Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 24
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 JJ V 24 tgakamál •w i tk 'k ---- Á afskekktum stað í kirkjugarði í Stuttgart er legsteinn sem er nokk- uð hærri en þeir sem næstir honum eru. Hann minnir dálítið á óbelíska og á honum stendur: „Anna Elisa- beth Bauer 1985-1993.“ Hún varð því aðeins átta ára. Að sögn yfirvalda var hún myrt af frænku sinni. Frænkan, Elisabeth Frederiksen, situr nú í fangelsi. Og þar á hún heima, segja talsmenn dómskerfis- ins. En margt er óljóst um það sem gerðist. Þannig hefur þeirrar spum- ingar verið spurt hvers vegna frænka hafi myrt bróðurdóttur sem hún dáði, stúlku sem hafði fóður- systurina i miklum hávegum. „Af því að föðursystirin gat ekki átt böm,“ er svar yfirvalda. Sumir segja þessa yfirlýsingu fáránlega. Föðursystirin kom oft í heimsókn til Önnu og haföi þá gjaman með- ferðis ýmsar smágjafir. Og hún kom líka með gjöf dagiim sem henni er gefið að sök að hafa byrlað Önnu litlu eitur. Þá var föðursystirin á leið með hundinn sinn til dýralækn- is en ákvað að koma við í þýska smábænum Tamm, þar sem bróðir hennar, Emst Bauer, bjó með konu sinni og dóttur, Önnu. Dáði föðursysturina Anna var afar hrifin af fóðursyst- ur sinni, sem kún kallaði Eli. Þegar Elisabeth Frederiksen lagði rauða Porsche-bilnum sínum fyrir framan húsið varö litla stúlkan alltaf mjög glöð. Frænka hennar var lífsreynd, haföi ferðast mikið og var alltaf vel klædd. Einkum þótti Önnu gaman að sjá þegar frænka hennar farðaði sig. „Einhvem tíma verð ég eins fal- leg og rík og þú,“ sagði hún þá. Daginn sem til tíðinda dró kom Elisabeth með gjöf að vanda. I þetta sinn var það skammtur af rjómaís sem hún haföi keypt í stórverslun í Tamm. ísinn var lagður í frystihólf ísskápsins.því hann ætlaði Anna að borða síðar. Fyrst ætlaði hún aö Elisabeth Frederiksen. fara út og leika sér dálítið við hund frænku sinnar. Þegar Elisabeth kom i heimsókn til Önnu var litla stúlkan ein heima því foreldrar hennar höfðu farið á fyrirlestur. Er Anna kom heim aft- ur með hundinn hafði Elisabeth sett ís og súkkulaðisósu á disk. Anna borðaði hann upp til agna. Allt um seinan Um tíuleytið þetta kvöld fór litla stúlkan að fá illt í magann. Þá vom foreldramir komnir heim en Eli frænka farin. Anna bar sig iila alla nóttina og um morguninn var hún orðin mikið veik. Þá fór Emst Bauer meö dóttin- sína á næsta sjúkrahús en henni varð ekki bjarg- að. Anna dó fyrir hádegi án þess að læknar fengju nokkuð að gert. Við krufningu kom í ljós að hún hafði dáið af arsenikeitrun. í byrjun beindi rannsóknarlög- reglan athygli sinni að foreldrun- um. „En ég tók það ekki allt of nærri mér,“ sagði faðirinn síðar, „því ég vissi að hvorki ég né kona mín, sem þjáist af bandvefssjúk- dómi og er í hjólastól, gáfum henni eitrið. Engu að síður brá mér þegar systir mín, Elisabeth, var handtekin Anna litla. fyrir morðið því fyrir utan okkur hjónin var hún sú eina sem hafði verið með Önnu umræddan dag.“ Og Elisabeth, föðursystirin, þótti ekki síður gmnsamleg fyrir það að hún kunni nokkuð fyrir sér í lyfja- fræði. Faðir þeirra, Emst, hafði ver- ið lyfjafræðingur og Elisabeth haföi sótt nokkur námskeið í þeirri grein. Þá upplýsti lögreglan að foreldrar þeirra heföu látist á heldur dular- fullan hátt. Við krufningu fundust leifar af arseniki i báðum líkunum. Elisabeth hafði búið hjá foreldram sínum er þeir létust. Ekki þóttu að- stæður þó þannig að rétt væri að sækja hana til saka. Gift Dana Elisabeth haföi ekki starfað við lyfjabúð árum saman er Anna litla dó. Eftir að hafa lokið námi giftist hún dönskum bankastarfsmanni og bjuggu þau í Kaupmannahöfn í fimm ár. Síðan fluttust hjónin til Frankfurt þar sem maöurinn henn- ar gerðist ráðgjafi um rekstur fyrir- tækja. Eftir það vann Elisabeth með honum. Er hún var spurð að þvi hvers vegna þau hjón hefðu ekki eignast böm, svaraði hún því til að þau væm oft á viðskipta- ferðalögum og hefðu því ekki talið rétt að taka á sig þá ábyrgð sem því fylgdi að ala upp börn. „En ég gat alltaf heimsótt Önnu,“ sagði hún. Eftir að Elisabeth Frederiksen var handtekin fóm fram yfir henni yfirheyrslur þar sem að henni var lagt að játa á sig morðið á bróður- dóttur sinni. Hún sagðist ekki myndu gera það því hún hefði ekki gefið henni eitur. Var henni þá gerð grein fyrir því að staða henn- ar i málinu væri mjög slæm því hún hefði verið ein með litlu stúlkunni fyrir dauða hennar, gefið henni ís og væri ekki með neinu móti hægt að sýna fram líklegri or- sök láts Önnu. En Elisabeth Frederiksen hélt fast við sitt. Engar eiturleifar Lögmaður hinnar handteknu benti hvað eftir annað á að við rannsókn málsins heföu ekki komið fram neinar haldbærar sannanir fyrir því að hún væri sek. í íbúð Bauers-hjóna hefðu ekki fundist neinar leifar af arseniki. Þá lá fyrir að Elisabeth hafði skolað af diskin- um sem Anna litla borðaði af og síð- an sett hann í uppþvottavél. En rannsókn á henni leiddi ekki í ljós neinar eiturleifar. Þá gerði verjandinn að sérstöku umræðuefni ástæðu fyrir morði. Hvers vegna hafði Elisabeth átt að myrða systurdóttur sína? Hún dáði Önnu litlu og hafði aldrei sýnt henni annað en umhyggju. Svarið, eins og áður er komið fram, var á þá leið að hin handtekna hefði ekki átt nein böm sjálf og því viljað svipta bróður sinn og mágkonu dóttur þeirra. Um þetta og fleira sagði Emst Bauer: „Ég get alls ekki ímyndað mér að systir mín sé kaldriíjaður morðingi. Okkur hefur alltaf komið sérstaklega vel saman og hún elskaði Önnu litlu. Það hljóta að hafa orðið mikil mistök á öðrum vettvangi." Dómurinn En það var ekki að sjá að ákæravaldið væri þeirrar skoðunar að Elisabeth væri sak- laus. Hún fékk ákæm, var leidd fyrir rétt og dæmd í lífstíðarfang- elsi. Það vakti sérstaka athygli að dómurinn byggðist á óbeinum sönnunum og vísbendingum en beinar sannanir lágu engar fyrir. Elisabeth hélt ekki uppi neinum vömum fyrir sig sjálf og í eina skiptið sem hún sagði nokkuð var það til svars við spumingu dómar- ans er hann spuröi hvort hún heföi myrt Önnu. „Ég er ekki sek,“ svar- aði hún þá. Eftir dómsuppkvaðninguna sagði Elisabeth að líklega hefði það verið rangt af sér aö þegja að öðru leyti í réttinum. Hún heföi hins vegar haft það á tilfinningunni er réttarhöldin hófust að hún hefði verið dæmd fyr- ir fram. Ummæli hennar myndu engu breyta þar um. Sér hefði líka veriö sagt að orð hennar um hve mjög hún sæi eftir Önnu litlu hefðu ekki þótt nógu sannfærandi. Nýr og annars konar dómur Málinu var skotið til hæstaréttar. Þar lýstu dómarar því yfir að ýmis- legt skorti á að rannsókn málsins og málatilbúnaður stæðist þær kröfur sem gera yrði í slíku máli. Af gögn- um rannsóknarlögreglunnar mætti draga þá ályktun að grunur hefði aðeins beinst að einum aðila og eng- inn annar hefði þótt koma til greina. Niðurstaða hæstaréttar var á þá leið að dómur undirréttar skyldi felldur úr gildi og málið skyldi tekið til rannsóknar á ný. Var nú tekið að rannsaka ýmis- legt sem Anna litla gæti hafa komist í snertingu við og gæti skýrt arseni- keitmnina. Voru meðal annars tek- in sýni af málningu í skólanum sem hún hafði gengið í, en ekkert eitur fannst. Eftir þessa nýju rannsókn var málið dómtekið á ný. Þar var ýmis- legt dregið fram sem dregið gæti í efa þá fullyrðingu saksóknarans að Elisabeth væri sek. Bent var á að hryðjuverk væru ekki óalgeng í Þýskalandi. Fyrir kæmi að eitri væri komið fyrir í matvælum í stór- mörkuðum. Síðan væri haft samband við eigendur þeirra og þeim heitið ábendingum um hvar eitrið væri að finna gegn peninga- greiðslum. Þannig væri ekki hægt að útiloka að rjómaís- inn sem Elisabeth hefði fært frænku sinni hefði verið eitraður þegar hún keypti hann. Lokaniðurstaða Þessi rök nægðu þó ekki til þess að Elisabeth yrði sýknuð. Rætt var við talsmenn stór- markaðsins þar sem ísinn var keyptur en þeir sögðu engin bréf hafa borist þar sem krafist heföi verið fjár fyrir ábendingar um eitur í matvælum sem vom á boðstólum. Saksóknari hélt því fram eftir að þessi yfirlýsing barst að Ijóst mætti vera að hugleiðingar um hryðju- verk ættu ekki erindi að þessu sinni. Réttarhöldunum lauk með sama dómi og fyrir undirrétti í fyrra sinnið. Elisabeth Frederiksen var dæmd i lífstíðarfangelsi. Eftir dómsuppkvaðninguna sagði hún: „Réttlætið nær fram að ganga fyrr eða síðar því ég er saklaus." Málsniðurstaðan var til umfjöll- unar í Þýskalandi og sýndist siit hverjum. Sumir bentu á aö það gæti vart talist eðlilegt að foreldrar Elisabeth heföu látist úr arsenikseitmn meðan hún bjó hjá þeim. Það renndi stoðum undir þá skoðun að hún heföi eitrað fyrir bróðurdóttur sína, líklega af þeim ástæðum sem ákæruvaldið hefði nefnt. Aðrir sögðu það einkennilegt að hvergi í íbúð Bauers-hjóna heföu fundist neinar leifar eitursins. Heföi það verið í ísnum hefði að minnsta kosti smáhluti þess átt að verða eftir einhvers staðar þar, í uppþvottavélinni eða annars stað- ar. Þá lýstu sumir yfir þeirri skoðun að hvað svo sem segja mætti um fortíð Elisabethar og þá staðreynd að hún hefði gefið Önnu litlu ís rétt áður en hún veiktist skorti í raun sannanir, þannig að segja mætti að sekt hennar væri hafin yfir allan vafa. Hana hefði því átt að sýkna. Hver hafði rétt fyrir sér? Húsiö sem atvikiö geröist í. Legsteinninn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.