Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
íyndbðnd »
OMpaihf
Ú\1 Íij]JíJ ÍJÍ VDjJJJÍJJJJ
Mexíkóski leikstjórinn Robert Frumkvöðull þessa stíls er J(
RnHricnioc uatfi miUla nfhvali mpfl Wnn cnm hpfnr pprt frpmnr
Mexíkóski leikstjórinn Robert
Rodrigues vakti mikla athygli með
hinni hræódýru E1 Mariachi árið
1992. Hún var gerð fyrir aðeins 7.000
dollara, sem jafiivel hér á klakanum
þykir skítur og kanill, en Rodrigues
tókst að búa til afar sérstaka og
smellna mynd. Samkvæmt hans eig-
in orðum var upprunalega hugmynd-
in sú að taka einhverja aumingjaleg-
ustu persónuna í mexíkanskri menn-
ingu, náungann sem syngur tragísku
ballöðumar og það allt, og gera hann
að hetjunni í hasarmyndaseríu. Hver
mynd yrði nýtt lag í söngbókinni
hans. Sú fyrsta reyndist of skemmti-
leg og komst út í heim.
Myndin jók álit manna á honum í
Bandaríkjunum og samstarf hans og
bandaríska kvikmyndarisans Colum-
bia gerði honum kleift að gera
Desperado, þar sem aðalsöguhetjan
er sú sama, en hefur misst sakleysi
sitt og er orðinn sannkallaður hefnd-
arengill. Myndin gerist í mexíkönsk-
um bæ þar sem svartklæddi farand-
söngvarinn kemur með gítartösku
fulla af vopnum að leita eiturlyfja-
kóngsins Bucho sem drap ástina
hans.
Nýi stíllinn
Myndin er boðberi hins nýja
hasarmyndastíls sem m.a. sést í
myndum eins og Strange Days,
The Crow og Barb Wire, þar sem
ekki skiptir öllu máli að söguþráð-
urinn haldi vatni. Menn eru farnir
að gera sér grein fyrir því að raun-
veruleikinn er óþarfi í afþreying-
armyndum en hægt er að gefa
þeim listrænt gildi með góðum stíl-
brögðum. Það er því stíllinn sem
skiptir meginmáli í hinni nýju
kynslóö hasarmynda, þótt ekki
megi gleyma fallega fólkinu og
hnyttnu tilsvörunum t.d. Persónu-
sköpunin er í ætt við teiknimynda-
söguhefðina, enda eru sumar
myndirnar byggðar á teiknimynda-
sögum, og hasarinn rennur í sama
farveg, ýktur og yfirgengilegur en
vandlega skipulagður með tilliti til
stílbragða og verður fyrir vikið
listilega sjónrænn ofbeldisballet.
Frumkvöðull þessa stils er John
Woo, sem hefur gert fremur til-
þrifalitlar myndir í Hollywood, en
stórkostlegar ofbeldisorgíur í Hong
Kong og hefur hann haft mikil
áhrif á hina nýju kynslóð ungra
leikstjóra. Þá hefur MTV tónlistar-
stöðin haft sín áhrif og má sjá þau
meðal annars í hröðum klipping-
um og aukinni áherslu á tónlist.
Leikstjórar og framleiðendur eru
farnir að átta sig á því að sjón- og
hljóðrænu þættirnir skipta höfuð-
máli.
Einvalalið leikara
Antonio Banderas leikur aðal-
hlutverkið, farandsöngvarann sem
skipt hefur gítarnum út fyrir byss-
ur. Þetta er fyrsta aðalhlutverk
Banderas í bandarískri mynd en
hann hafði áður verið í aukahlut-
verkum í myndum eins og Phila-
delphia og Interview With the
Vampire en fyrsta mynd hans í
Bandaríkjunum var Mambo Kings.
Áður hafði hann leikið í fjölmörg-
um spænskum myndum, þ.á m.
fimm undir leikstjórn Pedros
Almodovars. Nýjustu myndir
Banderas eru Assassins, Four
Rooms og Two Much, þar sem
hann er einnig í aðalhlutverki.
Hjálparhella farandsöngvarans
er blóðheita þokkagyðjan Carolina
sem rekur kaffihús og bókabúð í
bænum. Með hlutverk hennar fer
Salma Hayek, mexíkönsk sjón-
varpsstjarna sem var óþekkt i
Bandaríkjunum áður en hún lék í
Desperado. Hún hefur síðan leikið
í Fair Game og nýjustu mynd
Rodrigues, From Dusk Till Dawn.
Erkióvinur farandsöngvarans,
eiturlyfjabaróninn Bucho, er leik-
inn af portúgalska leikaranum
Joaquim de Almeida sem hefur
leikið víðs vegar um heiminn í
kvikmyndum og á sviði en stærsta
hlutverk hans til þessa var í Clear
and Present Danger 1994. Þá eru
ýmis þekkt andlit í aukahlutverk-
um, svo sem Cheech Marin, Steve
Buscemi og Quentin Tarantino.
-PJ
■r
V'
UPPAHALDSMYNDBANDIÐ MITT
Davíð Þór Jónsson
Síðan ég sá kvikmynd-
ina Rocky Horror í bíó í gamla
daga hefin- hún veriö uppáhalds-
myndin mín. Það er ahavega
eina myndin sem ég hef séð
oftar en tuttugu sinnum í
bíó og ég á margar góðar
minningar tengdar henni.
Grease er lika í miklu upp-
áhaldi hjá mér. Ég fór að
minnsta kosti tíu sinnum að
sjá hana. Ástæðan fyrir þess-
ari dýrkun minni á þetta göml
Uin kvikmyndum er líklega sú að
ég var fastur gestur í kvikmynda-
húsunum þegar ég var unglingur.
Komur minar þangað hafa aftur á
móti minnkað verulega síðustu
árin. Ég fer bara í bíó þegar mig
langar að sjá einhverja verulega
vandaða og góða mynd. Þegar ég
ætla að vera heima, liggja uppi í
sófa og horfa á mynd i tækinu þá
leigi ég mér yfirleitt myndir með
Stallone og Schwarzenegger og
svoleiðis köppum. Ég tek nefni-
lega allt aðrar myndir á leigu
heldur en þær sem ég fer að sjá i
bíó. Ég nenni einfaldlega ekki að
horfa á vandaðar og listrænar
myndir í sjónvarpinu heima hjá
mér. Ég fer í kvikmyndahúsin til
að horfa á þær af því að mér
finnst myndböndin bara
vera tyggjó fyrir aug-
The Invaders
The War
Mad Love
í vísindaskáldsögunni The
Invaders segir fi:á
geimverum sem
taka á sig manns-
mynd og leynast
meðal fólks á
jörðinni, að því
er virðist til að
undirbúa innrás.
Flugmaðurinn
Nolan Wood
(Scott Bacula) er
fyrstur til að upp-
götva innrásina
en yfirvöld neita að taka mark á
honum. Með hjálp ungrar konu
reynir hann að opna augu samborg-
ara sinna fyrir hættunni. The
Invaders er byggð á verkum rithöf-
undarins James Dott eins og sjón-
varpsþættimir The X- Files.
Hér segir frá feðgunum Stephen
og Stu sumarið
1970 þegar Steph-
en er nýkominn
heim frá Víet-
nam. Sonur hans,
Stu, er ásamt vin-
um sínum að
byggja trjáhús en
pörupiltar úr ná-
grenninu reyna
að skemma fyrir
þeim. Faðir Stu er
hins vegar að
reyna að jafna sig eftir óhugnanlega
reynslu sína í Víetnam. Saman ná
feðgarnir að takast á við vandamál
sín og læra sitthvað um lífið og til-
veruna. Kevin Costner og Elijah
Wood leika feðgana en leikstjóm er
í höndum Jon Avnet sem áður gerði
myndina Steiktir grænir tómatar.
j&k
Mad Love Qallar um ástarsam-
band unglinganna
Matt og Casey.
Matt er afburða-
nemandi úr vel
stæðri fjölskyldu
en Casey er falleg
en villt stelpa með
fortíð á bakinu.
Foreldrar þeirra
reyna að stía þeim
í sundur með þeim
afleiðingum að
þau stinga af og
leggjast á flakk um þjóðvegi lands-
ins. Um tíma éru þau hamingjusöm
en smám saman kemur í ljós að
Casey er ekki öll þar sem hún er
séð. Ung og upprennandi stjama,
Chris O’Donnel, er í aðalhlutverki
ásamt bamastjörnunni fyrrverandi,
Drew Barrymore.
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
rÆTÆ/rjf'ÆirÆÆfWÆrÆÆ^jr
a\\t mllli hlmh
Sfnáauglýstngcff
550 5000