Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Síða 9
Kvikmyndaskóli íslands
Stundin er runnin upp!
Kvikmyndaskóli íslands hefur hafið samstarf viö Rafiönaöarskólann.
Gagnger breyting hefur verið gerð á námsframboði við skólann auk þess
sem 2 ára nám í kvikmyndagerð mun hefjast næsta haust. Skólinn hefur
stóraukið tækjakost sinn og flutt í nýtt og stærra húsnæði. Loksins er
orðinn grundvöllur fyrir að bjóða upp á alvöru nám í kvikmyndagerð á íslandi.
Grunnnám í kvikmyndagerð
Nám fyrir þá sem hyggja á frekara nám í kvikmyndagerö. Einnig fyrir þá sem vilja fá alhliða
grunnþekkingu á kvikmyndagerð áður en þeir leita sér að starfi í greininni. Námið hentar
vel sem undirbúningur fyrir 2 ára nám í kvikmyndagerð frá Kvikmyndaskóla íslands.
Kennsla hefst 22. janúar.
2 ára nám í kvikmyndagerð
Nám fyrir þá sem stefna markvisst að því að ná árangri sem kvikmyndagerðarmenn hér
heima eða erlendis. Námið er bæði fræðilegt og verklegt þar sem nemendur fara í alla
grunnþætti kvikmyndagerðar, en sérhæfa sig þegar líða tekur á. Skólinn tekur að sér að
koma nemendum á framfæri að námi loknu.
Kennsla hefst 1. september.
Grunnnám í sjónvarps- og kvikmyndaförðun
Farið er í alla grunnþætti förðunarfagsins. Kenndur er grunnurinn í kvikmynda- og
sjónvarpsförðun m.a. með þjálfun á tökustöðum. Nemendur eru undirbúnir fyrir frekara nám
í kvikmyndagervum.
Kennsla hefst 13. febrúar.
DÆMI UM NÁMSKEIÐ í BOÐI Á VORÖNN 2001
Leiklistarnámskeið
Snert á helstu atriðum leiklistar s.s.
raddbeitingu, framsögn, líkamstjáningu og
spuna.
Handritanámskeið
Fjallað er um ýmis grundvallaratriði í vinnslu
á kvikmyndahandritum. Uppbygging, hvörf,
endir, persónusköpun, aukasögur o.s.frv.
Kvikmyndataka
Námið fyrir þá sem vilja læra betur á
heimilisupptökuvélina. Fjallaö er um
mynduppbyggingu, myndmál ogýmis
grundvallaratriöi tengd kvikmyndatöku
Framleiðsia kvikmynda
Kvikmyndatónlist
Avid klippinámskeið
Fyrir þá sem vilja kynnast þeim möguleikum
sem þetta vinsælasta klippiforrit kvikmynda-
og sjónvarpsiðnaðarins býður upp á.
Fyrir byrjendur sem lengra komna.
Kvikmynda- og leiklistarvinnustofa
fyrir börn
Upplýsingar í síma 588 2720
Hringdu í okkur og fáðu sendan námsvísi eða farðu á slóðina www.raf.is/kvikmyndaskoli
KVIKMYNDRSKOLI
ÍSLRNDS
RAFIÐNAÐARSKÓLINN