Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1999, Side 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
25
Sport
Sport
Rakel Ogmundsdóttir sést her með
knöttinn í sínum fyrsta leik meó
Breiðabliki í tvö ár en hún kom inn í iið
Breiðabliks ásamt Katrinu Jónsdóttur
sem sést á litlu myndinni skora fyrra
mark Blika í 2-0 sigri.
DVfyndir ÞÖK
■ ÚRVALSD. KV.
KR 5 5 0 0 27-2 15
Valur 6 5 0 1 21-5 15
Breiðablik 6 4 1 1 15-7 13
Stjarnan 5 3 1 1 14-8 10
ÍBV 5 2 0 3 17-11 6
ÍA 5 1 0 4 5-16 3
Grindavík 5 0 0 5 2-27 0
Fjölnir 5 0 0 5 1-26 0
Markahæstar:
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val .... 9
Helena Ólafsdóttir, KR ...........8
Karen Burke, ÍBV..................6
Þrir leikir eru i kvöld: KR-Stjaman,
ÍA-Grindavík og Fjölnir-ÍBV.
2. DEILD KARLA
Vegna mistaka birtist gömul
staða í blaðinu í gær. Rétt staða
í 2. deild er þannig:
Tindastóll 5 4 10 1M 13
Leiknir R. 5 3 2 0 9-2 11
Fyrsta körtukeppni sumarsins:
Komin til að vera
Deschamps til Chelsea
Didier Deschamps, fyrirliði heimsmeistaraliðs
Frakka í knattspymu, skrifaði í gær undir
þriggja ára samning við enska félagið Chelsea.
Deschamps hefur undanfarin fimm ár leikið
með Juventus þar sem hann varð þrisvar
ítalskur meistari og Evrópumeistari 1996. Þá
lék hann við hliðina á Gianluca Vialli, núverandi fram-
kvæmdastjóra Chelsea. Með Chelsea leikur besti vinur Des-
champs, Marcel Desailly, og líklega réð það miklu um ákvörð-
un hans. -VS
Hér sjást tveir keppendanna á bílum sínum og fyrir ofan er Kristinn Kristins-
son með Dynobikarinn. DV-myndir NG
Evrópumótiö í körfu:
Króatar björg-
uðu sér í lokin
Evrópumótið í körfuknattleik
hófst í Frakklandi í gær. Aðeins
Króatar unnu leik sinn af þeim
þremur löndum sem voru með Is-
landi í riðli í undankeppninni.
Króatar unnu Itali með 2 stigum
eftir að hafa verið 19 stigum undir
í hálfleik, Bosnía tapaði fyrir
Tyrklandi og Tékkar unnu Litháa
óvenju létt með 16 stiga mun.
Úrslitin:
A-riðill
Makedónía - Frakkland ........67-71
ísrael - Júgóslavía ..........61-81
B-riðUl
Ungverjaland - Spánn..........75-84
Sóvenía - Rússland............47-68
C-riðill
Króatia - Ítalía..............70-68
Bosnia - Tyrkland.............42-57
D-riðiU
Þýskaland - Grikkland ........59-58
Tékkland - Litháen............78-62
-ÓÓJ
Ástralinn sigraði í Veggsporti
I framhaldi af sýningu sinni 17. júní
stóð Bílaklúbbur Akureyrar fyrir
mikilli mótorsportshátíð um síðustu
helgi. Meðal þess sem var á dagskrá
var fyrsta Go-kart keppnin þar sem
keppt var um Dynobikarinn.
Keppnin var haldin í Frostagötu
sem hafði verið lokað sérstaklega og
settar upp varnargirðingar. Alls
komu um 20 bílar til leiks og var 100%
mæting frá Akureyri en þar eru 12
bílar. Voru keppendur mjög ánægðir
með framkvæmd keppninnar og
brautina en bleyta kom í veg fyrir að
hægt væri að keyra hana á fullri ferð.
Fyrst fóru fram tímatökur til að
raða keppendum á ráslínu og síðan
voru keyrðar þrjár keppnir sem allar
voru mjög skemmtilegar á að horfa.
Eitthvað var um samstuð og að kepp-
endur keyrðu út af en vegna góðs ör-
yggisbúnaðar var aldrei hætta á ferð-
um. Kristinn Kristinsson varð í fyrsta
sæti, Marinó Sveinsson í öðru og Við-
ar Sigþórsson í því þriðja.
Þessi keppni gerði meira en nokkuð
annað í að sýna og sanna að þessi
keppnisgrein er komin til að vera hér
á landi. Búast má við hörkuspennandi
keppni í sumar á nýju brautinni í
Kapelluhrauni. -NG
Vetrarleikarnir 2006 í Tórínó:
Martröð hjá Ríkharði
Ríkharður Daðason, landsliðsmiðherji í knattspymu, upplifði
hreina martröð á sunnudag. Hann fékk sex dauðafæri þegar Vik-
ing mætti Skeid i norsku A-deildinni en nýtti ekkert þeirra og
Skeid vann óvæntan útisigur, 0-1. I viðtali við Stavanger Aften-
blad í gær sagðist Ríkharður ekki skilja hvað væri á seyði.
„I þremur síðustu leikjum hef ég fengið haug af marktækifær-
um en ekki nýtt eitt ein-
asta. Það er eitthvað að,
en ég veit ekki hvað það
er,“ sagði Ríkharður við
blaðið. -VS
Þriðji úrslitaleikur NBA í nótt:
New York
- sigraði SA Spurs í nótt, 89-Sl
Leikmenn New York Knicks hafa
ekki játað sig sigraða í einvíginu
gegn SA Spurs um NBA-meistaratitil-
inn. I nótt gerðu þeir sér lítið fyrir og
unnu þriðju viðureign liðanna á
heimavelli sínum í Madison Square
Garden, 89-81, og galopnuðu þar með
einvígið en staðan eftir þessa þrjá
leiki er 2-1, SA Spurs í hag.
Þar var stórleikur Allans Houston
ásamt góðum leik Latrells Sprewell
og Larrys Johnson, sem lék nú að
nýju eftir meiðsli, sem tryggði heima-
mönnum sigurinn en þeir skoruðu
saman 74 af 89 stigum sinna manna.
„Houston var hreint ótrúlegur all-
an leikinn út í gegn,“ sagði Tim
Duncan, stórstjama í liði Spurs sem
skoraði 20 stig en náði ekki skora stig
í fjórða leikhluta. Larry Johnson lék
vörnina vel gekk Duncan og það
skipti sköpum í leiknum.
Stig New York: Houston 34,
Sprewell 24, Johnson 16, Camby
5, Childs 4, Ward 2, Thomas 2,
Dundley 2.
Stig SA Spurs: Robinson 25,
Duncan 20, Johnson 10, Daniels
8, Elliot 7, Elie 6, S. Kerr 5.
Næstu tveir leikir á
miðvikudag og fostudag fara einnig David
fram á heimavelli New York. -GH Robison skoraði 25 stig
fyrir SA Spurs gegn New York í nótt.
Hefnd
Svisslendingar era ævareiðir vegna
þess að meðlimir Alþjóða ólympíu-
nefndarinnar, IOC, ákváðu um liðna
helgi að vetrarólympíuleikarnir árið
2006 skyldu fara fram i Tórínó á Ítalíu.
Sex borgir sóttu um að halda leik-
ana, Helsinki, Finnlandi, Klagenfurt,
Austurríki, Poprad Tatry, Slóvakíu,
Zakopane, Póllandi, Sion, Sviss, og
Tórínó á Ítalíu.
Flestir áttu von á því að IOC myndi
ákveða með atkvæðagreiðslu að leik-
arnir færa fram í Sion. Eftir fyrstu
umferð atkvæðagreiðslunnar stóð val-
ið á milli Tórínó og Sion. Þegar gert
var upp á milli þessara borga fékk
Tórínó 53 atkvæði en Sion 36.
Eins og áður sagði olli þessi niður-
staða Svisslendingum gríðarlegum
vonbrigðum. Þetta var þriðja umsókn
Sion um vetrarleika og sú síðasta að
sögn undirbúningsaðila eftir að niður-
staðan varð ljós.
Siðapostulinn Juan Antonio Samar-
anch, forseti IOC, tilkynnti niðurstöð-
una. Eins og komið hefur fram í fjöl-
miðlum víða um heim hefur hann
margbrotið siðareglur IOC en drottn-
ar enn yfir nefndinni í skjóli sið-
lausra meðlima sem hann hefúr sjálf-
ur skipað í nefndina.
Uppljóstranir Hodlers höfðu
mikið að segja
Svisslendingurinn Marc Hodler,
sem sæti átti i IOC, kom upp um spill-
ingu og mútur innan IOC í lok síðasta
árs sem endaði með því að 10 meðlim-
X 9) IWCUNP
Forráóamenn italska liðsins Lazio
hafa nú gert Arsenal lokatilboð í
Frakkann Nicolas Anelka. Tilboð
ítalanna hljóðar upp á 2,5 milljarða
króna og stendur það tilboð fram i
miöja vikuna.
West Ham hefur gert skoska A-deild-
arliðinu Celtic tilboð i ástralska
landsliðsmanninn Mark Viduka.
West Ham er tilbúið að láta ísraelska
landsliðsmanninn Eyal Berkovic til
Celtic í staðinn en hann er metinn á
660 milljónir króna. Tottenham hefur
einnig sýnt áhuga á að fá Viduka og
hefur boðið 550 miUjónir í leikmann-
inn.
Dave Bassett, hinn nýi framkvæmda-
stjóri Bamsley, hefur sett sig í sam-
band við sitt gamla félag, Nottingham
Forest, og óskað eftir því að fá mark-
vörðinn Dave Beasant. Bassett og
hinn 40 ára gamli Beasant em góðir
vinir en Beasant lék undir stjóm Bas-
setts hjá Wimbledon og Forest.
Graham Taylor, sem stýrði Watford
upp í A-deildina, ætlar að styrkja lið
sitt með einhverjum „reynslubolta".
Taylor var á höttunum eftir Giu-
seppe Bergomi, hinum 36 ára gamla
varnarmanni Inter, en nú lítur allt út
fyrir að hann sé á leið í bandarisku
deildina. Taylor hefur nú sett sig í
samband við umboðsmann Búlgarans
Hristo Stoichkov en þessi 33 ára
gamli framherji er laus allra mála frá
Japan þar sem hann lék í vetur.
David Wetherall, varnarmaður
Leeds, gæti verið á leið til Southamp-
ton. David Jones, stjóri Southamp-
ton, vill fá Wetherall i stað Kens
Monkou sem lýsti því yfir að hann
vildi fara frá félaginu.
Ronnie Whelan, fyrrum leikmaður
Liverpool, vUl að sitt gamla félag geri
Phil Thompson að framkvæmda-
stjóra liðsins í staö Frakkans Gerard
Houlliers. Whelan segir að Houllier
sé fær þjálfari en það sé erfitt að
þjálfa og stjóma félagi á sama tíma.
Whelan segir að Thompson sé fæddur
sigurvegari og það besta sem Liver-
pool myndi gera væri að gera hann
að framkvæmdastjóra.
John Carew, hinn 19 ára gamli fram-
hetji hjá norska A-deildarliðinu Vál-
erenga, er á leið til enska A-deildar-
liðsins Wimbledon. Egil Drillo Ol-
sen stjómar málum hjá Wimbledon
en Carew lék undir hans stjórn hjá
Válerenga. Ekki er komið á hreint
hvort Carew fari til Wimbledon eftir
tímabilið í Noregi eða strax.
Alan Curbishley, stjóri Charlton,
hefur skrifað undir nýjan ijögurra
ára samning við félagið. Forráða-
menn Charlton em mjög ánægðir
með störf Curbishley þrátt fyrir að
liðið hafi faUiö í B-deildina undir
hans stjóm og telja hann einn þann
efnilegasta í faginu. -GH
Júgóslavi til
Skallagríms?
- Franson ekki áfram
DV, Vesturlandi:
Úrvalsdeildarlið Skallagríms í körfu-
knattleik á nú í viðræðum við Júgóslav-
neskan leikmann. Sá er 2,03 á hæð og er
miðframherji og kemur hann til með að
styrkja mjög lið Skallagríms á komandi
vetri. Þá era hverfandi líkur á því að Eric
Franson verði áfram þjálfari Skallagríms
næsta vetur að sögn Birgis Mikaelssonar,
framkvæmdastjóra körfuknattleiksdeildar
Skallagríms, en deildin er að leita að er-
lendum þjálfara þessa dagana.
Allir þeir leikmenn sem léku í fyrravet-
ur með Skallagrími verða áfram í herbúð-
um þeirra. Auk þess mun Birgir einnig
leika með þeim. Þannig að það lítur út fyr-
ir að Skallamir verði mjög sterkir á kom-
andi leiktíð. -DVÓ
Schmeichel fær 56 milljónir
Peter Schmeichel, fyrram markvörður Manchester United, ætti að
eiga fyrir salti í grautinn í Portúgal en kappinn gerði um helgina tveggja
ára samning við Sporting Lissabon eftir 8 góð ár á Old Trafford. Smeich-
el, sem er 35 ára gamall, fær litlar 56 milljónir króna í árslaun hjá nýj-
um vinnuveitendum sem ætla sér stóra hluti á næstunni með hðið. Það
réð fyrir nokkra ítalann Giuseppe Materazzi í starf þjálfara og honum er
ætlað að koma Sporting í fremstu röð en liðið hefúr ekki unnið meistara-
titilinn í 17 ár. Fleiri sterkir leikmenn verða keyptir til félagsins fyrir
næsta tímabil enda peningastaðan ágæt eftir að liðið seldi Simao Sabrosa
til Barcelona fyrir 1 milljarð króna. -GH
ir IOC vora reknir úr nefndinni. Er
það útbreidd skoðun að með atkvæða-
greiðslunni hafi nefndarmenn viljað
hefna sín á Svisslendingum vegna
uppljóstrana Hodlers.
„Ég tel að uppljóstranir Hodlers
hafi haft mikið með það að gera að við
töpuðum atkvæðagreiðslunni. Með-
limum IOC tókst ekki að greina á
milli afskipta Hodlers og umsóknar
okkar. Þeir vildu refsa okkur og hefna
sín á Svisslendingum og gerðu það,“
sagði Raymond Loretan, formaður
undirbúningsnefndarinnar í Sion, eft-
ir að niðurstaðan varð ljós.
IOC er með höfúðstöðvar sínar í
Lausanne í Sviss, 100 kílómetra frá
Sion. Strax eftir atkvæðagreiðsluna
varð almenningur viti sínu fjær af
reiði og ekki leið langur tími þar til
orðið mafia hafði verið
krotað á byggingu IOC í
Lausanne.
Ljóst er að hafi ein-
hverjir Svisslendingar
haft ögn af áliti á IOC eft-
ir allar mútumar og sið-
leysið hvarf það endan-
lega með atkvæðagreiðsl-
unni. Svisslendingum
hafði nefnilega verið gefið
hressilega undir fótinn
varðandi umsókn Sion
áður en ósköpin dundu
yfir í lok síðasta árs. Að
flestra áliti var Sion mun
„girnilegri" ólympiuborg
en Tórínó. -SK
Bland í nolca
Nevada Bob golfmótið var haldið
hjá Golfklúbbnum Keili um helg-
ina. Mótið var höggleikur af hvít-
um teigum og bláum en punkta-
keppni af gulum og rauðum teigum.
Ólafur Már Sigurósson, GK, sigr-
aði í höggleiknum á 68 höggum,
Styrmir Gunnarsson, NK, varð
annar á 70 höggum og Ragnhildur
Sigurðardóttir, GR, þriðja á 73
höggum. í punktakeppninni sigraði
Einar Gunnarsson, GK, með 44
punkta, Siggeir Vilhjálmsson,
GSE, varð annar með 43 punkta og
Stefán Guðjónsson, GS, þriðji með
42 punkta.
Golfklúbbur Ólafsjjaröar heldur
innanfélagsmót á Golfvellinum að
Lónakoti í Skagafíröi á laugardag-
inn og hefst mótið klukkan 13.
Elvar Skarphéðinsson, GMS, sigr-
aði í karlaflokki og Anne Mette
Kokholm, GOB, í kvennaflokki á
opnu golfmóti sem haldið var í
Stykkishólmi á laugardag og var
kennt við Sjóvá-Almennar og
Tölvuverk ehf. Með forgjöf sigruðu
Heiðar Breiðfjörð, GK, og Friða
Óskarsdóttir, GOB.
Kristvin Bjarnason, GL, sigraði
án forgjafar á minningarmóti Sig-
urðar Bjarnason sem haldið var á
Vallarhúsavelli í Sandgerði um
helgina. Kristvin lék á 71 höggi.
Ólafur Már Sigurðsson, GK, kom
næstur á 72 höggum og Svanþór
Laxdal, GKG, þriðji á 73 höggum. í
keppni með forgjöf sigraði Sœvar
Már Gunnarsson, GSG, á 63 högg-
um.
í kvennaflokki sigraöi Hulda
Björg Birgisdóttir, GS, á 64 högg-
um. Þóra Eggertsdóttir, GKG,
kom næst á 69 höggum og Elín
Gunnarsdóttir, GS, þriðja á 70
höggum. Þórdis Geirsdóttir, GK,
átti besta skor án forgjafar eða 76
högg.
Norski landsliðsmarkvörðurinn
Frode Grodas er kominn aftur til
þýska liðsins Sehalke. Hann hefur
verið í láni hjá Racing Santander á
Spáni og neitaði að vera þar áfram.
í DV i gœr féll niður millinafn
markaskorara KVA gegn KA í 1.
deild karla í knattspyrnu. Rétt nafn
markaskorarans er Egill Örn
Sverrisson.
Haraldur Ing-
ólfsson lék síð-
ustu 20 mínút-
umar með Elfs-
borg í gærkvöld
þegar liðið gerði
jafntefli, 2-2, við AIKí sænsku A-
deildinni i knattspymu. Frölunda
vann Trelleborg, 2-1. Elfsborg er í
9. sæti með 12 stig en á toppnum
em Örgryte og Helsingborg með 22
stig og Habnstad með 20 stig.
Enska knattspyrnufélagið New-
castle keypti f gær spænska lands-
liösmiðvörðinn Marcelino Elena
frá Mallorca fyrir rúman milljarð
króna.
Toni Jimenez, landsliðsmarkvörð-
ur Spánar í knattspymu, gekk í
gær til liös við Atletico Madrid, en
hefur leikið með Espanyol undan-
farin sex ár.
Knattspyrnudeild ÍBV tilkynnti í
gær að ekki yrði lögð fram kæra á
hendur Val fyrir að nota leikmann
gegn ÍBV í úrvalsdeild kvenna sem
ekki var á leikskýrslu. Eyjamenn
segja að augljóslega hafi verið um
mistök að ræða, gleymst hafi að
skrá varamann sem síðan var not-
aður í leiknum og hann hafl ekki
haft afgerandi áhrif á úrslitin en
Valur vann, 2-1. -GH/SK/VS
Fyrsta tapið
- Blikar urðu fyrstir til að vinna Valsstúlkur í sumar
Breiðablik varð i gær fyrsta liðið
til að vinna Val, 2-0, í úrvalsdeild
kvenna líkt og í fyrra en nú kom tap
Vals í 6. leik en í fyrra i þeim 11.
Blikastúlkur mættu sterkar til
leiks styrktar af þremur leikmönnum
sem voru að spila sinn fyrsta leik í
sumar og í fyrri hálíleik var aðeins
eitt lið á vellinum. Rakel Ögmunds-
dóttir (frá Bandaríkjunum), Katrín
Jónsdóttir (frá Noregi) og Helga Ósk
Hannesdóttir (úr meiðslum) efldu
Blika með tilkomu sinni í liðið og
það var oft stórskemmtilegt að fylgj-
ast með því þegar Breiðablik yfirspil-
aði Valsliðið fyrri hluta leiksins.
Það tók Katrínu til dæmis aðeins
10 mínútur og 11 sekúndur að opna
markareikninginn er hún skallaði
inn góða aukaspyrnu Margrétar
Ólafsdóttur í bláhornið. 12 mínútmn
síðar bætti Erna Sigurðardóttir
marki við eftir góða fyrirgjöf Hildar
Sævarsdóttur frá hægri.
Katrín Jónsdóttir lék vel fyrir
Blika og fagnaði sigri í fyrsta leik.
„Það er rosalega gaman að koma og
spila aftur með stelpunum. Þetta
gekk betur í fyrri hálfleik þegar við
áttum miðjuna og við náðum síðan
að halda þessu sem er jákvætt,"
sagði Katrín, sem spilar þó aðeins
einn leik til viðbótar þar sem deild-
in úti byrjar aftur strax í júlf.
Valskonur unnu á og áttu mun
betri seinni hálfleik en slakur fyrri
hálfleikur varð þeim að falli, vora í
raun heppnar að sleppa þar með
aðeins tvö mörk á sig. -ÓÓJ
Blcmd í noka
Sólborg Hermundsdóttir tryggði
Tindastóli 0-1 sigur á Hvöt í B-riðli
fyrstu deildar kvenna í knattspyrnu í
gær.
Sindri stendur best að vígi i C-riðli 1.
deildar kvenna eftir tvo leiki við Ein-
herja á Homafirði um helgina. Fyrst
varð 0-0 jafntefli og síðan sigraði Sindri,
1-0. Huginn/Höttur og KVA skildu jöfn,
1-1, í gærkvöld. Sindri er með 7 stig,
Huginn/Höttur 5, Einherji 4 og KVA 2.
Sigurjón Arnarson, GR, sigraði á opna
FedEx golfmótinu hjá Golfklúbbnum
Setbergi á sunnudaginn. Hann lék á 72
höggum en Otto Sigurðsson, GKG, og
Styrmir Guðmundsson, NK, á 73 hvor
og sigraði Otto í bráðabana um annað
sætið. Sigurgeir M. Sigurgeirsson,
GSE, sigraði i keppni með forgjöf.
Poul Erik Andreassen, þjálfari Rík-
harðs Daóasonar, Auðuns Helgasonar
og félaga hjá Viking Stavanger i norsku
knattspyrnunni, þykir valtur í sessi eft-
ir fjögur töp i röð. Vangaveltur um eftir-
mann hans eru komnar i gang og meðal
þeirra sem nefndir hafa verið til sög-
unnar er Tony Knapp, fyrrum lands-
liðsþjálfari fslands. Knapp, sem er rúm-
lega sextugur, þjálfar D-deildarlið i ná-
grenni Stavanger en margir telja að
hann hafi þann kraft sem til þurfi til að
rífa liðið upp.
KSÍ og Landssíminn undirrituðu í gær
samning um að úrvalsdeild kvenna
skyldi nefnd Landssímadeildim rétt eins
og úrvalsdeild karla. -ÖÓJ/VS
- Kim Magnús náði lengst Islendinganna á alþjóðlega miðnæturmótinu í skvassi
Sindri 5 2 3 0 7-2 9
HK 5 2 2 1 12-10 8
KS 5 2 1 2 9-8 7
Ægir 5 1 3 1 8-11 6
Selfoss 5 1 2 2 9-9 5
Þór A. 5 1 1 3 5-11 4
Léttir 5 1 0 4 9-18 3
Völsungur 5 0 1 4 5-16 1
Miðnæturmótiö í skvassi var haldið
í Veggsporti um helgina. 36 erlendir
keppendur tóku þátt í mótinu auk 10
íslendinga en mótið gaf punkta á
heimslistann.
Á meðal erlendu keppendanna var
Paul Price frá Ástralíu sem er í 15.
sæti á heimslistanum og Jenny Tran-
field frá Englandi sem er í 25. sæti.
Það var Paul Price sem varð hlut-
skarpastur í karlafkokki en hann
hafði betur gegn Juliana Wellings frá
Englandi í úrslitaleik, 3-0. Ikvenna-
flokki fagnaði Tegwen Malik frá Wa-
les sigri en hún lagði Rachael Grin-
ham frá Ástralíu í úrslitum, 3-0.
íslandsmeistarinn Kim Magnús
Nielsen stóð sig best íslensku kepp-
endanna en hann tapaði fyrir Danan-
um Mads Korsbjerg í B-úrslitum, 3-0.
I B-riðlinum kepptu þeir sem töpuðu í
1. umferð i A-riðlinum. Magnús Helga-
son og Sigurður G. Sveinsson komu
svo í 3. -4. sæti í B-riðlinum.
Ásta Ólafsdóttir var í 3.-4. sæti í B-
riðlinum í kvennaflokki.
Mótið tókst mjög vel í alla staði og
vora erlendu þátttakendurnir mjög
ánægðir með mótið og aðstöðuna í
Veggsporti.
-GH
Bland í noka
Heimsmeistaramótió í knattspymu
kvenna hófst í Bandarfkjunum um
helgina. I fyrrinótt léku heimsmeist-
arar Norðmanna sinn fyrsta leik á
mótinu og þeir hófu titilvömina með
2-1 sigri á Rússum. Brit Sandaune
og Marianne Pettersen komu Norð-
mönnum í 2-0 áður en Galina Kom-
arova minnkaði muninn fyrir Rússa
10 mínútum fyrir leikslok. Önnur úr-
slit í fyrrinótt urðu þau aö Ástralía
og Ghana skildu jöfn, 1-1, ítalia og
Þýskaland gerðu einnig 1-1 jafntefli
og Nigeria hafði betur gegn N-Kóreu,
2-1.
Guðlaugur Guðlaugsson, GK, sigr-
aði á opna Lacoste-mótinu í golfi sem
fram fór á Korpúlfsstaðavelli um
helgina. Leiknar voru 18 holur og var
um punktamót að ræða. Guðlaugur
hlaut 41 punkt fyrir 1. sæti. Kristján
O. Jóhannesson, GR, varð annar
með 39 og Gunnsteinn Skúlason,
GR, þriðji með 38 punkta. Með besta
brúttó skor var Sváfnir Hreiðars-
son, GK, á 78 höggum.
Elsa Karen Jónsdóttir, GR, sigraði á
kvennamóti Hans Petersen sem fram
fór í Grafarholti. Elsa hlaut 40
punkta. Hólmfríöur G. Kristinsdótt-
ir, GR, varð önnur með 38 punkta og
Ingunn G. Guðmundsdóttir, GR,
þriðja með 38 punkta. Katla Krist-
jánsdóttir var með besta brúttó skor-
ið eða 84 högg.
Jónshlaupið svokallaða fer fram á
Héraðsmóti HSK á Laugarvatni á
morgun. Mótið er til heiðurs Jóni H.
Sigurðssyni sem á árum áður var
einn helsti langhlaupari HSK eða allt
þar til hann lenti í alvarlegu slysi og
lamaðist á fótum. Jónshlaupið er eina
greinin á Héraðsmóti HSK sem opin
er til þátttöku utanhéraösfólks. Allir
sem áhuga hafa á þátttöku geta látið
skrá sig með því að senda tölvupóst
<kari@ismennt.is> eða hringja i 896-
5650. Tekið er við skráningum allt
fram aö 30 mínútum fyrir hlaupið og
er skráningargjald krónur 500.
Hið árlega pollamót Þórs og Flugfé-
lags íslands fer fram dagana 2. og 3.
júlí á íþróttasvæði Þórs á Akureyri.
Nú þegar hefur veriö send út þátt-
tökutilkynning til allra þeirra liða
sem tóku þátt í síðasta móti svo og til
þeirra sem hafa óskað eftir því að fá
að vera með. Ef það eru einhverjir
sem telja sig ekki hafa fengið um-
ræddar tilkynningar þá eru þeir
beðnir að hafa samband við Svölu
Stefánsdóttur í síma 461-2080 eða á
tölvupósti <thor@nett.is>. AUra síð-
asti möguleiki til að greiða þátttöku-
gjaldið og að komast á mótið er 24.
júní.
Það verða Barcelona og Real Ma-
drid sem verða fulltrúar Spánar i
meistaradeild Evrópu i knattspymu á
næstu leiktíð. Síðasta umferð
spænsku A-deildarinnar var leikin í
fyrrakvöld. Börsungar voru fyrir
löngu búnir að tryggja sér titilinn en
baráttan um 2. sætið og um leið sæti
i meistaradeildinni stóö á milli Mall-
orca og Real Madrid. Mallorca stóð
betur að vígi fyrir lokaumferðina en
liðið tapaði fyrir Valencia, 3-0, á með-
an Real Madrid sigraði Deportivo
Coruna, 3-1. Þar með náði Madridar-
liðið öðm sætinu í deildinni.
Raul Gonzales var hetja Real Ma-
drid. Hann skoraði 2 mörk gegn
Deportivo og varð markahæsti leik-
maðurinn í deildinni með 25 mörk,
einu marki meira en Brasilíumaður-
inn Rivaldo hjá Barcelona. Breyting-
ar eru í vændum hjá Real Madrid en
Christian Panucci, Davor Suker,
Predrag Mijatovic og Clarence
Seedorf era allir á forum frá félag-
inu.
Payne Stewart sem
sigraði á opna banda-
ríska meistaramót-
inu í fyrradag hefur
færst upp um tvö
sæti á nýjum styrk-
leikalista og er kom-
inn í 11. sætið. Þrir
Bandaríkjamenn era
á toppnum. David
Duval er efstur, Tiger Woods annar
og Davis Love er þriðji, Vijay Singh
frá Fiji er fjórði, Bretinn Colin
Montgomerie fimmti, Mark O’Me-
ara, Bandaríkjunum, sjötti, Ernie
Els, S-Afríku, sjöundi, Phil Mickel-
son, áttundi, Lee Westwood, Bret-
landi, er níundi og Nick Price,
Zimbabwe, tíundi.
Eftirlit með ólöglegu lyfjaáti kepp-
enda verður með öflugasta móti á
Wimbledon-stórmótinu í tennis sem
hefst innan skamms í Englandi. Mót-
ið stendur yfir í hálfan mánuð og
Alþjóða tennissambandið hefur nú
lýst því yfir að alls verði 100 kepp-
endur teknir í lyfjapróf meðan á
mótinu stendur.
-GH/-SK
+