Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.2000, Blaðsíða 8
EFTIR V I N N U VJ Jea n -14. a p r í 1 ti 1 2 0. anríl □lif ið 01/04 lúbbar ■ DIMITRI Á THOMSEN Það fyrsta af mánað- arlegum Party- zone-kvöldum á Kaffi Thomsen. Dimitri from Paris er mættur til að sjá og sigra. Hann heldur uppi dúndrandi franskri öndergránd-stemningu. Ásamt honum veröa Grétar og fleiri snúðar á svæðinu. ■ DJ GUÐNI Á SPOTLIGHT Dj Guðni spilar fram á rauðan morgun á Spotlight. Þema kvöldsins auglýst á Mono 877. ■ DANSSTEMNING Á KLAUSTRINU Þeir félag- ar Big foot og Svali sjá um salsa og R&B dans- stemningu á Klaustrinu. 500 kall inn eftir mið- nætti, 22 ára inn og fínt í tauinu. ■ HERB Á ASTRÓ Það skífuþeytingarsnillingur- inn Herb Legowitz sem dælir hústónlist í liðið á Astró. ■ SKUGGABARINN Þeir Nökkvi og Áki spila plötur á Skuggabarnum. 500 kall eftir mið- nætti. Brjáluð stemning. ^Krár ■ GUNNAR Á GRAND HÓTELI Gunnar Páll leikur hugljúfa tónlist fyrir gesti Grand Hótels. ■ GRAND Á GRAND ROKK Hljómsveitin Grand er orðin húshljómsveit Grand Rokks. Fjör og sveifla. ■ ROKKVEISLA Á AMSTERDAM BT&Company heldur rokkveislu á Café Amster- dam. ■ Á MÓTI SÓL Á OAUKNUM Stuðboltarnir í Á méti sól mæta á Gaukl á Stöng og trukka upp fjörið. ■ ÞÓRÁSPORTKAFFI Þór Bæring sér um tón- listina á ísafold Sportkaffi. ■ KOS Á FJÖRUKRÁNNI Hljómsveitin KOS leikur fyrir dansi á Fjörukránni. ■ NAGGVEISLA Á KAFFI STRÆTÓ Kaffi Strætó er með tilboðshelgi. Kauptu kjúkling- anagga eða jalapenos slammer og fáðu frían bjór. Fjörboltinn Einar Jénsson sér um tónlist- ina. ■ ÁLAFOSS-FÖT BEZT Hljómsveitin Blístró spilar á Álafoss-föt bezt. ■ KARAOKE Á RIDDARANUM Þaö er kara- oke-stemning undir stjórn Jaffa-systra á Ridd- aranum, Kópavogi. ■ LJÚFT Á NAUSTINU Söngkonan og píanó- leikarinn Liz Gammon spilar fyrir gesti koníaks- stofu Naustsins. ■ REYNIR Á KAFFIREVKJAVÍK Dj Reynir mun sjá um að þeyta skífur á Kaffi Reykjavík. Nýr, endurbættur og uppyngdur staður. 500 kall inn eftir miðnætti. ■ S&H Á GULLÓLDINNI Þeir félagar Sven- sen&Hallfunkel halda uppi fjörinu á Gullöldinni. ■ STUÐ Á KRINGLUKRÁNNI Þeir Rúnar Júl og Siggi Dagbjarts sjá um fjörið á Kringlukránni. ■ STUÐ Á PÉTURS-PUB Gömlu félagarnir Rún- ar Þór og Jón Ólafsson verða í stuði á Péturs- pub. ■ ÞOTUUÐIÐ Á CATALÍNU Hljómsveitin Þotu- liðið spilar fyrir gesti Catalínu, Kópavogi. ■ RÓLEGT Á CAFÉ ROMANCE Píanóleikarinn Simone Young spilar fyrir gesti Café Romance. Böll ■ BALL Á BROADWAY Danssveit Gunnars Þóröarsonar leikur ásamt söngstjörnum Broad- ways fyrir dansi í aðalsal Broadways. ■ GAMMEL DANSK Á NAUSTINU Hljómsveit- in Gammel Dansk spilar fyrir dansi á Naustinu. ■ VARÐSKIPH) THOR Heiðursmenn og Kol- brún spila fyrir dansi í Varðskipinu Thor. ■ HAFRÓT Á NÆTURGALANUM Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir dansi á Næturgalanum.Frítt inn til miðnættis. D jass ■ BLÚS í KAFFILEIKHÚSINU KK, Magnús Ein- arsson og Þórir Baldursson standa fýrir bládjú- suðu blúskvöldi í Kaffileikhúsinu. Blúsinn hefst klukkan 22 en miðapantanir eru í síma 551 9055. •Klassík ■ REOUIEM í HÁSKÓLABÍÓI Sinfóníuhljóm- sveit íslands flytur Requiem eftir Verdi í Há- skólabiéi kl. 16. Með hljómsveitinni koma fram einsöngvararnir Georgina Lukács, lldiko Kom- losi, Kristján Jóhannsson, Edward Crafts og kór íslensku óperunnar. Stjórnandi er Rico Saccanl. ■ KÓRATVENNA í GRENSÁSKIRKJU Kórtón- leikar verða haldnir i Grensáskirkju kl. 14. Senjóritur Kvennakórs Reykjavíkur, undir stjórn Rutar Magnússon, taka á móti Söng- sveit Hveragerðis sem stjórnað er af Margréti Stefánsdóttur. ■ VORTÓNLEIKAR í ÝMISSAL Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika i sal Ýmls kl. 17. Stjórnandi er Agota Joó. Undirleikarar eru Vilberg Viggósson píanóleikari, Þórólfur Þórs- son og Gestur K. Pálmason trommuleikari. Ein- söngvarar eru Laufey H. Geirsdóttir, Birna Rún- arsdóttir. Guðrún Egilsdóttir og Sigrún Ó. Inga- dóttir. ■ VORSÓNGUR í HALLGRÍMSKIRKJU Það verður söngdagskrá í Hallgrímskirkju frá kl. 15- 18 á vegum Barna- og unglingakórs kirkjunnar. Fram koma Gradualekór Langholtskirkju, Ung- lingakór Selfosskirkju og Kór Snælandsskóla ásamt Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju. •Sveitin ■ ORMURINN EGILSSTÖÐUM Það verður strandpartí á Orminum í tilefni sýningar á The Beach. Dj Sunshine þeytir skífur. 500 kall inn. ■ SJALLINN AKUREYRI Partiliöið í írafári sér um að lyfta Akureyringum á hærra plan þegar það heimsækir Sjallann. ■ FJARAN VESTMANNAEYJUM Fjörkálfarnir í fókus Pöpum heimsækja heimaslóðirnar og spila þar i Fjörunni. ■ MHJNES í STYKKISHÓLMI Mod-Rokk-hljóm- sveitin Miðnes verður með bullandi sveittan vordansleik á Hótel Stykkishólmi þar sem end- anlega verður gert út af við þennan harða og vonda vetur. Snæfellingar, komið og fagnið vor- inu. Fjörið hefst kl. 23. ■ FYRIRLESTUR í GRUNDARFIRÐI Jón Böðv- arsson heldur fýrirlestur um Eyrbyggju í Grunn- skólanum í Grundarfirði á vegum Símenntunar- miðstöðvar Vesturlands og Eyrarsveitar. í vet- ur hefur starfað leshringur um Eyrbyggjasögu I Grundarfirði og vetrarstarfinu lýkur með erindi Jóns en hann mun einnig svara spurningum gesta. Fyrirlesturinn hefst kl. 13.00. Hann er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. ■ INGÓLFSCAFÉ. ÓLFUSI Það er þrusustemn- ing á Ingólfscafé því að stuðboltarnir í Hunangi ætla að trukka upp fjörið. 1500 kall inn. ■ KAFFI AKUREYRI Eyjólfur Kristjánsson Hálft í hvoru skemmta gestum og gangandi á Kaffi Akureyri. ■ SJALLINN ÍSAFIRÐI Hljómsveitin 8 villt sér um fjöriö hjá ísfirðingum á Sjallanum. ■ HÓRÐUR TORFA í BÚÐARDAL Hinn víðfrægi Hörður Torfa heldur tónleika á Bjargi, Búðar- dal, kl. 21. ■ EGILSBÚÐ NESKAUPSTAÐ Trúbardorinn Arnar Guömundsson spilar fyrir gesti Egilsbúð- ar. Ókeypis inn tyrir miðnætti en 500 kail eftir. ■ VH) POLLINN. AKUREYRI Dúettinn Steini og Dúi skemmta á Við Pollinn. ~!L e i k h ú s ■ BANGSÍMON Leikfélag Hverageröis sýnir barnaleikritið Bangsímon og vinir hans klukkan 14 í Völundi, Austurmörk. Miðapantanir eru i sima 483 4727. ■ PÝRIN í HÁLSASKÓGI - BANNAÐ BÓRN- UM Leikfélag Flensborgarskóla sýnir Dýrin í Hálsaskógi - bannað börnum, eftir Thorbjörn Egner, klukkan 20. Sýningin, sem er bönnuð börnum, sviptir hulunni af þessu sígilda norska barnaleikriti og leiðir í Ijós spillt samfélag þar sem fámenn valdaklíka svífst einskis til að full- nægja dýrslegum hvötum og drepa hvers kyns andóf í dróma. Einelti og ofsóknir eru klædd kufli trúar vonar og kærleika sem blekkir sálirn- ar stórar og smáar enda ekki allt sem sýnist í Hálsaskógi þar sem dýrin eru menn. Tónlistar- stjóri er Kristján Eldjárn en leikstjóri Stefán Jónsson ■ HÆGAN. ELEKTRA jslenska leikritið Hæg- an, Elektra, eftir Hrafnhildi Hagalín Guðmunds- dóttur verður sýnt á litla sviðinu I Þjóðleikhús- inu klukkan 20.30. Þetta er fyrsta verk höfund- ar eftir að hún hlaut Norrænu leikskáldaverö- launin tyrir Ég er meistarinn. Leikstjóri er Viðar Eggertsson og leikendur eru Edda Heiörún Backman, Steinunn Ólína Þorstelnsdóttir og Atli Rafn Sigurðsson. Sími í miöasölu er 551 1200. ■ KYSSTU MIG. KATA Söngleikurinn Kysstu mig, Kata, eftir Cole Porter verður sýndur klukkan 19 i Borgarleikhúsinu. Leikstjóri er Þórhildur Þorlelfsdóttir og með aöalhlutverk fara Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Bergþór Pálsson. Uppselt en sími í miðasölu er 568 8000. ■ LANDKRABBINN Islenska verðlaunaleikritiö Landkrabbinn eftir Ragnar Arnalds verður sýnt í Þjóðleikhúsinu klukkan 20. Þetta er hressli- legt verk sem fjallar um lífið um borð í rammís- lenskum togara. Meðal leikenda eru Erla Rut Harðardóttir, Gunnar Hansson og Jóhann Sig- urðarson. Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. Sími í miðasölu er 5511200. ■ LANGAFl PRAKKARI Möguleikhúsið sýnir vinsæla barnaleikritið Langafi prakkari sem er byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn. Miðapantanir í síma 562 5060. ■ LEITIN AÐ VÍSBENPINGU Edda Björgvins- dóttir fer á kostum í einleiknum Leitin að vís- bendingu um vitsmunalíf í alheiminum eftir Jane Wagner. Sýningin verður klukkan 19 á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu og miðapantanir eru I síma 568 8000. ■ LEITUM AÐ UNGRISTÚLKU Hádegisleikhús Iðnó sýnir leikritið Leitum Kristján Þórð Hrafnsson og þetta er eina sýningin. Leikritið hlaut fyrstu verö- laun í leikritasamkeppni leikhússins. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson en leikarar eru Linda Ás- geirsdóttir og Gunnar Hansson. I hádegisleik- húsi snæða gestir léttar veitingar meðan þeir njóta stuttrar leiksýningar. Opnað er í salinn laust fyrir klukkan 12 og þá er matur borinn á borð. Um klukkan 12.20 hefst sýningin sem stendur í tæplega hálfa klukkustund.__________ ■ SJEIKSPÍR Það veröa tvær maraþonsýning- ar á verkinu Sjeikspír eins og hann leggur sig í Iðnó. Sú fyrri hefst klukkan 20.30 en seinni pantanir eru í síma 530 3030. ■ STRÍÐ OG FRHHJR Leikfólag Mosfellsbæjar sýnir leikritið Stríð í friði eftir Birgi J. Sigurðs- son. Verkið fjallar um það þegar 10.000 menn hertóku Mosfellssveit og gáfu sveitalífinu allt annað yfirbragð. Sýningin hefst klukkan 20.30 í Bæjarleikhúsinu og miðapantanir eru í sima 566 7788. ■ TOBACCO ROAD Leikfélag Akureyrar sýnir leikritið Tobacco Road eftir Erskine Caldwell klukkan 20. Þetta er sigildur gamanleikur um allt sem manninum er kært og frábær saga með einstaklega skrautlegum og skemmtileg- um persónum. Það er kreppa í Suðurríkjum Bandaríkjanna og bændur flosna upp. Jeeter Lester á erfitt með að sjá fyrir fjölskyldu sinni - engin uppskera og engir peningar. Leikstjóri er Viðar Eggertsson en meðal leikenda eru Þrá- inn Karlsson, Hanna María Karlsdóttir, Árni Tryggvason, Sunna Borg og Agnar Jón Egils- son. Miðapantanir eru i síma 462 1400. ■ VÉR MORÐINGJAR Leikritið Vér morðingjar eftir Guðmund Kamban verður sýnt á Smíöa- verkstæðinu klukkan 20. Það er taliö eitt besta íslenska leikrit aldarinnar og gerði Kamban frægan á Norðurlöndunum. Leikstjóri er Þór- hallur Sigurðsson og meðal leikenda eru Hall- dóra Björnsdóttir og Valdimar Örn Rygenring. Sími í miðasölu er 5511200. ■ ÉG SÉ EKKI MUNINN Leikfélagið Hugleikur sýnir leikverkiö Ég sé ekki muninn í Möguleik- húsinu klukkan 20. Þór Tulinus leikstýrir verk- inu sem er byggt á Hávamálum og hafa fjórtán hugleiskir höfundar túlkað þau og fært forna speki í nútímabúning á gamansaman hátt. •Kabarett ■ SÓNGKEPPNI FRAMHALDSSKÓLANNA Hin árlega söngkeppni framhaldsskólanna verður haldin í Laugardalshöll. Húsið verður opnað ki. 14 og hefst keppnin sjálf kl. 15. Stór- grúppan og fönksveitin Jagúar mun sjá um und- irleik hjá keppendum, sem og að spila milli at- riða, og einnig er búið að hóa saman fyrri sig- urvegurum sem munu syngja saman hópsöng. Allt verður þetta síðan sent beint út i Ríkissjón- varpinu. ■ BEE GEES Á BROADWAY Hin sivinsæla Bee Gees-sýning gengur enn á Broadway. Nokkuð sem enginn aðdáandi gibbagibb-bræðra má missa af. ■ LADDI 2000 LADDI 2000 er samantekt á per- sónum sem Laddi hefur skapaö í gegnum tíðina og er sett upp í skemmti- legt kabarettform með hjálparkokkunum Halla bróður og Steini Ármanni. Einnig spilar fimm manna hljómsveit Laddalög undir styrkri stjórn Hjartar Howser. Sýningin Laddi 2000 er í Bíóborginni og miðapantanir eru í síma 551-1384. •Fyrir börnin ■ LANGAFI PRAKKARI Möguleikhúsið sýnir vinsæla barnaleikritið Langafi prakkarj sem er byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn. Miðapantanir í síma 562 5060. •Opnanir ■ HAFNARBORG Kl. 16 verður opnuð sýning á málverkum Margrétar Sveinsdóttur í Hafnar- borg. Sýningin stendur til 1. maí og er opin alla daga nema þriðjudaga, frá kl. 12 til 18. ■ USTASAFN ÍSLANDS Annars vegar fólk heitir sýning Birgis Andréssonar sem opnuð verður í Listasafni íslands i dag. Um er að ræða 60 myndir af kunnum íslenskum þjóð- sagnapersónum frá siðustu öld og fyrri hluta 20. aldarinnar, allar unnar upp úr prentuðum svarthvitum Ijósmyndum og prentaðar með tölvuprenti. Ásamt portrettmyndunum verða með íslensku sauðalitunum og voru hluti af sýningu Birgis á Biennalnum í Feneyjum 1999. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga til 14. maí. Opið er kl. 11-17. Aðgangseyrir er kr. 400 alla daga nema miðvikudaga, en þá er að- gangur ókeypis. ■ UÓSMYNDASÝNING í ÍSLENSKRI GRAFÍK Kristín Hauksdóttir er myndlistarmaður sem lagt hefur áherslu á Ijósmyndun og málverk. Kl. 16 verður opnuð sýning eftir hana i ísienskri grafik, Tryggvagötu 17, sem nefnist Brot frá iiðinni öld, 1993-99. Þetta eru Ijósmyndir frá daglega lífinu á íslandi og í Bandaríkjunum. Sýningin stendur til 7. maí. ■ UÓSMYNDIR HJÁ SÆVARI KARLI Að loknu námi í Ijósmyndun i Gautaborg vann Bára Kristinsdóttir sem aðstoðarljósmyndari í Sví- þjóð og á Flórída. Hún starfar núna sjálfstætt sem iðnaðar- og auglýsingaljósmyndari. Bára hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en opnar nú þriðju einkasýningu sína í Galleríi Sævars Karls. Opnað verður kl. 14 og boðið verður upp á léttar veitingar. ■ MYNDUSTARVOR j EYJUM í Galleri Áhalda- húsinu, á horni Græðisbrautar ogVesturvegar, opnar Vignir Jóhannsson myndlistarmaður sýn- ingu kl. 17 á vatnslitamyndum, olíumálverkum og skúlptúrum. Vignir hefur haldið fjölda sýn- inga, jafnt einka- sem og samsýningar, bæði heima og erlendis síðan 1980 til dagsins í dag, en þetta erfyrsta einkasýning hans í Vest- mannaeyjum. Vignir er frá Akranesi og hann hefur alltaf haft þá stefnu að sýna myndverk sín á landsbyggðinni og reynt að fylgja þvi eft- ir. Sýningin verður opin frá kl. 14 til 18 sunnu- daginn 16. april og á sama tíma á skírdag, föstudaginn langa, laugardaginn 22. apríl, páskadag og annan i páskum sem jafnframt er síöasti sýningardagur. ■ STÓÐLAKOT Helga Jóhannesdóttir opnar 5. einkasýningu sína, Leir, gler, málmur, í Stöðla- koti við Bókhlöðustíg kl, 15. Sýningin verður opin daglega kl. 15-18. Lokað er á mánudög- um. Hún stendur til 7. maí. ■ SVARTA PAKKHÚSH) KEFLAVÍK Sigurður Þórir opnar sýningu á teikningum við Ijóð Þórs Stefánssonar í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2, Keflavík, kl. 14. Sýningin stendur til 24. apr- íl. Opiö er virka daga kl. 16-18 og helgidaga kl. 14-18. •Síöustu forvöö ■ STEINUNN OG ÁSMUNPUR í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR Höggmyndasýningu Steinunnar Þórarinsdóttur og úrval af verkum Ásmundar Sveinssonar lýkur í Ásmundarsal Listasafns Reykjavíkur í dag. Þetta eru verk tveggja af merkustu myndhöggvurum íslands á heillandi sýningu. •Fundir ■ BÓKASAMBAND ÍSLANDS íslenskar glæpasögur og afþreyingarbókmenntir er um- ræðuefni umræðufundar sem Bókasambdnd íslands stendur fyrir í Kornhlöðunni við Banka- stræti kl. 14. Kristinn Kristjánsson og Úlfhild- ur Dagsdóttir flytja framsöguerindi. Höfundar Leyndardóma Reykjavíkur 2000 taka þátt í umræðunum og árita bókina fyrir lesendur. ■ INNRI FRIÐUR Enski búddamundurinn Kelsang Drubchen heldur almennan fyrirlestur, The Door to Inner Peace, kl. 20 i sal Lífsýnar að Bolholti 4, Reykjavík. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. I fyrirlestrinum mun Dru- bchen útskýra sérstakar aðferðir til að öðlast innri frið. •Sport ■ ENSKI Á SPORTKAFFl Stórleikurinn Man. U-Sunderland verður i beinni á ísafold Sport- kaffi kl. 14. Kaldur á barnum. Jdukkar^3j30^vnniðu^Mjgpsel^nmið^^einnig sýndir fánar sem prjónaðir eru úr lopa lUKlJgf „Það er áhugaverð sýning í Gallerí i8 í Ingólfsstræti 8 en þar er Catherine Yass með ljós- myndir teknar í fangaklefum. Sýningin er undir yfirskriftinni Cell og myndimar eru mjög áhrifaríkar og settar upp á spennandi hátt. Ég ráðlegg fólki að missa alls ekki af þess- ari dömu. Auk þess bendi ég á sýningu á Sólon Islandus hjá honum Haffa vini mínum þar sem hann sýnir krítarverk og olíumálverk. En krítarverkin eru útskriftarverkefni úr MHÍ frá síðasta vori og ég er svo stolt af honinn.“ Stella Sigurgeirsdóttir myndlistarnemi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.