Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2001, Page 30
30 Helgarblað LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2001 I>V Ungi læknaritarinn sagði frá skelfilegri reynslu: Viðbjóðslegi læknirinn var ástfanginn Læknirinn á sakamannabekk Peter Farber var ákærbur fyrir ítrekaöar nauöganir. Rödd ungu konunnar titraði þegar hún greindi frá því sem hún hafði gengið i gegnum. Allir í rétt- arsalnum fundu til með henni og fyrirlitu manninn sem hafði breytt lífi hennar í helvíti. Nú sat hann sem betur fer á sakamanna- bekknum í dómhúsi í Núrnberg í Þýskalandi, ákærður fyrir ítrek- aðar nauðganir. Patricia Kristen, sem var 20 ára, var klædd í stutt pils og snotra hvíta blússu. Hárið hafði hún sett í tagl. Þegar saksóknarinn krafðist sjö ára fangelsisdóms yfir manninum sem beitt hafði hana ofbeldi fór kliður um þéttsetinn réttarsalinn. Margir hefðu viljað að refsingin yrði enn harðari. Patrica sagði frá því með lágum rómi hvernig allt byrjaði. „Ég starfaði sem ritari fyrir lækni í Neumarkt. Dag nokkurn var ég beðin um að koma með nokkrar sjúkraskýrslur inn á stofu Farbers læknis. En læknir- inn var hættur að taka á móti sjúklingum þann daginn og að- stoðarkona hans var farin heim. Ég var varla komin inn úr dyrun- um fyrr en læknirinn faðmaði mig. Ég hélt fyrst að hann væri að grínast en þegar ég ætlaði að ýta honum frá mér varð hann ofbeld- isfullur og reif af mér blússuna." Hótaði lífláti Tárin runnu niður kinnar Pat- riciu þegar hún sagði frá því hvernig hinn virti læknir hafði nauðgað henni. „Þegar hann sleppti mér loks hótaði hann að drepa mig segði ég einhverjum frá því sem gerst hafði. En hver hefði svo sem trúað mér?“ Það ríkti dauðaþögn i réttar- salnum þegar Patricia hélt áfram frásögn sinni. „Nokkrum dögum seinna hringdi Farber læknir í mig. Hann kvaðst ekki skilja hvað hefði komið yfir hann og bað um fyrirgefningu. Ég fór inn á stofuna hans um miðjan dag í þeirri von að aðstoðarkona hans væri þar enn. En læknirinn var einn og ég var varla komin inn fyrr en hann fleygði sér á mig og þvingaði mig niður á gólfiö," greindi Patricia frá. Hlé var gert á réttarhöldunum til að unga konan gæti jafnað sig svolítið. Öllum var ljóst að hún þjáðist enn vegna skelfilegrar upp- lifunar sinnar. Patricia var fól en yfírveguð þegar hún gekk aftur inn í réttar- salinn. Hún leit í áttina til hins ákærða og þau horfðust andartak í augu áður en læknirinn leit nið- ur. „Ég var sannfærð um að hann myndi drepa mig segði ég frá þessu. Hann ítrekaði auk þess að enginn myndi leggja trúnað á orð mín kærði ég hann, þekktan og virtan lækninn, fyrir nauðgun. Þegar Farber hafði aftur samband fór ég til hans þótt ég vissi hvað biði mín. Ég óttaðist að ég væri að missa vitið. Læknirinn gaf mér einnig töflur sem höfðu þau áhrif að ég missti alla stjórn á mér. Að lokum hafði ég ekki hugmynd um hvað var rétt og hvað var rangt. Ég var sjálf farin að biðja um pill- urnar í lokin.“ Samviskulaus kynferöis- glæpamaöur Öllum í réttarsalnum var nú ljóst að Peter Farber læknir væri samviskulaus kynferðisglæpa- maður sem að auki hefði gert unga konu háða flkniefnum. Þegar verjandi læknisins, Alex- ander Seifert, reis á fætur til að Þéttsetinn réttarsalur Þaö för kliöur um réttarsaiinn i Núrnberg þegar áheyrendur heyrðu kröfu ákærandans um refsingu. rcuiiuid rxiisLdi Læknaritarinn vildi lifa lúxuslífi og taldi aö auöveldasta leiöin til þess væri aö giftast ríkum manni. yfírheyra Patriciu, hafði hún þeg- ar áunnið sér samúð allra í réttar- salnum. Hafði hún ekki þegar lið- ið nóg vegna þessa hræðilega máls? Verjandi tók fram pappírsörk og spurði Patriciu hvort rithönd hennar væri á örkinni. Hún 'stað- festi það með því að kinka örlítið kolli. Dómarinn varð að biðja hana um að svara hátt og greini- lega. „Já,“ svaraði Patricia niðurlút. Seifert gekk aftur að sæti sínu og náði í þykkan stafla af ljósrauð- um umslögum úr tösku sinni. „Þú hefur þá skrifað öll þessi bréf?“ spurði hann samtímis því sem hann horfði með hvössu augna- „Tárin runnu niður kinnar Patriciu þegar hún sagði frá því hvernig hinn virti læknir hafði nauðgað henni. „Þegar hann sleppti mér loks hótaði hann að drepa mig segði ég einhverjum frá því sem gerst hafði. En hver hefði svo sem trúað mér?“ ráði á Patriciu. Hann tók bréf úr búntinu og las upphátt: „Elsku kanínan mín! Til hamingju með afmælið. Ég vona að allir draumar þínir rætist. Litli unginn þinn.“ Það leit út fyrir aö Patricia væri að falla í yfirlið en verjandinn hélt ótrauður áfram lestrinum. „Elsku kanínan mín! Ég sit hér við glugg- ann og þrái þig óskaplega. Litli kaninuunginn þinn.“ „Patricia Kristen er ekki sak- laust fórnarlamb," lagði verjand- inn áherslu á. „Þau voru í föstu sambandi og þetta mál var höfðað eingöngu vegna þess að Farber læknir vildi losna úr því. Þetta er hefnd Pat- riciu. Ég get lagt fram 300 ástar- bréf sem hún skrifaði lækninum." Auöveld bráð Það kitlaði hégómagirnd Peters Farbers að Patricia, sem var yfir 30 árum yngri en hann, skyldi sýna honum áhuga. Farber- var kvæntur og bjó i Neumarkt en hjónabandið var orðið stirt. Vegna hégómagirndar sinnar sá læknirinn ekki að Patricia hafði engan áhuga á persónu hans held- ur einungis peningum hans. Patricia hafði alist upp á bónda- býli í litlu þorpi en hún sá enga framtíð fyrir sér þar. Hún vildi græða fé og ályktaði að auð- veldasta leiðin til þess væri að giftast ríkum manni. Farber lækn- ir reyndist auðveld bráð. „Já, ég elskaði hana,“ útskýrði læknirinn í réttarsalnum. „Ég gaf henni skartgripi og dýran fatnað. Og ég keypti íbúð handa henni. En þegar hún krafðist þess að ég skildi við konuna mína var mér ljóst að leiðir okkar Patriciu yrðu að skilja." Ákæran á hendur lækninum var dregin til baka en hann þurfti samt að greiða ævintýri sitt dýru verði. Virtur læknir sleppur ekki við refsingu fyrir að hafa fallið fyrir konu sem hefði getað verið dóttir hans. „Mannorð mitt er eyðilagt og allir sjúklingamir mínir hafa yfir- gefið mig. Það hefur reyndar kon- an mín einnig gert,“ sagði Peter Farber. Patricia Kristen flutti frá Neu- markt strax eftir réttarhöldin og píniegan ósigurinn. Hún rétt slapp við að vera sjálf sett á bak við lás og slá vegna falskra ásakana. Morðinginn hélt að hann slyppi Foreldrar Louise Sellars i ilkynntu rnn hvarf hennar þegar hún kom ekki hein á sunnudagskvöldi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.