Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Side 52
60
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
Tilvera
I>V
Frábært á Holtl í hádeglnu
r Frábært er |
að borða hádeg-
ismat í Lista-
safninu á Hótel |
Holti við Berg-
staðastræti 37.1
Þar má velja
milli fjögurra
forrétta og fjög-
urra aðalréta |
og snæða þrí-
réttað fyrir 1900 I
krónur fastar. I
Það er notalega lágt verð fyrir aö-
gang að sjálfri kjölfestunni í matar-
rgerðarlist landsins. Ef menn geta
komið því við, er hagkvæmast að
fara út að borða í hádeginu á Holti,
enda er þjónustan þá jafngóð og
endranær.
Styrkur Listasafnsins er hefð-
bundin og bragðmild „nouvelle"
matreiðsla. Upp á síðkastið hefur
eldhúsið samt byrjað að daðra viö
hina nýju og bragðsterku „fusion"
matreiðslu, væntanlega vegna sam-
keppni frá Sommelier við Hverfis-
götu. Þetta kom fram í forréttum,
parmaskinku í rjúpusúpunni og
hvítlauk á hörpuskelinni, en ristað-
ur túnfiskur og steiktur þorskur
fengu að halda hinni góðu hefð.
Nýr matseðill á Sommeller
Því miður er spútnikinn við
Hverflsgötu 46 ekki lengur opinn í
hádeginu, svo að Listasafnið hefur á
þeim tíma
dags enga sam-
keppni á
toppnum.
Sommelier
heldur aðeins
uppi merki
matargerðar-
musteris á
kvöldin, en nú
með nýjum
matseðli. Verö-
ið á þríréttuðu
er um það bil 4.900 krónur með
kaffi.
Þar eru spennandi forréttir á
borð við engiferlegna hámeri með
mangófroðu og laxaþynnur með
svörtum sesamgljáa, girnilegir aðal-
réttir á borð við hreindýrasteik með
súkkulaði-jarðarberjasósu og þorsk
í kartöflujakka. „Fusion" æsingur
nútímatízkunnar nær hámarki í eft-
irréttinum M&M&M, sem felur i sér
skyr, mysuost og marineruð hind-
ber.
Fryst rauðspretta á Laugaási
Þrátt fyrir hækkandi verð hefur
Laugaási við Laugarásveg 1 farið
svo hastarlega aftur, að nú er farið
að nota þar frystan flsk við mat-
reiðslu, jafnvel rauðsprettu, sem
verður sérkennilega óæt við slíka
♦S'
•meðferð. í endurminningunni lifir
sibreytilegur matseðill níunda ára-
tugarins með mörgum ferskum fisk-
réttum. En nú er hún Snorrabúð
stekkur og Laugaás úr sögunni sem
fiskréttastaður.
Þessa varð vart þegar fyrir ári, en
þá saknaði ég þess ekki svo mjög,
því að boðnir voru ýmiss konar
villibráðarseðlar á hagstæðu verði.
Nú hefur þessu framtaki farið aftur,
því að á þessari vertíð er bara boð-
in heiðagæs, fremur þurr og seig,
þótt hún hafi verið hæfilega rauð. Á
næsta borði pantaði maður snitsel
fög fékk með því franskar kartöflur í
stað hinna hvítu, sem áttu að fylgja.
Þetta sýnir allt mikið og vaxandi
kæruleysi í eldhúsi.
Eitt gott hefur gerzt á Laugaási.
Dúkarnir og hinar hvimleiðu gler-
plötur hafa verið teknar af borðum,
svo að nú sjást aftur upphaflegu
borðplöturnar með jurtabrenndu
múrsteinunum fallegu.
Jónas Kristjánsson
J < .úirb ítur
Kúrbítur (zucchini eða courgette) nýtur
vaxandi vinsælda í margs konar matargerð,
einkum þó ítalskri. Kúrbíturinn fæst orðið
í grænmetisborði langflestra stórverslana
og er oftast ágætlega ferskur og góður. Best
er að velja lítinn kúrbít vegna þess að hann
hefur verið tíndur ungur og þannig eru þeir
bestir.
Talið er að Kristófer Kólumbus hafi kom-
ið með ættfóður kúrbítsins heim til Ítalíu
frá Ameríku. ítalir munu svo hafa rækt-
að grænmetið og fengið út það afbrigði
sem við þekkjum nú.
Kúrbítur er stundmn borðaður hrár
en algengara er að matreiða hann, t.d.
steikja hann eða baka. Hægt er aö nota
hann einan sér í rétti en hann fer einnig
vel með ýmsu öðru grænmeti.
Kristín Anna Guðjónsdóttir, matreiðslunemi á Horninu:
Matarmikil og
góð kaka
Kristín Anna Guðjónsdóttir er
matreiðslunemi á Hominu. Hún er
búin að vera þar síðan 1997 en var
einnig átta mánuði á Hótel Sögu.
„Ég ætti eiginlega að vera 1 skólan-
um núna,“ segir Anna, „en það er
náttúrlega verkfall og þá er ég bara
að vinna.“
Anna kveðst vera mikið fyrir
kúrbít. Hún segist aðallega nota
hann sem meðlæti með ýmsum rétt-
um en einnig notar hún hann bæði
í pastarétti og súpur.
Anna ákvað þó að fara ekki hefð-
bundna leið í notkun kúrbítsins
heldur nota hann að þessu sinni i
köku sem að uppistöðu svipar til
gulrótarkökunnar sem flestir
þekkja
Kúrbítskaka
225 ml matarolía
450 g kúrbítur, smátt saxaður
350 g púðursykur
300 g hveiti
2 tsk. matar-
Glæsileg kaka
Kakan er falleg á boröi þegar búiö er aö skreyta hana meö rifnu kúrbítshýöi,
soönu í síróþi.
'jjJíbJJi'jJíil1
Fylltur kúrbítur
4 meðalstórir kúrbítar, 2
msk. matarolía, 1 lítill fín-
saxaður laukur, 2 léttþeytt egg,
1/2 bolli þurr brauðmylsna,
1/4 bolli riflnn parmesanostur,
2 msk. fínsöxuð steinselja, salt
og pipar eftir smekk.
Skerið kúrbítinn í tvennt á
lengdina og skafið innan úr
þannig að skelin verði tæpur
sentímetri á þykkt og geymið.
Forsjóðið kúrbítinn í saltvatni
í 2 mínútur og látið síðan
renna af honum. Rífið kjötið
innan úr kúrbítnum, t.d. í mat-
vinnsluvél.
Hitið ofninn í 180" C. Hæg-
steikið laukinn og rifna kúrbít-
inn, takið af hitanum og bætið
afganginum af innihaldinu út
i. Setjið kúrbítsmaukið í smurt
ofnfast mót og bakið í 15-20
mínútur, eða þar til allt er orð-
ið heitt í gegn.
Salat með
kúrbít
2 litlir kúrbítar í þunnum
sneiðum, 1 lítill lauk-
ur í þunnum
sneiðum,
1/2 bolli
sýrður
rjomi,
1/3
bolli edik,
3/4 tsk. salt,
tsk. pipar, 3
msk. sykur, 1/4 tsk. mustarðs-
korn.
Blandið saman kúrbit og
lauk og geymið í kæli. Hrærið
öðru innihaldi vel saman og
hellið sósunni út á græn-
metið og blandið létt áður
en það er borið fram.
sleppa)
Öllu hrært saman.
Bakað í tveimur
stórum hringlaga
formum við
160” C í 40-45
mínútur.
Krem
250 g
rjómaost-
ur
350 g
flór-
sykur
3 msk.
sítrónu-1
safi
Öllu
hrært sam-
an. Þunnt lag af
kreminu er sett á1
milli botnanna og
tertan hjúpuð með af-
gangnum.
Pastaréttir
með kúrbít
T Kanil- Gott er að nota kúrbít í
W/ / síróp margs konar pastarétti, bæði
einan sér og með öðru græn-
|ji / hlutar af meti. T.d. má steikja kúrbíts-
* Jr sykri og 4 sneiðar í góðri ólífuolíu þar til
hlutar af þær eru gullnar, bragðbæta
ww vatni, soðið með salti og nýmöluðum pipar,
saman og bæta út í rjóma eða rjómaosti
bragðbætt með og bera fram með pasta, t.d.
kanil. tagliatelle.
-ss
Skraut
Hýði af kúrbít,
smátt skorið og soðið í
sykursírópi (sykur og
vatn til helminga).
Næringartafla
Kúrbitur er hitaeiningasnauður og inniheldur nánast enga fitu og
er því tilvalinn fyrir þá sem eru að reyna að draga úr fituneyslu. Kúr-
bíturinn er ríkur af C-vítamíni, fólasíni og magnesíum.
í 100 g af kúrbít er aö finna u.þ.b.
Kaloríur18 Prótín1,2g
Fita 0,1 g Kolvetni 2,9 g