Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
I>V
Fréttir
Skoðanakönnun DV um holdafar íslendinga:
Sjötíu prósent ánægö með sig
- meiri óánægja í hópi kvenna en karla
í skoðanakönnun DV um holdafar
íslendinga kemur fram að yfirgnæf-
andi meirihluti er sáttur við ástand
sitt í þeim efnum. Konur eru þó
ekki eins ánægðar með sig og karl-
amir.
í könnuninni, sem framkvæmd
var að kvöldi 23. október, var 600
manna úrtak, jafnt af báðum kynj-
um og með jafnri skiptingu á milli
höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar
spurt: Ertu sátt(ur) eða ósátt(ur) við
holdafar þitt? Mjög góð svörun
fékkst við þessari spurningu og 98%
aðspurðra tóku afstöðu og einungis
tvö prósent voru óákveðin eða svör-
uðu ekki.
Sáttir við skvapiö
Af þeim sem afstöðu tóku var
70,1% sátt við holdafar sitt, en 29,9%
voru ósátt við það. Miðað við um-
ræðuna um að íslendingar séu að
þyngjast og fitna, auk þess sem
offita er talin vaxandi vandamál, þá
er þessi niðurstaða í könnuninni
nokkuð athyglisverð. Samkvæmt
þess ætti offituvandinn að vera tals-
verður í úrtaki DV en ekki verður
annað séð en íslendingar séu þrátt
fyrir allt bara bærilega sáttir við
allt sitt skvap. Það er helst að kon-
urnar hafi af þessu nokkrar áhyggj-
ur en karlarnir eru eins og sperrtir
hanar á priki og hafa litlar áhyggj-
ur af einhverjum aukakílóum.
64% kvenna sátt
Samkvæmt könnuninni eru
64,3% þeirra kvenna sem afstöðu
tóku sátt við holdafar sitt. Hins veg-
ar eru 35,7% kvenna ósátt við
hvemig þessum málum er háttað.
Karlarnir mjög ánægðir meö
sig
í hópi karlanna eru heil 75,9%
þeirra sem afstöðu tóku sátt við
holdafar sitt en aðeins 24,1% karl-
anna er ósátt við ástand sitt að
þessu leyti. Skipting á afstöðu
fólks eftir búsetu er mjög svipuð
og á þvi er ekki marktækur mun-
ur.
-HKr.
Mismunandi sátt við holdafarið eftir flokkum:
80 prósent sjálfstæðismanna ánægð
- framsóknarmenn telja sig líklega helst þurfa í megrun
Stuðningsmenn hinna einstöku
stjórnmálaflokka eru misánægðir
með holdafar sitt. Þetta kemur ber-
lega fram í skoðanakönnun DV um
holdafar íslendinga sem fram-
kvæmd var á mánudaginn.
Sjálfstæöismenn mjög sáttir
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar eru stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins langánægðastir með
holdafar sitt og lýsa heil 79,7%
þeirri afstöðu sinni til spurningar-
innar um hvort
þau séu sátt eða
ósátt við holdafar
sitt. Einungis
20,3% sjálfstæðis-
manna virðast
hafa einhverjar
áhyggjur af mál-
inu og segjast
ósátt við þennan
þátt í fari sínu.
Næstánægðast-
ir með sig eru stuðningsmenn
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs. í þeim hópi eru 71,6%
sátt við holdafarið en 28,4% eru
ósátt með þessi mál.
Samfylkingarfólk kemur þarna
næst á eftir og í þeirra stuðnings-
hópi lýsa 66,7% því yfir að þau
séu sátt við holdafar sitt. Þá eru
33,3% úr hópi stuðningsmanna
Samfylkingarinnar ósátt við
holdafarið.
Steingrímur J. Össur
Sigfússon. Skarphéöinsson.
Efasemdir um holdafariö
Efasemdir virðast vera öllu
meiri hjá framsóknarmönnum.
Eru 61,4% stuðningsmanna Fram-
sóknarflokksins sátt við holdafarið
en 38,6% eru þar ósátt.
Meðal stuðningsmanna Frjáls-
lyndra virðist mest óánægja ríkja
með holdafarið. Þeir eru hins
vegar það fáir í könnuninni að
samanburður þar er ekki
marktækur. Forystumenn
Halldór Sverrir
Ásgrímsson. Hermannsson.
flokksins eru hins vegar
þungavigtarmenn i ýmsum
skilningi. Það er því spurning
hvort þingmenn flokksins, þeir
Guðjón Arnar Kristjánsson og
Sverrir Hermannsson, ættu ekki
að skella sér saman út að skokka.
Þeir geta þó skákað í skjóli meiri-
hluta því að í stuðningshópi Frjáls-
lynda flokksins eru heldur fleiri
sáttir við holdafarið
-HKr.
Davíð Oddsson.
rnmrn
REYKJAVIK AKUREYRI
W
AV
^ V- ^
c-grp
*v.‘
•■ < ii *
Stormviövörun
Búist er við stormi, meira en 20 m/s á öllu
landinu í nótt og rigningu. Suðaustan 5-10
m/s og smáskúrir sunnanlands en skýjaö
með köflum norðan til. Vaxandi austanátt
síðdegis, 18-23 m/s og rigning sunnanlands T
kvöld en 10-15 m/s og skýjað noröan til.
Sólarlag í kvöld 17.30 17.07
Sólarupprás á morgun 08.56 08.48
Síðdegisflóö 17.48 22.21
Árdegisflóð á morgun 06.12 10.45
Skýrirsgar á M&bnriékssiTa
(J^VINOÁTT -^-0°.— HIT! -10° N VINDSTYRKUR N. í motrum á sekóndu ^ 1 & HEIÐSKÍRT
O
LÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAD SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
W: W ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
9 =====
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Þjóövegir greiðfærir
Allir helstu þjóðvegir landsins eru
greiðfærir.
aSNJóR
■bÞUNGFÆRT
wm ÓFÆRT
BVCCiT A UPPt YSlNGUM J RA VÍ.GACERP RIKISINS
Suöaustan og skúrir
Þaö snýst í suðaustan 13 til 18 m/s með skúrum á morgun, fýrst
sunnanlands. Hitastigið verður á bilinu 4 til 9 stig.
Laugar;
Hiti 4° til 9“ 'WW'
Vindur:
8-18 m/, ’
Sunnu
Vindun
10-15.»/»
'&JÍM
eo
Hiti 3° til 8° é A A
Mniuisl
táf’f
Vindun /S~^
10-15 m/s
Hiti 2” til 7°
Suðaustan 13 tll 18 m/s
og rignlng með köflum
suövestanlands en annars
8 tll 13 og skúrlr. Hitl 4 tll
9 stig.
Austlæg átt, víða 10 til 15
m/s og dálítil rignlng en
hvassari norðvestan til.
Hltl 3 til 8 stlg.
Norðaustan 10 tll 15 m/s
og slydduél eða skúrir
noröanlands en skýjað
með köflum og þurrt fyrir
sunnan. Hitl 2 tll 7 stlg.
AKUREYRI skýjað 5
BERGSSTAÐIR alskýjað 5
B0LUNGARVÍK alskýjaö 4
EGILSSTAÐIR 4
KIRKJUBÆJARKL. alskýjað 4
KEFLAVÍK skýjað 4
RAUFARHÖFN alskýjað 6
REYKJAVÍK úrkoma 4
STÓRHÖFÐI léttskýjað 5
BERGEN rigning 7
HELSINKI rigning 8
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 10
ÓSLÓ rigning 8
STOKKHÓLMUR súld 8
ÞÓRSHÖFN skúr 8
ÞRÁNDHEIMUR rigning 5
ALGARVE þokumóöa 14
AMSTERDAM skúrir 11
BARCELONA þokumóða 15
BERLÍN rigning 13
CHICAGO þokumóða 15
DUBLIN skýjað 7
HAUFAX heiðskírt 7
FRANKFURT skýjað 12
HAMBORG alskýjaö 10
JAN MAYEN léttskýjað -1
L0ND0N léttskýjaö 7
LÚXEMB0RG rigning 9
MALLORCA þokumóöa 15
MONTREAL alskýjaö 11
NARSSARSSUAQ skýjað 4
NEWYORK þokumóða 15
ORLANDO heiöskírt 19
PARÍS léttskýjaö 10
VÍN þokumóöa 7
WASHINGTON þokumóöa 13
WINNIPEG þoka 11