Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ1996 41 Brúðarpar DV á lokasprettinum í kaupum úr smáauglýsingunum: Valdi Hallgrímskirkjuna því að gólfið er svo langt - segir Jara sem þegar er byrjuð að hanna brúðarkjólinn Einar og Jara eiga nú eftir aö kaupa fyrir um þriðjung þess fjár sem þau fengu frá DV til þess aö kaupa eitthvaö í búiö í gegnum smáauglýsingar DV. Þau hjónaleysin eru ánægö í nýju íbúöinni og hafa undanfarna daga -verið aö kaupa úr smáauglýsingunum þaö sem vantar inn í hana. DV-myndir GS séu þau að reyna að hnýta- sem flesta lausa enda. Einar vinnur nú sem flugþjónn en hefur sett stefn- una á flugmanninn. Hann er at- vinnuflugmaður og þarf að safna sér sem flestum flugtímum til þess að eiga meiri möguleika á starfi flugmanns næst þegar slíkt starf verður auglýst. Hún hefur líka haft nóg að gera í starfi sínu hjá vátrygg- ingafélaginu Skandia. Þau þurfa þó bæði að gefa sér tima til þess að láta prenta boðskort, unnin af graflsk- um hönnuði, og spjalla við org- anista um lagaval í kirkjunni. Einar mun líklega leigja sér nýja íslenska þjóðbúninginn fyrir athöfnina en Jara hefur, ásamt Guðbjörgu Ant- onsdóttur, hafist handa við að hanna og sauma brúðarkjólinn. Blúndulegur kjóll „Ég fór í fyrstu alvöru mátunina í vikunni og þetta fer að verða voða- lega spennandi. Kjóllinn verður íburðarmikill og frekar gamaldags. Ég er ekki mikið fyrir það sem er vinsælast í dag og vil fá nokkurs konar prinsessukjól með löngum slóða,“ segir Jara. Hún segir að at- höfnin fari fram i Hallgrímskirkju. „Mér finnst viö vera búin aö kaupa svo margt aö undanförnu en samt er svo mikiö eftir. Þetta hefur veriö ótrúlega drjúgt og ég er ánægöust meö hvaö fólk er í raun aö selja vel meö farna hluti,“ segir Jara Guönadóttir. Brúökaups- dagurinn nálgast og á svip Jöru og Einars er ekki annaö aö sjá en allt sé í lukkunnar velstandi. Og nýja boröstofu- borðiö lítur mjög vel út. „Það hefur viljað brenna við að fólk haldi að þetta sé allt í plati, bæði það að við séum í alvörunni að kaupa þessa hluti og eins það að við ætlum að gifta okkur. Ég hef t.d. verið spurð hvað sé með þennan þurrkara, hvort ég sé í alvöru með hann heima hjá mér? Ég bauð við- komandi strax í heimsókn til þess að skoða hann,“ segir Jara Guðna- dóttir, konan í lifi Einars Sigurðs- sonar. Þau skötuhjú eru brúðarpar DV og ganga í það heilaga 17. ágúst næstkomandi. Af því tilefni gefur DV þeim 300 þúsund krónur til þess að kaupa það sem þau vantar úr smáauglýsingum blaðsins. Þau hafa tekið góða skorpu í kaupunum að undanfornu en enn eiga þau eftir að kaupa fyrir um þriðjung fjárins. Ótrúlega drjúgt „Mér fmnst við vera búin að kaupa svo margt að undanfornu en samt er svo mikið eftir. Þetta hefur verið ótrúlega drjúgt og ég er ánægðust með hvað fólk er í raun að selja vel með farna hluti. Fyrir fram bjóst ég við að rekast á meira af gömlum hlutum en þetta hafa verið mjög vel útlítandi og góðir munir sem okkur hafa staðið til boða.“ Aðspurð eftir hverju þau séu að svipast þessa dagana segir Jara þau líklega vera búin að finna hiliusam- stæðu í stofu, þau vanti hillur und- ir möppur í bókaherbergið og þau langi í pottaplöntur og garðhús- gögn. „Við ætlum að smíða sólpall fyrir utan nýjar dyr út úr stofunni og við þyrftum eiginlega að eignast að minnsta kosti tvo stóla til þess að hafa þar úti, já og kannski borð,“ segir Jara og bætir við að hún sé mjög ánægð með breytingarnar á smáauglýsingunum í blaðinu og henni fmnist þær mun aögengilegri nú en áður. Mun fljótlegra sé nú að finna það sem leitað sé að. Kjóllinn hannaður Jara segir undirbúninginn fyrir brúðkaupið aftur vera að fara á fullt. Hann hafi legið niðri meðan á flutningunum í nýja húsið stóð en þrátt fyrir miklar annir hjá Einari Er einhver sérstök ástæða fyrir því? „Gólfið í kirkjunni er svo langt og ég vil taka mér góðan tíma til þess að ganga inn kirkjugólfið. Maður gerir þetta vonandi bara einu sinni og þess vegna vil ég að kjóllinn njóti sín og að ég fái að njóta þess að ganga þessa leið inn í hjónabandið. Þetta verður dagurinn okkar og mig langar ekki til þess að hlaupa upp að altarinu í einhverjum flýti,“ seg- ir Jara Guðnadóttir. Þau hjónaleysin munu halda áfram að leita að hlutum í gegnum smáauglýsingar DV og reikna með að þau muni reyna að finna það sem upp á vantar á næstu dögum. Það er þvi full ástæða til þess að hvetja fólk til þess að kíkja í kompur og geymslur eftir því hvort ekki sé þar eitthvað sem þau kynni að vanta. Það má vera allt milli himins og jarðar. -sv Jara og Einar: Bogmaður og fiskur Jarþrúður Guðnadóttir, 24 ára bogmaður, og Einar Sigurðsson, 26 ára fiskur, eru brúðarpar DV eins og lesendum ætti að vera kunnugt. Þau kynntust þegar þau störfuðu bæði hjá flugfélaginu Atlanta, hann sem flugþjónn, hún sem flug- freyja. Ástin kviknaði í Jeddah í Sádi- Arabíu og þau hafa nú búið saman í þrjú ár. Þar tfl fyrir skömmu bjuggu þau i foreldrahús- um en eru nýflutt inn í eigið hús- næði. Það innrétta þau nú þessa dagana meðal annnars með hús- gögnum keyptum í gegnum smá- auglýsingar DV. Jara og Einar ganga upp að alt- ari Hallgrímskirkju 17. ágúst næst- komandi og þar mun sr. Guölaug Helga Ásgeirsdóttir gefa þau sam- an. -sv AMNLANN BELTAGRÖFUR BREMSUR! * Klossar * Borðar * Diskar * Skálar RENNUM! skálar og diska allar stæröir. Allar álímingar ÁLÍMINGAR Smiðjuvegi 20 (græn gata), sími 567-0505 Til afgreiðslu nú þegar: B19 (2tonn) og B08 (0,8tonn). TILBOÐ: STÓRLÆKKAÐ VERÐ. v Skútuvogi 12A, s. 581 2530 GabrkjM Borgartúni 26, Reykjavík Bíldshöfða 14, Reykjavík Skeifunni 5, Reykjavík Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.