Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Page 50
~*58
Tilvera
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
I>V
í Washington á fSET'!§N^*f
loks í vændum aö
risapöndur bætist
í hóp dýrategunda ByylT'
garðsins, því í
næsta mánuöi er
væntanlegt þang- |
að risapöndupar |
sem koma mun í |
sta® Pöndupariö aö
risapondupars lel^
sem Beijingborg
gaf Bandaríkjum Norður Ameríku fyr-
ir 30 árum.
Pandaparið, hin tveggja og hálfs árs
gamla Mei Xiang og Tian Tian, sem er
ári eldri, eru væntanleg til Was-
hington hinn 6. desember og koma í
sérsmíðuðum búrum.
Talið er að um 1000 risapöndur lifi
villt í skógum tii Qalla í miðhluta Kina,
en til viðbótar eru um 120 dýr í dýra-
görðum og hjá ræktendum í Kína og 20
dýr i dýragörðum utan Kína.
Tian Tian og Mei Xiang eru ungir
og orkumiklir bimir þó að þau séu
ekki borin og bamfædd úti í náttúr-
unni. Þau Mei Xiang og Tian Tian
munu því án efa draga gesti að dýra-
garðinum í Washington.
í upphafi flugsins klæddust flug-
freyjur einkennisbúningum sem svip-
aði til einkennisbúninga hermanna
og var það gert til að draga úr óöryggi
farþeganna. í gegnum árin hefur
þetta breyst og nú skiptir meira máli
að fatnaður flugþjóna og flugfreyja
falli vel að tískunni. Það má rekja til
ársins 1966 þegar hönnuðurinn Pucci
setti flugiðnaðinn á annan endann
með þvi að hanna skynörvandi bún-
inga fyrir Braniff-fyrirtækið. Þessa
dagana er stíllinn í háloftunum
margs konar; allt frá klassískum yfir
í hversdagslegan stíl.
Charles Quarles hefur skoðað sögu
flugsins og uppáhaldsbúningarnir
hans em þeir sem vora ráðandi á
þriðja, fjórða og fimmta árartugnum.
Fatnaðurinn var þá valdsmannsleg-
ur, samkvæmt tískunni og sniðinn
sem einkennisbúningur. Fatahönnuð-
urinn Helmut Lang hefur notaö hug-
myndir frá flugtískunni í sinni hönn-
un og hann er líka hrifinn af búning-
unum frá upphafsáranum. Hann tel-
ur að flugferð hafi verið mikilvægur
viðburður á þeim tíma og flugvélar
ekki cdgengt faratæki. Þess vegna hafi
flugið og einkennisbúningamir vakið
wmtj
Einkennisbúningar íslenskra flugfreyja hafa líka breyst í gegnum árln og á
þessari mynd má sjá hvernig flugfreyjur Loftleiöa klæddust árlö 1981.
mun meiri athygli á fimmta og sjötta
áratugnum. Keith Lovegrove hefur
skoðað þróun flugsins og skrifað um
það bók. Hann er ekki ánægður með
einkennisbúninga flugáhafna í dag.
Hann telur að flugiðnaður líkist því
sem gerist á jörðinni. Jörðinni sé
stjórnað af risafyrirtækjum og það
endurspeglist í háloftunum. Flestar
flugáhafnir klæðist einkennisbúning-
um sem líkjast jakkafótum og drögt-
um og það fmnst honum gera búning-
ana leiðinlega.
Alltaf skrefi framar
Nýir einkennisbúningar vekja alltaf
athygli en ekkl eru allir ánægölr
meö þeir eru farnir aö hafa
yfirbragö sem líkist drögtum og
jakkafötum.
A fyrstu áratugum flugsins var mikilvægt aö flugfreyjur klæddust einkennis-
búnlngum sem svipaöi tll þeirra einkennisbúninga sem hermenn klæddust
og var þaö gert til aö draga úr óöryggi farþeganna.
Of þröng sæti
geta valdið
hjartaáfalli
Eigum úrval
NOTAÐARA VINNUVÉLA, LYFTARA OG VÖRUBÍLA
VlNSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR OG
FÁIÐ SENDAN SÖLULISTA EÐA KOMIÐ í HEIMSÓKN OG
SKOÐIÐ ÞAÐ SEM í BOÐI ER
Læknar eru nú farnir að ráð-
leggja flugfarþegum að fá sér að
borða og drekka í flugvélum en þó
veröur fólk að varast að borða of
mikiö og ekki að drekka áfenga
drykki og kaffi. Japanskir vísinda-
menn hafa komist að því að í flug-
vélum eykst súrefnisflæðið til lík-
amans um 21% og um 48% til heil-
ans ef fólk fær sér eitthvað að borða
og drekka. Ástæðan er að þá eykst
blóðstreymi líkamans og aukið blóð-
streymi kemur í veg fyrir að
blóðtappa í fótum. Slíkir tappar geta
reynst hættulegir þegar fólk ferðast
og valdið heilablóðfalli eða hjartaá-
falli.
Ef fólk er of lengi í þröngum sæt-
um í flugvélum eða bílum geta
blóðtappar einnig myndast. Talið er
að rekja megi dauðsfall 28 ára
breskrar konu nýlega, í flugi frá
Sydney til London, til þessa. Sér-
staklega er fólki búin hætta þegar
flugtíminn er lengri en 15 klukku-
tímar. Læknar ráðleggja ferðmönn-
um að standa upp reglulega og liðka
sig til aö draga úr áhættunni.
VELAR&
ÞJéNUSTA
'ÞjÓNUSTA íWár
Þekktir fyrir þjónustu
Járnhálsi 2 ■ iio Reykjavík ■ Sími: 5-800-200 ■ Fax: 5-800-220 ■ www.velar.is
ÓsEYRI 1a ■ 603 AkUREYRI ■ SÍMI: 461-4040 ■ FaX: 461-4044
Hella, pakkhús ■ 850 Hella ■ SÍMI: 487-5887 ■ Fax: 487-5833
Markaðstorg
NOTAÐRA VINNUVÉLA OG LYFTARA
Risapöndupar
^til Washington
Dýragarðurinn
Tískan í háloftunum