Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1999, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNÍ 1999 * 35 DV Mikki kveður ástkonuna Rollingurinn Mick Jagger hef- ur sagt bæbæ við venesúelska ástkonu sína, þá hina sömu og kjaftaði frá að þau gerðu það fimm sinnum á nóttu. Það var einmitt kjaftavaðallinn sem fór fyrir brjóstið á rokkaranum ald- urhnigna. „Hann vissi að upp kæmist um sambandið og um leið og það gerðist sagði hann að nóg væri komið," segir heimildarmaður breska blaðsins People. Mikki og stúlkan, sem heitir Vanessa, byrjuðu saman um jólaleytið. Sophie græddi á brjóstamynd Sophie Rhys-Jones, sem ætlar að ganga að eiga Játvarð Elísa- betarson Englandsdrottningcir á næstunni, hefur fengið um átta milljónir króna á laun frá æsi- blaðinu Sun. Þeir aurar eru hagnaður blaðsins af sölu ber- brjóstamyndar af Sophie sem blaðið birti og seldi síðan til ann- arra fjölmiðla í Evrópu. Ekki ætlar Sophie þó að stinga pen- ingunum I eigin vasa heldur gefa þá til líknarmála. Rod vill ekki nektarmyndir Ekkert má maður nú. Rachel Hunter er, rétt eins og Jerry Hall, fyrrum fyrirsæta og fyrr- um eiginkona frægs og ríks poppara. Og eins og Jerry verður hún að fara út að vinna fyrir saltinu í grautinn. Rachel hafði hyggju að láta taka af sér nektar- myndir en Rod gamli varð æva- reiður, hringdi í hana og skammaðist. Aumingja Rachel lét þá undan og hætti við allt, að sjálfsögðu bamanna vegna. Sviðsljós Fyrrum tengdadóttir íslands grípur til örþrifaráða: Mel B fer til miðils vegna heimavanda Keanu rokkar á Glastonbury Leikarinn Keanu Reeves er eins og kunnugt einnig bassa- leikarinn í groddarokkshljóm- sveitinni Dogstar. Löngum hefur þó loðað við sveitina að tónleika- gestir hennar hafi frekar áhuga á að berja Keanu augum en að hlýöa á tónsmíðar sveitarinnar. Hvað sem satt kann að vera í þeim efnum mun sveitin í sumar troða upp á Glastonbury tónlist- arhátíðinni á Englandi meöal ekki ófrægari nafna en REM og Lenny Kravitz. Þá reynir fyrst á Keanu og félaga. Sími 553 5555 GSM 899 5555 Fax 581 2474 Bílakaup Bílasala Innftutníngur Ráðgjöf Paul mótmælir Bítillinn Paul McCartney hefur enn einu sinni sett sig upp á móti tilraunum með dýr. í þetta sinn hefur hann tileinkað lag og myndband baráttunni gegn tilraunum með dýr við framleiðslu hreingerningaefna af ýmsu tagi. söm eftir að hafa bæði gengið í hjónaband og eignast barn. Svo fór að lokum að rætt var um hjóna- skilnað en Mel hefur ekkert látið uppi um hvað hún hyggst fyrir í þeim efnum.“ Athygli hefur vakið að miðillinn, sem Mel B leitaði til, er sá hinn sami og Geri Halliwell, erkifjandi hennar innan Kryddpíanna, heim- sótti á sinum tíma. Langt er síðan brestir fóru að koma í ljós í hjónabandi Mel og Jimmys og er svo komið að hann sefur í annarri álmu á herrasetri þeirra hjónakomanna. Til sölu: Opel Fonterra 2.8 TDI '96, ek. 72 þús. km, mjög vel búinn og fallegur bíll. ilnSS Kryddpían Mel B veit ekki sitt rjúkandi ráð. Á hún að gefa dansar- anum Jimmy Gulzar sparkið, eður ei? Ekki beint einfalt mál þar sem kappinn er bæði eiginmaður henn- ar og faðir litlu dóttur hennar. Og eins og sannur Islendingur (Mel B var jú eins konar tengdadóttir ís- lands um tíma) í vanda leitaði hún ásjár miðils til að fá einhvern botn í málið. „Mel opnaði hjarta sitt og sagði frá bókstaflega öllu á fundinum," segir vinkona hennar um miðiðsfór- ina. „Hún vildi fá að vita hvers vegna hún væri svona óhamingju- Mel B líður ekkert allt of vel um þessar mundir. Til sölu: Toyota Land Cruiser 90 special '97, ek. 56 þús. km, 5 g., græns., toppl. o.fl. Jerry Hall er farin að vinna aftur fyrir sér sem fyrirsæta. Hér hefur hún tyllt sér á stórt sápustykki sem hún tók að sér að auglýsa. Breskur dómstóll ákveður síðar þessum mánuði hversu mikla peninga eiginmaður hennar fyrrverandi, Rollingurinn Mick Jagger, þarf að greiða henni við skilnaðinn. Bílastíll er bílasala fyrir fólk sem gerir kröfur um glæsilegt útlit og gæði, _______á góðu verði.lnnfl. notaðra, nýlegra bíla á hagstæðu verði._ ^ Löggildur söluaðili - Útvegum bílalán. v Ekkja Schindlers ásakar Spielberg Ekkja Oscars Bchindlers, iðju- höldsins sem bjargaði ótal gyðing- um frá Helfór nasista á stríðsárun- um, heldur því fram að hann hafi ekki verið einn að verki og hefur stefnt leikstjóranum Steven Spiel- berg fyrir að hafa gert hlut sinn í hetjudáðinni minni en eiginmanns- ins í kvikmyndinni Listi Schindlers. Segir hún myndina, sem sópaði að sér peningum jafnt sem verð- launum, í raun hafa átt að heita „Listi Schindlerhjónanna" og telur Spielberg hafa hagnast ótæpilega á ósvífnum lygum. Hún hefur því í hyggju að höfða mál á hendur leikstjóranum og krefjast 6 prósenta af hagnaði myndarinnar í skaðabætur. Erfitt gæti þó reynst að innheimta skuld- ina fari svo að Spielberg verði sek- ur fundinn því hann hefur sett allan hagnað af myndinni í sjóð til styrkt- ar skráningu endurminninga fóm- arlamba Helfararinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.