Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ1996
Spurningin
Hvað finnst þér skemmti-
legast að elda?
Kristrún Halla Helgadóttir há-
skólanemi: Pasta, það er svo auð-
velt.
Árni Júlíusson þjónn: Ég elda
aldrei því ég vinn á hóteli.
Kristín Jóhannesdóttir húsmóð-
ir: Hænur, það er í uppáhaldi hjá
barnabaminu.
Halldór Guðmundsson: Humar og
ýmsa sjávarrétti.
Guðmundur Oddur Magnússon,
teiknari: Baunasúpu.
Vala Margrét Grétarsdóttir: Mér
bara finnst ekkert gaman að elda.
Lesendur
Gildi skoðana-
kannana
Jens P.K. Jensen skrifar:
Þeir kjósendur sem ætla að kjósa
frambjóðenda, er fyrirsjáanlega mun
lenda i einu af þremur neðstu sætun-
um- viku til tveimur dögum fyrir
kjördag (samkvæmt könnunum),
geta ályktað sem svo að atkvæði
þeirra komi ekki til meö hafa áhrif á
niðurstöðu kosninganna. Þessi full-
yrðing á þó einungis við þegar fylg-
ismunur tveggja efstu forsetaefn-
anna og hinna er mikill, eins og nú
virðist ætla að verða raunin á.
Reynslan frá síðustu kosningum
sýnir (sjá DV 11.06. sl.) að því nær
sem dregur kjördegi þeim mun ná-
kvæmari eru niðurstöður skoðana-
kannana. Svo nákvæmar að kjósend-
ur geta með réttu tekið þær gildar.
Þessir kjósendur, stuðningsmenn
Ástþórs, Guðrúnar A. og Guðrúnar
P., verða því að gera upp við sig
hvorn af tveimur efstu frambjóðend-
unum þeir vilja, sem forseta, vilji
þeir í raun hafa áhrif á hver verður
kosinn. Valið stendur þannig séð
ekki milli allra frambjóðendanna,
heldur einungis milli þeirra tveggja
efstu.
Nái minn maður, valkostur A,
ekki að blanda sér í toppbaráttuna á
síðustu dögunum fyrir kjördag verð
ég að kjósa annan af liklegum sigur-
vegurunum vilji ég hafa bein áhrif
með atkvæði mínu. Stuðningsmenn
Ástþórs, Guðrúnar A. og Guðrúnar
P. myndu því samkvæmt þessu
verða að ákveða hvorn þeir vildu
heldur, sem valkost B, Ólaf Ragnar
eða Pétur. Bregðist þessir kjósendur
svona við má fastlega gera ráð fyrir
því að næsti forseti íslands verði
kosinn með hreinum meirihluta. Þá
má einnig líta þannig á málið að ein-
ungis þessi hópur kjósenda, þ.e. nú-
verandi stuðningsmenn Ástþórs,
Guðrúnar A. og Guðrúnar P., komi
til með að geta breytt niðurstöðu
kosninganna þann 29. júní nk., frá
því, sem skoðanakannanir sýna nú.
Haldi þeir sig hins vegar við „sína
frambjóðendur" er næsta víst að nið-
urstaða kosninganna er þegar ráðin
og þá með þeirra samþykki. Það út
af fyrir sig er líka ákveðin afstaða.
Þetta sýnir að núverandi kosning-
afyrirkomulag þvingar okkur til að
taka skoðanakannanir með í reikn-
inginn. Þær öðlast því mun meira
gildi en ella, og e.t.v. meira en æski-
legt er væri kosið í tveimur umferð-
um. Skoðanakannanir fyrir forseta-
kosningar á íslandi koma þannig að
nokkru leyti í stað fyrri umferðar
kosninga eins og tiðkast i öðrum
löndum. Engu að síður búum við ís-
lendingar við þessa staðreynd en get-
um með þessum hætti „aðlagað"
okkur að kosningakerfinu.
„Valið stendur þannig séð ekki milli allra frambjóðendanna, heldur einungis milli þeirra tveggja efstu,“ að mati bréf-
ritara.
Nýstárleg aðferð
Soffía Bjömsdóttir skrifar:
Það er sagt um sérlega óskamm-
feilna menn að þeir séu reiðubúnir
til að selja ömmu sína til að ná fram
sínu. Líklega hefur engum dottið í
hug að menn geti veriö svo bíræfn-
ir að hægt væri að segja um þá að
þeir væru tilbúnir að selja mömmu
sína. Þetta datt mér þó í hug þegar
Ólafur Ragnar útskýrði hvers vegna
hann tryði á guð. Dró hann veikindi
móður sinnar, er hann var ungur,
fram til að sýna fram á trú sína.
Þetta gerði hann fyrst í sjónvarps-
þætti. Ekki hefur honum fundist
nóg að slá fram óskilgreindum veik-
indunum því í útvarpsþætti á Bylgj-
unni tók hann til við nánari lýsing-
ar. Hvemig móðir hans hefði verið
hoggin vegna berklanna, lýsingar af
honum sjálfum við dánarbeðið
o.s.frv.
Ég á ekki orð til að lýsa hneyksl-
an minni á svona kosningabaráttu.
Annars vegar vegna þess að ég hef
ekki heyrt að annað kristið fólk út-
skýri af hveiju það trúi. Ég tii dæm-
is trúi bara. Hins vegar að draga
látna móður sína í sölumennsku
framboðs síns er óneitanlega ný-
stárleg aðferð en ekki að mínu
skapi.
Leitið, lesið og þér munuð finna
Svandís Ásta Jónsdóttir skrifar:
Nú um nokkurt skeið hef ég ver-
ið að fylgjast með forsetaframbjóð-
endunum. Þar finnst mér Ástþór
Magnússon skara fram úr.
Ég hef lesið bókina Virkjum
Bessastaði. Ástþór kemur þar fram
með mjög merkilegt rit sem er mjög
heillandi lesning. Bókin vekur upp
margar spurningar um það hvert
við stefnum. Ég sem lítil mannvera
get byrjað á að kjósa hann og reynt
að fá aðra til að gera slíkt hið sama.
þjónusta
í síma
5000
ikl. 14 og 16
„Astþór Magnússon hefur sýnt mér og sannað að hann er verðugur maður
sem fer eftir sinni sannfæringu í einu og öllu,“ segir bréfritari m.a.
Hafið þið, kæru lesendur, lesið
bækurnar Virkjum Bessastaði, Hin
mikla arfleifð íslands eftir Adam
Rutherfors, Spádómarnir miklu og
Framtíðarsýnir sjáenda sem eru
þýðingar Guðmundar S. Jónassonar
á ritum Nostradamusar og öðrum
merkilegum spádómum annarra
sjáenda? Einnig má telja rit Edgars
Cayce, Svo uppsker maðurinn sem
hann sáir og Dálestrar á Jesú
Kristi, og Opinberunarbók Jóhann-
esar.
Eftir lestur minn á þessum stór-
merkilegu ritum trúi ég að við ís-
lendingar þurfum að efla hugsjónir
okkar afar mikið.
Þess vegna þurfum við sterkan og
hugrakkan þjóðarleiðtoga sem getur
leitt okkur inn á nýjar brautir.
Atvinnuleysið
mest í
Reykjavík
Jónína skrifár:
Samkvæmt fréttum í fjölmiðl-
um hefur atvinnuleysið minnk-
að meira úti á landi en hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Ég þekki tals-
vert af atvinnulausu fólki hér.
Það er flest fjölskyldufólk og
kannski er maki þess í vinnu
hér. Ekki getur þetta fólk farið
út á land þó að þar bjóðist vinna.
Stundum heyrist nefnilega
sagt að fólki hér sé ekki vorkunn
ef þaö er atvinnulaust þar sem
vinnu sé að hafa í fiski úti á
landi. Hvað verður um fjölskyld-
una ef annað foreldri til dæmis
fer út á land að vinna?
Oft á tíðum er þessi vinna líka
ótrygg og tímabundin þannig að
það er mikil áhætta að flytjast
búferlum með flölskylduna
vegna hennar.
Gullleit
á íslandi
Aðalsteinn Jónsson skrifar:
Ég hef fylgst með fréttum af
fyrirhugaðri gullleit á íslandi.
Einhvex-ra hluta vegna er ég
ekki bjartsýnn á það ævintýri.
Ég man eftir þegar leitað var
hvað ákafast að gullskipi á
Skeiðarársandi.
Einhvem veginn hef ég á til-
finningunni að lítið firmist af
gullinu. Bei’gið hér á landi er
fremiu’ ungt og eftir því sem ég
hef heyrt er helst að gull finnist
í gömlu bergi.
Spennandi
kosninganótt
Guðríður hringdi:
Samkvæmt skoðanakönnun-
um minnkar það forskot sem
Ólafur Ragnar Grímsson hefur
haft á aðra frambjóðendur í
slagnum um forsetastólinn. Ég
hef á tilfinningunni að stuðn-
ingsmenn Pétms Kr. Hafstein
séu að ná ái’angri í því að koma
í veg fyrir að Ólafur Ragnar nái
kjöri.
Þessi þróun gæti orðið til þess
að við fengjum spennandi kosn-
inganótt. Það er miklu skemmti-
legra en ef úrslitin eru vituð fyr-
ir fram.
Brú yfir
Elliðavoginn
Ásta Sigurðardóttir hringdi:
Nú er verið að breikka vegiim
í Ártúnsbrekkunni og er ekkert
nema gott um það að segja svo
langt sem það nær. Mín skoðun
er samt sú að betra hefði verið
að byija á að gera brú yfir El-
liðavoginn. Siðan hefði þurft að
leggja hraðbraut með sjónum, að
minnsta kosti upp að Þingvalla-
vegi. Nú er orðið erfitt um vik
meö þá framkvæmd þar sem
búið er að skipulegga íbúðar-
byggð alveg niður að sjó neðan
við Korpúlfsstaði.
Fólk ótrúlega
fljótt að
gleyma
Ágústa hringdi:
Ég hef verið að fylgjast með
skoðanakönnunum þeim sem
birst hafa undanfarið um fylgi
forsetaframbjóðendanna. Mér
finnst alveg ótrúlegt hve fólk er
fljótt að gleyma - að um fjörutíu
prósent þjóðarinnar skuli ætla
að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson.
Mér finnst að forsetinn eigi að
vera flekklaus maður eða kona
sem þjóðin getur fylkt sér um.
Einhver sem sýnt hefur sann-
gimi og drengskap í samskiptum
við aðra menn.
Það finnst mér Ólafur Ragnar
ekki hafa gert.