Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
37
/ WiHys -47
/ ®rÍfld: Wjjjyc
. Fjöóvun f
JePPagormar rama»: Be
FjöðrUn _
Ronver-gormar 3íl;
Ueinparar
ifirbyggjjjg.
iem*smíðuð
VeJ: 327 cid rh
SSss&Z,
^ged steej '' Pink
Edelhrock 308°
°m *in?n/Út: §02/j,94 /
or Junior EdeJbrock /
'asmíðað
Daníel og aöstoöarmenn hans hafa veriö að betrumbæta Grænu þrumuna fyrir sumariö.
DV-myndir JAK
Ragnar Róbertsson og Magnús
Lárusson, aöstoöarmaður hans,
voru aö taka keppnisbílinn í hús
eftir veturinn og ætluðu aö fara aö
gera hann kláran fyrir sumarið.
DV-myndir JAK
Ragnar í hrikalegu stökki á Akranesi
í fyrra.
Willysinn
Willys '81
Grind: Scout.
Fjöðrun: Firestone
loftpúðar
Demparar f/a: Rancho
9000/Rancho 7000
Yflrbygging: Willys '81.
Vél: 350 cid Chevy
Þjöppuhlutfall: 9:1
Knastás: Edelbrock
Performer 290°.
Lift: .480
Ventlar inn/út: 1.94/1.50
Soggrein: Edelbrock
Torqer
Blöndungur: Edelbrock
600 cfm
Kveikjukerfl: Jakobs
Aukaaflgjafi Nitro kit
Pústkerfl: Cyclone
flækjur.
Afl: ca 300 hö. með Nitró.
Gírkassi: 350 Turbo
Hydramatic
Converter: Ljónsstaðar.
Millikassi: Dana 20.
Hásingar f/a: Dana
60/Dana 60
Drifhlutfall f/a: 4.56:1 /
4.88:1
Dekk: Sand Tire
skófludekk, 15x20
Olæknandi
biladella
„Ég er búinn að vera með bíla-
dellu frá fæðingu og fæ útrás fyrir
hana í torfærunni," segir Daníel G.
Ingimundarson, eigandi og ökumað-
ur Grænu þrumunnar, sem hefur
skemmt torfæruáhugmönnum síð-
ustu tvö árin með skrautlegum
akstri.
„Pabbi var bílstjóri og ég ólst upp
í bílskúrnum hjá honum og í bílun-
um.“ Daníel er með húsnæði fyrir
Grænu þrumuna við Vesturvörina í
Kópavogi en hann býr á hæðinni
fyrir ofan ásamt tveimur dætrum
sinum og Maríu Antoníu Jónsdótt-
ur, konu sinni, sem hefur stutt
hann dyggilega. Gengi Daníels hef-
ur verið misjafnt þessi tvö ár sem
hann hefur keppt en hann er smám
saman að fikra sig upp á við. Besta
árangri sínum náði Daníel í fyrstu
umferð DV-Sport-heimsbikarmóts-
ins á Akureyri í fyrra en þar
hreppti hann 3. sætið. Daníel hefur
átt í erfiðleikum með nitró-innspýt-
inguna í Grænu þrumunni sem hef-
ur átt það til að detta út í sumum
brautum.
Vélin hefur þá fengið of mikið
bensín og fúskað. í öðrum brautum
hefur Græna þruman vissulega
staðið undir nafni og svínvirkað.
Fyrstu tvö árin sem Daníel hefur
tekiö þátt í torfærunni hefur hann
þurft að kosta útgerð bílsins að stór-
um hluta úr eigin vasa. Hann sér
fram á betri tíð því honum hefur
gengið nokkuð vel að afla sér
kostenda fyrir sumarið. Helsti
styrktaraðili hans í sumar verður
Bortækni. Aðrir kostendur eru Bic,
Timken, Bilkó, Sikkens og Flybus.
Daníel er að ljúka við að smíða nýja
yfirbyggingu á jeppann og setja und-
ir hann nýja afturhásingu ásamt aö-
stoðarmönnum sínum.
-JAK
Tölvunörd í torfæru
Ragnar Róbertsson hóf keppnisfer-
ilinn í torfæru á Hellu haustið 1997
og má því segja að hann sé í raun að
hefla þriðja keppnisárið sitt nú.
i upphafi keppti hann á sérútbún-
um jeppa, Ram, og þá tókst honum
að ná 5. sæti Heimsbikarkeppninnar.
í apríl og maí í fyrra smiðaði Ragn-
ar Kit Kat Willysinn sem hann ekur
nú og keppti á honum um sumarið í
götubílaflokki. Besti árangur hans
var 7. sæti lokaumferðar DV-Sports-
heimsbikarmótsins í fyrra sem ekin
var í Grindavík. Mestu tilþrif Ragn-
ars í fyrrasumar var án efa hrikaleg
tilraun hans til að komast upp 10
metra þverhnípt stál í einni braut-
inni. Sú tilraun endaði með miklu
stökki og mörgum veltum.
Ragnar á og rekur bílpartasöluna
Jeppahlutir 4x4 við Hringhellu í
Hafnarfirði og segir hann að stærsti
hluti varahlutanna í keppnisbílana
hafi komið úr hillunum hjá honum
sjálfum. Hann hafi því sjálfur staðið
undir kostnaðinum að mestu leyti en
þó hafi nokkrir aðilar hjálpað til
með honum. Vildi hann þar nefna
nokkra aðila sem verða með auglýs-
ingar á bílnum hjá honum í sumar
en það eru Pizza 67, veitingahúsið
Amigos, Brosbolir, Onno og Landvél-
ar.
Ragnar Róbertsson er einnig mik-
ill tölvuáhugamaður og hefur hann
sett upp skemmtilega heimasiðu þar
sem hægt er að fræðast um torfæru-
feril hans og skoða margar myndir
af bílunum í keppni. Þá hefur hann
einnig sett upp heimasíður fyrir
nokkra aðra torfæruökumenn. Slóð-
in á heimasíðu Ragnars er
www.4x4.is
»
-JAK