Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1997, Blaðsíða 12
★★ Spy Hard Njósnadella "Swpremcty SiHy'' Kvikmyndaiðnaðurinn í Hollywood hefur komist að því að það borgar sig að gera öðru hvoru grin að sjálf- um sér og Spy Hard er ein af mörgum myndum sem reyna þetta. Hér er 007 skotspónn háðsins og auðvitað kom enginn annar en Leslie Nielsen til greina í aðal- hlutverkið. Hann er næstum því alveg eins og Roger Moore í síðustu Bond- myndinni hans. Myndin byrjar í klassískum Bond-stíl og eftir að búið er að kynna sögu- hetjuna og erkióvininn til sögunnar ásamt nokkrum of- urgellum fer njósnarinn að sjáifsögðu í vopnabúrið til Q (sem reyndar er austurlenskur og heitir eitthvað allt annað í þessari mynd) og heldur síðan á vit erkibófans í slagtogi með feg- urðardrottningu sem slæst eins og atvinnudrápari. Á leiðinni til vonda kallsins koma þau við í hinum og þessum myndum, svo sem Pulp Fiction, Speed, True Lies og Sister Act, áður en Bond-grínið tekur aftur við í klass- ískum lokabardaga. Myndin er brokkgeng en oft fyndin og þá sérstaklega lokaatriðið þar sem dellan nær hámarki. Góður endir lyftir myndinni að- eins upp en í heildina er hún miðlungsskemmtun (sem er reyndar vel yfir meðallagi af svona myndum að vera). Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Rick Friedberg. Aðalhlutverk: Leslie Nielsen og Nicolette Sheridan. Bandarísk, 1996. Lengd: 78 mín. Leyfð öllum aldurshópum. PJ tynyndbönd ' FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 1997 Happy Gilmore Adam Sandler og Christopher McDonald Happy Gilmore er mikill íshokkiaðdá- andi og hefur alla tíð dreymt um að verða eftirsóttur leikmað- ur. Það sem hefur staðið honum fyrir þrifum er hversu skapstyggur hann er. Af tilviljun kemst Happy að því að með því að nota íshokkís- veiflu sína getur hann slegið golíbolta lengra en aðrir og þar sem amma hans skuldar skattinum mikla peninga ákveður Gilmore að skrá sig í röð pen- ingamóta þar sem álitlegar peninga- upphæðir eru í boði. Trainspotting Ewan McGregor og Johnny Lee Miller í þessari frægu bresku kvikmynd kynnumst við nokkrum misrugluð- um persónum sem búa í Edinborg og eiga það sameigin- legt að hafa farið út af sporinu í lífinu. Þetta eru dópistinn Mark Renton og vin- ir hans, kvennamað- urinn Sick Boy, hinn vonlausi Spud, hinn glataði Tommy og rugludallurinn geð- 1 veiki, Begbie. Þeir lifa í veröld eitur- lyfia og eiga það sameiginlegt að vera allir að bíða eftir dóplyftunni sem sí- fellt er á ferðinni - á leiðinni upp. Kingpin Woody Harrelson og Randy Quaid. Roy hefði getað orðið stórt nafn í keilu. En frá því hann varð meistari árið 1979 hefur allt gengið á afturfótun- um. Dag einn hittir hann furðulegan ná- unga, Ishmael, sem virðist fæddur til að spila keilu. Eina vandamálið er að hann er Amishtrúar, klæðist svörtum jakkafótum og er með hatt. Það er því erfitt fyrir Roy að sannfæra hann um að hann geti orðið góður atvinnumaður í keilu en Roy er vanur að beita brögð- um og hefur sitt fram. MYNDBAUDA mam nwu* srm íícjobujg s, aucr sescm FÁRGO, t - Fargo ★★★★ Svartur húmor í hvítri veröld Cohen-bræðurnir eru einhverjir athyglisverðustu og metnaðarfyllstu kvikmyndagerðarmenn í Vesturheimi og Fargo flokkast með bestu myndum þeirra ásamt Blood Simple og Millers Crossing. Fargo líkist að nokkru leyti Blood Simple en er þó mun léttari og hreint út sagt drepfyndin. Hún er byggð á sannri sögu (!) og segir frá ansi misheppnuðum náunga, bílasölumanni sem lætur ræna konu sinni svo hann geti fengið lausnargjald fyrir hana frá ríkum tengdafóður sínum og bjargað sér út úr skuldafeni. Áætlun, sem átti að vera ofureinfóld, snýst upp í hreina martröð því að krimmamir skjóta fólk út og suður og tengdafaðirinn er alls ekki eins meðfærilegur og bílasölumaðurinn hafði gert ráð fyrir. í ofanálag er snjall lögreglustjóri á slóð þeirra, hin kasólétta Marge Gunderson sem Frances McDormand leikur af stakri snilld. William H. Macy er hér um bil jafhgóður sem Jerry Lundegaard, misheppn- aði bílasalinn. Steve Buscemi, Peter Stormare og Harve Presnell skapa skemmtilegar persónur undir styrkri leikstjóm Coen bræðranna. Handritið er feikivel skrifað, öll samtöl svo fersk og sneisafull af norðvestur- ríkjaglettni (jaa!) að maður getur ekki annað en brosað. Atburðarásin sjálf er uppfull af hryllilegum atburðum en Coen-bræður fá mann til að hlæja af hreinasta kvikindisskap. Landslagið er fullkomin umgjörð og tónlistin kem- ur stemningunni vel til skila. Án efa ein af bestu myndum siðasta árs. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Joel Coen. Aðalhlutverk: Frances McDormand, William H. Macy og Steve Buscemi. Bandarísk, 1996. Lengd: 100 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. PJ Mulholland Falls Hattadeildin ★★★ Mulholland Falls segir frá sérdeild innan lögreglunn- ar i Los Angeles í byrjun 6. áratugarins, hverrar hlut- verk er að koma í veg fyrir að skipulagðir glæpir nái fótfestu í borginni. Þeim er gefinn laus taumurinn og starfsaðferðir þeirra em óhefðbundnar, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið. Maflósamir eru einfaldlega barðir í buff hvort sem einhver sönnunargögn eru fyrir hendi eða ekki og gælunafn sitt fá þeir frá höttunum sem þeir bera eins og sannir mafiósar. Þegar viðhald foringjans finnst myrt úti á víðavangi og formaður kjamorkumála- nefndar Bandaríkjanna flækist í málið fer hins vegar að hitna undir þeim. Inn í söguna fléttast vangaveltur um völd og ábyrgð en þær pælingar eru ekkert sérstaklega áhugaverðar. Spennan er ágæt í fyrstu en myndin verður fljótlega gegnsæ og missir flugið. Mestu skemmtunina má fá út úr góðum leikurum og þá sérstaklega Nick Nolte í aðalhlutverkinu. Chazz Palminteri, John Malkovich, Andrew McCarthy og Treat Williams eru líka góðir en Chris Penn og Michael Madsen sjást nánast ekkert. Melanie Griffith er óspennandi i aðalkvenhlutverkinu en Jennifer Collelly er hæfi- lega dularfull i lykilhlutverki konunnar sem hleypir atburðarásinni af stað. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Lee Tamahori. Aðalhlutverk: Nick Nolte, Chazz Palminteri, John Malkovich og Treat Williams. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. PJ The Truth About Cats & Dogs Misskilningsástarsaga ★★★ Abby er útvarpsdýralæknir, greind og öragg í fasi en því miður ekki svo snoppufríð (auðvitað er hún falleg en það eru ljótu andarungamir í Hollywood alltaf). Noelle er hins vegar nautheimsk en gullfalleg fyrirsæta sem býr í næstu íbúð. í fáti lýsir Abby sér sem Noelle þegar Íjós- myndarinn Brian hringir i hana og býður henni út með sér í kjölfar góðra ráðlegginga sem hann fékk hjá henni í útvarpsþættinum. í kjölfarið fylgir mikið sjónarspil þar sem Brian stendur í símasambandi við Abby en hittir Noelle í eigin persónu og verður ástfanginn af sameigin- legum persónuleika og fegurð þeirra. Eftir pælingar um innri og ytri fegurð og sprengingu þar sem Brian loks kemst að hinu sanna fer hann í fylu um sinn en áttar sig svo og tekur rétta afstöðu (bjuggust þið við öðra?). Sögu- þráðurinn er svosum ekki gáfulegur en það er vel spunnið úr honum og er myndin oft viðkunnanlega hlægileg. Janeane Garofalo og Uma Thurman standa sig vel en Ben Chaplin á bara að vera sætur og óframfærinn (guði sé lof fyrir að Hugh Grant var ekki fenginn í hlutverkið). Með því að horfa ekki á myndina með of gagnrýnum huga má hafa ágæta skemmtun af henni. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Michael Lehmann. Aðalhlutverk: Janeane Garofalo og Uma Thurman. Bandarísk, 1996. Lengd: 95 mín. Leyfð öllum aldurshópum. PJ 14 jan. til 20.jan SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ’ . UTGEF. 1 TEG. 1 1 2 Rock Sam-myndbönd Spenna BK NÝ mm i HnHHHHHHHHI Cable Guy hhhhhhhh Skífan Gaman 3 5 2 Happy Gilmore ClC-myndbönd Gaman 4 2 4 Trainspotting HSHHBBBBhhBRHHHÍ Wamer-myndir L i.» Spenna 5 4 5 Kingpin Sam-myndbönd Gaman 6 HHK 3 5 Copycat Warner -myndir : Spenna |7 NÝ 1 Mullholland Falls Myndform Spenna 8 .1 6 t From Dusk till Dawn Skrfan Spenna 9 7 7 ; Sgt. Bilco ClC-myndbönd Gaman 8 7 Juror Skrfan Spenna 11 , 12 3 Crying Freeman Myndform Spenna 12 w 11 MK 6 ... - HHHB Dont be a Menace i Skrfan Gaman 13 9 14 8 Primal Fear ClC-myndbönd \ Spenna r 14 , 8 Sgí'' jg|g||gg | M jf M | Down Periscope i I Skrfan j Gaman 15 i8 ; 6 : American Quilt ClC-myndbönd Drama 16 ' r 16 i 5 « % r Agnes 1 Myndform i Drama 17 - 20 : 12 ; Birdcage Warner-myndir ■ Gaman is ; W-‘ ■ • 13 f 1 3 Girl 6 Skffan Gaman 19 15 ' * : Before and After Sam-myndbönd 1 Spenna NÝ m [ i ; Empire Records 1 Wamer-myndir Gaman Það kom ekki á óvart aö The Rock skyldi standast allar atlögur að efsta sætinu. Hún er mikil og góð spennumynd sem heldur áhorfandanum vel við efnið meðan á sýningu stendur. í annað sætið kemur aftur á móti Jim Carrey stormandi inn á listann í sinni nýjustu kvikmynd, The Cable Guy. Mynd þessi náði ekki sömu vinsældum og fyrri myndir kappans, enda rær hann nokkuð á önnur mið þótt stundum sé ekki langt í farsaleikinn hjá honum. Á myndinni er Jim Carrey ásamt mótleik- ara sínum, Matthew Broderick. Aðeins ein ný mynd kemur inn á listann, sakamálamyndin Mul- holland Falls sem er í sjöunda sæti. The Rock Sean Connery og Nicolas Cage Snjöllum her- manni tekst ásamt mönnum sínum að ná völdum í Alcatraz-fangelsinu. Hann hótar að varpa öflugu efna- vopni á San Fran- cisco þar sem fimm milljón manns búa. Eina færa leiðin virðist sú að senda menn inn í Alcatraz og freista þess að af- tengja sprengjurnar og ráða niðurlögum óvinarins og er ákveðið að kalla til aðstoðar eina manninn sem hefur tekist að bijótast út úr fangelsinu. The Cable Guy Jim Carrey og Matthew Broderick Steven Kovacks ætlar að svindla á kerfinu og múta kap- almanninum og þannig fá nokkrar sjónvarpsrásir fríar inn i íbúð sína. Kap- almaðurinn, sem hann fær, er ekki rétti maðurinn til að múta. Þess í stað gef- ur hann sterklega til kynna að hann hafi ekkert á móti því að eignast Kovacs sem vin. Kovacs líst ekk- ert á þá hugmynd, enda finnst honum kapalmaðurinn vera hinn mesti furðu- ftigl, en hann kemst fljótt að því að kapal- maðurinn veit ekki hvað nei þýðir. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.