Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 38
 42 íimm FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 1998 Hjólreiðakappar á Kaldadal hjólað frá Þingvallavatni að Húsafelli, um 67 km leið Hjólreiðar eiga vaxandi fylgi að fagna hér á landi þó aðstæð- ur til hjólreiða séu á engan hátt sambærilegar við það sem gerist hjá nágrannaþjóðum okkar í norðanverðri Evrópu. Hjólreiðamenn á íslandi láta slakar aðstæður hins vegar ekki á sig fá og þeim fer ört Sölgandi sem hafa uppgvötvað hve skemmtilegar hjólreiðarn- ar eru. Ejallahjól hafa náð miklum vinsældum á íslandi vegna þess hve vel þau henta íslenskum aðstæðum. Dekkin eru grófmynstruð og henta vel á malarvegum eða vegleysum sem nóg er af á íslandi. Ekki spillir ef hjólfákarnir eru með dempurum á öðru eða jafnvel báðum hjólum til að draga úr óþægilegum hristingnum. Nokkrir kunningjar, sem all- ir eiga það sameiginlegt að vera komnir yfir þrítugt, hafa hist reglulega á hjólareiðaæf- ingum á undanförnum misser- um. Þessir kappar hafa allir ein- hvem bakgrunn úr íþróttaiðkun og hafa lítinn áhuga á því að leggjast í hreyfingarleysi. Á hverju ári hafa þeir félagamir skipulagt einn erfiðan hjólreiðatúr að sumarlagi á lands- byggðinni. í fyrra var farin leiðin frá Gullfossi að Kerlingarfjöllum en í ár var ákveöið að hjóla Kaldadalinn, á milli Þingvallavatns og Húsafells. Finnur Thorlacius var einn kapp- anna. ■ „Við vorum 9 sem fórum Kaldadal- inn fóstudaginn 24. júlí síðastliðinn. Margir úr þeim hópi fóra einnig ferð- ina í fyrra í Kerlingarfjöll þó ég hafi ekki verið þar á meðal. Við vorum mættir á upphafsstað- inn við Þingvallavatn klukkan 10 um morguninn. Sjö okkar komu saman úr bænum og leigðum við okkur stóra leigubifreið með aftanívagni fyrir hjólin. Hinir tveir era með sum- arbústað á Þingvöllum og skiluðu sér þaðan á upphafsstaðinn. Veðrið var eins og best verður á kosið þennan fóstudagsmorgun, um 15 stiga hiti, gera við dekk eða fá okkur eitthvað að borða. Það voru allir með léttan og orkuríkan mat meðferðis, s.s. döðlur, rús- ínur, banana, súkkulaði, vatn og/eða orkudrykki." Leiðin um Kaldadalinn frá Þingvaliavatni að Húsafelli er mjög falleg og virkilega gaman að hjóla hana. nánast logn og sólarglæta af og til,“ sagði Finnur. Góður félagsskapur „Við félagarnir höfum ekki aðeins gaman af hreyfingunni. Fögur nátt- úra landsins heillar okkur alla og fé- lagsskapurinn er mikils virði. Af þeim sökum reynum við yfirleitt að velja fallegar leiðir til hjólreiðaferð- anna. Keppn- ---------------------- isandinn er mikill í hópnum en sam- heldnin ekki síð- ur. Af þeim sök- um héldum við hópinn mestalla leiðina. Ferðin gekk að mestu leyti að ósk- um en eins og við mátti búast sprangu dekk á tveimur hjólanna, þar af þrisvar sinnum á sama hjólinu. Við héldum hópinn á meðan verið var að gera við og það var ekki fyrr en á lokakaflanum sem gefinn var laus taumurinn og nokkur keppni Umsjón DV-mynd Finnur Thorlacius hófst um hver næði fyrstur á leiðar- enda. Eiginkonur kappanna komu ak- andi i Húsafell til móts við okkur en tvær þeirra óku reyndar Kaldadalinn til öryggis. Leiðin var heldur upp á við til að byrja með, upp að vörðu sem er i tæp- lega 500 metra hæð, þar sem rúmlega helmingur vegalengdarinnar var að baki. Höfðum við þá hækkað okkur um tæpa 400 metra. Húsafell er hins ---------------- vegar í svipaðri ísak Örn Sigurðsson hæð yfir sjávar- mál og upphafs- punkturinn við Þingvallavatn og leiðin því heldur niður í móti síðari hlutann. Tveir okkar vora með kilómetramæli á hjólunum og ef þeir mælar lugu ekki lögðum við að baki 66-67 km. Það liðu 5 klukku- stundir frá því að við lögðum af stað og þar til áfangastaðnum var náð en við vorum þó ekki nema 3 klst. og 50 mínútur á hjólunum. Við stoppuðum af og til til að teygja stirða vöðva, „Kaldidalurinn er á köflum frekar erfiður fyrir hjólreiða- menn. Sumir kaflar leiðarinn- ar eru mjög grýttir og hrist- ingurinn mikill. Það kom sér því vel að vera með dempara á hjólinu. Leiðin er hins vegar mjög falleg og virkilega gaman að hjóla hana. Ég sé ástæðu til þess að hrósa ökumönnum fyr- ir hve mikla tillitssemi þeir sýndu okkur hjólareiðamönn- unum á leiðinni. í lok ferðarinnar, þegar við hjóluðum á hálfgerðu kappi á lokasprettinum, kom óhapp fyrir. Einn hjólreiðamann- anna datt illa á töluverðum hraða, hátt í 50 km, og skrámaðist töluvert. Það varð honum hins vegar til bjargar að hafa hjólreiðahjálm því hann datt beint á höfuðið. Hjálmur- inn sprakk við óhappið og er gerónýt- ur en bjargaði hins vegar alveg höfð- inu. Það sannar enn einu sinni hve hjálmurinn er mikilvægm’ öllum hjól- reiðamönnum. í lokin var Ijúft að leggjast i heita pottinn á Húsafelli og mýkja upp sár- an afturendann. Annars voru allir merkilega vel á sig komnir eftir ferð- ina. Hjólreiðamennirnir áttu síðan allir ljúfar stundir með fjölskyldum sínum um helgina á Húsafelli. Ég var sjálfur á lánshjóli frá vinnufélaga mínum, sem reyndist mér prýðilega, en eftir ferðina er ég kominn með alvarlega hjólreiða- dellu. Ég var svo lánsamur að kom- ast í stutta ferð til Minneapolis í síð- ustu viku og þar fjárfesti ég í dýrind- is hjóli með dempurum á báðum hjólum. Ég hlakka mikið til að kom- ast i annan eins túr á nýja hjólinu," sagði Finnur. -ÍS Góð þátttaka í Laugavegshlaupinu: Met í kvennaflokki Laugavegshlaupið á milli Land- mannalauga og Þórsmerkur fór fram þann 25. júlí síðastliðinn. Hlaupið er orðið að árlegum við- burði og þátttakendur hafa aldrei verið fleiri, þeir voru 79 talsins í Keppendurnir í Laugavegshlaupinu eru hér allir saman komnir viö skála FÍ í Þórsmörk aö loknu afrekinu. ár. Þrátt fyrir að leiðin sé um 55 km við erfiðar aðstæður hafa náðst afbragðstímar á þessari leið. Að þessu sinni var ekki sett met í karlaflokki en metið í kvenna- flokki var slegið svo um munar, eða um tæpa eina og hálfa klukku- stund. Hin mikla hlaupakona Bryndís Ernts- dóttir (systir Mörthu) fór þessa vegalengd á 5 klst. 44 mínútum og 26 sekúndum sem er frábær tími. Hún var 1 fimmta sæti allra keppenda, aðeins 7 mínút- um á eftir Stein- Nafn Flokkur Fæðinearár Tími Steinar Jens Friðgeirsson karlar 40-49 1957 5:27:29 Arnaldur Gylfason karlar 18-29 1972 5:36:04 Ágúst Kvaran karlar 40-49 1952 5:36:36 Bjartmar Birgisson karlar 30-39 1964 5:41:00 Bryndís Ernstsdóttir konur 18-29 1971 5:44:26 Dagur Bjöm Egonsson karlar 30-39 1964 . 5:45:19 Guðjón E. ólafsson karlar 50-59 1945 5:52:19 Þórhallur Jóhannesson karlar 40-49 1953 5:58:00 Þórður G. Sigurvinsson karlar 40-49 1953 5:59:38 Taflan sýnir þá hlaupara sem komu fyrstir í mark í Laugavegshlaupinu. ari Jens Friðgeirssyni sem varð í fyrsta sæti á tímanum 5:27:29 klst. Hlaupið tókst í alla staði vel en eins og vænta mátti tók það nokk- uð á þrek keppenda. Keppendur voru vigtaðir fyrir og eftir hlaup og léttust flestir á bilinu 2-4 kg á leiðinni. Sumir misstu jafnvel 5 kg á leiðinni og er þetta því hin besta megrunaraðferð. Auk einstaklingskeppni var keppt í sveitum. Hlutskörpust varð sveit „Kolbeins kafteins" sem skip- uð var Arnaldi Gylfasyni (5:36:04), Bryndísi Erntsdóttur og Geir Guð- jónssyni (6:29:42). í öðru sæti var sveit „Vormanna" og i þriðja sæti sveit „Vina Dóra“. -ÍS Komdu og fáöu hlaupaskó sem henta: * þinni þyngd og hlaupalagi * þinni vegalengd og því undirlagi sem þú hleypur á Mesta úrval landsins af hlaupaskóm og sérhæföum hlaupafatnaöi. Skoöum hvernig þú stígur niöur. Notum hlaupabretti og cmnTÆ'i/'ATÍ upptökubúnaö. ihlvn' ^ m réttu skóna fyrir þig. Fætur efU okkar fag 23 dagar til Reykjavíkur maraþons Reykjavíkur maraþon Hlaupaáœtlun fram að 23. ágúst Vlka 9 Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Rmmtudagur Föstudagur Laugardagur Sunnudagur Æfing: Hraðalelkur: ágúst Skemmtiskokk hvíld 30-40 mín. skokk eöa ganga hvíld 20-35 mín. vaxandi hvíld 30-50 mín. skokk eöa ganga sund eöa hjólreiöar 10 km byrjendur 20 mín. rólega og æfing hvíld 35-50 mín. vaxandi hvíld 40 mín. rólega eöa hraöaleikur hvíld eöa létt skokk sund eöa hjólreiöar 40 mín. hraöaleikur 30-60 mín. rólega 10-16 km rólega 10 km lengra komnir 8-10 km rólega 20 mín. rólega og æfing hvíld 8-12 km vaxandi 6-8 x 300 m meö 100 m rólegu skokki á milli spretta. Hraöinn sé meiri en kepnis- hraöi í 10 km hlaupi en alls ekki sprettur á fullri ferö. Hlaupa rólega í 5-10 mín., síöan til skiptis álag og rólegt skokk í jafnlangan tíma og álagiö varir. Álagskaflarnir séu 2 mín., 4 mín., 8 mín., 4 mín., 2 mín. Skokka rólega í lokin. Álagskaflarnir séu á 10 km keppnishraöa eöa hraöar. Byrjendur sleppi 8 mín. kaflanum. Vaxandi: Byrja rólega fyrstu 5-10 mín., auka síöan hraöann og reyna aö fara hraöar en væntanlegur keppnishraöi, skokka rólega 5-10 mín. í lokin. Hálfmaraþon og maraþonhlauparar. Þrjár lykilæflngar: 1. 60-70 min. hraOaleikur. 10 min. upphitun, síðan álagshluti þar sem sklptast á álagskaflar og skokk sem tekur sama tima, álagskaflarnir séu 2 mln., 4 mín., 8 mín., 8 min., 4 mín., 2 mín. og 10 mín. skokk i lokin. Hraði í álagsköflum sé 10 km keppnishraði eða hraðar. 12-18 km S vaxandi hraða. Byrja rólega en fara vel yfir keppnishraða. 16-26 km rólega (maraþonhlauparar yfir 24 km) Aðrar æfingar séu róleg langhlaup (30-60 min.). Róleg æfing daginn eftir erfiða æfingu. Gunnar Páll 1998 I Framundan Í6. ágúst Sri Chinmoy 5 km. Hlaupið hefst klukkan 20.00 við Ráðhús Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km með timatöku. Flokkaskipting ákveöin síðar. Allir sem ljúka keppni fá verð- launapening. Upplýsingar hjá Sri Chonmoy-maraþonliðinu í síma 553 9282. 6. ágúst Víðavangshlaup UMSE Upplýsingar um hlaupið á skrifstofu UMSE í símum 462 4011 og 462 4477. S. ágúst Fjöruhlaup Þórs Hlaupið hefst klukkan 14.00 við Óseyrarbrú. í boði er að hlaupa | eða ganga annaðhvort 4 km eða S10 km eftir fiörusandinum frá Ós- ■ eyrarbrú að íþróttamiðstöð Þor- | lákshafnar. Flokkaskipting bæði | kyn: 12 ára og yngri (4 km), 13-14 ára, 15-39 ára, 40-49 ára, 50 ára og eldri. Allir sem ljúka hlaupunum fá verðlaunapening og sigurveg- f arar sérstaka viðurkenningu. I Skráning fer fram við íþróttamið- stöð Þorlákshafnar og lýkur klukkan 13.15. Upplýsingar hjá Jóni Sigurmundssyni í síma 483 3820, fax 483 3334, og Inga Ólafs- syni í síma 483 3729. i 11. ág.: Orkuboðhlaup í Elliðaárdal Almenningsboðhlaup ÍR og | Rafmagnsveitu Reykjavíkur hefst klukkan 19.00 við Rafstöð- | ina í Elliðaárdal. Fimm einstak- lingar skipa hverja sveit. Keppt verður í þremur flokkum; karla- flokki, kvennaflokki og blönduð- um flokki (2 karlar og 3 konur eða 3 karlar og 2 konur skipa hverja sveit). Vegalengdir eru um 3 km (3 hlauparar hlaupa þá vegalengd) og um 6,5 km (2 hlauparar hlaupa þá vegalengd). Allir sem ljúka keppni fá verð- launapening og sigursveit í hverjum flokki fær sérstök verð- laun. Upplýsingar gefa Kjartan Ámason í síma 587 2361, Haf- steinn Óskarsson í sima 557 2373 og Gunnar Páll Jóakimsson í síma 565 6228. 23. ágúst Reykjavíkur maraþon Hlaupið hefst klukkan 10.00 f Lækjargötu. Vegalengdir: 3 km og 7 km skemmtiskokk án tímatöku. 10 km, hálfmaraþon og maraþon með tímatöku hefst klukkan 10.00. Meistara- mót íslands í maraþoni. Flokkaskipting bæði kyn. 14 ára og yngri, 15-17 ára (10 km), 16-39 ára (hálfmaraþon), 18-39 ára (10 km og maraþon), 40-49 ára, 50-59 ára, 50 ára og eldri konur (hálfmaraþon og mara- þon), 60 ára og eldri. Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapen- ing og T-bol. Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki. Útdráttarverðlaun. Sveita- keppni. Forskráningu lýkur 20. ágúst, eftir þann tíma hækkar skráningargjald á öll- um vegalengdum um 300 krón- ur nema í skemmtiskokki. Upplýsingar á skrifstofu Reykjavíkur maraþons í Laug- ardal í síma 588 3399. 30. ágúst Esjuhlaup Hlaupið hefst klukkan 13.00 og skráning er frá klukkan 11.00. | Upplýsingar hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík í síma 896 3611. 5. sept: Brúarhlaup UMF Selfoss Hlaupiö hefst klukkan 14.00 við Ölfusárbrú, hálfmaraþon hefst klukkan 13.30. Vegalengd- ir: 2,5 km, 5 km, 10 km og hálf- maraþon með tímatöku. Flokka- skipting bæði kyn: 12 ára og yngri (2,5 km), 13-17 ára, 16-39 ára (hálfmaraþon), 18-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og 60 ára og eldri. Einnig er keppt í 12 km hjólreiðum og hefst sú keppni klukkan 13.00. Allir sem ljúka keppni fá verðlaunapening og T- bol. Úrslit verða send í pósti. : Upplýsingar gefur Kári Jónsson í síma 482 3758 og skrifstofa UMFÍ, Fellsmúla 26, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.