Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2001, Page 25
29
FIMMTUDAGUR 19. JÚLÍ 2001
DV Tilvera
Búinn að ná sér
Gamli kókaínhausinn náði að forö-
ast gamla vanann í erfiðleikunum.
Skilnaðurinn
líkur dauða
Dennis Quaid tjáði sig um skiln-
að hans og leikkonunnar Meg
Ryan i fyrsta skipti við tímaritið
W. Þar segir hann að skilnaður sé
nánast það sama og dauði. „Þegar
maður skilur þá þurrkast sjálf
manns nánast út. Þess vegna er
það líkt dauða,“ segir Quaid.
Hann telur einnig að skilnaður sé
næsterfiðasta lífreynsla fólks á
eftir bamamissi.
Hann lýsir því einnig hvað
hann hafi gengið í gegnum eftir
skilnaðinn. Hvernig hann hafi
gengið í gegnum tímabil sjokks,
þunglyndis og reiði. Quaid tókst
samt sem áður að komast hjá því
að detta í gamla farið og drekka og
sjúga kók í nefið eins og hann
gerði áður en hann hitti Meg.
Quaid er harðákveðinn í því að
láta öll sambönd vera í náinni
framtíð. Að sögn hans er samband
þeirra Meg mjög gott og þau tala
saman á næstiun hverjum degi.
Lýðurinn
vill Liz og
Robbie
Samkvæmt skoðanakönnunm í
Bretlandi vill almenningur þar í
landi helst daðra við leikkonuna
Liz Hurley og söngvarann Robbie
Williams. Hinar þvengmjóu Geri
Halliwell og Kate Moss urðu að
lúta í gras fyrir reynsluboltanum
Liz. Jaggerpían Sophie Dahl varð
einnig að láta sig sigraða.
Af þeim sem náðu ekki vinsæld-
um Robbie má nefna hinn
ævaforna Sean Connery og kant-
manninn lipra, David Beckham.
Auk þess hlaut fyrrverandi henn-
ar Liz, sjálfur Hugh Grant, mörg
atkvæði. Stúlkumar vita að þær
fara ekki tómhentar frá Hugh.
Hentumyndir:
Raunverulegir atburðir
settir í óvenjulegt samhengi
- ný tegund kvikmynda á íslandi.
í kvöld verða frumsýndar í Há-
skólabíói þrjár nýjar íslenskar
myndir sem nefnast Lúðrasveit og
brú eftir Böðvar Bjarka Pétursson,
Kyrr eftir Árna Sveinsson og Friður
eftir Pétur Má Gunnarsson. Fram-
leiðandi myndanna er Böðvar
Bjarki Pétursson. Kyrr og friður eru
tólf mínútur hvor en Lúðrasveit og
brú er í fullri lengd.
Að sögn Böðvars Bjarka er hér
um að ræða sama konsept og á
ensku kallast „ready made“ og við
köllum Hentumyndir. í þeim eru
raunverulegir atburðir settir í
óvenjulegt samhengi til að veita
nýja sýn á lífið og tilveruna.
Lífið á Hlemm
Kyrr fjallar um mannlífið kring-
um strætóstoppistöðina á Hlemm. í
kynningarbæklingi segir Ámi
Sveinsson, höfundur myndarinnar:
„Ég var alltaf hræddur við Hlemm í
æsku. [...] En svo varð maður allt í
einu gamall. Ekki hræddur lengur
og fór bara að hanga niðrá Hlemmi
og taka strætó og svona. En þetta er
það sem ég gerði aftur, fór niður á
Hlemm og á nokkra staði í nágrenn-
inu og safnaði og safnaði efni.“
Fjölskyldulíf og
laumureykingar
bland við daufar stunur stöfuðu af
því að hann væri að snokra sér inn
um glugga með símann í vasanum
framan á anoraknum sínum."
nálgaðist verkið mjög vísindalega
og setti mér strangar aðferðafræði-
legar reglur og svo tók það sinn
tíma að finna réttu mennina i hlut-
verki þar sem þeir þurftu að vera
lífsreyndir fulltrúar sinnar grein-
ar.“
-Kip «
Kyrr
Myndin fjallar um mannlífið kringum strætóstoppistöðina á Hlemm.
Pétur Már Gunnarsson segir á
kynningarbæklingi að hugmyndin
að frið hafi fæðst þegar vinur hans
sem er þjófur hringdi óafvitandi til
hans í miðju innbroti. „Ég gat séð á
símanum að hringingin var frá vini
mínum sem er innbrotsþjófur. Svo
ímyndaði ég mér að brakið og
skruðningarnir sem heyrðust i
Lúðrasveit og brú
„Þetta er níutíu mínútna mynd,“
segir Böðvar Bjarki Pétursson leik-
stjóri „og það tók rúm fjögur ár að
vinna hana. Hún er að mestu leyti
fjármögnuð frá Þýskalandi. Þeir
voru djarfari en menn hér heima til
að fara út í tilraunakennda hluti. Ég
Meðhjálparinn
Séra Baldur les bæn meðhjálpara að messu lokinni í Vatnsfjaröarkirkju.
Nýr meðhjálpari í Vatnsfjarðarkirkju:
Séra Baldur skipt-
ir um hlutverk
DV, VESTFJORDUM:____________________
Eins og kunnugt er lét séra Bald-
ur Vilhelmsson af störfum prests í
Vatnsfirði nýlega fyrir aldurs sakir
eftir rúmlega 43 ára þjónustu. Er
hann nú sestur í helgan stein í
Vatnsfirði. Ekki er þar með sagt að
hann sitji auðum höndum. Dagarn-
ir líða við lestur góðra bóka, mót-
töku gesta og aðra þarflega iðju. Nú
hefur enn eitt hlutverk bæst við því
séra Bcddur hefur tekið að sér störf
meðhjálpara í kirkju sinni. Við
guðsþjónustu í Vatnsfjarðarkirkju
8. júlí sl„ þar sem sóknarpresturinn
sr. Valdimar þjónaði fyrir altari,
gegndi sr. Baldur embætti með-
hjálpara með hinni mestu prýði
eins og við var að búast enda með
mikla reynslu í kirkjulegri þjónustu
auk þess sem hann les allra manna
best.
Var kirkjusókn góð, rúmlega 20
kirkjugestir mættir. Að messu lok-
inni buðu þau hjónin Ólafía og sr.
Baldur til myndarlegs kirkjukaffis
heima hjá sér þar sem margt var
skrafað og skeggrætt. VH
ÚTGERÐARMENN
TIL ATHUGUNAR
Flutningur á aflaheimildum milli fiskiskipa.
í 7. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 10. gr. reglugerðar nr. 496/2000,
um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2000/2001, og í 1.
mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 497/2000, um veiðar krókabáta
fiskveiðiárið 2000/2001, er kveðið á um fresti til flutnings
aflaheimilda milli fiskiskipa.
Samkvæmt ofangreindum reglugerðarákvæðum verða
umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi
aflamarks á yfirstandandi fiskveiðiári að hafa borist
Fiskistofu fyrir miðnætti þann 31. ágúst nk. Umsóknir
sem berast eftir þann tíma verða endursendar. Sama
gildir um flutning á þorskaflahámarki og krókaaflamarki.
Umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi
aflahlutdeildar verða hins vegar að hafa borist Fiskistofu
fyrir miðnætti þann 31. júlí nk. Sama gildir um flutning
á krókaaflahlutdeild.
Umsóknir um staðfestingu á flutningi aflahlutdeildar og
krókaaflahlutdeildar sem berast eftir þann tíma hafa ekki
áhrif á úthlutun aflamarks og krókaaflamarks fiskveiðiárið
2001/2002.
FISKISTOFA