Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2001, Blaðsíða 58
V 66
FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2001
Tilvera DV
’t
Hurley klæöi
fjaðraskrauti
Fyrirsætan og leikkonan Liz
Hurley hefur svo sannarlega slett úr
klaufunum frá því hún losaði sig
við krúttfésið hann Hugh Grant á
síðasta ári. Æ ofan í æ hefur Liz
komið umheiminum á óvart með
þvi að setja sig í sexí stellingar og
láta taka af sér myndir. Síðast gerð-
ist það í lastabælinu Las Vegas þar
sem Liz okkar klæddist íjaðra-
skrauti utan yfir hárfínar sundbux-
ur úr perlum. Á höfðinu var hún
með platínuljósa hárkollu, síða.
„Liz var æðisleg í sokkunum og
háu hælunum," sagði sjónarvottur.
Enginn trúir
Drew og Tom
Þegar menn eru þekktir fyrir að
gera grín að öllu er stundum erfitt
að trúa þeim. Þetta hefur Tom
Green sannreynt. Hann fullyröir að
þau Drew Barrymore hafl látið gifta
sig en margir draga það í efa. Sam-
kvæmt frásögn Toms voru þau gefin
saman i leyni í Los Angeles fyrir
nokkrum vikum. Þegar frásögnin
var borin undir talsmann Drew
Barrymore, Eddie Michaels, kom
hann af fjöllum. En eftir að hafa
spurt Drew sagði hann: „Þetta er
satt. Þau eru gift. Ég get ekki greint
nánar frá því en ég get sagt að það
sé satt og að þau hafi gengið í hjóna-
band erlendis." Hvort sem þau Tom
og Drew hafi látið pússa sig saman
eða ekki leikur enginn vafi á því að
þau eru par og búa saman í húsi
hennar í Hollywood.
Britney ræður
ekki við kossa
Táningapoppstjarnan Britney
Spears getur ýmislegt. Eitt getur
hún þó ekki, að kyssa karlmann
frammi fyrir heilu upptökugengi
kvikmyndar.
Nýlega átti Britney að leika í
fyrstu ástarsenu sinni fyrir kvik-
myndina What Are Friends for.
Skyldi hún kyssa einhvem svalan
gæjann. En heldur brösulega gekk
að kveikja ástareldana á ræmunni,
þvi Britney fékk víst krampakast í
hvert skipti sem hún átti að kyssa
mótleikarann. Svo nervös var hún
víst, veslingurinn.
Geir Ólafsson stendur fyrir skemmtuninni Nights on Broadway:
Broadwaystemning
á Broadway
„Þetta er sú tónlist sem
ég og hljómsveitin Furst-
arnir höfum verið að spila
undanfarin ár, Broadway-
lög og þekktir standardar.
Á laugardagskvöld verður
þetta svo með mun stærra
sniði. Ég fékk Þóri Bald-
ursson til að útsetja fyrir
mig lög fyrir stórsveit,
enda þessi lög yfirleitt
samin með slika hljóm-
sveit í huga. Og svo er
ekki verra að á sviðinu á
Broadway fæ ég gott tæki-
færi til að steppa og dansa
með lögunum en ég hef í
auknum mæli verið að
bæta dansi við dagskrá
mína,“ segir Geir Ólafsson
söngvari sem stendur í
stórræðum þessa dagana.
Á laugardagskvöld er
hann með skemmtun á
Broadway sem nefnist
Night on Broadway. Það
er Árni Scheving, sem er í
Furstunum, sem stjórnar
hljómsveitinni sem skipuð
er einvalaliði hljóðfæra-
leikara. Og ekki er Geir
eini söngvarinn. Með hon-
um koma fram Anna Sig-
ríður Helgadóttir, Eyjólfur
Kristjánsson, Jón Kr.
Ólafsson og Harold Burr.
Geir segir að það sé
mikill undirbúningur að
baki slíkri skemmtun:
„Það er í mörg horn að líta
Geir Olafsson
Syngur þekkt söngteikjalög meö undirteik stórsveitar.
en þetta er ákaflega spenn-
andi og þroskandi fyrir
mig. í framhaldi fer ég svo
með þessar útsetningar og
fleiri í hljóðver og tek upp
plötu sem ég ætla að gefa
út fyrir jólin. Það kemur
svo í ljós hvernig viðtök-
urnar verða hvort við end-
urtökum skemmtunina.
Þetta er dýrt og það þarf
fjölda áhorfenda til að
þetta borgi sig.“
Geir segir margt fram
undan hjá honum og Furst-
unum: „Fyrir utan plötuna
sem ég fer að vinna við þá
verðum við á fleygiferð um
landið í sumar, erum þétt-
bókaðir og spilum í öUum
landshornum. Við höfum
ekki farið í landsreisu
áður en það hefur aUtaf
staðið til og nú látum við
verða af þvi.“
Geir er spurður að lok-
um hvort hann hafi aUtaf
jafngaman af að syngja
þessi gömlu lög: „Ég kem
úr tónlistarfjölskyldu og
þetta eru lögin sem ég er
alinn upp við og það er
aUtaf jafnspennandi að
syngja þau. Óperusöngur
hefur einnig aUtaf kitlað
mig, ég er í söngnámi hjá
tveimur kennurum, Sverri
Guðjónssyni og Einari
Sturlusyni, og steftii á nám
erlendis." -HK
Hlín Pétursdóttir með páskatónleika:
Ave Maríur eft-
ir ýmsa höfunda
„Ég er óskaplega glöð að vera
komin heim þótt það sé aðeins í tíu
daga,“ segir Hlín Pétursdóttir
sópransöngkona sem er í óða önn að
undirbúa einsöngstónleika við und-
irleik skólabróður sins, Kára Þorm-
ar orgeUeikara. Tónleikamir verða
í Fríkirkjunni annan í páskum, kl.
17, og Hlín lýsir efnisskránni svo:
„Við ætlum að flytja islensk Máríu-
lög og Ave Maríur eftir ýmsa höf-
unda, þó ekki þær þekktustu heldur
eftir César Franck, Verdi og fleiri.
Síðan verðum við með nokkra Pass-
íusálma. Tveir þeirra eru við lög eft-
ir Hildigunni Rúnarsdóttur og tveir
eftir bandariskan söngvara og tón-
skáld, Gary Backlund. Hann bað
mig að láta sig hafa kveðskap frá ís-
landi sem mér væri kær. Ég rétti
honum fjögur vers úr Passíusálm-
unum og hann samdi fyrir mig mjög
fallegt tónverk. Það hefur aldrei
verið flutt hér áður.
Hlín hefur búið í Þýskalandi í
átta ár, síðustu þrjú í árin í
Múnchen, þar sem hún syngur við
Gartnerplatztheater. Hún kveðst
alltaf hafa smáheimþrá, sérstaklega
kringum stórhátiðir. Þó er hún ekki
tilbúin að flytja heim. „Það er mjög
gaman úti og mikil áskorun að
takast á við spennandi verkefni á
hverjum degi,“ segir hún. Síðast var
Hlín hér á landi í febrúar í vetur og
söng eitt aðalhlutverkið í
LaBohéme á fyrstu sýningunum en
hvarf svo aftur út. Hvað skyldi hún
hafa haft fyrir stafni? „Við vorum
að frumsýna La Cenerentola eftir
Rossini. Það er sagan um Ösku-
busku og ég leik aðra vondu systur-
ina. Sýningin gerði lukku - góðir
dómar og gaman. Síðan söng ég tvo
galatónleika í óperunni í Frankfurt.
Þetta var óperettugala sem má likja
við Vinartónleika. Mikil stemning
var þar, enda óperettuformið á upp-
leið.“ Hlín kveðst hlakka til
páskatónleikanna og í sumar vonast
hún til að staldra lengur við á land-
inu sínu. „Mig langar svo að syngja
austur á fjöröum," segir hún dreym-
in. -Gun.
Múlinn í Húsi Málarans:
Bossanova á tvo gítara
Gítarleikararnir Ómar Einarsson
og Jakob Hagedom-Olsen eru gestir í
djassklúbbnum Múlanum í Húsi Mál-
arans í kvöld. Munu þeir leika bossa-
nova jazz á tvo klassíska gítara. Það
er ekki oft sem gítarsamspil af þessu
tagi heyrist hér á landi. Þeir Ómar og
Jakob hittust fyrir skemmstu í hljóð-
færaverslun þar sem þeir ákváðu að
taka lagið saman. Þetta tókst svo vel
hjá þeim að þeir ákváðu að vinna
saman að nokkrum lögum.
í djassinum eru rafgítarar oftast
notaðir en með klassískum gitar
myndast skemmtilegur hljóðheimur
og ákveðin stemning sem þeir félagar
ætla að deila með gestum á Múlanum
í kvöld. Efnisskrá þeirra félaga sam-
anstendur af lögum eftir A.C. Jobin,
Villa Lobos og fleiri. Auk þess leika
þeir nokkur frumsamin verk. Tón-
leikarnir heftast kl. 21.
_ UILdl UUtfLL
Jakob Hagedorn-Olsen og Ómar Einarson leika í Múlanum í kvöld.
DV-MYND PJETUR
Hlín Pétursdóttir sópransöngkona
Ætiar aö frumftytja tónverk viö fjögur Passíusálmavers.