftirlitsmenn fái
að vera á herstöðinni á Keflavíkur-
flugvelli eftir fund varnarmálaráð-
herra Evrópu í Brussel í síðustu
viku. Þar var samþykkt tillaga
Bandaríkjamanna um að NATO og
Rússar fengju að skiptast á verkefn-
um á herstjórnarsvæðum hver ann-
ars. Var það gert m.a. í þeim til-
gangi að efla traust þama á milli.
Ekkert hefur enn verið ákveðið
hvernig þessi tilhögun verður en
líklegt er að unnið verði að því á
næstunni.
„Mér skilst að ekkert meira hafi
verið ákveðið og þetta er því allt á
grunnstigi. Eins og ég held að stað-
an sé núna þá er aðallega verið að
hugsa um að Rússar fái að koma
inn hjá yfirherstjórn NATO í Evr-
ópu sem er staðsett í Mons í Belgíu.
NATO fengi þá á móti að senda sína
menn til Rússlands. Fyrst í stáð
verður þetta á efstu stigunum en
síðan tel ég vissulega möguleika á
að farið verði á önnur svæði eins og
Keflavík. Þetta er skritin tilhugsun
og það hefði engin spáð þessu fyrir
stuttu en þróunin er svo ör og breyt-
ingarnar miklar.
Ég á ekki von á því að íslensk
stjórnvöld muni skipta sér af því þó
að hingað kæmu rússneskir tengil-
iðir. Ef þetta er samþykkt NATO þá
erum við auðvitað aðilar og þátttak-
endur í bandalaginu. Auðvitað yrði
þetta aldrei leyft í óþökk við íslensk
stjórnvöld en ég sé ekki að þau ættu
að mótmæla þessu ef NATO sam-
þykkir þetta,“ sagði Þórður Ægir
Óskarsson. -RR
Hafrannsóknastofnun:
Fjölmenni var í Kringlunni í gær
þegar verðlaun í smásagnakeppnin-
inni Tígrapenninn voru afhent.
Þátttakendur áttu að skrifa smá-
sögu um Tigra í umferðinni en
Tígri er lukkudýr Krakkaklúbbs
DV. Þátttakan var mjög góð, um
2000 sögur bárust í samkeppnina.
Allir þátttakendur fá að gjöf tei-
naglit á reiðhjólið sitt. Tígrabók
verður gefin út í haust með 50 sög-
um sem valdar voru. Höfundar
þeirra voru verðlaunaðir með
I Tígrapenna en af þessum 50 voru
svo valdir 12 úr fjórum aldursflokk-
um sem verðlaunaðir voru sérstak-
£ lega með hjólreiðahjálmi. í dóm-
nefnd sátu Sigríður Sigurðardóttir,
Halldóra Hauksdóttir, Björk Brynj-
ólfsdóttir frá DV og Guðmundur
Þorsteinsson frá Umferðarráði. Þeir
sem fá smásögu sína um Tígra í um-
ferðinni birta á bók eru: Aðalbjörg
Guðmundsdóttir, Andrea Ágústa
Aðalsteinsdóttir, Ama Helgadóttir,
Ásdis Inga Höskuldsdóttir, Atli Sig-
urðsson, Birgir Steinn Einarsson,
Bylgja Lind Pétursdóttir, Erla Lind
Friðriksdóttir, Eydís Einarsdóttir,
Guðni Páll Pálsson, Guðrún Inga Jó-
hannesdóttir, Guðrún Stella Ágústs-
dóttir, Hannes Þór Halldórsson,
Haraldur Helgi, Haukur Þórðarson,
Heiða Jónsdóttir, Hildur Guðbergs-
dóttir, Hjalti Heiðar Jónsson, Hjör-
dís Alda Hreiðarsdóttir, Hjördís Pét-
ursdóttir, Ingibjörg Anna Ingadótt-
ir, Ingunn Sigurpálsdóttir, Jóhann
Reynir Gunnlaugsson, Jóhanna Sig-
ríður Sveinsdóttir, Jón Óli Helga-
son, Kristín Magnúsdóttir, Kristrún
Kristófersdóttir, Linda Rós Reynis-
dóttir, Logi Fannar Sveinssan,
Magnús Jón Ámason, Margrét Jóna
Þórarinsdóttir, Matthías Öm Frið-
riksson, Ólafur Davíð Bjarnason,
Ólöf Dís Magnúsdóttir, Ragnheiður
Gyða Ragnarsdóttir, Sandra Ösp,
Sigfús Heiðarsson, Sigriður Katrín
Magnúsdóttir, Sigríður Klara Sig-
fúsdóttir, Sigrún Antonsdóttir, Sig-
rún Jóhannsdóttir, Sindri Gunnar
Björnsson, Sonja Kristín Kjartans-
dóttir, Stefán Daði, Sunna Axels-
dóttir, Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir,
Tinna Guðbjartsdóttir, Unnur Björk
Gunnlaugsdóttir, Unnur Lilja Þóris-
dóttir og Þorvaldur Halldórsson.
-saa
Hér má sjá Tígra afhenda verölaun í smásagnasamkeppninni.
DV-mynd ÞÖK
Akranes:
Gjaldtaka fyrir
undirleik
DV, Akranesi
Um allmörg ár hefur verið sá hátt-
ur hafður á við útfarir sóknarbarna á
Akranesi að kostnaður við grafar-
tekt, þjónustu prests, organista og
sönghóps hefur auk útfararþjónust-
unnar verið greiddur af kirkjugarðs-
gjöldum.
Þetta var gert að tilhlutan sóknar-
nefndar og var sjónarmiðið að svo
lengi sem löggjafinn léti þetta óátalið
og tekjur kirkjugarðsins nægðu væri
eðlilegt að þær væru nýttar til þess
að standa undir þessum kostnaði þó
útfararstjórn,
ogsöng
að lög gerðu ekki ráð fyrir þvi.
Á síðustu árum hafa kirkjugarðs-
gjöld verið stórlega skert með ítrek-
uðum stjórnvaldsaðgerðum og er svo
komið að þau standa ekki lengur
undir víðtækari þjónustu en lögin
leggja þeim í hendur. Því hefur sókn-
amefnd Akraneskirkju séð sig til-
neydda að taka þá ákvörðum 1. júlí
að tekin verði upp gjaldtaka við út-
fararstjórn, undirleik og söng við út-
farir en kirkjugarðssjóður mun sem
hingað til greiða fyrir grafartekt og
laun sóknarprests við útfarir sóknar-
barna á Akranesi. -DÓ
Brottkast á fiski lítið í tonnum taliö
Hafró leitar eftir samstarfi við sjómenn um brottkast á fiski
„Við höfum lýst eftir samstarfi
við sjómenn síðasta árið til að ná
utan um hve miklum fiski er hent á
miðunum við ísland," sagði Ólafur
Karvel Pálsson, fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun sem kannar
nú brottkast á fiski. Hafrannsókna-
stofnun hefur heitið fullum trúnaði
við sjómenn og trúnaðarmenn
verða sendir um borð í skip til að
mæla allt sem hent er. Þá eru skip-
stjórar hvattir til að breyta ekki
veiðimynstri sínu til að sem best
mynd fáist af brottkastinu.
Nokkur reynsla er komin á þess-
ar mælingar Hafrannsóknastofnún-
ar og samkvæmt þeim virðist brott-
kast vera frekar lítið í tonnum talið.
„Endanlegar niðurstöður eru ekki
komnar fram í dagsljósið. Það er
mjög erfitt að segja til um brottkast
á netabátum þar sem lítið hefur ver-
ið mælt um borð í þeim,“ sagði Ólaf-
ur Karvel. -RR
I tilefni
Skemmtilegur
kaupbætir!
2x240 mín. myndbandsspólur ásamt 20 mín.
spólu af sprenghlægilegum íþróttamistökum.
L 1« jPi.WPii.TfHTÍ
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
Umboðsmenn um land allt.
TIL 24 MÁNAOA
PHILIPS
VR657
6 hausar, Nicam
stereo, NTSC og
S-VHS afspilun, Sp/Lp,
autotracking,
sjálfhreinsibúnaöur,
Index leittmarkerfi.
Verð stgr.:
S>HIU»5
'1 1 PHILIPS 2 myndhausar,
/ VR151 Auto-tracking,
sjálfhreinsibúnaður.
Verö stgr.: