Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2000, Page 53
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000
61
Tilvera
Úrvalssteik
í frystinum
Þaö er Sigurður Kr. Ámason,
framkvæmdastjóri Pizzahallarinn-
ar, sem er matgæðingur vikunnar
að þessu sinni. Það er mikið að gera
hjá þessum unga manni því auk
þess að vera framkvæmdastjóri
Pizzahallarinnar var hann að opna
vefsíðuna pennavinir.is ásamt Vef-
sýn hf.
Þótt ótrúlegt sé þá hefur hann
tíma fyrir smáeinkalíf og sagðist
glaður geta sagt lesendum DV frá
hrikalegri reynslu í matargerð.
„Eitt sinn bauð ég vinafólki í mat.
Ég hafði nýlega borðað hjá því og
fékk þar afskaplega vel heppnaðan
mat og nú var komið að mér að
sýna snilli mína , ,
í matargerð. BuMíMÍSú
Ég er ekkert
að grínast með það að ég tók þetta
virkilega hátíðlega og hafði mikiö
fyrir þessu matarboði.
Ég ætlaði aö hafa londonlamb og
var stálheppinn þegar mamma
sagði mér að hún ætti eina slíka úr-
valssteik í frystinum.
Glaður í bragði hélt ég til
mömmu og náði í „stykkið" og hélt
þaðan í stórmarkaðinn þar sem
meðlæti af bestu gerð skyldi keypt.
Þegar heim kom var ég virkilega
spenntur og sauð londonlambið í
hálftima eins og móðir mín hafði
sagt mér að gera. Ég hrærði saman
sinnepi og púðursykri og bar á dá-
samlegu steikina, bjó til sósu úr soð-
inu og ætlaði nú aldeilis að skáka
mömmu.
Uppskrrftir
Humar í
kampavíni með
melónum
Fyrir 6
1 kg skelflettur humar
1/2 meðalstór laukur
2 msk. smjör
2 msk. olía
1/2 melóna, gul
1/2 paprika, rauð, skorin í teninga
salt og pipar
Kampavínssósa
2 dl freyðivín (þurrt)
2 1/2 dl rjómi
fiskikraftur
kjötkraftur
maisenamjöl til þykkingar
Meðlæti
6-8 franskbrauðssneiðar, ristaðar
islenskt smjör
Byrjið á að
laga kampa-
vinssósuna.
Afhýðið síðan
og kjam-
hreinsið
melónuna og
skerið í bita eða kúlur með þar til
gerðu jámi. Steikið humarinn upp úr
smjörinu og í olíunni á stórri pönnu
ásamt fmt söxuðum lauknum. Kryddið
með salti og pipar. Hellið nú tilbúinni
sósunni yfir og látið sjóða i 1 mínútu.
Setjið melónubitana út í rétt áður en
borið er fram.
Kampavínssósa Setjið freyðivínið í
pott ásamt tjómanum og sjóðið upp.
Bætið fiskikrafti, kjötkrafti og þykkið
með maisenamjöli úthrærðu í dálitlu
köldu vatni. Bragðbætið með salti og
pipar.
Hollráð
Með því að steikja upp úr bæði
smjöri og olíu er hægt að steikja við
hærri hita en ella, því smjörið brúnast
síður. Þar sem hér er verið að mat-
Nýkaup
Þar sem ferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
Að vonum voru gestimir alveg
dolfallnir yfir fyrirhöfninni þar sem
kertaljós og brúnaðar kartöflur
voru allsráðandi. Ekki vantaði
rjómann í sósuna og ég verð að
segja að ég varð bara svolítið meyr
með sjálfum mér þegar ég leit yfir
veisluborðið.
Sæll og glaður bar ég steikina á
borðið og stemningin var þannig að
vinur minn heimtaði meira að segja
að skera matinn þar sem ég væri
búinn að skila mínu með glæsibrag.
Gleðin skein úr allra augum þar
til reiðarslagið dundi yfir. Það var
eins og dregið hefði verið fyrir sólu
þegar fyrsti bitinn var tekinn.
Þetta var þvílíkur viðbjóður að ég
ætlaði ekki að trúa
þessu. „Oj, þetta er
lifrarpylsa,“ sagði
borðdama vinar míns. Ég hringdi
auðvitað beinustu leið í mömmu
mína og, viti menn, þegar hún at-
hugaði málið þá vantaði annan lifr-
arpyslukeppinn hennar í frystinn
og londonlambiö var á sínum stað.
Ég held að mamma sé enn í síman-
um að hlæja að mér.
En svona getur farið.
Elnfaldur kjúklingaréttur
Einn stór kjúklingur
3 dl tómatsósa
2 pelar kaffirjómi
2 tsk. svartur pipar
3 tsk. sterkt karrí
Þú byrjar á því að hluta niður
reiða umtalsvert af humri gæti þurft
að steikja í tvennu lagi.
Lambalundir
með appel-
sínusósu
Aðalréttur fyrir 6
1200 g lambalundir
salt og pipar
olía til steikingar
Appelsínusósa
1 peli rjómi
börkur og safi úr einni appelsinu
1 msk. þurrkuð græn piparkom
1/2 dl appelsínuþykkni
11/2 dl dökkt kjötsoð (eða vatn og
teningur)
2 msk. Grand Mamier líkjör (má
sleppa)
nokkrir dropar sósulitur
kjötkraftur
1 tsk. hunang
saltogpipar
sósujafnari eða maisenamjöl til þykk-
ingar.
Meðlæti
150 g snjóbaunir
18 stk. kartöflur, soðnar
200 g spergilkál í litlum sprotum
2 stk. appelsínur
Lagið sósuna og haldið heitri meðan
kjötið er steikt. Hitið olíu á pönnu og
snöggsteikið lundimar, kryddið með
salti og pipar. Athugið að þegar eldað
er svona mikið magn af kjöti þarf að
steikja það í tvennu lagi á pönnunni.
Setjið steikt kjötið á grind í 180" C
heitan ofri í 2 mínútur. Setjið eina
ausu af sósunni á hvem disk og raðið
lundunum fallega þai' ofan á. Berið
fram með baununum, steiktum kartöfl-
um og appelsínulaufum. Diskamir
þurfa að vera heitir.
Appelsínusósan
Rífið börkinn af appelsínunni með
finu rifjámi og setjið í sjóðandi vatn í
nokkrar sekúndur til að ná mestu
remmunni úr. Setjið börkinn í pott
ásamt öðrum hráefnum í sósuna og lát-
ið sjóða við vægan hita í 10 mínútur.
„Ég er ekkert að grínast með það að ég tók þetta virkilega hátíðlega og hafði mikið fyrir þessu matarboði," sagði
Sigurður Kr. Arnason, framkvæmdastjóri Pizzahallarinnar og einn af stofnendum pennavinir.is.
kjúklinginn, krydda hann með salti
og pipar og brúna hann á pönnu.
Þegar þú hefur brúnað kjúkling-
inn setur þú hann i eldfast mót,
hrærir því næst tómatsósunni,
rjómanum og kryddinu saman og
hellir því svo yfir kjúklinginn. Þetta
er svo haft í 180" heitum ofhi í 40-50
mín. Gott meðlæti eru hrísgrjón,
salat og brauð.
Þykkið með
sósujafiiara
eða maisena-
mjöli. Bragð-
bætið með
salti og pip-
ar.
Meðlæti
Afhýðið kartöflumar og steikið I
oliu á pönnu, þannig að þær brúnist
allan hringinn. Setjið á ofnskúffú og
bakið í 30 mínútur við 200" C eða 180"
C á blæstri. Kryddið með salti og pip-
ar. Snöggsjóðið baunimar og
spergilkálið í léttsöltuöu vatni í 2 mín-
útur. Afhýðið tvær appelsínur, skerið
laufm innan úr og notið sem skreyt-
ingu.
Hollráö
Heitan mat skal bera fram á heitum
diskum og kaldan á köldum diskum.
Sósur og litlir kjötbitar kólna ótrúlega
hratt á köldum diskum.
C/ofifeusti/w/ ( /{ 'myikj/ium í c/cuj
ib*oal gf
'íjlce&ilecjitjm &ófuse£tiurv t.cL
■ ífoc/e/ /S/4 í /i(/i((x/et}/4, (i+/+/.
‘Pe/*<í 4%9. OOO sty/s
o Psey/iAe// f/owfstgfuAú&íjög/i
GBoctiúja/.
<Æodel Coofhs/ct/u'e
■ IQfinnn Bæjarhrauni 12 Hf. • Sími 565 1234
U O M U U I I Dpið virka laugardaga 10-16