Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 11. MAÍ1998 Spurningin Ætlar þú að ferðast í sumar? Sigríður Pétursdóttir nemi: Já, til Englands og kannski eitthvað inn- anlands líka. Kristín Eysteinsdóttir nemi: Já, ég er að flytja til Danmerkur. Guðmudur Emilsson vagnstjóri: Það verður nú eitthvað lítið. Lesendur Skuldir heimilanna - háskaleg aukning Stefán S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Félags stórkaupmanna: Sveiflurnar sýna varhugaverða þróun. - Geir H. Haarde fjármálaráðherra hvetur til sparnaðar í góðæri. Gísli Guðmundsson skrifar: Þær eru háskalegar frétt- irnar sem nú berast úr must- erum íslenskra efnahags- og fjármála. Og háskaleg er skuldaaukning heimilanna í landinu. Þótt eignir fólks að meðtöldum lífeyrissjóðum hafi tvöfaldast frá árinu 1980 eru skuldir heimilanna nú áttfaldar miðað við sama ár. Skuldirnar eru að sjálfsögðu mestar við ýmsar stofnanir sem lána til húsnæðiskaupa en líka aðrar skuldir, svo sem námsmannaskuldir, sem nálg- ast nú skuldir við lífeyrissjóð- ina. Þetta er ógnvænlegt og lofar ekki góðu fyrir afkomu unga fólksins sem nú er að ljúka námi og hefja störf sem oft eru illa launuð, a.m.k. fyrstu árin. Þótt skuldir heimilanna séu háskaleg viðvörunarmerki og ef þær aukast í því góðæri sem nú er sagt vera þá er ekki síð- ur hætta á feröum í innflutningi til landsins þar sem - og að því mér sýnist á umframþörfum lands- manna - hefur aukist hrikcdega á allra síðustu mánuðum. Þannig er nú viðskiptajöfnuður við útlönd orðinn um 16 milljörðum króna lak- ari og það á fyrstu þremum mánuð- um þessa árs. Hér er eitthvað mikið að og stappar nærri brjálæði ef satt er að fólk kaupi t.d. nýja fólksbíla í stað tveggja eða þriggja ára bíla sinna. Þegar framkvæmdastjóri Félags stórkaupmanna segir svona sveitlur i inntlutningi vera varhugaverðar þá verður að taka mark á þeim orð- um. Hagstofan er líka jafnundrandi á þróun mála - en „aukningin er bara svona mikil“, eins og segir i einu dagblaðanna sl. fimmtudag. Það er sem sé kröftugleg upp- sveifla í innflutningi þjóðarinnar og neyslu á hvaða sviði sem er. Við munum flest innkaupaæðið sem rann á landsmenn (ekki bara á höf- uðborgarbúa) þegar stórmarkaður með raftæki var opnaður fyrir nokkrum mánuðum. Það sama hef- ur gerst varðandi aðrar innfluttar vörur. En þegar útflutningur okkar íslendinga minnkar verulega á fyrstu þremur mánuðunum, öfugt við innflutning, þá er ekki lengur um góðæri að ræða heldur efna- hagslegt hallæri. Ég held að þjóðin, þ.m.t. ráða- menn hér, ætti að tileinka sér um- mæli hins nýja fjármálaráðherra sem hvetur til sparnaðar einmitt vegna hins meinta góðæris. Þá safn- ar maður fé til mögru áranna. Og þau eru rétt handan við homið, ef taka á mark á þeim tölulegu upplýs- ingiun sem nú birtast þjóðinni. Heimilunum er búin háskaleg fram- tíð, það hljóta allir að sjá. Fóstureyðingar Ijótur blettur J.M.G. skrifar: Fóstureyðingar eru ljótur blettur á þjóðfélaginu. Kirkjan situr hjá og þegir. Hafa enda prestar sem tekið hafa afstöðu til þjóöfélagsmála ekki alltaf orðið vinsælir. Sjálfsagt vilja prestarnir ekki móðga félagsvís- indamenn og sósíalistana því hrófa- tildur kirkjunnar gæti þá riðað til falls. Þorsteinn Erlingsson orti um það: „...sem rifin og fúin og rammskekkt er öll, og rambar á Helvítis barmi“. - Nú er í tísku að vitna í Halldór Laxness. Hann sagði meiningu sína við hvern sem var, enda ekki alltof vinsæll hjá sumum. Hann líkti fóstureyðingum við bamaútburð í bókinni „Seiseijú, mikil ósköp“ á bls. 27: í fornsögum er því lýst hvemig skilist er mann- úðlega við barn sem borið er út. Ná- kvæmust er lýsing í Finnboga sögu ramma. Vel má vera að á Norðurlöndum hafi til þessa verks verið krafist svonefndrar „social indication" eins og er í sumum löndum um fóstur- eyðingu nú á dögum.“ Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli og kostnaður landsmanna Flugstöð Leifs Eiríkssonar. - Draugabygging mestan hluta sólarhringsins? Guðjón Ólafsson skrifar: Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli virðist ætla að verða viðvarandi vandamál. Þrátt fyrir rándýra húsaleigu til þeirra aðila sem þama stunda viöskipti sín gengur hvorki né rekur að greiða niður skuldir byggingarinn- ar. í Morgunblaðinu 30. apríl sl. set- ur maður nokkur fram þá fullyrð- ingu sína að í upphafi hefði átt að afhenda flugstöðina á núlli til Flug- málastjórnar. - Það hefði nú verið enn ein kórónan á vitleysuna. Ofangreindur greinarhöfundur heldur því líka fram, að vegna þess að tekjur af ferðamönnum (væntan- lega þeim erlendu gestum sem koma til landsins) dreifist um allt land, eigi þjóðin öll að bera kostnað- inn af flugstöðinni. - Flugstöðina eigi, segir hann, að setja inn á fóst fjárlög. Min skoöun er sú að sama sé hversu mikilvæg sú þjónusta er sem innt er af hendi í Flugstöð Leifs Ei- rikssonar - þessi bygging eigi ekki að vera á föstum fjárlögum. Starf- semin sem fer fram í flugstöðinni á aö nægja til að greiða niður skuldir byggingarinnar. íslenskur markað- ur og Flugleiðir hf. þar með talin. Sú starfsemi sem fram fer innan- dyra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, og utan byggingar einnig, t.d. af- greiðsla flugvéla, miðast að flestu leyti við Flugleiðir hf. Öflugt flugfé- lag þurfum við íslendingar. En það er hreint ekki vitað hve mörg flug- félög vildu taka að sér þaö milli- landaflug sem Flugleiðir annast í dag. Flugleiðir eru undir verndar- væng ríkisins í þeim efnum í öllu frjálsræðinu, og á meðan svo er verður Flugstöð Leifs Eiríkssonar áfram draugabygging mestan hluta sólarhringsins. I>V Tónlist og veggjakrot Sólveig hringdi: Ég las athyglisverðan pistil í Degi fyrir nokkru síðan frá manni að nafni Brynjólfur. Hann vildi meina að sú tónlist sem ungt fólk aðhylltist mest í dag, sú sem ég hefi heyrt m.a. nefnda „graðhestamúsík" kunni að vera éins konar skilaboð frá öðrum og verri aðilum, jafnvel fíkniefna- barónum, sem hafi lagt drög að þessu öllu. Sefja huga og heila unga fólksins til að vera mót- tækilegra fyrir neyslu vímuefn- anna. Að mínu mati er þetta ekki verri kenning en sú sem uppi var höfð um veggjakrotið. Það væru skilaboð milli aðila í fikniefna- heiminum. Athyglisverð hug- mynd og þess virði að hlusta. Tafsöm Hval- fjarðargöng G.S. skrifar: Skyldi það vera rétt sem mað- ur heyrir hér, að við verðum u.þ.b. 20 mínútur að aka í gegn- um Hvalfjarðargöngin á 70 km hraða? Síðan á eftir að bætast við töf hjá innheimtu vegtolls, svo og vegna þungrar umferðar, í kannski 10 mínútur. Og græðum því ekki nema 10-15 mínútur á að aka göngin, sem eru verðlögð allt of hátt fyrir fjölskyldubílana, 1000 kr., og það aðra leiðina. Hver skyldi verða afsláttiu- fyrir aldraða og öryrkja. Hef hvergi heyrt þess getið. En fyrir meiri- hlutann era 2000 kr. allt of hátt gjald. Næturflug til Kaupmanna- hafnar Kristinn skrifar: Ég sakna þess að ekki skuli vera boðið upp á næturflug til Kaupmannahafnar, líkt og gert var áður. Og miklu ódýrara en venjuleg fargjöld. Þá átti fólk val- kosti, og gat valið á milli hins venjulega dagflugs og næturflugs sem var mun ódýrara. Ég skora á flugrekstraraðila að bjóða upp á svona flug frá íslandi til Kaup- mannahafnar, og víðar ef hægt er. Samúð með föður fanga N. og N. skrifa: Við finnum til samúðar með manni sem átti son á Litla- Hrauni, og tók nærri sér lesenda- bréf í DV en þar sagði að fangar ynnu ekkert en fengju ókeypis sjónvarp og útvarp. Var helst aö skilja að sem flestir ættu að brjóta eitthvað af sér til að kom- ast í þessi þægindi á Litla- Hrauni. Við biðjum þennan mann, fóður fangans, að taka ekki mark á svona staðhæfmg- um. Klofnar úr R-listanum Magnús Ólafsson skrifar: Það var athyglisvert sem fram kom í sjónvarpsþætti um daginn, að þeir sem stæðu fyrir nýju framboðunum tveimur í Reykja- vik heföu áður kosið R-listann. Ljóst er því að klofnað hefur úr R-listanum. Fróðlegt var einnig að heyra nýju framboðin deila á R-listann fyrir láglaunastefnu borgarinnar sem R-listinn hefur ekkert gert til að breyta. Mikið var þó klifað á því 1994 að Ingi- björg Sólrún væri komin til að breyta. Einnig var fjallað um helmings hækkun R-listans á leiguhúsnæði borgarinnar. Það er öfugsnúið þegar slíkt kemur frá fólki sem kennir sig við fé- lagshyggju. Fróðlegt að sjá á þennan hátt í fyrsta skipti opin- berlega gagnrýni á R-Listann frá öðram en Áma Sigfússyni og sjálfstæðismönnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.