Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1998, Page 21
MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1998
29
4
*4
b
U3J1U VS)
Netið veldur byltingu í atvinnumálum:
Úr jakkafötunum í
stuttbuxurnar
Nútímatækni gerir fólki kleift aö vinna flókna tölvuvinnu á meðan það flatmagar á ströndinni.
í afskekktu kaffi-
húsi í bænum Gualala
á Mendocino-strönd-
inni í Kalifomíu skipt-
ast eigendurnir Pat
Kelly og Bonnie Si-
mons á um að skenkja
gestum kaffi og is.
Þegar lítið er að gera
vinda þau sér svo í að
leysa 2000-vandamálið
fyrir stórt hugbúnað-
arfyrirtæki sem er í
200 km fjarlægð.
Fyrir fimm árum
ákváðu þau að segja
skilið við stórborgar-
lífið í San Francisco
og flytja í sveitina. Þar
með sögðu þau þó ekki
skilið við frama sinn á
hugbúnaðarsviðinu.
Góð nettenging á
Mendocino-ströndinni
gerir þeim nú kleift að vinna að
hugbúnaðargerð á bak við þunnt
tjald sem skilur að kaffihúsið og
skrifstofuna. Engin þörf er lengur á
að ösla í gegnum mannþröngina
klukkan 8 að morgni til að komast í
rándýrt skrifstofuhúsnæðið á 14.
hæð.
Þau hafa góðar tekjur af að búa
til ýmis forrit á ferðatölvur sínar
fyrir Forecross-fyrirtækið um leið
og draumur þeirra um að búa við
hina fallegu norðurströnd Kaliforn-
iu rætist. En þau em ekki eina
dæmið um fólk sem skiptir jakkaföt-
unum út fyrir stuttbuxurnar. Hin
130 km langa Mendocino-strönd hef-
ur oft verið kölluð Silicon-ströndin
vegna þess hve stór hluti íbúanna
nýtir sér tölvur í hinu daglega lífi.
Um 3.600 tölvin- eru í notkun á
ströndinni en heimilin þar em ein-
ungis 6.000. „Fólk heldur eflaust að
hér búi bara sveitalubbar en raunin
er að á Mendocino þrífst hátækni-
iðnaður sem jafnast á við það besta
í stórborgunum," segir einn ibú-
anna.
Ótrúleg breyting
Þannig hefur net- og tölvuvæðing-
in breytt daglegu lifi á Mendocino
geysilega mikið á einungis örfáum
árum. Strandbúar unnu áður aðal-
lega við fiskveiðar og skógarhögg
sem hafði ekki gefið mikið í aðra
hönd. Þegar ákveðið var fyrir fjór-
um árum að leggja út í nokkuð öfl-
uga en kostnaðarsama tölvuteng-
ingu strandarinnar við umheiminn
áttuðu sennilega fæstir sig á því hve
mikil áhrif það myndi hafa á þetta
litla samfélag.
Saga Mendocino-strandarinnar
gefur okkur innsýn í það hvemig
áframhaldandi netvæðing og bætt
tækni í þessum efnum getur haft
mótandi áhrif á búsetu og lífsmáta
fólks í framtíðinni. Fólk er ekki
lengur jafn bundið við viðskipta-
hverfi stórborganna og áður sem
þýðir að draga mun úr flutningi
fólks úr dreifbýli í þéttbýli.
Við sem búum hér í landfræði-
legri einangrun á klakanum getum
ekki annað en glaðst yfir þessari
þróun. í framtiðinni verður mun
auðveldara fyrir íslendinga að
starfa á alþjóðlegum vinnumarkaði
án þess að þurfa nokkurn tímann að
flytjast af landi brott. -KJA
Byggt á San Francisco Examiner.
Nýstárleg lausn á 2000 vandanum:
Spurning um stærðfræði
- ekki dagsetningar
Þó lausn Allens Burgess virki
ekki á öll tölvukerfi sem munu
koma til með að
lenda í vandræðum
vegna „2000-vand-
ans“ vel þekkta þá
kemur hún sér vel í
mörgum tilfellum.
Lausn hans er ný-
stárleg og hann lýsir
tilkomu hennar
svona: „Ég hreinlega
vaknaði nótt eina
með hugmyndina í
kollinum. Ég sá
vandamálið í nýju
ljósi. Þetta er ekki
spurning um dag-
setningar heldur
stærðfræði. Við þurf-
um einfaldlega að
nýta okkur stærð-
fræði við lausn 2000 -
vandans."
í kjölfarið vann
fyrirtækið Data In-
tegrity hugbúnað
sem kallast „Árþús-
undalausnin" (Mil-
lenium Solution) og
verður notuð af fyrir-
tækjunum Citibank,
Credit Suisse, First
Boston, NationsBank
auk annarra. Þessi einfalda lausn
hefur, svo dæmi séu tekin, gert Citi-
bank kleift að prófa og laga á einum
degi hugbúnað sem annars hefði
tekið einn mánuð að
laga.
Ein helsta virkni „Ár-
þúsundalausnarinnar"
er að leita að útreikning-
um í hugbúnaði. Ef dag-
setning sem byggist að-
eins á tveimur tölum úr
ártali er hluti af útreikn-
ingum gripur „Lausnin"
inn í og bætir ákveðnum
þáttum við útreikning-
ana til að þeir verði rétt-
ir.
Eftirfarandi dæmi
sýnir hvemig farið er
að. Við ætlum að finna
út aldur manns árið 01
(þ.e. 2001) og segjum sem
svo að hann sé fæddur
67 (þ.e. 1967). Útreikning-
ar tölvunnar veröa þá 01
- 67 = -66. Þá kemur „Ár-
þúsundalausnin" til
skjalanna og bætir við
50. Og svo aftur 50 (af
því tölvan ræður aðeins
við tveggja stafa ártöl).
Svarið verður þá: 34 ára
gamall. -KJA
Byggt á USA TODAY
GRUÍIDIG
• Bílageislaspilari með RDS
• Útvarp og stöðvaminni
• 4 x 40 watta magnari
• Loudness
• Þjófavörn ofl.
ORYGGIÐ ER LYKILATRIÐI
SCD3390
Sjónvarpsmiðstödin
4x40 w
i
Þú átt eftir
dö aá laagt
Auktu notkunarmöguleika
OG LANGDRÆGNI FARSÍMANS.
Úrval loftneta og aukabúnaðarfyrir
GSM og NMT i bústaðinn, bilinn og
bátinn.
SÍMINM
Ármúla 27, sími 550 7800
Landssímahúsinu v/ Austurvöll, sími 800 7000
Afgreiöslustaöir Islandspósts um land allt
V