Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 7
fókus Vikan 14. aoríl til 20. aorí 11 f i ft p F T T R V T M N II Þykk þoka liggur yfir völundarhúsi leyndarmála í myndinni Snow Falling on Cedars. í henni leika Max Von Sydow og Ethan Hawke en leikstjórinn er Scott Hicks, sem gerði myndina Shine fyrir skömmu. Snow Falling on Cedars er frumsýnd í Háskólabíó. b í ó Lúkufylli af leyndannálum Fiskimaðurinn er myrtur í þykkri þoku Kyrrahafsins Astralski leikstjórinn Scott Hicks var litt þekktur og metinn þar til hann sendi frá sér myndina Shine árið 1996. Hann hafði að vísu verið duglegur við að gera heimild- armyndir og sjónvarpsþætti og hafði unnið til Emmy-verðlaun- anna en var óþekkt andlit í kvik- myndaheiminum. Gamli draumurinn Það var síðan á Sundance-kvik- myndahátíðinni sem hjólin byrj- uðu að snúast. Shine fékk frábærar móttökur og i kjölfarið var hún til- nefnd til sjö óskarsverðlauna, Golden Globe-verðlauna og allt það. Núna gat Hicks valið úr hand- ritahaíinu sem flæddi yfir hann og hugsaði hann sig ekki tvisvar um þegar handritið að Snow Falling on Cedars lak inn á borð. Nokkrum árum áður hafði hann lesið bókina og fékk strax áhuga á að gera mynd eftir henni. Þegar konan hans athugaði stöðuna á kvik- myndaréttinum að sögunni komust þau að því að Universal hefði keypt hann en þar sem Hicks var bara peð gaf hann þá drauma samstund- is upp á bátinn. En draumamir rættust og myndin er kominn á Laugaveginn. Hicks fékk klassalið til að hjálpa sér, fyrir utan Von Sydow og Hawke, leika James Cromwell, Sam Shepard og Richard Jenkins (Flirting with Disaster) í myndinni og Robert Richardson, sem fékk Óskarinn fyrir JFK á sínum tíma, mundaði kvikmynda- tökuvélina. Það að bandarískur strákur og japönsk steipa rugli reytum saman er ekki beint vinsælt á San Piedro-eyjunni. Æskuásfin Rammi sögunnar eru rétt- arhöld sem eru haldin yfir Kazuo Miyamoto (Rick Yune) á bandarísku eyjunni San Piedro í Kyrrahafmu. Hann er sak- aður um að hafa myrt æskuvin sinn er þeir voru við veiðar eina dimma og þokumikla nótt. Hann er bandarískur maður af japönskum uppruna en þar sem myndin gerist árið 1950 er Könunum ekkert sér- staklega vel við Japana (Pearl Harbor og allt það). í réttarsalnum er ungur fréttamaður, Ishmael Chambers (Ethan Hawke) að nafni. Hann fylgist af miklum áhuga með réttarhöldunum og snilli verjanda Miyamoto, Nels Gudmundsson (Von Sydow). Hann horfir líka á konu hins ákærða, Hatsue (Youki Kudoh), og rifjar upp forboðna ást- arævintýrið sem þau áttu saman er þau voru unglingar. Er réttarhöld- in rúlla á skrið flækjast málin og brátt eru flestir ibúar eyjarinnar undir smásjá. Uppbygging myndarinnar er í mörgum lögum og hoppar hún glatt á og flakkar grimmt á milli upprifjana hinna ýmsu persóna og réttarhaldanna. Þannig verða áhorfendur að vera vel með á nót- unum ef þeir vilja ekki missa af lestinni. Smám saman byrjar að flysjast ofan af leyndarmálunum og ormarnir undir steinunum líta dagsins ljós. nýtt í bíó Bruce Willis og Michelle Pfeiffer leika ekki saman í kvikmynd á hverjum degi. Þau eru nú samt í The Story of Us en það er rómantísk gamanmynd sem allir í kærustupara- og hjónaleik ættu að sjá. Hún er frumsýnd í Kringlubíó og Bíóborginni. fyrir pör Sambönd milli kvenna og karla eru skrýtin fyrirbæri. Stundum ganga þau eins og í sögu og stundum eru þau strax dæmd til að mistakast. Ef sú er raunin gerist það jafnan á byrjunarstigi en stundum gengur sambandið í þó nokkurn tíma og byrjar svo að molna. Sú er raunin með skötuhjúin Michelle Pfeiffer og Bruce Willis en þau hafa verið gift í fimmtán ár í myndinni The Story of Us. Kyss, kyss og knús Þetta er rómantísk gamanmynd úr smiðju Robs Reiners. Hann færir okkur raunsæja og gamansama inn- sýn í samband Bens (Bruce) og Katie Jordan (Michelle ma belle), sem hafa verið gift í fimmtán ár. Ástandið er ekki gott á þeim bænum en þeir hlut- ir sem drógu þau saman til að byrja með stuðla nú að endalokunum. Katie er þessi skynsama týpa, vill Katie er krossgátusmiður og vill hafa allt á hreinu. hafa allt á sínum stað, enga óvissu og öryggistilfmningu. Hún vinnur við að búa til krossgátur og gæti ekki verið ánægðari. Þessir þættir í fari Katie eru ástæðan fyrir því að hún hreifst af Ben til að byrja með. Hann er nefninlega rithöfundur, algjör rómantíkus og veit ekkert hvað er að gerast í kringum hann. Nú er Katie að verða brjáluð á Ben og er komin með nóg af heimspeki hans, að teikna heiminn eins og hann vill hafa hann. Bömin era send í sumarbúðir og Ben og Katie prófa að skilja að borði og sæng í smástund, svona til að fá smjörþefinn af skilnaðinum. Þá koma upp skondin atvik og allt er ofsasætt og sniðugt og tárin streyma niður kinnarnar. Kyss, kyss og knús. Rob Reiner á fjöldann allan af stór- góðum myndum að baki. Fyrsti smellurinn var This Is Spinal Tap og hefur hann haldið ótrauður áfram í gegnum tíðina. Stand by Me, The Bíóborgin The Story of Us Michelle Pfeiffer og Bruce Willis leika í þessarri rómantísku gamanmynd eftir Rob Reiner. Sýnd kl.: 2, 4, 6, 8, 10 Deuce Bigalow ★★ Ærslafull gamanmynd með Rob Scneider I aðalhlutverki. Hann leikur lúða sem neyðist til að gerast karlhóra til að borga skuldir sínar. Sýnd kl.: 2, 4, 6, 8, 10 The World is not Enough ★ ★ Bond í meðal- lagi, þokkaleg skemmtun en betur má ef duga skal.-ÁS Sýnd kl.: 5.40, 8 Three Kings ★★★ Þegar maður fer á mynd meö George Cloony, lce Cube og Mark Wa- hlberg getur það aðeins þýtt tvennt; annað avort er hún mjög góð eða hræðilega léleg. Þessi er góð.-hvs Sýnd kl.: 10.15 Bíóhöllin The Story of Us Michelle Pfeiffer og Bruce Willis leika í þessarri rómantísku gamanmynd eftir Rob Reiner. Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Deuce Bigalow ★★ Ærslafull gamanmynd með Rob Scneider I aðalhlutverki. Hann leikur lúða sem neyðist til að gerast karlhóra til að oorga skuldir sínar. Stuart little Gamansöm mynd um fjölskyldu sem ættleiðir mús sem getur talað. Sýnd með íslensku og ensku tali. Fjölskylduskemmtun. Sýnd kl.: 2, 4, 6, 8, 10 Man on the Moon ★★★ Milos Forman held- ur þétt og örugglega utan um frásögnina og virðist vera á góðri siglingu. -ÁS Sýnd kl.: 3.40, 5.45, 8, 10.10 The Beach ★ „Það gengur bara betur næst“ er það eina sem hægt er að segja um þessa mynd. Flausturslega gert og illa. -ÁS Sýnd kl.: 8 Tarzan ★★★ Tarzan er afbragðs skemmtun sem allir ættu að geta haft gaman af.-ÁS Sýnd kl.: 1.50 Sleepy Hollow ★★★ Skildu vantrúna eftir heima og leyfðu þér að njóta þessarar frásagn- ar eins og óttaslegið barn. -ÁS Sýnd kl.: 10.05 The Hurricane ★★★ Leikstjórinn Jewison fer vel með efnið og nær að mynda það frá þeirri hlið að áhersla er lögð á réttu hlutina. Denzel Washington túlkar af næmni. -HK Sýnd kl.: 8 Toy Story 2 ★★★ Þetta framhald fyrstu Leik- fangasögunnar er, líkt og fyrri myndin, full af fjöri fyrir bæði börn og fullorðna.-ÁS Sýnd kl.: 2, 4, 6 Hundurinn og Höfrungurinn Rn fyrir krakk- ana. Sýnd kl.: 2 Háskólabíó The Girl Next Door Heimildarmynd um líf og störf klámmyndastjörnunnar Stacy Valentine. Sýnd kl.: 12 Snow falling on Cedars síðunni. Sýnd kl.: 5.30, 8, 10.30 Being John Malkovitch ★★★★ Ef þið látið hana framhjá ykkur fara er það á eigin ábyrgð. Ég mæli ekki með því. Being John Mal- kovich á eftir að verða einn af íkonum okkar tima. -ÁS Sjá umfjöllun á Ben er rithöfundur og veit ekkert hvaö er aö gerast. Princess Bride, Misery, allt eru þetta góðar myndir. Hann hefur líka reynslu af sambandsmyndum eftir When Harry Met Sally, en í kjölfarið á henni fylgdi fjöldinn allur af mis- heppnuðum tilraunum. Reiner leikur líka í myndinni. Hann og konan hans í myndinni (Rita Wilson) eru bestu vinir Bens og Katie og fylgja þeim í gegnum þessi fimmtán ár sem við fylgjumst með þeim. Að lokum má geta þess að tónlistin i myndinni er að hluta til samin af meistaranum Eric Clapton. Sýnd kl.: 5.50, 8, 10.15 The Green Mile ★★★ Mjög vel gerð og spennandi kvikmynd með áhugaverðum sögu- þræði. -HK Sýnd kl.: 10 Fíaskó ★★★ Frumraun Ragnars Bragasonar er mjög vel heppnuð. -HK Sýnd kl.: 6, 8 Englar alheimsins ★★★ Vel heppnuð kvik- mynd sem hlý, raunsæ og jafnframt kómísk þrátt fýrir háalvarlegt viðfangsefni.-HK Sýnd kl.: 6 American Beauty ★★★ Kampavín og kavíar fýrir sálina. -ÁS Sýnd kl.: 8,10.20 Kringlubíó Deuce Bigalow ★★ Sjá Bíóborg. Sýnd kl.: 4, 6, 8,10 Man on the Moon ★★★ Sjá Bíóhöll. -ÁS Sýnd kl.: 5.45, 8, 10.15 Járnrisinn ★★ Góð og skemmtileg teikni- mynd.-HK Sýnd kl.: 1.50 Toy Story 2 ★★★ Þetta framhald fýrstu Leik- fangasögunnar er, líkt og fyrri myndin, full af fjöri fýrir bæði börn og fullorðna.-ÁS Sýnd kl.: 2, 3.45 Flawless ★★ Það háir Flawless dálítið hversu hæg hún er, sem kemur til af því að mikið er talað og samtölin kannski ekki alltaf þau skemmtilegustu. -HK Sýnd kl.: 5.45, 8, 10.15 Hundurinn og Höfrungurinn Rn fýrir krakkana. Sýnd kl.: 1.50 Laugarásbíó Stuart little Sjá Bíóhöll. Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 The Whole Nine Yards ★★★ Leikstjórinn Jon- athan Lynn hefur gert ágæta afþreyingu þar sem ekkert er nógu alvarlegt að ekki sé hægt að gera grín að þvl.. -HK Sýnd kl.: 6, 8, 10 Regnboginn Dogma Nýjasta mynd Kevin Smiths. Himnaríki og helvíti sameinast gegn Ben Affleck og Matt Damon. Sýnd kl.: 2, 5.30, 8, 10.30 Scream 3 ★ Lokamyndin í Scream-trilógíunni. Per- sónusköpun er sem fýrr á lágu plani. Stefnu- leysi einkennir myndina. -HK Sýnd kl.: 3.30, 5.45, 8, 10.15 The End of the Affair Rómantlkin nær há- marki þegar Ralph Fiennes (draumaprins allra vel siðaðra kvenna) leitar að ástæðunni fýrir því afhverju Julianne Moore dömpaði honum. Sýnd kl.: 3.30, 5.45, 8, 10.15 Toy Story 2 ★★★ -ÁS Sýnd kl.: 2, 4, 6 The Cider House Rules ★★ Dramatísk en frekar hæg og átakalítil. Maguire og Caine sýna mjög góðan leik. -ÁS Sýnd kl.: 8, 10.30 Stjörnubíó The End of the Affair Rómantlkin nær há- marki þegar Ralph Rennes leitar að ástæð- unni fýrir því afhverju Julianne Moore dömpaði honum. Stuart little Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Girl, Interrupted ★★ Það er freistandi að bera hana saman við One Flew Over The Cookoo's Nest. Þá sést best hve vöntunin á ögrandi nálgun er mikil I Girl, Interrupted. -HK Sýnd kl.: 5.45, 8, 10.15 The Winslow Boy ★★★ Á okkar tilfinninga- legu fjöllyndistímum, þegar lenskan er að spýja öllu úr sálarkirnunni I slúðurblöðum er sérlega Ijúft að fylgjast með frásögn sem skil- ur gildi þess að tjá sig undir rós. -ÁS T/AFFI REY KJAVIK RF S TAURAN I H A R 14. apríl I/AFFI . REYMAVIK r r s T A B A R

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.