Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2000, Qupperneq 10
+ * Reykjavík er stórborg í öllum skilningi þess orös. Hér er hægt að finna allt milli himins og jarðar og ómögulegt að komast yfir allt sem er í boði. Hins vegar er hægt að þrengja valmöguleikana og reyna að komast bara yfir það sem maður þarf ekki að greiða fyrir. Vinsamlegast geymið þennan leiðarvísi þegar kreppan kemur aftur. Þá mun hann nýtast vel en þangað til er viturlegt að byrja að spara og skoða listann hér í opnunni. Brauð og penísillín Reykjavík A bak við hvert einasta bak- arí I Reykjavík er hægt að finna svarta eða gráa plast- poka, stútfulla af brauði sem er langt frá því að vera óætt. Þetta er yfirleitt eitthvað sem er eins dags gamalt og inn á milli geta jafnvel leynst Ijúffengir snúðar og kannski hart vínarbrauð. En ef svo vill til að eitthvað í pokunum sé myglað þá er það mjög hollt því f myglu leynist penisillín. Og hingað til hefur fólk trúað því að penisillín lækni allt. Almenningssalernin í Bankastræti Það er hægt að pissa og kúka ókeypis f miðhæ Reykjavfkur. Það eina sem þarf að gera er að þramma niður tröpp- urnar f Bankastrætinu ogtölta inn fyrir. Tilval- iö fyrir feröalanginn og um að gera að taka með sér vatnsþrúsa til að fylla á í krön- um vaskanna. Ferðir og gisting Þeir sem brjóta lögin ferðast bæði og gista frftt, auk þess sem þeir fá frftt að éta. Þetta er auðvitað ósann- gjarnt og hver og einn skattgreiðandi með snefil af samfé- lagsvitund ætti auðvitað að nýta sér þessa þjónustu endrum og sinnum. Bílastæði Það væri auðvitað hægt að benda á endalaust af bíla- stæðum vfðs vegar um borgina sem ekki þarf að greiða fýrir en það er í rauninni hægt að leggja ókeyþis alls stað- ar annars staöar en í bflastæðahúsum. Já, það er hægt að sleppa við að borga í stöðu- mæla, og það án þess að saga þá I sundur eða brjóta f spað. Kaupmenn í mið- bænum hafa nefnilega um árabil auglýst að þeir greiði fyrir kúnnana sfna stöðumæla. Þvf er um að gera að leggja bara þar sem manni sýnist, tölta svo inn f næstu verslun og hirða pening af grunlausum kaupmönnum. Djús og bakkelsi Hjá Blóðbankanum, Barónsstíg, er hægt að fá ókeypis nær- ingu f formi kexkakna og djúss. Það eina sem þú þarft að gera er aö leggja þig smástund f fínum hæg- indastól og leyfa þeim að smakka á blóðinu sem rennur um æöar þfnar. Góöur dill það. Afvötnun Hér er að finna besta tilboð- ið f bænum. Þú byrjar á því að skrá þig á Vog í síma 530 7600, færð pláss fljótlega og Bækur og Internet Þvf miður er ekki hægt að fá að taka bækur með sér heim af bókasafni öðruvfsi en að borga nokkur hundruð kall fyrir svo- kallað bókasafnsskfrteini. Hins vegar má hver sem er hlamma sér inn á bókasafn og hanga þar allan daginn við lestur á hvaða bók sem er. Blöðin eru líka ókeypis þarna og því alger óþarfi að vera áskrifandi að þeim ef maður er á annað borð að reyna að lifa fritt. Að lokum er það rúsfnan i pylsuendanum og það er Internetið. Það er nefnilega hægt að komast ókeypis inn á Netið í gegn- um bókasöfnin og Netið er ein stærsta ókeypis búlla f heimi. Þar er hægt að nálgast allan fjandann: fá sér netfang, skoða klám, dagblöð, tímarit, bfómyndir, myndbönd, hlusta á tónlist, lesa bækur og svona væri hægt að telja enda- laust. Erfidrykkjur Morgunblaðið og Rfkisútvarp allra landsmanna auglýsa daglega jarðarfarir en þeim fylgja iðulega erfidrykkjur og þar fær maður frítt að éta. Það er auðvitað misjafnt fæð- ið þar og viturlegt að reyna að velja jarðarfarir eftir ættarnöfn- um eða fjölda minningargreina. Það er líka hægt að velja þær eftir prestum ef fólk er á höttunum eftir and- legri næringu ókeypis. Kosturinnviðjarðarfarirogerfidrykkjur er að það er ekki fræðilegur möguleiki að upp um þig komist. í jarðarförum er enginn að spá i það hvort þessi eða hinn eigi heima þarna svo lengi sem viðkomandi er snyrtilega klæddur. Stuttmyndir í Nýló Á morgun, kl. 17, er hægt að horfa á 100 stuttmynd- ir eftir bæði innlenda og erlenda snillinga án greiðslu í Nýlistasafninu. Á meðal mynda er Hótel eftir Þorvald Þorsteinsson, en hún fjallar um Iff fólks f Rauða hverfi Amsterdam, og svo mynd um kúbversku dauðarokkarana Juan Carlos og Colo eftir Anjo Ahola ásamt fjölda annarra gim- steina sem ættu að auðga og göfga sálir landans. Sjónvarp hefst afvötnunin. Hún tekur 10 daga og fer fram á Vogi. Það er ekkert innritunargjald og bæði fæði og húsnæði ókeypis ásamt náttföt- um. Eftir þessa tíu daga er svo haldið f fjögurra vikna eftirmeðferö á Vfk eöa Staðarfelli og þá áttu meira að segja kost á dagpeningum sam- kvæmt lögum Tryggingastofnunar. Það er ekki til betri pakki en 10 dagar og 4 vikur I afvötnun. Norræna húsið Á sunnudögum eru sýndar barnamyndir kl. 14 en ann- ars er hægt að lesa norræn blöð, hlusta á norræna diska, sjá ókeypis norræna list í anddyrinu og drekka Is- lensktvatn, ókeypis. Þetta er aö vfsu banvæn blanda fyrir suma, bæði þá sem hata allt skandinavfskt og þá sem finnst gott “ að éta. Það vantar nefnilega eitthvað frftt að éta f Norræna húsinu en þá er bara málið að klára að lesa sfðuna og finna út hvernig hægt er að nálgast ókeypis nesti. Það eru til nokkrar leiðir til að upplifa frítt sjónvarp. Fyrst ber að nefna dvalarheimili aldraðra. Það er litill vandi að lauma sér inn á næsta elli- heimili og hlamma sér við hliðina á einhverjum gömlum jaxli sem heldur að þú sért eitt af barnabörnunum og horfa á sjónvarpið fram eftir kvöldi. Svo er auðvitað hægt að hanga fyrir utan raftækjaverslanir f skítakulda og glápa en þá verðurðu veikur. Sem er f lagi svo lengi sem þú biður engan að hringja á sjúkra- bfl, það kostar, og passar að verða ekki lagður inn á bráðadeild, þaö kostar. Eina sem kostar ekkert f heilbrigðisgeiranum er að vera lagð- ur inn á einhverja aðra deild en bráðadeild með alvarlegan sjúkdóm. Varöturninn Tímaritið Varðturninn er gefið út af Vottum Jehóva og eru þeir mjög a'arnir á að gefa hverjum sem er það. Tímaritið fjallar að mestu um Jehóva Guð, heimsendi og blóðgjafir. En Vottarnir eru líka einn af fáum söfnuðum sem rukka ekki tíund og reka þvf batteriið á frjálsum framlögum. Auk þess bjóða þeir upp á ókeypis námskeið f Biblíulestri sem er auðvitað undir mjög sterkum áhrifum frá trúarskýr- ingum þeirra um blóðgjafir, paradís og heimsendi. Engu að sfður er hér er um að ræða nánast eina námið hér á landi sem er algerlega ókeypis. Bókakynningar Öll helstu bókarforlög landsins senda fólk hvert á land sem er til að kynna bæk- ur sfnar. Þetta fólk er sölumenn sem vilja troða rándýrum doðröntum inn á þjóðina og margir þessara sölu- manna eru kostulegir karakterar á borð við poppstirnið Herbert Guðmundsson. Það er þvf eftir miklu að slægjast f ókeypis bóka- kynningum og um að gera fyrir fólk að byrja að bóka kynningu. Sími Ef gengið er inn á skrifstofur Landssímans má finna vel staö- setta síma sem hugsaðir eru sem þjónusta við kúnnann. I þessum sfmum er hægt að hringa f vini og vanda- menn innanlands án þess að borga krónu fyrir. Enda er Landssíminn sameign allra landsmanna og því mjög kjánalegt að borga fyrir að fá að hringja f aðra landsmenn. Molar í bönkum Það er alltaf boðiö upp á ókeypis kaffi f bönkum og sparisjóðum út um allt land og i langflestum er hægt að fá félagsskap hjá þjónustufulltrúunum. Þeir eru alltaf til I að tjatta um allt milli himins ogjarðaryfirgóðum kaffibolla. Svo eru það molarnir. bönkum er iðulega boöiö upp á dfsæta brjóstsykurmola og enginn þorir að segja neitt ef þú tekur heilu lúkurnar af brjóstsykri og treður í vasana. Starfsfólk f bönkum er nefnilega búiö að fara á svo mörg námskeið f hegðun og kurteisi. Klósettiö í Kringlunni Kringlan er þekkt fýrir allt annað en að gefa eitthvað. Engu að síður eru hlýjustu og notalegustu almenningssalerni landsins í Kringlunni og þar er einmitt hægt að gera þarfir sfnar án þess að greiða krónu fýrir. Þarna er mnn. andi vatn og enginn agnúast út í það þó að þrífir þig inni á salerninu og er þetta þvf eina almenningsklósettið þar sem hægt er að fá nánast alþrifnað f Reykjavík. Þó eru ekki sturtur þarna og má Ifta á það sem galla á jafn stórri og reisulegri byggingu að ekki sé hægt aö baða sig nema f gosbrunninum. En viö mælum ekki með þvf nema viðkomandi vilji fá frftt far upp á löggustöö ásamt gistingu og morgunverði. Sem er auðvitað góð hugmynd fýrir húsnæöislausa. Strætó Það er ekki til óarðbærri rekstur en strætó. Mestan part dags er hann alveg tómur en á álagstímum er setið á vfð og dreif um vagnana. Það er þvf bara tvennt f stöðunni: annaöhvort að leggja niður al- menningsvagna eða að hætta að rukka fólk fýrir að fá far með þeim. - Róló Borgin er alltaf að skera niður hvað rekst- ur gæsluvalla varöar. Þeim fækkar og fækkar, völlunum, þar sem boðið er upp á gæslu sem þarf að greiða fýrir og það er gott fyrir þann sem vill hvort eð er ekki borga fyrir neitt. Vellirnir eru auðir allan sól- arhringinn og heill ævintýraheimur út af fyrir sig. Þarna eru bæði rólur, sandkassar og renni- brautir rétt eins og á leikskólunum sem rukka morð fjár fýrir að leyfa börnunum að róla sér. Matarkynningar Alliance Frangaise Á miðvikudögum á tvegga vikna fresti er ókeypis I bíó hjá Alliance Frangaise í Austurstræti 3. Næsta mynd er Didier sem sýnd verður miövikudaginn 8. mars. Didier er grín- mynd um hund sem breytist í mann og lendir í ótrúlegum ævintýrum. Alain Chabat leikstýrir og skrifar handrit- ið. Endilega skellið ykkur. Björgunarsveit Þú getur orðið úti eða fest bflinn þinn og látið bjarga þér án þess að borga krónu fýrir. Hjálparsveit- ir landsins hreinlega elska að bjarga samborgurum sínum I sjálfboöavinnu. Þetta veitir þeim lífsfyllingu og gefur þeim tilgang \\ þessu lífi. Það má því líta á það ip* sem hugsjónastarf að verða úti eða festa bílinn sinn til þess eins að bjarga sálum björgunarsveitarmanna. Messuvín Messur eru alltaf ókeypis. Þar eru haldnar ræður og boðið upp á tónlistardag- skrá á heimsmælikvarða - k svo ekki sé minnst á bless- * að messuvínið sem flæðir um öll vit sé þess óskað. Messur eru yfirleitt á sunnudög- um og er mælt með þvf að komi sér í mjúkinn hjá prestinum þvf hann væri vfs til að bjóða til kaffisetu eftir messu. Island er þróunarrfki þegar kemur að kynlífi og þvf er ekki vanþörf á smáþróunaraðstoð. Ókeypis smokkar myndu allavega koma í veg fyrir að nokkrar unglingsstúlkur yrðu óléttar eða koma f veg fýrir að faraldurinn klamedía breiðist jafn hratt út og hann virðist vera að gera þessi misserin. Ríkisútvarpið Krabbameinsskoðun Húö og kyn bjóða sitt stöff ókeypis og krabbamein er einhvern veginn alveg jafn alvarlegt og því er ráð að þeir leiti að sjúkdóminum án þess að fæla fólk frá með málamynda- greiðslu. gestir Húð og kyn Allar konur þurfa fýrr en seinna að fara til kvensjúkdóma- læknis. Það er auövitað rándýrt og þvf er ráð að kfkja bara f skoðun hjá Húð og kyni og fá fulla þjónustu, ókeypis. Sjúkrabíll Ef það er keyrt á þig þegar þú ert drullu- blankur hefurðu Iftið val um það hvort þú vilt taka taxa á slysó eða ferðast með sjúkrabíl. Löggan hringir hreinlega á bíl fýrir þig og það er náð í þig hvað sem tautar. Þess vegna er svoldið fá- ránlegt að rukka fýrir fariö. Annaðhvort á þetta að vera ókeypis eða að fólk geti valið hvort það vill bara liggja í götunni, ganga á slysó, fá far með ættingja, taka leigubfl eða sjúkrabíl. Oh! Helvftis afnotagjöldin. Er hægt aö fara fögr- um oröum um þau? Nennir nokkur að tala um þau yfirhöfuð? Helvítis bananalýöveldið! Sund Á meðan stjórnvöld reka sundlaugar munu þær vera reknar með gffurlegu tapi. Og þá skiptir engu hvort rukkaður er einhver mála- mynda hundrað og fimmtfu kall til að ná endum sam- an. Þær munu alltaf tapa og það má draga það í efa að hægt sé að einkavæða sundlaugarnar vegna þess aö enginn heilvita einka- maður viil kaupa þær. En af einhverjum ástæðum telja yfirvöld sig skyldug til aö reka laugarnar og til hvers I fjandanum er.u þær þá að rukka fólk um smá- peninga til að fá að svamla f íslensku hveravatni? Fyrst ber að nefna Kolaportið. Um helgar er hægt að ganga að því visu aö þar bjóðist smakk. Það verður bara að sýna dálitla þrautseigju og ganga kröfuhart á milli básanna og biðja um að fá aö smakka. Þeir eru að gefa bæöi nammi og mat þarna og því má líta á þetta sem fæði fýrir alla fjölskylduna. Sfð- an eru það stórmarkaðirnir. Þar er alltaf verið kynna mjög ætilegar vörur, bæði ís, kaffi, gos, appelsinusafa, brauð, kökur, 1944 og margt, margt fleira. Þaö má þvf full- yröa að f stórmörkuðunum sé aö finna öll helstu bætiefnin sem líkaminn þarf, ókeypis. Eini gallinn er að kynningarnar miðast allar við föstudaga, laugardaga og sunnudaga. MIR Á sunnudögum, kl. 15, er ókeypis f bfó f MÍR, Vatnsstfg 10. En eins og allir vita er MÍR Menningarstofnun íslands og Rússlands, rekin fýrir einhverja peninga sem eru eflaust að austan. Myndirnarsem um ræö- ir eru fleiri klukkutíma ræmur sem sýndar eru á gamlar kvikmyndavélar með lélegu hljóði. Það er yfir- leitt enskurtexti og stemningin er vægast sagt níhilísk. Margir gamlir kommar eru fastagestir og geta þvf skapast fjörugar umræður yfir bakkelsinu í hléi. Þvf miður er bakkelsið ekki ókeypis en það er vatnið hins vegar. .S5’ LÍ5B+ I Goethe-Zentrum Er til húsa að Lindargötu 46 og sfminn er 551 6061 (skoðið hvar hægt er að hringja ókeypis annars staðar á sfðunni) ef fólk vill fá upp- lýsingar um hvaða myndir þar er verið að sýna á fimmtudögum. í gær var sýnd þýsk-svissneska sakamálamyndin Justiz sem var tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna '93. Myndirnar sem þeir sýna eru einmitt alltaf einhverjar þrusumyndir sem hafa annaðhvort feng- ið verðlaun eða verið tilnefndar til verð- launa. Svo er auðvitað hægt að lesa þýsk blöö ókeypis I Goethe-Zentrum. Kaffi Í10-11 Kaffið f verslunum 10-11 (sem eru f hverju einasta hverfi á Reykjavík- ursvæðinu) smakkast bærlega vel, sérstaklega þar sem ekki þarf aö greiða fyrir það. Þar að auki eru örbylgjuofnar í verslununum og hægt að hita alls konar hluti upp, til að mynda mat sem fenginn hefur verið án greiðslu eða vettlingana þfna á köldum degi. Það jafnast allavega fátt á við að kíkja f verslanir 10-11, spjalla við unglingsstúlk- urnar á kassanum, fá sér rjúkandi heitt kaffi og hita húfu og vettlinga f örbylgjuofninum. Flug Eftir kl. 14 á föstudögum og sunnudögum er hægt að fljúga ókeypis með Islandsflugi - svo lengi sem þú ert á aldrinum 6-16 ára. Þetta magnaða tilboð stendurtil 14. mars og um að gera fyrir flölskyldur að nýta sér þetta og senda börnin út á land. Reyk- víkingar eru að mörgu leyti búnir að tapa samband- inu við landbúnaðar- héruð Islands og ekki seinna vænna að bæta tengslin. * V * 10 f Ó k U S 25. febrúar 2000 '4- 25. febrúar 2000 f Ó k U S 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.