Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Blaðsíða 3
„... sannferðug og
stórskemmtileg... tær
og agaður still... frábær
persónusköpun ...
frábært skáldverk
Úr umsögn dómnefndar
Bókmenntaverðlauna
Tómasar Guðmundssonar
j”.. áleitin og erótísk
Spegilsónata
PÓREV FRIOBJÖRNSOÓrriR
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
árið 2000
Sagan af örlögum Jóns Grunnvíkings, Árna Magnússonar og
Mettu konu hans eftir eldinn í Kaupmannahöfn 1728. Árni
stendur á rústum lífs síns og Metta felur Jóni að fá Árna til
að snúa aftur til fyrra lífs.
AMOO er margslungin, söguleg skáldsaga þar sem skyggnst
er inn í horfna veröld fortíðar og lesendur sjá sögufrægar
persónur í nýju Ijósi.
Ástin sem
neitar að deyja
Þetta er fjórða skáldsaga höfundar og sú fyrsta fyrir fullorðna en
Þórey hlaut íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bókina Eplasneplar
árið 1995.
Áleitin og erótísk saga um ást í meinum, karl og konu sem leiðast
um lífið á laun. Með framúrskarandi frásagnarhætti og stíl fjallar
höfundur um miskunnarlausar en um leið ómótstæðilegar mótsagnir
í lífi aðalpersónanna og glímu þeirra við gömul örlög.
Þetta er sagan sem allir þekkja en enginn sér - sagan um það sem
býr á bak við spegilmyndina.
„Sagan er afburðagóð og
svo sannarlega lestursins
virði.“
Canadian Literature
„Hinn tæri skáldskapur
Nínu Bjarkar er alltaf
einlægur og hispurslaus.
Angistin er djúp og sár,
húmorinn nístandi og
sterkur. Sýn Ninu á
mannlega niðurlægingu
og reisn er jafn einstök
og hún var sjálf og því
talar hún til allra sem
reynt hafa annaðhvort
eða bæði. Og er þá
nokkur undanskilinn?“
Vigdís Grímsdóttir rithöfundur
Vinir vorir á Mars
Sjoppueigandi í Reykjavík vaknar á Mars. Marsbúar losa sig
við boðflennur en sjoppueigandinn gengur á hólm við óvininn.
Gaga er hugvitssamlega skrifuð saga um mann sem fer yfir
um. Hún hefur á sér yfirbragð vísindaskáldsögunnar en er í
raun frásögn af vítahring ofsóknaræðis, einmanaleika og
ranghugmynda íslensks Dons Kíkóta. Leiftrandi stíll og
frásagnargleði Ólafs Gunnarssonar gera söguna I senn fyndna
og sorglega, viðfelldna og ískyggilega.
Gaga kom fyrst út árið 1984 og í enskri þýðingu árið 1988.
Dulmagnaður Ijóðaheimur
Nína Björk Árnadóttir (1941-2000) var án efa
ein mikilvægasta röddin í skáldskap síðustu
áratuga. Einlæg og nærgöngul Ijóð hennar tjá
sterkar tilfinningar, áhrifamikla sýn á ástina,
óttann, söguna og samfélagið.
í bókinni er um helmingur þeirra Ijóða sem Nína
birti á sínum ferli auk Ijóða og kvenlýsinga úr
óprentuðu handriti. Jón Proppé valdi og ritaði
eftirmála.
JPV FORLAG