Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2000, Blaðsíða 12
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 2000
Sigurður Jónsson.
Siggi á Skagann
Samkvæmt
heimildum DV er
öruggt að knatt-
spyrnumaðurinn
Sigurður Jóns-
son gangi til liðs
við sína fyrrum
félaga í liði
Skagamanna er
hann kemur
heim frá Dundee
United í
Skotlandi.
KR-ingar
höfðu einnig
áhuga á að fá Sig-
urð til liðs við
sig en Skaga-
menn lögðu ofur-
kapp á að fá Sig-
urð á ný til Akra-
ness.
Sigurður verð-
ur Skagamönn-
um gríðarlegur
styrkur í barátt-
unni um íslands-
meistaratitilinn í
sumar og þeir
munu mæta með
sterkt lið til
leiks. -SK
Teitur á toppinn
Teitur Þórðarson leiddi sína menn í Brann til sigurs á
nýliðunum, Start frá Ksitiansand, á laugardaginn.
Heimamenn í Start gátu þakkað æðri máttarvöldum að
tapið varð ekki stærra en 0-2.
Með sigrinum settist Brann í efsta sæti úrvalsdeildar-
innar. Rosenborg tapaði 1-0 á heimavelli, fyrir Molde, þar
sem Ámi Gautur Arason var besti maður meistaranna.
Leikmenn Molde mættu mjög vel undirbúnir og miklu
ákveðnari til leiks og höfðu ráð heimamanna í höndum
sér allan tímann. Eftir situr Rosenborg í fimmta sætinu,
með 7 stig eftir flóra leiki.
Tryggvi Guðmundsson átti mjög góðan leik fyrir Trom-
sö þegar liðið lagði Stabæk, 2-1, á heimavelli sínum
Alfheim. Tryggvi átti fjölmörg marktækifæri í fyrr hálf-
leik en heppnaðist aðeins einu sinni að koma boltanum í
netið.
Gangi illa hjá Stabæk er ástandið enn hörmulegra hjá
íslendingaliðinu, Lilleström, sem varð að gera sér að
góðu 2-1 tap fyrir Odd Grenland í Skien. Rúnar Kristins-
son var eini íslendingurinn sem hóf leikinn en Gretar
Hjartarson kom inn á í upphafi síðari hálfleiks. Það dugði
ekki til og Lilleström situr með sárt ennið og tvö stig i
næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar.
Ríkharður Daðason skoraði fyrsta mark Viking í stór-
sigrinum á Haugasund. Víkingamn: fóru á kostum og
skomðu öll mörk leiksins í 4-1 sigrinum. -GÞÖ
Hafsteinn á Ólympíuleikana
Hafsteinn Ægir Geirsson, siglingafélaginu
Brokey, hefur verið veittur keppnisréttur á Ólymp-
íuleikunum í Sydney í sumar. Hafsteinn er fimmti
íslenski íþróttamaðurinn sem tryggir sér keppnis-
rétt á leikunum. -SK
Þátttaka íslenskra liða í Evrópukeppnum í handbolta:
- frekar litlar líkur eru þó á þátttöku íslensku liðanna
Ekki virðist mikill áhugi
hjá íslensku liðunum sem
unnu sér keppnisrétt inn á
Evrópumótin í handknattleik
á hausti komanda.
KA, sem varð i öðru sæti í
deildarkeppninni, hefði í öllu
fallið leikið í borgarkeppni
Evrópu en þar á bæ hefur ver-
ið ákveðið að vera ekki með.
Hljóðið er það sama úr her-
búðum Aftureldingar sem
vann sér rétt inn í Evrópu-
keppni félagsliða. Haukar
myndu leika í meistaradeild-
inni og Fram í Evrópukeppni
bikarhafa. Framarar eru mjög
áhugasamir um þátttöku í
Evrópukeppni bikarhafa en
ætia að funda um málið í dag.
Eina liðið sem hefur svo
gott sem er tekið ákvörðun
um að vera með er kvennalið
ÍBV sem varð íslandsmeistari
í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Haukarnir óákveönir
„Það er ekkert ákveðið af
okkar hálfu í þessum efnum.
Af niðurstöðu þings hand-
knattleikssambands Evrópu
að dæma virðist sem pening-
ar séu að koma inn í meist-
aradeildina en við höfum ekk-
ert í hendi og enga pappíra
frá HSÍ vegna þessa.
Við munum skoða þennan
möguleika með opnum huga
svo framarlega sem þátttakan
steypir okkur ekki í skuldir.
Ef fjárhagslegur grundvöllur
er fyrir þátttökunni flnnst
mér nauðsynlegt að íslensku
félagsliðin verði með á Evr-
ópumótunum í handknatt-
leik,“ sagði Þorgeir Haralds-
son, formaður handknatt-
leiksdeildar Hauka.
KA á ekki peninga og
veröur ekki meö
„Við ætium ekki að taka
þátt í Evrópumótinu og það er
vegna þess að það eru einfald-
lega ekki til peningar. Þetta
er slæm þróun að íslensk lið
hafa ekki verið með á mótun-
um hin síðustu ár. Nú hins
vegar ef einhver stuðningur
kæmi frá Evrópusambandinu
myndum við skoða það en á
þessari stundu bendir fátt til
þess,“ sagði Vilhelm Jónsson,
formáður handknattieiks-
deildar KA.
Allar líkur á að
Afturelding „sitji
heima“
„Þetta er alltaf spurning
um peninga en við erum í
sjálfu sér ekkert famir að
huga að þessu. Mér segir þó
hugur að við sitjum heima
eins og við höfum gert síðustu
ár þó sú ákvörðun liggi ekki
alveg ljós fyrir í dag.
Þetta var okkur ofviða á
sínum tíma og hver ferð kom
út með tapi. Leikmenn sáu
eitt árið um fjáröflun sjálfir
en það kostaði mikla vinnu og
fyrirhöfn,“ sagði Jóhann Guö-
jónsson, formaður handknatt-
leiksdeildar Aftureldingar.
„Við höfum rætt þetta og
það er hugmynd okkar að
senda inn þátttökutilkynn-
ingu og véra með í Evrópu-
móti meistaraliða. Við tókum
síðast þátt i Evrópumóti 1995
og ég held að ekkert kvenna-
lið hafi í millitíðinni verið
með. í okkar huga er
skemmtilegt og bráðnauðsyn-
legt að taka þátt og það eykur
um leið áhuga hjá stúlkunum.
Það er slæm þróun fyrir
handboltann hér á landi að
við höfum ekki verið með á
þessum mótum undanfarin
ár. Þessari þróun verður með
einhverja hætti að breyta,"
sagði Þorvarður Þorvaldsson,
formaður kvennaráðs ÍBV.
-JKS
Elliðavatn:
Mikið fjölmenni
- var við veiðar í gær, fyrsta veiðidaginn
Veiðiskapurinn er svo sannar-
lega komin á fleygiferð, sjóbirtings-
veiðin hefur staðið yfir í mánuð og
líklega hafa veiðst á milli 500 og
600 fiskar á þeim veiðisvæðum sem
hafa verið opnuð.
Vatnaveiðin er komin á fullt og
laxveiðin hefst í Norðurá, Þverá og
Laxá á Ásum eftir fáa daga. Eða
eins og einhver sagði eftir nokkra
klukkutíma.
„Það hafa margir komið á stað-
inn í dag og þá flestir til að veiða.
Veiðin hefur verið í ágætu lagi,“
sagði Vignir Sigurðsson við Elliða-
vatn í gærdag en veiðin hófst í
vatninu í gærmorgun klukkan sjö
og voru þá margir áhugasamir
veiðimenn mættir til að renna. I
þeirra hópi voru fjölmargir ungir
veiðimenn, jafnvel að taka fyrstu
köstin.
„Ætli það séu ekki á annað
hundrað veiðimenn héma hjá mér
og annað
eins i vatn-
inu víðs
vegar. Það
er allur
klaki farinn
af vatninu
og veiði-
menn virð-
ast vera að
fá hann,
bæði héma
fyrir neðan
bæinn I áln-
um og úti á
engjunum.
Kristján
Stefánsson
var héma
áðan með
bæði urriða
og bleikjur.
Það eru
margir veiðimenn búnir að fá eitt-
hvað,“ sagði Vignir enn fremur.
Vífllsstaðavatnið hefur verið að
gefa ágætan fisk og Jón Petersen og
Sigurdór Sigurdórsson voru fyrir
fáum dögum i vatninu. Þeir fengu
16 fiska og voru þeir stærstu eitt og
hálft pund. Vífilsstaðavatnið var
opnað 1. apríl.
Meðalfellsvatn í Kjós hefur líka
verið opnað og veiðimenn sem
voru þar fyrir fáum dögum veiddu
nokkra urriða, tveir af þeim vom 2
pund, fiskamir fengust á spón.
Minnivallalækur
„Veiðiskapurinn byrjaði fyrir al-
vöru í morgun og við fengum 9
fiska á fyrstu klukkutímunum sem
við slepptum öllum aftur,“ sagði
Þröstur Elliðason í samtali við DV
í gær en hann var þá staddur við
Minnivallalæk í Landsveit. Veiðin
hófst í læknum fyrir alvöm í gær
og fyrstu veiðimenn mættu á stað-
inn.
„Stærsti fiskurinn hingað til vó
12 pund og það var Björn K. Rún-
arsson sem veiddi hann. Það eru
ýmsar straumflugur sem hafa verið
sterkastar núna í byrjuninni. Það
virðist vera mikið af fiski í lækn-
um,“ sagði Þröstur.
-G.Bender
ingvar Ingvarsson, 12 ára, við veiðar í Elliðavatni í gær.
DV-mynd S
Heiöur Ævarsdóttir, 7 ára, renndi fyrir silung í Elliðavatni i gær en hún var
að veiöa í vatninu í fyrsta skipti. DV-mynd S