Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2000, Page 17
17
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 2000
I>V
Stofnun Árna Magnússonar gefur út fyrsta bindi í ritsafni Hallgríms Péturssonar:
Eins og að drekka kampavín
Á morgun, 27. október, á dánardœgri sr.
Hallgríms Péturssonar, kemur út á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar fyrsta bindið
í nýrri frœðilegri heildarútgáfu verka hans.
Þetta er fyrsta bók af fimm í fyrsta hluta
heildarútgáfunnar sem nefnist „Ljóðmœli";
alls veróa hlutarnir fjórir og bera hinir
þrír yfirskriftirnar Sálmaflokkar, Rímur
og Laust mál. Alls veróa bindin líklega tíu.
Engin heildarútgáfa hefur áður verió gerð
af verkum Hallgríms svo sannarlega var
kominn tími til. 326 ár eru síðan hann lést
úr holdsveiki árið 1674, sextugur að aldri.
„í þessu fyrsta bindi eru 33 kvæði, and-
látssálmar og ádeilukvæði. Þau tengjast
andlátssálmunum þannig að i þeim er mik-
ið fjallað um forgengileik veraldarinnar og
fallvalt lán,“ segir Svanhildur Óskarsdótt-
ir, einn af aðstandendum útgáfunnar. „Þar
kemur oft fram að það þýði ekkert að vera
að monta sig og klæða sig í dragfín föt, því
þetta hverfi allt um síðir!“
Lítið er varðveitt í eiginhandarriti Hall-
grims, aðeins Passíusálmarnir og tveir
sálmar um dauðann. Annaö er allt í af-
skriftum og það gerir fræðimönnum erfitt
fyrir. „Við þurfum að fara í gegnum öll
handrit og ráða í hvert þeirra geymir
besta textann. Aldarháttur, frægasta
ádeilukvæðið hans, er til dæmis varðveitt-
ur í yfir 40 handritum."
Eins og vonlegt var miðað við þessar
vinsældir heyrði Hallgrímur iðulega
kvæðin sín af vörum annarra talsvert öðru-
visi en hann hafði hugsað sér þau upphaflega
eins og eftirfarandi vísa um Króka-Refs rimur
hans sýnir:
Séð hef ég áður rlmur Refs
ritaðar mínum penna,
en nú er mér orðið allt til efs
hvort eigi mér að kenna!
Tónlist
Röng ímynd fræðimanna
- Er ekki skrýtið að þetta höfuðskáld skuli ekki
vera til í góðri heildarútgáfú?
„Jú, en það er heldur ekki til fræðileg útgáfa af
Njálu!" segir Svanhildur. „Verkefnin í sambandi við
fræðilega útgáfu eru bara svo stór og við eigum ekki
nauðsynlegan mannskap í þau. Því segi ég það að því
fleiri sem leggja fyrir sig þessi fræöi, þeim mun
betra!“
Ráðgert er að gefa út eitt bindi á ári en Svanhildur
telur að til að sú áætlun standist þurfl fleiri að
koma að verki. Margrét Eggertsdóttir sem lengst
hefur unnið að útgáfúnni er orðin lektor í Kaup-
mannahöfn og Svanhildur og Kristján Eiríksson
eru ein eftir.
„Fólk hugsar sér fræðimenn þannig aö þeir séu
bara ósköp ánægðir með að tíminn líði hægt og
það gerist mjög lítið á hveijum degi,“ segir Svan-
hildur, „en þetta er alls ekki rétt. Manni líður rosa-
lega illa þegar ekkert gengur! Við viljum að bæk-
umar komi jafnt og þétt og fólk þurfl ekki að bíða
endalaust eftir framhaldinu."
I þessari útgáfu er textinn stafréttur og ekki
verulega lesvænn fyrir aimenning, „ekki til að
taka með sér í baðið,“ ems og Svanhildur orðar
það. En á grundvelli hennar er einfalt að búa til
góða og lesvæna útgáfu með bókmenntalegum inn-
gangi og skýringum. Það verður næsta skref sem
vonandi bíður ekki eftir því að öll bindin komi út.
Hvað á erindi?
- Á Hallgrímur erindi til fólks á nýrri öld?
„Ég sá um daginn að það ætti að ræða um
Shakespeare undir formerkjunum „Shakespeare
og nútíminn" eða eitthvað á þá leið,“ svarar Svan-
hildur eftir nokkra umhugsun, „og ég velti fyrir
mér hvort það væri ekki þreytandi að vera alltaf
að spyrja hvaða erindi þessi gömlu verk ættu við
nútímann. Viljum við að nútíminn sé bara eitt-
hvað sem er auöveldlega aðgengilegt fyrir nútíma-
menn? Er ekki frábært að hafa eitthvað líka sem
er framandi og þar með nýstárlegt? Mörg yrkis-
efna Hallgríms eiga við á öllum tímum. Tungutak-
ið er ekki nútímalegt, en hann er mjög gott skáld og
málfar hans er mergjað. Hann virðist eiga svo létt
með að yrkja. Það er svolítið eins og að drekka
kampavín að lesa kvæðin hans, þegar loftbólumar
springa í munninum! Það er gos í stílnum hjá honum,
orðkynngin er svo mikil.“
Á dagskrá í Hallgrímskirkju á morgun kl. 16.30 i til-
efni útgáfunnar heldur Margrét Eggertsdóttir erindi
um skáldið, einnig verður upplestur og söngur og eru
allir boðnir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
ART
Hamskipti hljóðanna
2000
Meðalaldurinn á mánudagstónleikum Art 2000
var ekki hár. Ungt fólk hefur löngum haft meiri
kjark til að horfast i augu við nýjungar. Og það
þurfti töluverðan kjark þetta kvöld.
Fyrri hluti tónleikanna var helgaður verkum
eftir Paul Lansky sem er einn af gestum hátíðar-
innar. Hann kynnti verk sin notalega, en litlir
leiðarvísar sem tónskáldin gefa á staðnum geta
reynst björgunarhringir sem menn þurfa jafnvel
að ríghalda sér í til að týnast ekki og gefast tröll-
um á meðan verkin ríða yfir.
Sex fantasíur um ljóð eftir Thomas Campion er
yflr 20 ára gamalt verk. Lansky vinnur þar með
sama upplestur á ljóðinu í sex hlutum og er sá
síðasti næst upprunanum. í fyrsta hluta vekur
gagnstíg hljóðahreyflng við línu raddarinnar at-
hygli. Náið samband lesturs og tóna í öðrum
kafla er fallegt. Tónar í lestrinum eru teknir út og
látnir liggja undir lestrinum þangað til annar
slíkur tekur sig út og saman hljóma þeir um
stund. Þessir sjálfsprottnu samhljómar sköpuðu
stemningar sem undirstrikuðu hljóðveröld ljóðs-
ins. Hin klassísku vinnubrögð höfundar skína í
gegnum nýstárlegan efniviðinn og gefa honum
trúverðuga mynd.
Síðara verk Lanskys var í þessum flokki líka
þó það sé bara ársgamalt. í Ride er boðið í ferða-
lag. Bílahljóð og fleira kunnuglegt ber okkur
áfram, við lendum í boði og fleira skemmtilegu.
Það hversu flnlega Lansky notar þessar hlut-
bundnu hljóðvísanir til að setja menn í stellingar
fyrir annars óhlutbundið og hlaðið verk minnir
kannski á sjöttu sinfóníu Beethovens, svo ein-
hverjir nafnkunnir séu nú nefndir. Beethoven
býður í því verki í siglingu niður á og hlustand-
inn er áhorfandi að ýmsum uppákomum sem þó
aldrei spilla hinni sterku formgerð verksins. Ride
er líka sinfónískt verk .þó leikin séu tilbúin og
upptekin hljóð af tónbandi. Það hefur stærð,
framvindu og vídd sinfóníunnar og var sérlega
áheyrilegt.
Hið sama verður ekki sagt um það sem á eftir
kom. Stunguskófluverk Kristínar Bjarkar Krist-
jánsdóttur og Böðvars Ingva Jakobssonar inni-
hélt einfalt myndskeið af manni með skóflu og að
því er virtist skipulagðan hljóðaspuna. Þetta virk-
aði dálítið eins og óljós minning um gamlan og
uppreisnargjaman stíl sem nú er búninn að
missa tennumar. Verkið frá tónlistarlegu sjónar-
horni fádæma fátæklegt.
Trevor Wishart hefur kannað mannsröddina
og hvað er hægt að gera við hana með tólum og
tækjum í marga áratugi. I Vox 5 eru hamskipti
hljóðanna endalaus og má þar heyra allan dýra-
garð raddarinnar, en sem verk hljómar það meira
sem hljóðskúlptúr en tónverk. Hitt verkið.Tungur
elds eða Tongues of Fire, varð til þegar skáldið
hafði þýtt eitt af forritum sínum yfir á PC-tölvu
og var að fara yfir alla möguleika hljóðbreytinga
sem hann hafði þar innbyggt. Sú hugsun er ekki
ný í tónlistarheiminum að setja saman verk þar
sem tæmdir era einhverjir ákveðnir möguleikar
innan gefms ramma. Nægir að nefna Prelúdíur
og Fúgur eftir J.S. Bach. Verkið er sett saman
með ágætu auga fyrir byggingu, með endurtekn-
ingum á réttum stöðum, með þéttara efni í gull-
insniði timans og vel unnu niðurlagi. Mörg hljóð-
anna voru hreint ótrúleg og verkið að því leyti at-
hyglisvert. En það nægði ekki til að lyfta þessu
hljóðasafni upp á stall tónlistar. Um þetta atriði
voru þó skemmtilega skiptar skoðanir meðal tón-
leikagesta.en það er einmitt eitt af því sem gerir
þetta svona spennandi. Þessi akur er nýr og upp-
skeran enn dálítið villt og um leið umdeild.
Sigfríður Björnsdóttir
Bókmenntir
Vandinn að vera öðruvísi
Saklausir sólardagar er fyrsta bamabók Val-
geirs Skagfjörð og vel heppnuð framraun að
flestu leyti. Sagan hefst á stuttum inngangi þar
sem lýst er þeirri fortíðarþrá sem heltekur mann
sem horfir yfir æskuslóðir sínar. Síðan byrjar hin
eiginlega saga þar sem sagt er frá Lúkasi sem er
öðruvísi en allir aðrir í hverflnu. Pabbi hans er
útlendingur og býr einhvers staðar úti í heimi,
þess vegna er Lúkas með hrafnsvart hár og brún
augu og er kallaður indíáninn af miður velviljuð-
um krökkum í hverfinu.
Ekki stríða allir Lúkasi, hann eignast góðan
vin sem heitir Jói og bralla þeir margt saman.
Ógurleg hrekkjusvín gera þeim hins vegar lífið
leitt en foringi þeirra er Stebbi strý. Sá er
allsvakalegur og kann hvorki meira né minna en
ellefu hálstök. Sagan segir okkur frá uppátækjum
Lúkasar og Jóa, bolabrögðum hrekkjusvínanna
sem stigmagnast og lýkur með miklu uppgjöri.
Sagan er lipurlega skrifuð; lýsingar á krökkun-
um og umhverfi
þeirra eru lifandi og
standa greinilega
höfundi nærri. Sam-
skiptum barna og
fullorðinna er lýst á
glettinn og raunsæj-
an hátt og þurfa
söguhetjurnar að
standast ýmsar raun-
ir og sigrast á margs
kyns vanda. Þessi
hversdagslegu
vandamál eru þau
sömu og börn um
þessar mundir þurfa að fást við þó að umhverfið
sé annað og tímasviðið eigi að vera annað.
Líðan Lúkasar eru gerð prýðileg skil. Hann er
nokkurs konar nýbúi þar sem hann ber útlensk-
an uppruna sinn með sér og er ekki almennt við-
urkenndur sem íslendingur. Hann þarf einnig að
lifa með því að eiga engan pabba, einúngis stjúpa
sem hefur takmarkaðan áhuga á honum. Þessu
ástandi - að vera hvorki þetta né hitt - er lýst á
nærfærnislegan og skilningsríkan hátt þannig að
klípa Lúkasar snertir lesendur. Öðrum þræði er
sagan þroskasaga Lúkasar; þannig hjálpa sam-
skipti hans við pabba Jóa honum að átta sig á því
að það er ekki allt unnið með því að eiga föður.
Vandamálin eru þó ekki máluð of dökkum litum
en megináherslan lögð á atburðarásina.
Sagan og persónur hennar fanga lesendur.
Spennan helst frá upphafi til enda en um leið
kynnist maður lifandi og raunsæjum persónum.
Er óhætt að hvetja Valgeir til frekari dáða á
þessu sviði.
Katrín Jakobsdóttir
Valgeir Skagfjörö: Saklausir sólardagar. Teikningar:
Guöjón Ketilsson. Mál og menning 2000.
___________Menning
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
Stefán Snæbjörnsson, Sigrún og
Sören glerhönnuðir og Aðalsteinn
Ingólfsson, forstöðumaður Hönnun-
arsafnsins, með hluta gjafarinnar.
Gler að gjöf
Glerblástursverkstæðið Gler í Berg-
vik er frumherji í framleiðslu listmuna
úr heitu gleri á íslandi. Verkstæðið var
stofhað árið 1982 í Bergvík á Kjalarnesi
af hjónunum Sigrúnu Ó. Einarsdóttur
og Sören S. Larsen og á þessum átján
árum hefur það öðlast fastan sess á ís-
lénskum sjónmenntavettvangi.
Sigrún og Sören hafa sýnt verk sín
um alia Evrópu og einnig á Grænlandi,
i Bandaríkjunum og Japan. Helstu gler-
listasöfn í heimi hafa fest kaup á verk-
um þeirra og þeim hafa hlotnast ýmsar
viðurkenningar, bæði innanlands og
erlendis.
Nýlega lauk samsýningu Sigrúnar
og Sörens í Gerðarsafni, og í framhaldi
af henni hafa þau ákveðið að gefa
Hönnunarsafni Islands gott úrval eldri
glermuna sinna (1978-1989), bæði nytja-
hluti, skrautmuni í frjálsu formi og
sýnishom glermuna sem þau hafa unn-
ið fyrir ýmsa aðila. Meðal þeirra era
glerkrúsir eftir Sigrúnu frá 1979, en
þær eru með fyrstu heilstæðu glerblást-
ursverkum sem íslendingur hefur gert.
Er mikiil fengur að þessari höfðinglegu
gjöf fyrir Hönnunarsafnið, bæði í list-
rænu og sögulegu tilliti, þar sem hún
gerir safninu kleift að „skrá“ frumbýl-
isár og þróun þeirrar merku starfsemi
sem farið hefur fram i Bergvík á und-
anfömum árum.
Kvöldskólinn
Bí kvöld kl. 22.30 verður
endurflutt á rás 1 leikrit-
ið Kvöldskólinn eftir
Harold Pinter hinn sjö-
tuga. Þar segir frá Valtý
sem kemur úr fangelsi og
kemst að því að frænkur hans aldraðar
hafa leigt herbergið hans ungri stúlku
sem segist vera kennari. Valtýr er að
vonum fúil yfir því.
Bjarni Jónsson þýddi leikritið en
leikstjóri er Karl Ágúst Úlfsson.
Til varnar
skáldskapnum
í kvöld kl. 20 er dag-
skrá á Súfistanum,
Laugavegi 18, í tflefni
af útkomu bókarinnar
„Ritgerðir og pistlar"
eftir Sigfús Daðason.
Einar Már Guðmunds-
son minnist Sigfúsar. Berglind Gunn-
arsdóttir, Bima Bjamadóttir og Hall-
gi-ímur Helgason ræða stöðu ljóðlistar-
innar í ljósi hinnar óviðjafnanlegu rit-
gerðar Sigfúsar „Til varnar skáld-
skapnum" og Hjalti Rögnvaldsson les
úr verkum skáldsins. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimiil meðan hús-
rúm leyfir.
ART2000 Rafbassinn
í kvöld kl. 20 heldur ART2000 hátíð-
in áfram i Salnum. Þá koma fram
bassahetjumar Skúli Sverrisson og
Jack Vees ásamt gítarleikaranum
Hilmari Jenssyni.
Skúli hefur haslað sér völl sem einn
fremsti rafbassaleikari heims. Hann
hefur unnið með mörgum helstu
postulum framúrstefnutónlistar, t.d.
gítarleikaranum Alan Holdsworth, fjöl-
listakonunni Laurie Anderson, Lou
Reed og Brian Eno. Með honum kemur
fram rafgítarleikarinn Hilmar Jensson
sem hefur getið sér gott orð sem einn
fremsti djassgítarleikari íslendinga.
Kl. 19 verður opnuð innsetningin
Þrir pýramídar eftir Jóhann G. Jó-
hannsson. Framhaldstónleikar verða á
Café 22 í kvöld.
Á morgun hefst ART2000 með fyrir-
lestri Martins Knakkegaard kl. 17 í
Salnum og um kvöldið kl. 20 verða þar
leikin verk eftir Wouter Snoei, Vindva
Mei, Product 8 og Stilluppsteypu. Þá
verða framhaldstónleikar á Gauki á
Stöng kl. 22.