Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Blaðsíða 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997 Sviðsljós Streisand svekkt og mætti ekki Leikkonan, leikstýran og söngkonan Barbra Streisand var svo svekkt út í óskarstil- nefninganefndina yflr því að mynd hennar, Tvö andlit speg- ilsins, skyldi ekki vera talin til hinna bestu að hún mætti ekki á athöfhina í gærkvöldi. Hún átti þó að syngja óskarstilneflit lag úr myndinni. Natalie Cole söng í staðinn. Gúimníkallinn enn vinsæll Ofurfyrirsætan Helena Christensen: Yfir sig ástfangin og íhugar að breyta til Danska ofurfyrirsætan Helena Christensen hefur nýlega gefið í skyn að hún ætli jafnvel bráðum að fara að draga sig í hlé frá fyr- irsætustörfunum og byrja á ein- hverju öðru. Ein af ástæðunum er kannski löngunin til að stofna fjölskyldu, að minnsta kosti er hún yfir sig hrifin af manninum sem er í lífl hennar núna. Kærastinn heitir Peter Makebisch og er ljósmyndari. Helena hitti hann í sambandi við störf sín fyrir einu og hálfu ári og ástin hefur alls ekki minnkað eft- ir því sem tíminn hefur liðið heldur þvert á móti. Helena hefúr reyndar verið þekkt fyrir að sýna tryggð þegar hún er í sambandi en það hefur ekki alltaf þótt vera aðalatriðið í þeim bransa sem hún hrærist í. Samband Helenu og söngvar- ans í INXS, Michael Hutchence, stóð í þrjú ár og það var hann Helena Christensen og Peter Makebisch. sem batt enda á sambandið vegna annarrar konu, Paulu Yates. Þrátt fyrir svik Michaels barðist Helena til að reyna að halda hon- um en ást hans til Paulu sigraði. Paula, sem var eiginkona rokk- stjörnunnar Bobs Geldofs, er nú búin að ala Michael litla dóttur en fyrir átti hún þrjú böm með Bob. Sem betur fer liðu ekki nema nokkrir mánuðir frá þvi að Mich- ael yfirgaf Helenu þar til hún hitti Peter og nú slær hjarta hennar aðeins fyrir hann. Þau ljóma hreinlega af ást og að sögn þeirra sem sjá þau saman er Helena eitt stórt bros þegar Peter er nálægt henni. Þau tóku sér nokkra daga frí saman i Ástr- alíu í vetur eftir að Helena hafði verið við tískusýningar í Mel- bourne og það fór ekki fram hjá neinum að þau nutu lífsins sam- an. Alveg er það með ólíkindum hvað Jim Carrey nýtur mikilla vinsælda i heimalandinu. Nýjasta mynd þessa leikara sem hefúr tvær eöa þijár grettrn- á valdi sínu var mest sótta mynd liðinnar helgar. Myndin heitir Lygari, lygari og segir frá lög- fræðingi sem verður að segja satt í einn dag. Hann lendir náttúrlega í hinum mestu vand- ræðum. Johnny Depp er á kafi í tísku- myndunum. Og vestur í Hollywood eru myndir um ævi frægra látinna eða jafnvel lifandi manna og kvenna nýjasta tískuæðið. Johnny er nýbúinn að leika fyrr- um FBI mann í glæpamyndinni Donnie Brasco og senn byrjar hann að leika hinn alræmda suddablaða- mann Hunter S. Thompson í mynd eftir sjálfsævisögulegri bók hans, Ótta og fyrirlitningu í Las Vegas. Bókin sú lýsir eiturlyfjaferðalagi höfundarins um borg neonljósanna þar sem ekkert er sem sýnist. Og ef leikstjórinn Barry Levin- son, maðurinn sem gerði myndir á borð við Rain Man og fleiri grát- klökka ópusa, fær sínu framgengt mun Johnny svo leika hinn draum- kennda raulara Bobby Darin í mynd um ævi hans og ástir sem á aö heita Draumóramaðurinn. Fleiri ævisögulegar myndir eru í bígerð í Hollywood, til dæmis um hinn goð- sagnakennda leikara James Dean sem lést í bilslysi langt fyrir aldur fram. Og verið er að gera mynd um söngkonuna Janis Joplin. Johnny Depp hinn snoppufriöi. Johnny Depp í ævimyndum Pessi glæsilega stúlka, sem svalar þorstanum með smákóksopa, tók þátt í líkamsföröunarkeppni f tengslum viö kvikmyndahátíö í Brussel í Belgíu um helgina. Fjórtán fyrirsætur og listamenn frá sex löndum tóku þátt í keppn- inni. Hver þátttakandi fékk fjórar klukkustundir til að Ijúka viö listaverkiö. Hugarflugiö fékk svo sannarlega aö ráöa ferðinni, enda var þaö þema kvik- myndahátíöarinnar. simamynd Reuter Schwarzenegger tekur sér frí - til að sinna eiginkonunni Kvikmyndaleikarinn Amold Schwarzenegger hefur ákveðið að sleppa allri vinnu á næstunni til þess að geta verið hjá konunni sinni, Mariu Shriver, sem á von á tvíburum. Maria, sem er orðin 41 árs, er komin nokkra mánuði á leið og bæði hún og eiginmaðurinn, sem er 49 ára, hlakka mikið til að verða foreldrar í fjórða sinn. Allar meðgöngur Mariu hafa ver- ið erfiðar og nú hefur þegar þurft að leggja hana tvisvar inn. Þess vegna ætlar Schwarzenegger að snúast í kringum eiginkonuna á næstunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.