Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Qupperneq 9
9
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
DV Fréttir
Skýrsla héraðsdýralæknis um vanhirtu hrossin
Foðrun og um-
hirða brugðust
yfirdýralæknir grípi til viðeigandi ráðstafana
„Ekki er unnt aö ætla annað en
að Kristján Auðunsson hafi van-
rækt hestana þessa fjórtán daga,
sem þeir voru í hans umsjá. Þeir
virðast hafa fengið of lítið og lélegt
fóður og ófullnægjandi umhirðu."
Svo segir m.a. í skýrslu Gunnars
Arnar Guðmundssonar héraðsdýra-
læknis um vanræktu hrossin í
Faxabóli í Víðidal. Héraðsdýralækn-
ir hefur sent yfirdýralækni skýrslu
um málið. Einn eigenda hrossanna,
Ólafur Magnússon, hefur kært um-
sjónarmann þeirra fyrir brot á dýra-
verndunarlögum. Að sögn Ólafs
hafði hann tekið að sér að sjá um
flutning á hestunum til Finnlands
og Svíþjóðar en ekki staðið við gerð-
an samning. Annar útflutningsaðili
hefur nú verið fenginn til verksins.
í skýrslu héraðsdýralæknis segir
enn fremur, að hann hafi í fyrstu
skoðað átta hesta sem þá hafi verið
búið að flytja úr ofangreindu hest-
húsi. Ein hryssan hafi verið aflögð
með skitu, öll hrossin hafi verið
óþrifaleg eins og þau hefðu verið í
stíu en ekki mokað undan þeim.
Hrossin hafi verið dauf við át, sú
skýring kunni að vera á því, að
þeim hafi verið gefið mjög vel
kvöldið áður, þ.e. kvöldið sem þeim
hafði verið komið fyrir hjá nýjum
umsjónarmanni.
Enn fremur kemur fram í skýrsl-
unni, að daginn eftir hafi héraðs-
dýralæknir verið kvaddur að um-
ræddu hesthúsi í Faxabóli í Víðidal.
Þar hafi þá þrír hestar verið í gerði
við húsið. brúnn og brúnstjömóttur
svo og rauðskjóttur foli. Eigendur
þessara hrossa voru Ólafur, finnsk
stúlka og Reynir Sigursteinsson í
Hlíðarbergi.
„Rauðskjótti folinn og brún-
stjörnótti hesturinn voru horaðir og
svangir...,“ segir m.a. í skýrslu hér-
aðsdýralæknis.“Það er ljóst að
þama hefur fóðrun og umhirða
brugðist." Héraðsdýralæknir telur
þó hugsanlegt að fleiri þættir hafi
haft áhrif. Hrossin þrjú voru þegar
falin umsjá búfjáreftirlitsmanns
Reykjavíkurborgar.
í lok skýrslunnar segir héraðs-
dýralæknir að hann telji að um geti
verið að ræða brot á dýravemdar-
lögum og á reglugerð um aðbúnað
og heilbrigði hrossa. Leggur hann
til að yfirdýralæknisembættið grípi
til viðeigandi ráðstafana.
-JSS
DV-MYND GVA
Á útleiö
Hrossin umræddu dvelja nú í góöu yfirlæti á höfuðborgarsvæðinu. Flest
þeirra munu fara til nýrra heimkynna eriendis á næstunni.
Samherji
kaupir nóta
veiðiskip
DV, AKUREYRI
Samherji hf. hefur gengið frá
kaupum á nótaveiðiskipinu Jóni
Sigurðssýni af EM Shipping en fé-
lagið er dótturfélag Framherja Spf. í
Færeyjum sem Samherji á hlut í.
Hið nýja skip fær einkennisstafma
GK-110 og verður gert út frá Grinda-
vík.
Jón Sigurðsson, sem áður var í
eigu Samherja hf. (Fiskimjöls og
Lýsis), var seldur til færeyska fé-
lagsins á haustdögum 1997. Skipið
var smíðað í Noregi 1978, er með
3.300 hestafla vél og ber 860 tonn.
Kaupverð skipsins er mn 300 mlllj-
ónir króna og hefur það þegar farið
til sildveiða. -gk
28"CTV-9Z70
NICAM STEREO • ísl. textavarp * BLACK
MATRIX mynd-lampi • 2 EURO SCART
tengi • S-VHS inngangur • Full-komin
fjarstýring • Sjálfvirk stöðvaleitun • Stórir
hljómmiklir hátalarar að framan • Allar
aðgerðir á skjá • Heyrnartólatengi
BILALIF
NICAM STERIO • NTSC afspilun á PAL sjónvarpi • 6 hausa
með Long Play • Sjálfvirk stöðvaleitun - Innsetning • Einnar
snertingar afspilun eftir upptöku • Sjálfhreinsandi myndhaus
• Stafræn myndstilling • Fullkomin fjarstýring • 2 EURO
SCART tengi
NTSC afspilun á PALsjónvarpi • tinnar snerungar aispnun
eftir upptöku • Allar aðgerðir á skjá Alsjálfvirkt* Rauntíma-
teljari • Miðjuhlaðið • Sjálfhreinsandi myndhaus Stafræn
myndstilling • Fullkomin fjarstýring • EURO SCART tengi.
Skúfunni 5 • simi 553 1010 • Ax 500 4040
GMC Suburban 6,5
dísil turbo, árg. 1995,
ekinn 75 þ. km, vínr./grár,
allt rafdr., cd,4x4.
Verð 3.350 þús.
Tilboð 2.870 þús.
ÍX, 4 hausa LONG PLAY • NTSC afspilun á PAL sjónvarpi •
I Einnar snertingar afspilun eftir upptöku • Allar aðgerðir á
t-j, skjá • Alsjálfvirkt • Rauntímateljari • Miðjuhlaðið • Sjálf-
hreinsandi myndhaus • Stafræn myndstilling • Fullkomin
IXi fjarstýring • EURO SCART tengi.
Einnig:
liaill
Nissan Terrano 2,7 dísil, árg. 1993
Nissan Terrano 2,7 dísil, árg. 1992
Isuzu Trooper 2,8 dlsil, árg. 1990
MMC Pajero 2,5 dísil (stuttur) árg. 1997