Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1998, Side 2
2
MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1998
Fréttir
Margir nýir félagar gengnir til liðs við Alþýðubandalagið:
Ríflega 150 inn
- tæplega 70 hafa skráð sig úr
Samkvæmt heimildum DV hafa
a.m.k. um 150 manns gengið til liðs
við Alþýðubandalagið eftir að um-
deildum aukalandsfundi lauk. Á
fostudag höfðu skv. heimildum
blaðsins tæplega 70 sagt sig form-
lega úr flokknum. í Degi á fostudag
er hins vegar haft eftir Steingrími
J. Sigfússyni alþingismanni að
hundruð manna hafl sagt sig úr Al-
þýðubandalaginu.
Jóhann Geirdal, varaformaður
Alþýðubandalagsins, segir það lík-
lega ekki liggja fyrir fyrr en með
haustinu hve margir skrá sig í og
úr flokknum. Hann sagði að það
væri hans sterka tilfinning að tals-
vert fleiri hafl gengið til liðs við
flokkinn en yfirgefið hann. „En það
er auðvitað erfitt að segja til um
það núna hversu margir hafa sagt
sig í og úr flokknum, við vitum t.d.
ekki hvað margir hafa skráð sig í
flokksfélögin á
landsbyggð-
inni, það á allt
saman eftir að
koma í ljós.“
Jóhann sagði
að þær stóru
tölur, sem
nefndar hafa
verið á báða
bóga, væru
ágiskanir og
óskhyggja.
Að sögn Þorvarðar Tjörva Ólafs-
sonar, formanns Verðandi, ungliða-
hreyfingar Alþýðubandalagsins,
hefur ekki orðið mikil hreyfmg á fé-
lagatali samtakanna. „Við höfum
ekki fundið fyrir neinum úrsögnum
að ráði,“ sagði Þorvaröur Tjörvi.
Úrsagnirnar gengnar yfir
Úrsagnir úr Alþýðubandalaginu
virðast einkum
bundnar við
kjördæmi
Steingríms J.
Sigfússonar,
sem sagði sig
úr flokknum
vegna óánægju
með ákvörðun
aukalandsfund-
ar um að stefna
að sameigin-
legu framboði
með öðrum vinstriflokkum. En
eins og kunnugt er sögðu tvær
flokksdeildir af heimaslóðum
Steingríms sig úr flokknum með
honum.
Að auki fylgdu nokkrir félagar á
Austurlandi þingmanni sínum,
Hjörleifi Guttormssyni, er hann
kvaddi Alþýðubandalagið eins og
Steingrímur á landsfundinum. Enn
er ekki vitað um neinar úrsagnir á
Vesturlandi, Vestfjörðum, Norður-
landi vestra, Suðurlandi eða
Reykjaneskjördæmi.
Nokkrir hafa sagt sig úr flokkn-
um í Reykjavík, einnig á Akureyri.
Að öðru leyti virðist sem úrsagn-
irnar séu að mestu gengnar yfir
skv. samtölum DV við forystumenn
í kjördæmunum.
Töluvert margir hafa gengið í
flokkinn í kjördæmi Margrétar Frí-
mannsdóttur sem nýtur þar mikils
persónufylgis. Skv. heimildum DV
er talsverður hluti af nýjum félög-
_um ungt fólk en meðal vinstrisinn-
aðs ungs fólks virðist vera mikill
hljómgrunnur fyrir sameiginlegu
framboði vinstriflokkanna.
Búist er við því að Alþýðubanda-
lagið muni birta tölur um fjölda úr-
sagna og nýrra félaga í flokknum
núna einhvern næstu daga. -HB
Húsbruni
við Berg-
staðastræti
Slökkviliðiö I Reykjavík var kall-
að að húsi við Berstaðastræti á
tíunda tímanum f gærkvöld.
Talsverður eldur logaöi þá á efri
hæð og f rfsl hússins. íbúar f
húsinu komust sjálfir út og varö
ekki meint af. Talsveröan tfma
tók aö slökkva eldinn. Eldsupp-
tök eru enn ókunnug.
DV-mynd S
„Við erum nágrönnum okkar óendanlega þakklát fyrir björgunina," segja þau Hafni M. Rafnsson og Helena S. Brynj-
ólfsdóttir sem björgðust naumlega, ásamt tveimur yngstu börnum sínum, úr eldsvoða um helgina.
Vopnaö rán var framiö f söluturninum Herjólfi f Skipholti f gærkvöld. Er DV fór
f prentun voru rænlngjarnir ófundnir og málið þvf f rannsókn. DV-mynd S
Kvöddu Akraborgina
Á annað þúsund manns voru
mættir niður á bryggju á Akra-
nesi á föstudagskvöld þegar Akra-
borg var kvödd og var ekki laust
við að tár kæmu í augu margra
enda hefur Akraborgin veriö mik-
ið aðdráttarafl á Akranesi og
margir eiga örugglega eftir aö
sakna þess aö geta ekki siglt yfir
fjörðinn og komið í miöbæ
Reykjavíkur. I þessari síöustu ferð
Akraborgar var margt manna,
meöal annars bæjarstjórinn á
Akranesi, Gísli Gíslason, Halldór
Blöndal samgöngumálaráðherra
og færeyski samgöngumálaráð-
herrann sem er hér í boði Hall-
dórs og var hann við opnun Hval-
fjarðaganga en Færeyingar eru
mjög áhugasamir um gangagerð-
ina og fjármögnun hennar. Við
sérstaka athöfn á Akraborgar-
bryggju fluttu ávörp þeir Benedikt
Jónmundsson, formaður stjómar
Skallagrims, Sveinn Kristinsson,
forseti bæjarstjómar Akraness,
Halldór Blöndal samgöngumála-
ráðherra og Skagaleikflokkurinn
flutti leikþátt sem kallaður er
Akraborgarblúsinn. Halldór Blön-
dal samgöngumálaráðherra mis-
mælti sig enn einu sinni þegar
hann sagði að það væri gott að
búa í Akureyrarbyggðarlagi og
sagði svo að þetta væm nú fyrir-
gefanleg mismæli. -DVÓ
Eldsvoði í Reyrengi:
Hetjuleg björgun
- hjónum og tveimur börnum naumlega bjargað
Hjónrnn og tveimur ungum böm-
um þeirra var bjargað úr logandi
íbúð að Reyrengi 1 í Grafarvogi að-
faramótt síðastliðins laugardags.
Eldur kom upp i sófa í íbúðinni.
Tveir nágrannar fólksins, þau Helga
Guðrún Eiríksdóttir og Baldur
Heiðar Magnússon björguðu fólk-
inu, þeim Hafna M. Rafhssyni og
Helenu S. Brynjólfsdóttur, hetjulega
með því að æða inn í brennandi
íbúðina. Baldur Helgi sem býr fyrir
ofan hjónin kom heim til sín um
fjögurleytið um nóttina og varð þá
var við brunalykt. Hann bankaði
upp á hjá Helgu og eiginmanni
hennar, Ólafi ísleifssyni, sem búa á
móti íbúðinni þar sem eldurinn
kom upp. Baldri tókst að komast
inn um svaladyr á íbúðinni og opna
fyrir Helgu framdyramegin. „Þegar
ég kom inn æpti ég á hjónin og
reyndi að vekja þau en tókst ekki.
Ég greip því annað barnið og hljóp
með það yfir í mína íbúð, hringdi á
neyðarjínuna og náði síðan í hitt
bamiö. Ég var ekki hrædd meöan á
þessu stóð, ég hugsaði bara um að
bjarga fólkinu en áfallið kom eftir
á,“ sagði Helga i samtali við DV.
Baldri tókst síðan að vekja hjónin
og koma þeim út. Allir íbúar húss-
ins, tíu talsins, vom fluttir til að-
hlynningar á sjúkrahús en hafa alll-
ir verið útskrifaðir.
Hafni og Helena eiga sex ung
börn en fjögur elstu bömin voru
ekki í íbúðinni þegar eldurinn kom
upp.
Ofsalega þakklát
„Við erum svona smátt og smátt
að jafna okkur en krakkarnir eiga
svolítið erfitt þar sem allar eigur
þeirra eru ónýtar eins og annað í
íbúðinni. En dauðum hlutum er
hægt að safna smátt og smátt aftur
þótt við séum ótryggð og því er ég
fyrst og fremst þakklát fólkinu sem
bjargaði lífi okkar, það er það dýr-
mætasta," sagði Helena í samtali
viö DV.
Helena, Hafni og börnin þeirra
sex búa sem stendur hjá foreldrum
Helenu þar sem talsvert þröngt er
um þau. Þau vantar því samastað og
er því bent til lesenda að ef einhver
á stóra íbúð sem hann gæti lánað
þeim tímabundið er það mjög vel
þegiö. -GLM
Stuttar fréttir i>v
Heimsókninni lokið
Sophia Hansen hélt í gær til
Istanbul frá
Qallaþorp-
inu Divrigi
eftir að hafa
dvalið þar
um skeið
hjá dætmm
sínum.
Sophia sagði
kveðju-
stundina
hafa verið erfiða því stúlkumar
hafi notið samvistanna við
móður sína.
Engin úrslitaleikur
í Mosfellsbæ var sjónvarps-
laust um sjöleytið í gærkvöldi. Á
þeim tima fór úrslitaleikur
heimsmeistarakeppninnar fram.
íbúar Mosfellsbæjar voru því
ekki hluti af þeim þremur millj-
örðum manna sem fylgdust með
leiknum.
Heppnuð nauðlending
Nauðlenda þurfti lítilli eins
hreyfils vél á fostudagskvöldið.
Lendingin átti sér stað á flug-
vellinum á Stykkishólmi eftir
vélarbilun.
Flugleiðir undir áætlun
Tekjur
Flugleiða af
farmiöasölu í
vor eru undir
rekstraráætl-
un fyrirtækis-
ins. Tölur fyr-
ir mai benda
til að frávik
frá áætlun verði tæplega 7%.
Siglufjörður
Áætlað er að eftir fjögur ár
verði framkvæmdum við
stækkun Síldarminjasafnsins á
Siglufirði lokið. Þá verða 100 ár
liðin síðan síldarævintýrið
mikla hófst.
Göngugarpur
Erik Rautersward er kominn
til Reykjavíkur. Kappinn lagði
af stað frá Seyðisfirði og ætlar
að ganga meðfram strandlengju
íslands. Það er vænn göngutúr,
eða um 3000 km.
Hentifánar óvinsæiir
Skipið Global Mariner siglir
nú um jöröina með sýningu á
vegum Alþjóðasambands flutn-
ingaverkamanna. Sýningin er
ætluð til kynningar á herferð
þeirra gegn notkun hentifána.
Ríkir bæjarfulltrúar
Bæjarstjórn Hafnafjarðar
hefur ákveðið að hækka laun
bæjarfulltrúa um 47%. Allir
flokkar voru fylgjandi ákvörð-
uninni.
Áki oröinn veiðistjóri
Áki Ármann Jónsson, sem
starfað hefur hjá veiðistjóra-
embættinu frá 1. mars '95, hef-
iir verið skipaður veiðistjóri.
Álagningarskrár
Garðar Valdimarsson ríkis-
skattstjóri
segir að
álagningar-
skrámar
muni liggja
frammi á
skattstofum
þann 31. júlí
næstkomandi.
Búnaðarbankinn semur
Útboði tæplega 16 milljarða
lántöku hjá 23 erlendum bönk-
mn er lokið hjá Búnaðarbank-
anum. Lánið verður notað til
að greiða erlend lán bankans.
-HÞH