Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Page 12
12
Útlönd
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
Bandaríkjaforseti reynir enn að halda leiðtogafund:
Clinton segir Ara-
fat geta gert betur
Flugslys í Georgíu:
Átta börn meðal
þeirra rúmlega
áttatíu sem dóu
Rússneskir hermenn og leitar-
sveitir frá Georgíu héldu í morgun
áfram leit sinni í fjalllendinu þar
sem rússnesk herflugvél fórst í gær
og með henni á níunda tug manna.
Átta börn voru meðal þeirra sem
fórust.
Flugvélin, sem var af gerðinni
Iljúsjín-18, fórst í fjalllendi norð-
austur af hafnarborginni Batúmi í
Georgíu, höfuðborg sjálfstjómar-
svæðisins Adzhara þar sem Rússar
hafa herstöð. Um borð í vélinni
voru liðsforingjar úr rússneska
hernum og fjölskyldur þeirra á leið
heim úr fríi. Flugvélin var að koma
frá Moskvu þegar hún fórst.
Yfirmaður almannavarna í Ge-
orgíu sagði fréttamanni Reuters að
vélin hefði splundrast þegar hún
skall utan í fjallið og að nánast ekk-
ert væri eftir af henni. Eldurinn
sem kviknaði þegar vélin skall utan
í íjallið sást í margra kílómetra fjar-
lægð.
Flugslysið í gær er enn eitt stórá-
fallið sem Rússar hafa orðið fyrir á
undanförnum mánuðum. Þar er
skemmst að minnast afdrifa kjarn-
orkukafbátsins Kúrsk sem fórst
með manni og mús í Barentshafl í
ágúst.
Edúard Shevardnadze, forseti Ge-
orgíu, áformaði að fara til Batúmí í
morgun. Búist var að hann myndi
fara á slysstaðinn í þyrlu.
Rússneska landvarnaráðuneytið
sendir nefnd sem á að rannsaka
slysið til Georgíu í dag.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í gær að hann teldi að Yasser
Arafat, forseti Palestínumanna,
gæti gert betur í að draga úr átök-
unum milli ísraela og Palestínu-
manna undanfamar vikur. Hann
gekk þó ekki svo langt að kenna
honum um uppreisnina sem hefur
orðið til þess að ísraelar hafa lagt
allar friðarviðræður á hOluna í bili.
Clinton reynir enn að fá þá Ara-
fat og Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, til fundar við sig í Hvíta
húsinu. Hann sagði fréttamönnum
að hvorki Arafat né Barak hefðu
fulla stjórn á atburðarásinni.
Að minnsta kosti 131 maður hefur
týnt lífi i átökum síðustu vikur.
Vopnaðir Palestínumenn hófu
skothríð á landnemabyggð gyðinga
nærri Jerúsalem í gær, á sama tíma
og yfirmenn öryggismála hjá Palest-
ínumönnum og Israelum ræddu
saman um leiðir til að binda enda á
ofbeldið.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
skotið hefði verið á landnemabyggð-
ina Gilo frá þorpinu Beit Jala á
Vesturbakkanum. ísraelskir her-
menn svöruðu með vélbyssuskot-
hríð og tvehnur sprengikúlum úr
skriðdrekum. Ekki er vitað til að
neinn hafi særst í skothríðinni.
Fundur yfirmanna öryggismála
Palestínumanna og ísraela í gær
var hinn fyrsti í nærri tvær vikur.
Nokkrir slíkir fundir hafa þó verið
haldnir frá því að átökin blossuðu
upp þann 28. september.
Israelsk stjómvöld áforma að láta
fanga sinna þeim störfum sem þús-
undir Palestínumanna hafa gegnt
fram til þessa, að sögn sænsku
fréttastofunnar TT.
Palestínumönnum er nú meinað
að halda til vinnu sinnar utan
heimastjómarsvæðanna.
Skemmdirnar kannaöar
Palestínskur drengur stendur fyrir framan verslun í hverfi Palestínumanna í
Vesturbakkaborginni Hebron sem hefur oröiö fyrir skemmdum af völdum
skothríöar. Ekki er vitaö hvers konar skotfæri geröu stóru götin á hlerann.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
farandi eignum:
Nesvegur 59,50% ehl., 0001, íbúð í kjall-
ara og 1/3 lóðar, Reykjavík, þingl. eig.
Ævar R. Kvaran, gerðarbeiðendur fbúða-
lánasjóður og Tollstjóraskrifstofa, mánu-
daginn 30. október 2000, kl. 10.00.
Njálsgata 32b, 50% ehl., 0001, 2ja her-
bergja íbúð f kjallara, Reykjavík, þingl.
eig. Óskar Aðils Kemp, gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 10.00.
Njálsgata 54, Reykjavík, þingl. eig. Sig-
urður Kristinsson, gerðarbeiðandi
Reykjanesbær, mánudaginn 30. október
2000, kl. 10.00
.Njálsgata 112, 0102 verslunar- og þjón-
usturými á 1. hæð á homi Njálsgötu og
Rauðarárstígs,Reykjavík, þingl. eig. SH
Fjárfestingar., gerðarbeiðandi Tollstjóra-
skrifstofa, mánudaginn 30. október 2000,
kl. 10.00.
Rauðalækur 35, 0301, 5 herb. íbúð á 3.
hæð (þakhæð), Reykjavík, þingl. eig. Sig-
fríð Magnúsdóttir og Þröstur Sigurðsson,
gerðarbeiðandi fslandsbanki hf., höfuðst.
500, mánudaginn 30. október 2000, kl.
10.00.
Reyrengi 2, 50% ehl., 4 herb. íbúð, 92,6
fm, á 1. h.t.h. m.m., Reykjavík, þingl. eig.
Skarphéðinn Þór Hjartarson, gerðarbeið-
andi Iðunn ehf., bókaútgáfa, mánudaginn
30. október 2000, kl. 10.00.
Reyrengi 49, Reykjavík, þingl. eig. Sig-
ríður Stefánsdóttir og Sveinn Þ. Jónsson,
gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, mánu-
daginn 30. október 2000, kl. 10.00.
Rjúpufell 27, 0402, 50% ehl. í 4ra herb.
íbúð, 93,1 fm, á 4. h. t.h m.m., Reykjavík,
þingl. eig. Ragna S. Sveinbjömsdóttir,
gerðarbeiðandi Bílabúð Benna ehf.,
mánudaginn 30. október 2000, kl. 10.00.
Rofabær 47, 0203, 50% ehl. í 3ja herb.
íbúð, 77,6 fm, á 2. h. t.h. ásamt geymslu
á 1. h., merkt 0110, m.m., Reykjavík,
þingl. eig. Anna Auðbergsdóttir, gerðar-
beiðandi Tollstjóraskrifstofa, mánudag-
inn 30. október 2000, kl. 10.00.
Rósarimi 7, 0102, fbúð á 1. hæð t.h.
m.m., Reykjavfk, þingl. eig. Hafdís Grét-
arsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki ís-
lands hf., höfuðst., mánudaginn 30. októ-
ber 2000, kl. 10.00.
Safamýri 93, 33,33% ehl., 5. herb. íbúð á
jarðhæð, Reykjavík, þingl. eig. Anna M.
Þorsteinsdóttir, gerðarbeiðandi Eignar-
haldsfélagið Jöfur hf., mánudaginn 30.
október 2000, kl. 10.00.
Selásblettur, landspilda úr Seláslandi
15A, 330 fm iðnaðarhúsnæði úr timbri,
1550 fm af landi, Reykjavfk, þingl. eig.
Guðmundur Kristinsson ehf. og Eykt
ehf., gerðarbeiðendur (slandsbanki-FBA
hf. og Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn
30. október 2000, kl. 10.00.
Skeljagrandi 5, 0103, Reykjavík, þingl.
eig. Bjöm Ævarr Steinarsson og Vilhelm-
ína Ólafsdóttir, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður, Skeljagrandi 5, húsfélag, og
Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 10.00.
Skipholt 40, 0201, 5 herbergja íbúð á 2.
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Hjalti Reynis-
son og Reynir Lámsson, gerðarbeiðandi
Ibúðalánasjóður, mánudaginn 30. október
2000, kl. 10.00.
Skólavörðustígur 22c, 020101, geymslu-
skúr á baklóð m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Magnús Matthíasson, gerðarbeiðandi
Erlingur Sigurður Davíðsson, mánudag-
inn 30. október 2000, kl. 10.00.
Sóltún 20, 010102, 239,6 fm, 1. hæð í
forhúsi, A-hluti, Reykjavík, þingl. eig.
H.J. Sveinsson ehf., gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands hf., höfuðst., mánu-
daginn 30. október 2000, kl. 10.00.
Sóltún 30, 0402, 86,5 fm íbúð á 4. hæð
m.m. ásamt geymslu í kjallara, merkt
0014, Reykjavík, þingl. eig. Hrefna Björk
Amardóttir og Gunnar Öm Hreiðarsson,
gerðarbeiðendur Sóltún 30, húsfélag, og
Tollstjóraembættið, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 10.00.
Stíflusel 4, 0202, 3ja herb. íbúð á 2. hæð,
merkt 2-2, Reykjavík, þingl. eig. Kristín
Ingib. Friðriksdóttir, gerðarbeiðandi Toll-
stjóraskrifstofa, mánudaginn 30. október
2000, kl. 10.00.
Stórholt 16, 0102, 33,4 fm íbúð á 1. hæð
í V-enda m.m., Reykjavík, þingl. eig. Sig-
rún Sigvaldadóttir, gerðarbeiðendur Toll-
stjóraskrifstofa og Vátryggingafélag fs-
lands hf., mánudaginn 30. október 2000,
kl. 10.00.
Teigagerði 17, Reykjavík, þingl. eig.
Guðjón Hilmarsson og Sesselja Ingibjörg
Jósefsdóttir, gerðarbeiðendur fbúðalána-
sjóður og Tollstjóraskrifstofa, mánudag-
inn 30. október 2000, kl. 13.30.
Teigasel 11, 0203, 2ja herb. íbúð á 2.
hæð, merkt 2-3, Reykjavík, þingl. eig.
Jón Ami Einarsson og Auður Friðriks-
dóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraskrif-
stofa, mánudaginn 30. október 2000, kl.
13.30.
Tjamarmýri 35, 0202, 100,2 fm, 3ja her-
bergja íbúð á 2. og 3. hæð a-megin m.m.
og stæði nr. 3 í bílageymslu, Reykjavík,
þingl. eig. Kristinn Kristinsson og Guðný
Ósk Ólafsdóttir, gerðarbeiðandi íbúða-
lánasjóður, mánudaginn 30. október
2000, kl. 13.30.
Ugluhólar 12, 0301, 4-5 herb. íbúð á 3.
hæð t.v. og sérgeymsla á 1. hæð, Reykja-
vík, þingl. eig. Þuríður Bima Halldórs-
dóttir og Guðmundur Oddgeir Indriða-
son, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður,
Lífeyrissjóðir, Bankastræti 7, og Uglu-
hólar 12, húsfélag, mánudaginn 30. októ-
ber 2000, kl, 13.30.
Undraland 4, Reykjavík, þingl. eig. Run-
ólfur Oddsson, gerðarbeiðandi Ibúða-
lánasjóður, mánudaginn 30. október
2000, kl. 13.30.
Unnarstígur 2a, 0101, 3ja herbergja fbúð
m.m. (minna húsið), Reykjavík, þingl.
eig. Rúnar Öm Friðriksson, gerðarbeið-
andi Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 30.
október 2000, kl, 13.30.
Unufell 35,0401,4ra herb. íbúð, 92,2 fm,
á 4. h. t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig.
Guðmundína Einarsdóttir, gerðarbeið-
andi Ibúðalánasjóður, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 13.30.
Vesturbrún 12, 0001. 4ra herb. kjallaraí-
búð, Reykjavík, þingl. eig. Gunnlaugur
G. Snædal.gerðarbeiðandi Tollstjóraskrif-
stofa, mánudaginn 30. október 2000, kl.
13.30.
Vesturbrún 12, öll eignin ásamt bílskúr,
að undanskilinni 4ra herb. kjallaraíbúð,
Reykjavík, þingl. eig. Soffía Káradóttir
og Gunnlaugur G. Snædal, gerðarbeið-
andi Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 13.30.
Vesturfold 44, Reykjavík, þingl. eig. Val-
gerður Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi
Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 30.
október 2000, kl, 13.30.
Vesturgata 16,010101,1. hæð og kjallari,
010201 2. hæð, 010301 3. hæð, Reykja-
vík, þingl. eig. Sturlungar ehf., gerðar-
beiðandi Kristinn Hallgrímsson, mánu-
daginn 30. október 2000, kl. 13.30.
Vindás 2, 0404, 2ja herb. íbúð á 4. hæð,
Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Þóra
Karlsdóttir og Guðmundur Brynjar Lúð-
víksson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður,
mánudaginn 30. október 2000, kl. 13.30.
Víðigmnd, Mosfellsbæ, þingl. eig. Hulda
Jónasdóttir og Garðar Hreinsson, gerðar-
beiðandi íbúðalánasjóður, mánudaginn
30. október 2000, kl. 13.30.
Völvufell 50, 0202, 4ra herb. íbúð, 92,2
fm, á 2. h. t.h. m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Ingibjörg Hauksdóttir, gerðarbeið-
andi Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 13.30.
Þingás 33, Reykjavík, þingl. eig. Stein-
unn Þórisdóttir, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður og Lífeyrissjóður verslunar-
manna, mánudaginn 30. október 2000, kl.
13.30. ______________________________
Þórufell 2, 0403, 3ja herb. íbúð á 4. h. t.h.
m.m., Reykjavík, þingl. eig. Dröfn Hlíðar
Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur fbúða-
lánasjóður og Þómfell 2, húsfélag, mánu-
daginn 30. október 2000, kl. 13.30.
Þómfell 12, 0202, 2ja herb. íbúð á 2. h. í
ntiðju m.m., Reykjavík, þingl. eig. Guð-
finnur Sigurðsson, gerðarbeiðendur
Ibúðalánasjóður, Kreditkort hf., Spari-
sjóður vélstjóra og Þómfell 12, húsfélag,
mánudaginn 30. október 2000, kl. 13.30.
Þúfusel 2, 0101, 1. hæð og bflskúr,
Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Guð-
mundsdóttir, gerðarbeiðandi íslandsbanki
hf., útibú 526, mánudaginn 30. október
2000, kl. 13.30.____________________
Þverás 10, 0101, neðri hæð, Reykjavík,
þingl. eig. Andri Hermannsson, gerðar-
beiðandi Tollstjóraskrifstofa, mánudag-
inn 30. október 2000, kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
_______um sem hér segir:________
Austurberg 34, 0102, eins herb. íbúð á 1.
hæð. Reykjavík, þingl. eig. Ingólfur Ámi
Jónsson, gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður,
mánudaginn 30. október 2000, kl. 13.30.
Bámgata 4, íbúð í kjallara m.m., Reykja-
vík, þingl. eig. Gróa Ásgeirsdóttir, gerð-
arbeiðandi Tollstjóraembættið„mánudag-
inn 30. október 2000, kl. 11.30.
Kambasel 26, 0103, Reykjavík, þingl.
eig. Sigurjón Már Lámsson, gerðarbeið-
andi fbúðalánasjóður, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 14.00.
Laugavegur 58, 0201, 112,7 fm íbúð á 2.
hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Tækni-
smiðjan ehf., gerðarbeiðendur íbúðalána-
sjóður og Tryggingamiðstöðin hf., mánu-
daginn 30. október 2000, kl. 10.00.
Leimbakki 34, 0101, 89,9 fm íbúð á 1. h.
lengst til vinstri m.m., afnotaréttur fyrir
framan stofu sem svarar til svalastærðar
efri hæðar, Reykjavík, þingl. eig. Erla
Bjamadóttir, gerðarbeiðendur Ibúðalána-
sjóður og Sparisjóður Hafnarfjarðar,
mánudaginn 30. október 2000, kl. 14.30.
Leimbakki 36, 0103, 54.8 fm verslunar-
og þjónustuhúsnæði á 1. hæð m.m.,
Reykjavík, þingl. eig. ÍS-EIGNIR ehf.
gerðarbeiðendur Birkiberg ehf. og Líf-
eyrissjóðurínn Framsýn, mánudaginn 30.
október 2000, kl. 15.00.
Leimbakki 36, 0104, 55,9 fm verslunar-
húsnæði á 1. hæð m.m., Reykjavík, þingl.
eig. Leirubakki 36 ehf., gerðarbeiðendur
Birkiberg ehf., Harpa hf. og Lífeyrissjóð-
urinn Framsýn, mánudaginn 30. október
2000, kl. 15.15.________________
Lokastígur 16, 0301, 99,3 fm 4ra herb.
íbúð á 3. hæð og bflskúr, Reykjavík,
þingl. eig. Bragi B. Blumenstein og Sig-
rfður Þ. Þorgeirsdóttir, gerðarbeiðendur
Búnaðarbanki Islands hf., Húsasmiðjan
hf., íbúðalánasjóður, Landsbanki Islands
hf., höfuðst., og Tollstjóraembættið,
mánudaginn 30. október 2000, kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Meintar njósnir
Saksóknari í
Austurríki hefur
nú hafið rannsókn
á því hvort Jörg
Haider, fyrrverandi
leiðtogi Frelsis-
flokksins, hefur
haft aðgang að
leyniskjölum lög-
reglunnar um pólitíska andstæð-
inga sína. Fullyrt er i bók að lög-
reglan hafi afhent flokksmönnum
skjölin gegn greiðslu. Haider vísar
ásökunum á bug og kveðst sjálfur
vera sá sem mest er njósnað um.
Prestar svívirtu börn
Belgískur prestur var í gær
dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að
hafa misnotað 26 börn kynferðislega
á 30 ára tímabili. I fyrradag var
franskur prestur dæmdur í 8 ára
fangelsi fyrir svipaðan glæp.
Kúariðukjöt veldur kreppu
Pólítísk kreppa ríkir nú í Frakk-
landi eftir að ljóst varð að kjöt af
nautgripum sýktum af kúariðu
hefði verið selt í matvöruverslun-
um.
Gore leiðir í Flórída
A1 Gore, forsetaefni demókrata,
leiðir í Flórída samkvæmt skoðana-
könnun New York Times og CBS
sem birt var í morgun. Gore er með
46 prósenta fylgi en George Bush,
forsetaefni repúblikana, með 42 pró-
sent. Flórída er mikilvægt riki
vegna fjölda kjörmanna.
Vilja forsetann burt
Joseph Estrada,
forseti Filippseyja,
kvaðst í morgun
reiðubúinn að fara
frá verði sannað að
hann hafi þegið
mútur frá spilavít-
isstjórum. I gær
sagði varaforseti
Filippseyja, Gloria Arroya, afsögn
Estrada lausnina á kreppunni í
landinu.
Lík fundust í Kúrsk
Tveir rússneskir kafarar komust
inn í kafbátinn Kúrsk í gær og
fundu þrjú lík í áttunda hólfi hans.
Réttað yfir Strauss-Kahn
Franskir dómarar skipuðu í gær
fyrrverandi íjármálaráðherra
Frakklands, Dominique Strauss-
Kahn, að koma fyrir rétt vegna
gruns um skjalafals.
Blair fær aukið fylgi
Verkamanna-
flokkur Tonys Bla-
irs, forsætisráð-
herra Bretlands,
nýtur nú fylgis 45
prósenta kjósenda
samkvæmt skoð-
anakönnun sem
birt var í Times í
morgun. Hefur fylgi flokksins auk-
ist um 8 prósentustig í þessum mán-
uði. íhaldsflokkurinn er með 32 pró-
senta fylgi.
Boðar betri samskipti
Vojislav Kostunica, forseti
Júgóslavíu, boðaði í gær betri sam-
skipti við önnur Balkanríki. Leið-
togar ríkjanna funduðu í Makedón-
íu.