Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2001, Blaðsíða 20
24 Tilvera FIMMTUDAGUR 29. MARS 2001 Almenningi er boðiö til veislu á skemmtistaðnum Dátanum kl. 20 á laugardagskvöld þar sem verða léttar veitingar og til sýnis stórglæsilegt Ijósmyndasafn úr Snocross-keppnum vetrarins. Einnig verður videosýning og margt annað til skemmtunar. Kvöldinu lýkur með mögnuðu Snocross-balli þar sem stórhljómsveitin Greifarnir sér um fjörið fram á rauða nótt. Snocross frá morgni til nætur á mögnuðum laugardegi á Akureyri! Æfingar að morgni keppnisdags kl. 10 Kynning keppenda kl. 13 -14 Keppnin hefst kl. Í4 Aðgangseyrir kr. 500.- Upplýsingargefa Marinó 894 2967 og Gunnar 898 2099 I>V Aö leikstýra í fyrsta sinn Jón Gunnar Þórðarson er bæði leikstjóri og framkvæmdastjóri Ofleiks, auk þess sem hann er höfundur leikritsins Einmana í samvinnu við leikhópinn. Leikfélagið Ofleikur sýnir leikritið Einmana í Hagaskóla: Unglingar leika hugsanir Vestur í Hagaskóla er búið að breyta hálfum hátíðarsalnum 1 leik- hús. Svartir plastpokar hafa verið klipptir niður og notaðir til að klæða salinn frá lofti niður á gólf. Á sviðinu hefur verið komið fyrir áhorfendabekkjum á pöllum þannig að vel sést á leiksviðið sem er niðri á gólfi. Leikmyndin er einföld en sniðug, m.a. nokkurs konar brunn- ur á miðju gólfi sem leikararnir koma upp úr og hverfa niður í aftur og laus stillans. Leikhúsgestir eru á öllum aldri en leikararnir eru allir 14 og 15 ára, nemendur í 9. og 10. bekk. „Þetta byrjaði sem leiklistarnámskeið," segir leikstjórinn Jón Gunnar Þórð- arson. „Það hefur aldrei verið neitt leiklistarlíf að ráði hér í Hagaskóla og ég kom og bauð mig fram til að kenna.“ Um 50 krakkar byrjuðu á námskeiðinu hjá Jóni Gunnari og helmingur þeirra tekur þátt i sýn- ingunni nú. „Þetta er búið að ganga mjög vel og hefur verið skemmti- legt.“ Jón Gunnar skrifaði sjálfur grunninn að leikritinu en krakk- amir hafa sjálfir spunnið inn í grindina og mótað sína karaktera. Kostnaði við sýninguna hefur verið haldið í algeru lágmarki. Jón Gunn- ar leikstýrir og stýrir tónlistinni og segist ekki vera á háum launum. Hér er því engin fjárglæframennska á ferðinni. „Það hefur verið mjög skemmtilegt að vinna með krökkun- um og leikstýra. Ég hef aldrei áður uv-iviir Leikgleöin er viö völd Um 25 nemendur í 9. og 10. bekk í Hagaskóla skipa leikfélagiö Ofleik sem sýnir leikritið Einmana. leikstýrt og það er gaman að prófa það,“ segir þessi ungi athafnamaður sem er á leið í inntökupróf í leiklist- ardeild Listaháskóla íslands. Leikgleðin er mikil hjá leikend- unum og umfjöllunarefnið er alvar- legt þótt úrvinnslan sé á léttinn nót- um. Sögusviðið er í höfði unglings- stúlku sem er einmana og er að íhuga sjálfsmorð. Hugsanir hennar eru margar og margbreytilegar og eru skemmtilega túlkaðar af þess- um unga leikhópi. Uppselt hefur verið á allar sýn- ingar og er næstu sýningar i kvöld og laugardagkvöld kl. 20 bæði kvöld- in. -ss Styrktartónleikar í Kaffi Reykjavík: Tónlistin jafn fjölbreytt og flytjendurnir í kvöld verða haldnir tónleikar á veit- ingastaðnum Kafii Reykjavík. Tónleikar þessir eru haldnir til styrktar krabba- meinssjúkúm bömum og að sögn Geirs Ólafssonar, sem átti hugmyndina að tónleikunum, þá rennur hver króna sem inn kemur til málefiiisins. Geir Ólafsson mun mæta með hljómsveit sína Furstana og hún sveiflar sér létt í klassísk dægurlög. Geir sagði að að öðm leyti yrði tónlist- in jafn fjölbreytt og flytjendumir sem koma úr ýmsum geirum popp-, djass- og blústónlistar. Þau sem koma fram í kvöld, auk Geirs og Furstanna, eru Andrea Gylfadóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson, Anna Sigríður Helgadótt- ir og Daníel Ágúst sem kemur fram með Jóni Ólafssyni hljómborðsleikara og Harald Burr. Tónleikamir hefjast kl. 22. / efri röð eru Daníel Ágúst, Geir Ólafsson og Páll Óskar. Andrea Gylfadóttir og Anna Sigríður Helgadóttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.