Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1999, Page 22
22
MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ1999
Fréttir
Tófa skotin viö bæjardyr:
Var að ólmast í lömb-
um í hlaðvarpanum
DV, Hólmavík:
„Tófan var að ólmast í lömbum
hér í hlaðvarpanum þegar ég skaut
hana. Þá var hún 23 metra frá bæn-
um. Manni flnnst nú vera orðið full-
langt gengið þegar þær nánast berja
að dyrum hjá manni,“ sagði Indriði
Aðalsteinsson á Skjaldfónn, sem
þetta upplifði um miðjan dag 15.
júní Þetta var sjöunda tófan sem
hann fellir frá sumarbyrjun og nær
allar hefur hann skotið innan tún-
girðingar þar sem þær hafa verið
innan um lambféð.
Hann segir dapurlegt til þess að
vita að þingmönnum Vestfírðinga
skyldi ekki hafa tekist að ná því
fram á tveimur þingum í röð að
hefja mætti veiðar á tófu og mink í
friðlandinu á Homströndum - þess-
um skaðræðisdýrum íslenskrar
náttúru, svo ekki sé nú minnst á
hagsmuni sauðfjár- og hlunninda-
bænda.
Undarlegt að augu fólks á löggjaf-
arsamkundunni skuli ekki hafa
opnast fyrir því hversu mikla vá
hér er um að ræða. Ekki vanti að
sannanir fyrir mikilli fjölgun tófu
og ferðum hennar út fyrir friðland-
ið hafi verið lagðar fram. Það sé svo
augljóst öllum sem skilja vilja að
þegar fæðuframboðið minnkar leiti
dýrin lengra frá.
Indriði segist hafa líkt því við
gárur á vatni sem steini hefur verið
kastað i.
„Ekki er svo til að bæta ástandið
að engin grenjavinnsla hefur farið
fram á siðasta ári í Snæfjallahreppi
sem nú tilheyrir ísafjarðarbæ. Það
væri aðgerð í byggðastefnu sem
mark væri tekið á ef ákveðið væri
að hefja átak til að fækka þessum
vargdýrum í náttúru fslands," sagði
Indriði á Skjaldfónn.
-GF
Hitaveita Akraness og Borgarfjaröar:
Eiginfjárstaða í fyrsta sinn
jákvæð á 20 ára afmælinu
DV, Vesturlandi:
Nýkjörin stjórn HAB. Aftari röð f.v.: Gunnar Sigurðsson, Sveinn Kristinsson,
Kjartan Kjartansson, Þorvaldur Vestmann, forstöðumaður tæknisviðs Akra-
nesveitu. Fremri röð f.v.: Óli Jón Gunnarsson, Guðmundur Jóhannsson, for-
maður stjórnar, Magnús Oddsson, forstjóri HAB, og Ríkharð Brynjólfsson.
DV-mynd Daníel
955 milljónir. Veltufé frá rekstri
hækkaði úr 79,9 milljónum og eig-
ið fé var jákvætt um 7,3 milljónir.
Það er fyrsta sinn í sögu fyrirtæk-
isins sem eiginfjárstaða er jákvæð
og er fyrirtækið nú komið með eig-
infjárstöðu upp á 0,01 á 20 ára af-
mælinu.
Þótt eiginfjárstaða sé lítil, þá er
talverðum áfanga náð með því að
hún er orðin jákvæð. Einkum í
ljósi þess að fyrir uppskiptin og
framlög eignaraðila í árslok 1995
var eiginfjárstað neikvæð um 1221
milljón. Erlendar skuldir iækkuðu
á árinu úr 953 milljónum í 916
milljónir þrátt fyrir gengistap.
Hafa skuldimar þá lækkað um 183
milljónir á þeim þremur ámm sem
liðin era frá því að fyrirtækið tók
til starfa í breyttu formi.
Fjárhagsleg afkoma síðasta árs
er að mörgu leyti hagstæð, sem
ekki er síst því að þakka að stöðug-
leiki hefur ríkt í efnahagsmálum
og gengi íslensku krónunnar verið
stöðugt. HAB er í eigu Akranes-
kaupstaðar sem á 53,7%, Andakíls-
hreppur 4,3%, Borgarbyggð 21,3%
og Ríkissjóður 20,7%. Eina breyt-
ing á stjórn HAB var að fulltrúi
Borgarbyggðar, Óli Jón Gunnars-
son, kom inn í stjómina í stað
Guðmundar Guðmarssonar. -DVÓ
Óvissuferðir eru mikið í tísku um þessar mundir og fólk flengist blindandi
um allar koppagrundir. DV rakst á þessar föngulegu konur á dögunum en
þær tilheyra kvennaklúbbnum Villtu gæsunum. Þær Silla, Systa, Gyða og
Halldóra höfðu ekki hugmynd um hvert þær væru að fara en Ingimundur
bílstjóri réð ferðinni.
tfþú ert 2 ára eJn ijinj cr samkeppnin mm nppsknjtir
íMatreiðslubók Tíi, eittkvaðfjcir jiej
Tíjri er míkittmatwaÍM' og kiikwr clskar Iwmh. Tícjri
biiarykkur aÍ scrda sér appskriftir aí mat oy kökam.
Tíyra þadtiyott a$ fá cinfatttar en jóíar uppskriftír
sem krakkar eijaaabrclt mei að fara eftir. Attir scm
scntta inn uppskríftir fá víðurkenrt injarskjal frá Tíyra.
50 uppskriftt rcrba raídar op cjcfnar útí eirtni bók,
Matreifatubók Tiara.
Þcírsem eipa uppskrift í bókirmi eípa vort á
jtœsilejum viitrtÍMjnm,
Skitafrestur er tit 1. ájúst.
SerAíst til- KraíkaktMs t>V,
Ór&MtiM, 105 Rrykjmík.
Mcrkt: l/pprknfi
A-dúmmada dúmmada dúmma da... - Málararnir Ævar Jónsson og Viðar
Marinósson unnu hörðum höndum í nýju sundlaugarbyggingunni á Akur-
eyri þegar DV hitti þá þar. Þeir sögðust að sjálfsögðu mála með Sjafnarmáln-
ingunni góðu og sungu „Sjafnarlagið" fullum hálsi, eða þannig. Fram-
kvæmdum við nýjan áfanga í uppbyggingu sundlaugarinnar á Akureyri er að
Ijúka og verður hann tekinn í notkun í næsta mánuði. DV-mynd gk
Á aðalfundi Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar, sem haldinn var
á Hvanneyri 11. júní, kom fram að
hagnaður ársins 1998 varð 7,6 milj-
ónir króna en var 5,9 milljónir árið
á undan. Þessi hagnaður varð þrátt
fyrir gengistap að upphæð 16,6
miljónir. Reikningslegt verðmæti
eigna lækkaði úr 983 milljónum í