Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Side 4
22
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
Sport
DV
Hestamolar
Af eldri stóðhestum, sem
sýndir hafa verið áður og
koma fram einnig nú, má
nefna Markús frá Langholts-
parti, Þór frá Prestbakka,
Prins frá Úlfljótsvatni og
Þyrni frá Þóroddsstöðum.
Allt eru þetta hestar sem
vakið hafa nú þegar athygli.
Mörg hross eru skráð á
stóðhestasýninguna í Víðidal
á morgun og næstu daga. Þar
eru m.a. stóðhestarnir frá
Miðsitju, Keilir, Smiður og
hinn ungi Alvar undan
Hilmi frá Sauðárkróki, hálf-
bróðir Spuna að móðurinni
til, undan sjálfri Kröflu.
Ásgeir Sván, eða Geiri
Kóka eins og hann er oftast
kallaður, er gífurlega vel
hestaður þessa dagana og
ætlar sér stóra hluti á næst-
unni. Hann hefur meðal ann-
ars fest kaup á mjög efnileg-
um 4 vetra stóðhesti frá
Blesastöðum sem nefnist Jöf-
ur. Hann mun vera undan
Spuna frá Hæli. Spennandi
verður að sjá hvað þessi
bráðefnilegi foli gerir í sín-
um flokki á næstu dögum.
Gunnar Arnarson og kona hans, Kristbjörg Eyvindsdóttir, hafa nóö mjög góöum árangri í ræktun kynbótahrossa.
- rætt við hjónin Gunnar Arnarson og Kristbjörgu Eyvindsdóttur
Hrossin frá Jóni Friðriks-
syni á Vatnsleysu hafa verið
þekkt fyrir sitt eðaltölt og
nægir þar að nefna heims-
meistarann í tölti, Þyril frá
Vatnsleysu. Nú er enn ein
stjarnan, sem rekja má að
hálfu frá Vatnsleysu, komin
fram en það er ístöltmeistar-
inn Filma sem Magnús
leigubílstjóri Arngrímsson
á. Merin er undan Bertu frá
Vatnsleysu, sem Magnús
keypti 16 ára gamall og hefur
gefið honum margan dýr-
gripin, og Hersi frá Stóra-
Hofi.
Reykjvíkurmeistaramót-
ið, sem fram fer 11.-14. maí í
Víðidal. er opið mót og telst
til „World Ranking". Skrán-
ing verður 8. maí kl. 17-19.
Keppt verður í helstu grein-
um hestaíþrótta. Það er al-
veg gefið að mikil þátttaka
verður á þessu móti eins og
undanfarin ár. Má telja aö
þarna verði margur
kandídatinn fyrir komandi
landsmót.
Hinn margfrægi knapi,
Elli Sig., lenti í klónum á
knöpum er riðu mótorfákum
á reiðvegum hestamanna um
páskana. Elli bað þá vinsam-
lega að hætta slíku þar sem
þetta væri slóði fyrir hesta
eingöngu. Eitthvað fóru
þessi blíðu orð Ella illa í
mótorknapanna og hreyttu
þeir ókvæðisorðum í Ella.
Elli spurði þá hvort þeir
þekktu þennan og steytti
hnefann á móti köppunum.
Einn af þeim sagði við hina
um leið og hann startaði
hjólinu að þetta væri ,júdó-
kappinn“ og dreif sig í burtu
með hina á eftir sér. Elli hef-
ur ekki orðið var við
mótorfáka síðan.
Laugardaginn 29. apríl
kl. 16.30 mun fjölskylda og
vinir Alfreðs heitins Jörg-
ensens koma saman í Félags-
heimili Fáks til að heiðra
minningu hans. Við það
tækifæri verður hengd upp
mynd af Alfreð í félagsheim-
ilinu og er hún gjöf fjöl-
skyldu hans og vina til
Hestamannafélagsins Fáks.
Og eru allir sem heiðra vilja
minningu Alfreðs velkomnir
að eiga þar samverustund.
Á morgun, miðvikudaginn 3.
mai, hefjast kynbótadómar og
sýningar á mótssvæði Fáks í
Víðidalnum.
Margir bíða spenntir eftir
þessum viðburði, einkum vegna
þess að nú verður farið að dæma
m.a. fet og prúðleika að nýju.
Það er mál manna að kynbóta-
hross almennt hafi sjaldan eða
aldrei verið betri en í dag.
Meðal þeirra sem má ætla að
verði atkvæðamikil á komandi
sýningum og hafa náð mjög góð-
um árangri í ræktun kynbóta-
hrossa eru Gunnar Arnarson og
kona hans, Kristbjörg Eyvinds-
dóttir.
Þau hjón þarf vart að kynna,
svo atkvæðamikil hafa þau verið
í keppni og sölu hrossa í mörg
ár. Þau voru kjörin ræktunar-
menn ársins 1999 og má segja að
það sé glæsilegur árangur því
ræktun hrossa hafa þau ekki
stundað lengi.
Orri frá Þúfu og Hektor frá Ak-
ureyri hafa m.a. verið uppistað-
an í ræktun þeirra og fyrsta al-
vöruhryssan þeirra var Tinna
frá Fljótshlíð sem hefur gefið
þeim hvern gullmolann á fætur
öðrum.
Gunnar segist vera með um tíu
hross sem eiga fara fyrir dóm nú
í næstu viku. Sum eru að fara í
fyrsta skipti eins og Orrasonur-
inn Fannar, 4 v., en móðir hans
er Fjöður frá Ingólfshvoli. Síðan
eru það samfeðra bræður hans,
Vængur, 6 v., undan Rán frá
Flugumýri og Garpur, 5 v., en
móðir hans er Hildur frá Garða-
bæ.
Það er alveg óhætt að segja að
þetta séu mjög sterkir hestar og
nægir þar að nefna Væng sem er
fallega skapaður hestur og hæfi-
leikamikill á gangi. Gunnar seg-
ist bíða spenntur eftir að sjá
hvernig merarnar koma út hjá
sér. Þær eins og hestarnir hafa
verið að sýna stigvaxandi fram-
farir.
„Það er alveg ljóst að nýju
dómsreglurnar leiða til meiri
jafnvægis í sýningu og gefa rækt-
endum greinarbetri upplýsingar
um hrossin,“ segir Gunnar þegar
hann er spurður álits á nýja
dómskeríinu sem samþykkt var
á síðasta ári.
„Nú geta menn ekkert trekkt
hross upp rétt fyrir sýningu
heldur verða að vinna skipulega
í þeim með tilkomu fetsins til að
mynda. Það sama má segja um
dóm um prúðleika. Það krefst að
hrossin séu falleg í hárafari og
vel fext. Allt leiðir þetta til
meiri framfara og faglegri vinnu-
bragða."
Gunnar og Kristbjörg segjast
leggja meiri áherslu á sýningu
kynbótahrossa þetta árið en
íþrótta- og gæðingakeppni. Þau
koma til með að grípa í eitt og
eitt mót þegar tími vinnst til.
Þau hjón eru sammmála um að
komandi landsmót verði gríðar-
lega sterkt og hlakka mikið til að
spreyta sig á því erfiða verkefni
að koma hrossmn þar inn. Þess
skal getið að Orri verður af-
kvæmasýntur á landsmótinu og
verður Gunnar einn þeirra sem
sjá um útfærslu á þeirri sýningu.
-HÓ
Randver vakti mikla athygli
Hestamenn voru
duglegir við að
halda sýningar um
páskahelgina.
Hestamannfélagið
Gustur stóð fyrir
einni slíkri sem þeir
kenna við dymbil-
vikuna. Þar var
megináherslan lögð
á kynbótahross í
eigu félagsmanna.
Sérstaka athygli
vakti stóðhesturinn
Randver sem er
einkar litfagur og
glæsilegur í alla
staði.
Alhliða hryssur
undan Oddi frá Sel-
fossi voru einkar
glæsilegar. Það er
ljóst að þeir í Gusti
eru ekkert á
flæðiskeri staddir
hvað kynbótahross
varðar og gaman til
þess að vita hve
mikil alúð er lögð í
að halda kynbóta-
hross.
Hestamannafélög-
in á Norðvestur-
landi stóðu fyrir
sýningu í Blönduós-
höllinni.
Þar mátti m.a. sjá
mörg geysifalleg
kynbótahross og
aðra góða gæðinga.
Á þessu svæði hefur
verið gífurleg upp-
bygging í hesta-
mennsku almennt
og er engin endir á
þeirri uppbyggingu.
Hrossaeign bænda
er mikil á svæðinu
og því hæg heima-
tökin að ná sér í
einn gæðing bæði
fyrir heimamenn og
aðra aðkomumenn.
En eins og alltaf er
magn ekki sama og
gæði og gildir það
fyrir alla er koma
nálægt hrossarækt
sem og öðru.
-HÓ