Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999 Fréttir Umræða um stefnuræðu forsætisráðherra: Jöfnuður, réttlæti og lýðræði - segir Margrét Frímannsdóttir, talsmaður Samfylkingar Gu>ni Ágústsson landbúna>rrá>herra gaukar nammi a> Sturlu Bö>varssyni sam- göngurá>herra. Heilbrig>isrá>herra lætur sætindin a> vonum eiga sig. DV-mynd HfiG í umræðum um stefnuræðu forsæt- isráðherra lögðu stjómarandstæðingar áherslu á að stöðugleikinn væri í hættu. Honum væri ógnað af verð- hækkunum sem komið hafa í ljós strax eftir kosningamar, ekki síst vegna verka ríkisstjómarinnar. Þeir gagn- rýndu stefnuræðuna og sögðu hana innihaldslausa. Þá ræddu ræðumenn Samfylkingarinnar tilkomu hennar sem stórs stjórnmálaafls sem ætti eftir að láta til sín taka. Margrét Frímanns- dóttir, talsmaður Samfylkingarinnar, sagði að það kjörtímabil sem væri að hefjast yrði um margt sögulegt, ekki síst fyrir tilstilli Samiylkingarinnar sem myndi veita rikisstjóminni harða en málefnalega stjómarandstöðu. Hún sagði að miðað við ástand efnahags- mála nú hefði verið skynsamlegra að hækka ekki bensíngjald ofan í hækk- anir á innkaupsverði bensíns. „Sam- fylkingin hefur allt aðra framtíðarsýn en ríkisstjóm Davíðs Oddssonar: Hún vill tryggja öllum landsmönnum, ein- staklingum og fjrirtækjum jöfnuð, réttlæti og lýðræði," sagði Margrét Frí- mannsdóttir Hæfileikaskortur Kolbrún Halldórsdóttir, alþingsmað- ur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sagði stóriðjustefnu ríkis- stjómarinnar ekki ábyrga stjórnmála- stefnu heldur glapræði og bæri einung- is vitni hæfileikaskorti stjómvalda til að meta hin raunverulegu auðæfi þjóð- arinnar. Landi> í smúum Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra sagði að enn heyrðu menn hamarshögg og vélagný og sæju hug- prúða menn hafa ærinn staifa, at- vinnuleysi væri horfið og eftirspum rikti eftir vinnuafli og sóknarhugur á flestum sviðum. Hann sagði þó Sam- fylkinguna skorta sóknarhuginn þótt þar innanborðs væri margt skrafhreif- ið og skemmtilegt fólk. fiverpólitísk gle>i Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra sagði að það rikti þverpólitísk gleði yfir framsókn kvenna inn á Al- þingi í síðustu kosningum. Þær væm nú 35% þingmanna á móti 25% á síð- asta þingi. Þá hefði konum í ríkis- stjóm fjölgað. Fjölgar me> fylgistapi Steingrimur J. Sigfússon, Vinstri grænum, sagði að máiflutningur Guðna Ágústssonar landbúnaðarráð- herra hefði helst minnt sig á gleðilæti bolakálfs sem sleppt væri út i vorið. Þar hefðu orðið snögg umskipti því að skammt væri síðan sama manni leið eins og Gunnari á Hlíðarenda. Land- búnaðarráðherra ætti að nálgast af að- eins meiri aivöm þau vandasömu við- fangsefni sem hann hefði fengið í hendur. Endurteki> upplausnarástand Guðjón A. Kristjánsson, alþingis- maður Frjálslynda flokksins, gerði kvótamál og byggðamál að umtalsefni í máli sínu. Hann sagði að flokkur sinn legði höfuðáherslu á breytingar á fisk- veiðistjómunarkerfinu. „Við teljum að hagsmunir sjávarbyggðanna allt í kringum land og fólksins sem hefur at- vinnu af sjósókn og flskvinnslu sé í stórhættu ... Um framhald kvóta- brasksins verður ekki sátt við þing- menn Frjálslynda flokksins." -SÁ Við erum himinlifandi - segja Oz-menn eftir tímamótasamning við Ericsson Vi> hátólega athöfn á Kjarvalsstö>um í gær. I ræ>ustól er fulltrúi Ericsson, Staffan Lindholm framkvæmdastjóri, næstur honum situr Skúli Mogensen, flá Ólafur Ragnar Grímsson, sem hei>ra>i samkomuna, Gu>jón Már Gu>jónsson og Herman av Trolle, sendiherra Svífljó>ar á íslandi. DV-mynd Teitur „Þetta er mikill sigur og við erum náttúrlega himinlifandi með samninginn," sagði Skúli Mogen- sen, forstjóri Oz hf„ í gær. Oz hefur gert samning við sænska iðnaðar- risann Ericsson um sölu á hlutafé að upphæð einn milljarður ís- lenskra króna. Samning- urinn er hinn sami og DV greindi frá í des- ember slð- astliðnum. „Við erum eitt af leið- andi fyrirtækjum í heiminum á áKveðnum samskiptalausnum á Netinu og ég held ég geti fullyrt að við erum framarlega á ýmsum svið- um. Þeir sjá dínamikina innanhúss hjá okkur, við erum litlir á heim- mælikvarða, erum snöggir að skynja það sem er að gerast og bregðumst fljótt við. Hjá Ericsson og slík- um risafyrirtækj- um er ákvarðana- takan kannski ekki alltaf eins skjót,“ sagði Skúli Mogensen í gær. Skúli segir að eft- ir sem áður sé Oz ís- lenskt fyr- irtæki, meirihluti hluta- bréfanna sé eftir sem áður hjá ís- lenskum hluthöfum. Hann segir að samningurinn þýði aðgang Oz að risafyrirtækinu Ericsson og gríðar- legri rannsóknarvinnu hjá því en auk þess aðgang að stórkostlegu sölu- og markaðsneti um allan heim. Skúli segir enn fremur að það liggi fyrir að ýmsar nýjar og áhuga- verðar vörur muni koma á markað frá Oz og Ericsson í náinni framtíð en ekki sé hægt að gefa upp hverjar þær vörur séu. -JBP -«-3S£' TörivfjrirtakH 02 i lUigiodi uppleið ocrnrid i W H Ericsson vill -20prtl«ililillltiiri.||lrirtlllimaM tomu. VHr.Jp, .J u^d.bHp. Eins og sjá má á úrklipp- unni frá 3. desember var bla>i> me> hárrétta frétt um samkomulag Oz og Ericsson. Kaupþingsmenn vilja svör næstu daga - eru með stöndugan viðskiptavin sem vill kaupa mjólkurbúið á Húsavík Kaupþing hf. vinnur áíram að því að kaupa Mjólkursamlag KÞ á Húsa- vík. Tilboð sem Kaupþing sendi fyrir hönd viðskipta- vinar var 113 milljónum króna hærra en KEA hafði boðist tO að greiða, eða 350 milljónir. „Það voru menn frá okk- ur fyrir norðan í gær, þeir voru að fara í gegnum spumingalista sem yfirleitt er farið í gegnum þegar gerð eru tilboð eins og þetta,“ sagöi Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup- þings hf. Hann sagði að nú væri beðið eftir nánari viðbrögðum frá Húsavík. Sigur>ur Einars- son, forstjóri Kaupflings hf. En hver vill kaupa Mjólkur- hannes Jónsson í Bónusi sagði í gær samlag KÞ? að svo væri ekki. Hann „Það get ég ekki sagt þér V heföi sýnt enda væri ég þar með búinn v V. (|| ’ _____ áhuga í að missa viðskiptavin. hér kom aðili sem við metum fjárhags- lega traustan. Við vitum að honum er full alvara með þessu tilboði. Við sjáum hveiju fram vindur, þetta skýrist næstu daga,“ sagði Sigurður Einarsson. Baugur hf. og dóttur- og bræörafyrirtæki þess hafa verið orðuð við kaupin. Jó- upphafl En verið vísað frá, að því er best væri séð. Bónus á aðild að mjólkurbúi í Nes- kaupstað sem gengur vel. Sól-Víkingur hf. er heldur ekki inni í myndinni, að sögn Baldvins yalde- marssonar framkvæmdastjóra. Áhugi þeirra á mjólkurdrykkjum og annarri framleiðslu úr mjólk væri ekki lengur fyrir hendi. Fyrir nokkrum árum vftdi Sól hf. kaupa mjólkursamlagið í Borgamesi. -JBP Mjólkursamlag Kfi á Húsavík er eft- irsótt fyrirtæki. Bændur, eigendur fless, fá tilbo> gegnum Kaupfling sem er verulega hærra en fla> sem KEA bau> fyrir fyrirtæki>. fia> munar um 113 milljónir. Stuttar fréttir i>v Meiri pening Embættis- menn sem heyra undir úrskurðar- vald kjaranefnd- ar kreftast 13,5% launahækkunar í samræmi við úr- skurð Kjaradóms frá 8. maí. Magn- ús Jónsson, veðurstofustjóri og for- maður Félags forstöðumanna rikis- stofnana, segú að rök Kjaradóms fyr- ir launahækkun embættismanna sem heyra undir Kjaradóm gildi einnig um forstöðumenn rOcisstofn- ana. RÚV sagði frá. Kosovo dýrt Svo gæti farið að kostnaður ís- lands vegna þátttöku í aðgerðum NATO í Kosovo aukist um 10-20 mOljónir og verði á bOinu 50-60 mOljónir. Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra gerði ríkisstjóminni grein fyrir þessu í gær. Varað við fæðubót HoOustuvemd varar fóOí við að neyta fæðubótarefnis sem nefnist Chaparal þar sem það veldur alvar- legum lifrarskemmdum. Efnið er selt á Netinu en ekki er vitað um að það hafl verið selt á íslandi. Æfingaflugið burt Sturla Böðv- arsson sam- gönguráðherra hefur lagt tO við Reykjavíkurborg og flugmálayflr- völd að leggja nýja flugbraut tO æflnga- og kennsluflugs. Hann kynnti málið á ríkisstjómarfundi í gær. Aldin aftur í gang Húsvíkingar vonast til að rekstur Aldins hefjist á ný. íslenskir og sænskir aðOar hafa sýnt áhuga á að yfirtaka starfsemina sem komin var í þrot gjá KÞ. Dagur sagði frá. Rafmagnshækkun Rafmagnsveitur ríkisins boðuðu í gær 3% hækkun á gjaldskrá sinni. Kristján Jónsson, forstjóri RARIK, sagði við Stöð 2 í gær þetta vera nið- urstöðuna eftir að Landsvirkjun hækkaði orkuverð tO rafveitna. Áhyggjur í Grandaskóla Foreldrafélag og foreldraráð Grandaskóla hafa sent erindi til Kennarasambands íslands þar sem lýst er yfir þungum áhyggjum vegna þess að 19 kennarar við skólann hafa ákveðið að segja upp störfum sínum frá og með 1. september nk. Dagur sagði frá. Hass í kirkjugaröi Lögreglan tók nokkra unglinga í sína vörslu í gærkvöld sem urðu uppvísir að því að reykja hass í kirkjugarðinum í Grafarvogi. Morg- unblaðið greindi frá. Misskilningur Grimur Sæ- mundsen, fram- kvæmdastjóri Bláa lónsins, segir gagnrýni þá sem fram kom í bréfi Robins Kirkhus, norsks atvinnu- kafara sem stadd- ur var í lóninu er taívönsk kona lést þar á sunnudag, byggða á misskOn- ingi. Morgunblaðið greindi frá. Vilja ekki virkja Helmingur aðspurðra Skagfirð- inga vOl að ekki verði virkjað á ein- stökum tilgreindum virkjunarstöð- um í sýslunni og er tObúinn að borga fyrir það. Þetta kom fram á ráð- stefnu um mat á arðsemi hálendis- svæða. RÚV sagði frá. Dæmdir fyrir rán Gauti Ólafsson var í gær dæmdur í þriggja og hálfs ára fangelsi. Tveir aðrir voru dæmdir en refsing þeirra var vægari. Haukur Guðmundsson var dæmd- ur í 18 mánaða fangelsi og Ant- hony Antonsson var dæmdur í 10 mánaða fangelsi. AUir sakborn- ingarnir hafa komið við sögu lög- reglu áður. -SÁ/ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.