Dagblaðið Vísir - DV - 13.07.1998, Síða 34
42
MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 1998
Afmæli
Ragnar Arnalds
Ragnar Arnalds, alþingismaður,
fyrrv. ráðherra og fyrrv. formaður Al-
þýðubandalagsins, Mánaþúfu í
Varmahlíð í Skagafirði, varð sextugur
á miðvikudaginn var.
Starfsferill
Ragnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR1958, stundaði nám í bókmenntum
og heimspeki við sænska háskóla
1959-61, lauk embættisprófi í lögfræði
við HÍ 1968 og öðlaðist hdl-réttindi
sama ár.
Ragnar var kennari við Flensborg-
arskóla 1958-59, við Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar 1967-69, við Laugalækj-
arskóla 1969-70, skólastjóri við barna-
og unglingaskólann í Varmahlíð í
Skagaflrði 1970-72, var ritstjóri
Frjálsrar þjóðar 1960, framkvæmda-
stjóri Samtaka hemámsandstæðinga
og blaðamaður á Þjóðviljanum 1962,
landskjörinn alþm. 1963-67 og er
alþm. Norðurlandskjördæmis vestra
frá 1971, var menntamála- og sam-
gönguráðherra 1978-79 og fjármála-
ráðherra 1980-83.
Ragnar var varaborgarfulltrúi í
Reykjavík 1962-63, formaður Alþýðu-
bandalagsins 1968-77, formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins 1971-74,
1977-78 og 1983-86, sat í stjóm Fram-
kvæmdasjóðs 1969-71 í stjóm Fram-
kvæmdastofnunar og
Byggðasjóðs 1971-78 og for-
maður þar 1972-74, i stjórn
Byggðastofnunar 1988-95, í
stjórnarskrárnefnd frá
1972-95, í Kröflunefnd
1974, var fulltrúi á allsheij-
arþingum S.Þ. 1968,1983 og
1986 og á þingi Alþjóða-
þingmannasambandsins
1971,1984 og 1985, stjórnar-
formaður Kvikmyndasjóðs
Islands 1991-93 og hefur
gegnt störfum og for-
mennsku í fjölda opinberra nefnda.
Hann er fyrsti varaforseti Alþingis og
situr í sjávarútvegsnefnd þetta kjör-
tímabil.
Meðal leikrita sem Ragnar hefur
samið eru Uppreisn á Isafirði, sýnt í
Þjóðleikhúsinu 1986, og Sveitasinfón-
ía, sýnt hjá LR 1988.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist 30.8. 1963 Hall-
veigu Thorlacius, f. 30.8. 1939, brúðu-
leikara. Hún er dóttir Sigurðar Thor-
laciusar, skólastjóra í Reykjavík, og
k.h., Áslaugar Kristjánsdóttur Thor-
lacius skrifstofumanns.
Dætur Ragnars og Hallveigar era
Guðrún, f. 28.7.1964, hómópat en dótt-
ir hennar er Sara Steinþórsdóttir;
Helga, f. 6.9. 1967, brúðuleikari í
Reykjavík.
Albróðir Ragnars er Jón
Laxdal Arnalds, f. 28.1.
1935, fyrrv. borgardómari
og fyrrv. ráðuneytisstjóri.
Hálfbræður Ragnars, sam-
feðra, eru Sigurður Stein-
grímur Arnalds, f. 9.3.1947,
verkfræðingur; Andrés
Amalds, f. 4.12. 1948, gróð-
ursérfræðingur; Einar
Arnalds, f. 6.2. 1950, rithöf-
undur; Ólafur Gestur Arn-
alds, f. 5.1. 1954, jarðvegs-
fræðingur.
Háifsystir Ragnars, sammæðra, er
Elín Stefánsdóttir, f. 4.12.1953, læknir.
Foreldrar Ragnars: Sigurður Am-
alds, f. 15.3. 1909, d. 10.7. 1998, útgef-
andi og stórkaupmaður í Reykjavík,
og f.k.h., Guðrún Jónsdóttir Laxdal, f.
1.3.1914, kaupkona.
Ætt
Bræður Sigurðar voru Einar Arn-
alds borgardómari og Þorsteinn Am-
alds, forstjóri BÚR. Sigurður var son-
ur Ara Arnalds, alþm. og sýslumanns
á Seyðisfirði, Jónssonar, b. á Hjöllum,
Finnssonar, b. þar, Arasonar, bróður
Jóns, afa Björns Jónssonar, ritstjóra
og ráðherra, föður Sveins forseta.
Móðir Sigurðar var Matthildur,
systir Ragnars, fóður Ævars R. Kvar-
an, leikara og rithöfundar, fóður
Gunnars sellóleikara. Annar bróðir
Matthildar var Einar, afl Guðrúnar
orðabókaritstjóra og Hjörleifs borgar-
lögmanns. Matthildur var dóttir Ein-
ars H. Kvaran rithöfundar.
Guðrún var dóttir Jóns Laxdals,
tónskálds og stórkaupmanns í Reykja-
vík, Jónssonar, hafnsögumanns á Ak-
ureyri, Guðmundssonar. Móðir Jóns
var Guðrún Grímsdóttir Laxdal, bók-
bindara á Akureyri, og Hlaðgerðar
Þórðardóttur Thorlacius, b. í Hvammi
undir Eyjafiöllum. Móðir Hlaðgerðar
var Guðrún Grímsdóttir, b. í Götuhús-
um í Reykjavík, Ásgrímssonar, og
Vigdísar Sigurðardóttur, b. í Götuhús-
um, Erlendssonar, bróður Oddnýjar,
langömmu Bjarna, langafa Svanhild-
ar, móður Ólafs Ragnars Grímssonar
forseta.
Móðir Guðrúnar var Elín Matthías-
dóttir, skálds og pr. Jochumssonar, b.
í Skógum, Magnússonar. Móðir
Jochums var Sigríður Aradóttir, syst-
ir Guðrúnar, langömmu Áslaugar,
móður Geirs Hallgrímssonar forsætis-
ráðherra. Móðir Matthíasar var Þóra
Einarsdóttir, systir Guðmundar, fóð-
ur Theodóru Thoroddsen skáldkonu.
Móðir Elínar var Guðrún, systir Þórð-
ar, fóður Bjöms forsætisráðherra.
Ragnar Arnaids.
Ásvaldur Andrésson
Ásvaldur Andrésson bifreiðasmíða-
meistari, Löngubrekku 28, Kópavogi,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ásvaldur fæddist á Seyðisfirði og
ólst þar upp. Hann stundaði nám við
Iðnskólann og bifreiðasmíði hjá Agli
Vilhjálmssyni hf., lauk sveinsprófi
1962 og öðlaðist meistararéttindi 1965.
Ásvaldur starfaði á yfirbygginga-
og réttingaverkstæði hjá Agli Vil-
hjálmssyni hf. í tuttugu og sjö ár en
þar af var hann verkstjóri i þrettán
ár. Hann starfar nú hjá Securitas ehf.
Ásvaldur gekk í Félag bifreiða-
smiða að námi loknu, sat í samninga-
nefndum á vegum félagsins, var gjald-
keri þess um skeið og formaður þess i
fimmtán ár. Jafnframt sat hann í
stjóm Málm- og skipasmíðasambands
íslands. Þá sat hann í sveinsprófs-
nefnd fyrir Félag bifreiðasmiða og síð-
an Bíliðnafélagið á árunum 1972-88.
Fjölskylda
Ásvaldur kvæntist 4.2. 1956 Ernu
M. Jóhannsdóttur, f. 4.2. 1938, inn-
heimtufulltrúa. Hún er dóttir Johans
Schröders og Jakobínu Schröder, f.
Beck, garðyrkjubænda í
Birkihlíð við Nýbýlaveg í
Kópavogi.
Dætur Ásvalds og Ernu
eru Hanna S. Ásvaldsdótt-
ir, f. 25.5.1956, meinatækn-
ir í Reykjavík, gift Gunn-
laugi Helgasyni rafeinda-
virkja; Regína, f. 30.6. 1960,
framkvæmdastjóri í
Reykjavík, en maður henn-
ar er Birgir Pálsson, lífefna-
fræðingur hjá íslenskri
erfðagreiningu; Ragnhildur,
f. 5.11. 1966, dagskrárgerðarmaður við
ríkissjónvarpið, én hennar
maður er Arnar Þór Þóris-
son kvikmyndatökumaður.
Hálfbróðir Ásvalds var
Ragnar, nú látinn, mat-
reiðslumeistari í Holly-
wood. Systur Ásvalds: Odd-
ný, dó i barnæsku; Guðrún,
búsett á Akureyri.
Foreldrar Ásvalds voru
Andrés Rasmussen, f. 25.12.
1896, d. 1945, verkamaður og
mótoristi á Seyðisfirði, og
Sveinrún Jónsdóttir, f. 15.6.
1897, d. 1988, húsmóðir.
Ásvaldur
Andrésson.
Ólafur Grétar Óskarsson
Ólafur Grétar Óskarsson
verkstjóri, Miðholti 9, Mos-
fellsbæ, er sextugur í dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í Hnausa-
dal í Austurárdal í Húna-
vatnssýslu og ólst þar upp
til sex ára aldurs. Hann
flutti þá í Mosfellsbæ og
hefur átt þar heima síðan.
Að loknum grunnskóla
stundaði Ólafur almenn
sveitastörf til nítján ára ald-
urs. Hann vann síðan á
þungavinnuvélum í tvö ár
en 1959 hóf hann störf i ullariðnaði
hjá Álafossi og hefur stundað slík
störf síðan, nú hjá ístex hf.
Ólafur hefur gegnt ýmsum trúnað-
ar- og nefndarstörfum fyrir Verk-
stjórafélag Reykjavíkur.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 5.6. 1960 Steinunni
Thorarensen, f. 6.7. 1940, húsmóður.
Hún er dóttir Axels
Thorarensen, sjómanns
og vitavarðar á Gjögri á
Ströndum, og Agnesar
Gísladóttur húsmóður.
Böm Ólafs og Steinunnar
eru Margeir Steinar Ólafs-
son, f. 27.10. 1960, starfs-
maður hjá Mark-
aðskjúklingum, en börn
hans eru Sölvi Már, f.
19.1. 1980, og Steinunn
Erla, f. 18.10. 1983; Ólafur
Agnar Hraundal Thorar-
ensen, f. 3.8. 1962, starfs-
maður hjá Sigurplasti og
Atlanta; Axel Thorarensen Hraundal,
f. 26.5.1973, tæknimaður í Mosfellsbæ,
en sambýliskona hans er Kolbrún
Kristinsdóttir og eru dætur þeirra
Aníta Erla, f. 9.10.1993, og Diljá Sól, f.
5.9. 1995; Grétar Fannar Ó. Thoraren-
sen, f. 22.8. 1980, starfsmaður hjá
Markaðskjúklingum en unnusta hans
er Eydís Sól Jónsdóttir.
Hálfbræður Ólafs, sammæðra:
Ólafur Grétar
Óskarsson.
^úðkaupsveislur—útisamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýnlngar—kynningar og fl. og II. og fl.
I iis@tjð9ci - ¥@isiufjél€BM
I “°9 ýmsir fylgihlutir
SkÍDU
ö M°ld
fíjald;
Ekki treysta á veðrið þegar
F skipuleggja á eftirminnilegan viðburð -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum slœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
lalelga slcáta
..méO skátum á heimavelli
síml 562 1390 • fax 552 6377
Sveinbjörn Benediktsson, bóndi að
Krossi í Landeyjum; Helgi Benedikts-
son, bóndi i Austvaðsholti í Land-
sveit; Jón Gunnar Benediktsson,
bóndi í Austvaðsholti; Hjörtur Bene-
diktsson, garðyrkjumaður í Hvera-
gerði.
Hálfsystkini Ólafs, samfeðra: Sig-
rún Óskarsdóttir verslunarmaður;
Ludvik Hraundal sölumaður; Sigur-
laug Kristín Hraundal húsmóðir.
Foreldrar Ólafs era Óskar Hraun-
dal, f. 28.10. 1915, bifreiðarstjóri og
ökukennari, og Ólöf Helgadóttir, f.
30.1.1918, húsmóðir.
Ólafur er að heiman.
Ólöf Gíslína Karlsdóttir
Ólöf Gíslína Karlsdótt-
ir, ræstitæknir við
Sjúkrahús Suðurnesja,
Vatnsholti 18, Keflavík,
er fimmtug í dag.
Starfsferill
Ólöf fæddist í Keflavík
og ólst þar upp. Hún flutti
í Innri-Njarðvík 1976 og
átti þar heima til 1995 er
hún flutti aftur til Kefla-
víkur.
Auk húsmóðurstarfa
hefur Ólöf stundað fisk-
vinnslustörf og ræstingar.
Fjölskylda
Ólöf giftist 28.9. 1967 Val Grétari
Þorgeirssyni, f. 14.11.1946, vaktmanni
í Helguvík. Hann er sonur Þorgeirs
Þorgeirssonar og Ragnheiðar Valdi-
marsdóttur í Keflavík.
Börn Ólafar og Vals Grétars eru
Karl Halldór, f. 16.1. 1968, kvæntur
Kolbrúnu Lind Karlsdóttur og eru
börn þeirra Þorsteinn Ingi, f. 18.10.
1994, og Thelma Lind, f. 14.2.1997; Þor-
geir Ragnar, f. 16.6. 1970; Súsanna, f.
4.11. 1973, gift Jóni Ægis-
syni og eru böm þeirra Ást-
þór Ingi, f. 28.12. 1991, og
Berglind, f. 7.4. 1998; Ásdís
Ósk, f. 3.4.1984.
Systkini Ólafar eru Halldór,
f. 9.9.1950, en dóttir hans er
Viktoría; Þorlákur, f. 30.11.
1952, en sonur hans er
Kristinn; Guðrún Pálína, f.
24.5. 1955 en börn hennar
eru Georg, Karl Halldór,
Svanhildur og Pétur; Pétur
Þór, f. 4.4. 1957, d. 16.8. 1977
en sonur hans er Ólafur;
Súsanna Karlotta, f. 25.12. 1958 og á
hún þrjár dætur, Karlottu, Guðrúnu
og Jenný; Andrea, f. 4.2. 1964 og era
dætur hennar Agnes og Regína.
Foreldrar Ólafar: Karl Halldórsson,
f. 24.3. 1925, d. 18.6. 1975, verkstjóri í
Keflavík, og Súsanna Þorláksdóttir, f.
17.3.1929, húsmóðir.
Karl var sonur Halldórs Halldórs-
sonar og Ólafar Gisladóttur úr
Þykkvabæ. Súsanna er dóttir Þorláks
Guðmundssonar og Guðrúnar Jó-
hannsdóttur frá Siglufirði.
Ólöf er á niðjamóti.
Ólöf Gíslína
Karlsdóttir.
DV
Hl hamingju með afmælið 13. júlí
90 ára
Gísli Högnason, Hverahlíð 17, Hveragerði. Jón Hallsson, Silfrastöðum, Akrahreppi.
85 ára
Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Hjörtur Hafliðason, Dalbraut 23, Reykjavík.
80 ára
Ragnheiður Þorsteinsdóttir, Bakkagötu 15, Kópaskeri. Maður hennar var Kristján Bjamason sem er látinn. Hún tekur á móti gestum í Risinu, Hverfisgötu 105, Reykjavík, í dag, frá kl. 19.00. Jónína Guðjónsdóttir, Dvalarh. Naust, Þórshöfn.
75 ára
HaUdóra Gunnarsdóttir, Brekkubraut 4, Akranesi. Hólmfríður Gestsdóttir, Logalandi 32, Reykjavík. Jóhann Jónsson, Álfaskeiði 80, Hafharfirði. Jón Ámi Haraldsson, Holtsgötu 6, Hafharfirði. María Hermannsdóttir, Smáratúni 20, Keflavík.
70 ára
Guttormur Vigfússon, Laufvangi 5, Hafnarfirði.
60 ára
Bemice Lovetha Svavarsson, Freyjugötu 34, Reykjavík. Edda Guðmundsdóttir, Vesturgötu 15, Ólafsfirði. Guðmunda Jónsdóttir, Suðurhólum 14, Reykjavík. Gimnsteinn Kjartansson, Skipasundi 17, Reykjavík. Ingibjörg Jóna Helgadóttir, Seiðakvísl 14, Reykjavík. Sigrún Danielsdóttir, Gerðum, Vestur-Landeyjum. Skúli Kristinn Gíslason, Birkihlíð 2 A, Hafnarfirði.
50 ára
Benedikt Rúnar Benediktsson, Heiöarbóli 1, Keflavík. Erlingur Haraldsson, Vallholti 41, Selfossi. Eyþór Eliasson, Selási 3, Egilsstöðum. Friðrik Hans Friðjónsson, Laugarvatni, Laugarvatnshr. Guðbjörg Emilsdóttir, Sæbólsbraut 6, Kópavogi. Jóhanna L. Stefánsdóttir, Birkihvammi 17, Kópavogi.
40 ára
Eggert Tryggvi Helgason, Kársnesbraut 17, Kópavogi. Elísabet Á. Oddsdóttir, Barónsstíg 51, Reykjavík. Heiðar Þór Guðmundsson, Laufengi 25, Reykjavík. Kristín María Björnsdóttir, Miðgarði 4, Egilsstööum. Magnús Atli Guðmundsson, Hálsaseli 22, Reykjavík. Ólafur Ólafsson, Laugarásvegi 29 A, Reykjavík. Óskar L. Guðmundsson, Eyvindarst., Bólstaðarhlhr. Páll Haraldsson, Akraseli 27, Reykjavík. Sigríður Birgisdóttir, Hraunbæ 50, Reykjavík. Sólrún M. Henriksdóttir, Holtsgötu 1, Sandgerði. Svandís Ebba Stefánsdóttir, Tungusíðu 19, Akureyri.