Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1998, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1998 23 Fréttir Flj ótsdals virkj un: Framkvæmdir geta hafist innan árs Félag áhugamanna um vemdun hálendisins norðan Vatnajökuls boðaði nýlega til fundar á Egilsstöð- inn um hugsanleg áhrif stórvirkj- ana norðan Vatnajökuls á ferða- mennsku á svæðinu. Anna Dóra Sæþórsdóttir gerði þar grein fyrir rannsókn sem hún vann fyrir Landsvirkjun. Hún kannaði viðhorf þeirra ferðamanna sem voru á svæðinu þær tvær vikur sem at- hugunin stóð yfir og kom margt for- vitnilegt í ljós. Þar var í miklum meirihluta fólk sem var að leita að ósnortinni náttúru og vildi hvorki betri vegi um svæðið né bætta að- stöðu til gistingar. Taldi að stórfram- kvæmdir myndu draga úr áhuga eða verða til þess að það missti áhuga á að ferðast á þessum slóðum. í annan stað gerði Anna Dóra könnun meðal íslendinga simleiðis um áhuga þeirra á svæðinu til ferðalaga. Fram kom að meirihluti taldi að með bættu vegasambandi mundu þeir fremur leggja leið sina þar um. Þá kom í ljós að meirihluti íslendinga, sem spurðir voru, hafði ekkert á móti framkvæmdum á þessu hálendissvæði en útlendingar aftur á móti létu í ljós megna andúð á breytingum á svæðinum með stór- virkjunum og öllu sem þeim fylgir. Niðurstaða úr þessaari könnun var því sú að ferðafólki á svæðinu myndi ekki fækka. Það yrðu hins vegar aðrir hópar og meira um dagsferðir á einkabílum. Eftir erindi Önnu og fyrirspurnir til hennar snerist fundurinn upp í almenna umræðu um fyrirhugaðar virkjanir. Kom þar fram megn and- staða gegn boðuðum stórvirkjunum. Töldu menn að staðreyndum um áhrif þessara framkvæmda á nátt- úru og ýmsum þáttum framkvæmda væri haldið leyndum. Þess vegna gætu íbúar á svæðinu ekki gert sér grein fyrir hversu víðtækar afleið- ingarnar yrðu. Það ætti að vera krafa Austfirðinga, sem málið varð- ar, að strax yrðu öll gögn lögð fram og áætlanir skýrðar tU hlítar. Þá var gagnrýnt að ekki hefðu far- ið fram rannsóknir á víðtækum af- leiðingum þess að taka Jökulsá á Dal Skipasmíðastöðin hf. á ísafirði: Reykjaborg hleypt af stokkunum DV, ísafjarðarbæ: Um miðnætti 1. maí var nýju 50 brúttólesta stálskipi, Reykjaborg RE 25, hleypt af stokkunum hjá Skipa- smíðastöðinni hf. á ísafirði. Bátur- inn er að öllu leyti hannaður hjá stöðinni og sérútbúinn til dragnóta- veiða. Hann er önnur nýsmíði hjá stöðinni á skömmum tíma og var smíðatíminn aðeins um 5 mánuðir. Kostnaðurinn við smíðina hefur ekki verið opinberlega gefinn upp en er samkvæmt heimUdum blaðs- ins um 70 milljónir króna. Reykja- borg er fyrsta nýsmíði af bát í þess- um stærðarflokki á íslandi um langt árabU. Skipið er hannað samkvæmt nýjustu kröfum, lestin m.a. gerð fyr- ir fiskikör og klædd í hólf og gólf með ryðfríju stáli. 1 skipinu eru klefar fyrir 6 manna áhöfn og aUur tækjabúnaður er eins og best gerist. Skipasmíðastöðin hefur, að sögn Sigurðar Jónssonar framkvæmda- stjóra, tekið upp samvinnu við hol- lenska aðila varðandi evrópskt þró- unarverkefni sem lýtur að því að þróa framleiðniaukandi aðferðir fyrir litlar skipasmíðastöðvar. Er þar miðað við tölvuhönnun á þann hátt að hægt sé að vinna hvern hluta skipsins óháð öðrum. TU Reykjaborg RE. dæmis á að vera hægt með þessum aðferðum að smíða innréttingar í einingum áður en skrokkurinn er settur saman. Meginþáttur þessa verkefnis, sem stendur í tvö ár, fer í gang í haust. Skipasmíðastöðin hefur áður nýtt sér samvinnu við erlenda aðUa við t.d. bandateikningar og annað. Þannig er hluti af bandateiknivinnu Reykjaborgar unninn í Bandaríkj- unum. Skipasmíðastöðin hefur þeg- ar hafið smíði á öðrum 30 tonna báti fyrir Akurnesinga og segir Sigurður að mikU uppsöfnuð þörf sé á endur- nýjun í þessum stærðarflokkum skipa. -HKr. yfir í Fljótsdal. Þá kom og fram að áhugafólki hafði verið meinaður að- gangur að fundi sem Landsvirkjun hélt á Eiðum 1994. Sveinn Jónsson verkfræðingur, sem sæti á í orku- og stóriðjunefnd Sambands sveitarfé- laga á Austurlandi, upplýsti að fram- kvæmdir við virkjun Jökulsár í Fliótsdal eætu hafist innan árs. -SB Fljótsdalscjönq. DV-mynd Sigrún HONDA 4 d y r a 1 . 4 $ i 9 0 h e s t ö f l Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri Innifaiið í verði bílsins Honda Civic 1.5 LSi VTEC 1.550.000,- 115 hestöfl Fjarstýrðar samlæsingar 4 hátalarar Hæðarstillanlegt ökumannssæti Sjálfskipting 100.000,- 1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautunl Loftpúðar fyrir ökumann og farþegal Rafdrifnar rúður og speglarl ABS bremsukerfi4 Samlæsingar 4 14" dekkl Honda teppasett€ Ryðvörn og skráning4 Útvarp og kassettutæki 4 Verð á götuna: 1.455.000. Sjálfskipting kostar 1 00.000,- (U Sími: 520 1100 Umboðsaðilar: Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjöröur: Bílasala Jóels, s: 456 4712 Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011 WICANDERS gólfkorkur Oft er úr vöndu að ráða þegar velja á gólfefni sem hentar fyrir þau litlu. Ekki eingöngu viljum við að gólfið sé mjúkt og þægilegt heldur viljum við einnig tryggja öryggi þeirra sem eru að leik. WICANDERS korkgólfin hafa um áratugaskeið sannað ágæti sitt fyrir að vera traust og örugg. Þau eru byggð á náttúrulega loftfylltum holum sem gera þau þægileg, mjúk og hlý. Hið sérstaka yfirborð WICANDERS gólfanna gerir það að verkum að enginn hætta er á að fólk renni til á þeim auk þess sem ræsting verður leikur einn. Kynntu þér WICANDERS gólfin - þú munt sannfærast. ÁRMÚLA 29 - 108 REYKJAVÍK -S: 553 8640 & 568 6100 INTERNET: http://www.vortex.is/thth&co - E-MAIL: thth&co@vortex.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.