Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 Viðskipti DV Umsjón: Viðskiptablaðid Óviðunandi afkoma Eim- skips fyrstu níu mánuðina Afkoma Eimskips og dótturfé- laga fyrir tímabilið janúar til sept- ember var 1.322 milljóna króna tap, samanboriö við 1.446 milljóna króna tap í janúar til júní. Rekst- urinn hefur þvi snúist nokkuð til hins betra á þriðja ársfjórðungi þótt enn sé afkoman óviðunandi, að því er fram kemur i frétt félags- ins. Fyrir skatta og fjármagnsliði var 184 milljóna króna hagnaður af rekstri Eimskips á þriðja ársfjórö- ungi, samanborið við 461 milljónar króna tap á fyrstu sex mánuðum ársins. Þótt staðan hafi lagast nokkuð er afkoma fyrir skatta og fjármagnsliði enn neikvæö um 277 milljónir króna fyrstu níu mánuöi ársins. Fjármagnsliðir samstæðunnar standa nánast í stað milli annars og þriðja ársfjórðungs og voru fjár- magnsgjöld umfram fjármunatekjur 1.548 milljónir króna eftir fyrstu níu mánuði ársins. Gengistap var 136 milljónir króna á þriðja ársfjórð- ungi, en tekjur vegna verðlagsbreyt- inga jukust um 234 milljónir á sama tímabili. Veltufé frá rekstri endurspeglar einnig þann bata sem orðið hefur en á þriðja ársfjórðungi jókst veltufé frá rekstri úr 136 milljónum króna Rekstrarerfiöleikar Merkja má nokkrun samdrátt 1 innflutningi vegna minnkandi þenslu +í samfélaginu og þaö bitnar beint á skipafélaginu. um mitt ár í 410 milljónir fram til loka september eða um 274 milljón- ir króna. Á þriðja ársfjórðungi hækkuðu rekstrartekjur hlutfallslega meira en rekstrargjöld. Gengislækkun ís- lensku krónunnar á fyrri hluta árs- ins hefur nú að fullu áhrif á tekjur á þriðja ársfjórðungi. Minni inn- flutningur er á þriðja ársfjórðungi en á fyrstu tveimur en á sama tíma eru heldur meiri umsvif í öðrum flutningum. Einnig koma fram á þriðja ársfjórðungi áhrif gjaldskrár- hækkana félagsins um miðjan ágúst. Efnahagsreikningur samstæð- unnar er 31 milljarður króna, sam- anborið við 30,7 milljarða í lok júní. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar hækkar úr 26,5% í lok júní í 27,1% í lok september. Nær engar fjárfest- ingar eru á þriðja ársfjórðungi sem er í samræmi við þá stefnu félagsins um þessar mundir að hægja á öllum flárfestingum. Markaðsverð skráðrar hluta- bréfaeignar Burðaráss er 12,1 millj- arður króna í lok september en bók- fært verð 11,5 milljarðar króna. Markaðsverð skráðra hlutabréfa fé- lagsins hefur heldur hækkað frá miðju ári eftir stöðuga lækkun á undanfornum misserum. Horfur fram undan Fram kemur hjá Eimskip að upp- gjör þriðja ársfjórðungs sé í sam- ræmi við væntingar félagsins við framlagningu sex mánaða uppgjörs. Þá var greint frá aðgerðum til lækk- unar kostnaðar og hækkunar tekna sem leiða áttu til bættrar afkomu fé- lagsins á síðari hluta ársins. Árang- urinn er svipaður og áætlanir gerðu ráð fyrir en áfram er gert ráð fyrir erfiðu rekstrarumhverfi. Merkja má nokkurn samdrátt í innflutningi vegna almenns samdráttar í þjóðfé- laginu og dregur það úr þeim ávinn- ingi félagsins sem annars gæti orð- ið. Einnig má merkja vaxandi erfið- leika í ýmsum greinum á alþjóða- markaði og hefur markaösverð skipa verið að falla talsvert undan- farna mánuði. Það kann því að hafa áhrif á söluverð og sölumöguleika þeirra skipa sem félagið verður með í sölu á næstu misserum. Áfram verður lögð rík áhersla á aðhald í rekstri og fjárfestingum félagsins. Tap UA 396 milljónir króna - gengistap félagsins nemur rúmum 1 milljarði króna Hagnaður Bonus Stores yfir 100 þúsund dalir Hagnaður varð af rekstri Bonus Stores Inc., sem er f eigu Baugs hf., fyrstu fimm mánuði í rekstri eftir kaup á þrotabúi Bills Dollar Stores. Um er að ræða lágvöruverðskeðju með yfir 410 verslanir. Heildarsala fyrir fimm vikna sölu- tímabil, sem lauk 6. október 2001, var 16,5 milljónir dollara og hagnaður fyr- ir skatta nam 102.800 dollurum, eða 0,6% af sölu. Heildarframlegð var 4.436.000 dollarar eða 26,9% af sölu. Jim Schafer, forstjóri Bonus Stores Inc., segir að ekki sé annað hægt en að gleðjast yfir þessum niðurstöðum. „Að ná hagnaði eftir aðeins fimm mánuði er mikill áfangasigur fyrir Bonus Stores Inc sem rekur Bills Dollar Stores keðjuna. Eftir að við tókum við rekstrinum í apríl höfum við aukið söluna yfir 102%. Áherslur okkar á endurskipulagningu og aukið vöruúrval í verslunum auk verulegr- ar lækkunar á rekstrarkostnaði hafa strax skilað miklum árangri sem leið- ir til þess að fyrirtækið skilar nú hagnaði. Við lítum björtum augum til framtiðarinnar og höfum sett okkur enn háleitari markmið hvað varðar rekstur og sölu. Fram undan er anna- samasti tími ársins og í góðri sam- vinnu við birgja teljum við okkur vera vel í stakk búin fyrir það sem koma skal,“ sagði Schafer. Bonus Stores Inc. er nýtt fyrirtæki sem er í Bandaríkjunum. Það var stofnað i samvinnu við Baug hf. ásamt innlendum og erlendum Qár- festum. Fyrirtækið keypti eignir Bills Dollar Stores úr þrotabúi 17. apríl 2001. Bonus Stores Inc., sem rekur Bill’s Dollar Stores, er fyrirtæki í smásölurekstri sem starfrækir yfir 400 verslanir í 13 fylkjum í suðaustur- hluta Bandarikjanna. Auk þess rekur fyrirtækið 20 Bonus Dollar Stores verslanir í Flórída. Höfuðstöðvar fyr- irtækisins og dreifingarmiðstöð eru í Columbia í Mississippi. Tap Útgerðarfélags Akureyringa nam 396 milljónum króna á fyrstu 9 mánuðum ársins en allt árið í fyrra nam tapið 779 milljónum króna. Á sama tíma jókst veltufé frá rekstri um 374 milljónir króna. Meginástæðuna fyrir afkomubat- anum má rekja til stöðugra gengis og góðrar framlegðar í rekstri sam- stæðunnar. Hagnaður fyrir afskrift- ir nam 1.255 m.kr. fyrstu níu mán- uði ársins en var 839 milljónir króna allt árið áður. Þá var veltufé frá rekstri 931 milljón króna en var 565 milljónir allt árið áður. Heildar- velta samstæðunnar nam samtals tæpum 5,2 milljörðum króna og rekstrartekjur, þ.e. heildarvelta, að frá- dregnum eigin afla til vinnslu, voru samtals 4,5 milljarðar. Rekstr- argjöld námu samtals tæpum 3,3 milljörð- um króna. Afskriftir námu samtals 600 milljón- um króna en voru 903 milljónir allt árið áður, Mun minna tap Afkomubatann má má m.a. rekja til stööugra gengis. Fjár- allar skuldir félags- ins eru í erlendum myntum og nam gengistap þess rúm- um einum milljarði króna á fyrstu níu mánuðum þessa árs og 574 milljónum allt árið áður. Heildar- eignir samstæðunnar í lok september sl. magnsliðir voru neikvæðir um 960 milljónir króna en voru neikvæðir um 714 milljónir allt árið áður. Háa fjármagnsliði bæði árin má rekja til veikingar íslensku krónunnar. Nær námu samtals 8,6 milljörðum króna, skuldir 6,8 milljörðum og bókfært eigið fé var því rúmir 1,8 milljarðar. Á sama tíma var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 21% og veltufjárhlut- fall 2,02. 15,3 milljarða halli á vöruskipt um fyrstu níu mánuði ársins - 48% samdráttur í innflutningi flutningatækja í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 15,4 milljarða króna og inn fyrir 18,7 milljarða fob. Vöru- skiptin í september voru því óhag- stæð um 3,3 milljarða en í septem- ber í fyrra voru þau óhagstæð um 4,7 milljarða á fóstu gengi. Fyrstu niu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 138,6 milljarða króna en inn fyrir 153,9 milljarða fob. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 15,3 milljörðum króna en á-sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 26,8 millj- arða á fóstu gengi. Fyrstu níu mán- uði ársins var vöruskiptajöfnuður- inn því 11,5 milljörðum króna skárri en á sama tíma í fyrra. Fram kemur f frétt frá Hagstof- unni að verðmæti vöruútflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 7,5 milljörðum, eða 6%, meira á fóstu gengi en á sama tima árið áður. Sjávarafurðir voru 62% alls útflutn- ings og var verðmæti þeirra 2% meira en á sama tíma árið áður. Aukning vöruútflutnings stafar að mestum hluta af aukningu útflutn- 72 milljóna króna tap Fisk- iðjusamlags Húsavíkur - gert ráð fyrir hagnaði á síðustu mánuðum ársins Tap Fiskiðjusamlags Húsavíkur nam 71,6 milljónum króna á nýaf- stöðnu reikningsári. Velta félagsins var 1.780 milljónir króna og hagnað- ur af rekstri nam 101,4 milljónum króna. Gengistap á árinu var tæpar 147 milljónir króna. Rekstrartekjur lækkuðu um tæp 11% frá fyrra ári og rekstrarkostn- aður lækkaði um rúm 15%. Rekstr- arhagnaður fyrir afskriftir er 238 milljónir króna. Gengismunur hækkar frá fyrra ári um rúmar 95 milljónir sem skýrist af því að inni í þeim tölum er bæði gengislækkun síðari hluta árs 2000 og einnig sú lækkun sem varð á vormánuðum 2001. Veltufé frá rekstri hefur tvö- faldast frá fyrra ári og nam 109 milljónum króna. Áhrifa gengislækkunar íslensku krónunnar mun gæta í hagstæðara afurðaverði í krónum talið en verið hefur á liðnu ári. Á undanfomum misserum hefur verið unnið mark- visst að því að auka framlegð með hagræðingu hjá félaginu og gera áætlanir fyrir timabilið september til desember 2001 ráð fyrir hagnaði miðað við óbreytt gengi krónunnar. ings á áli, skipum og sjávarafurð- um, aðallega fiskimjöli og lýsi. Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 9,0 milljarðar eða 6% minna á fóstu gengi en á sama tíma árið áður. Af einstökum vöruflokkum hefur orðið mestur samdráttur í innflutningi á flutningatækjum en einnig hefur orðið umtalsverður samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvörum. Á móti kemur að aukning hefur orð- ið á innflutningi hrá- og rekstrar- vara. HEILDARVIÐSKIPTI 3.138 m.kr. j - Hlutabréf 291 m.kr. - Húsbréf 1.254 m.kr. MESTU VIÐSKIPTI í Q Keflavíkurverktakar 35 m.kr. j 0 íslandsbanki 32 m.kr. 0, Delta 31 m.kr. MESTA HÆKKUN j © ÚA 7,4% | O Kögun 6,2% j © Þróunarfélag íslands 4,8% | MESTA LÆKKUN 1 O Skeljungur 4,3% i i © Kaupþing 2,6% © Marel 1,8% ÚRVALSVÍSITALAN 1.088 stig - Breyting o -0,20% Pharmaco kaupir hlut í lyfjaþró- unarfyrirtæki Pharmaco hefur fest kaup á þriðjungi hlutaflár í danska lyijaþróunaríyrirtæk- inu Colotech A/S. Fyrirtækið var stofnað árið 1999 um hugmyndir og rannsóknir dansks krabbameinslæknis, Hans Raskov, sem unnið hefur að verkefninu undanfarin sex ár. í frétt frá Pharmaco kemur fram að fyrsta lyf fyrirtækisins er að fara í fasa 3 rannsóknir, þ.e. rannsóknir á mönn- um, eftir mjög jákvæðar niðurstöður úr dýrarannsóknum. Lyfið á að nota fyrir- byggjandi til að minnka líkur á myndun krabbameins í ristli. Önnur lyfjaþróunarverkefni eru í gangi sem byggjast á sömu hugmynd- um. Auk þessa er í gangi þróunarverk- efni, skemmra á veg komið, á nýrri greiningartækni á krabbameini. Búnaðarbankinn kaupir Intrum Dótturfélag Búnaðarbanka Islarids hf. hefur keypt meirihluta hlutafjár f Intrum á íslandi ehf. Intrum á íslandi ehf. var stofnað 1995 en varð fullgild systurskrifstofa alþjóðlega inn- heimtufyrirtækisins Intrum Justitia B.V. í febrúar árið 1998 sem er mót- eigandi að félaginu. Gert er ráð fyrir að mestur hluti hlutafjárins verði seldur áfram til annarra fjárfesta en hluta verði haldið eftir þar sem for- vígismenn Búnaðarbankans telja að Intrum geti bæði stutt við og bætt nú- verandi innheimtuferli bankans. í tfl- kynningu frá félaginu segir að Intr- um á íslandi ehf. sé leiðandi inn- heimtufyrirtæki og felist lykilfæmi þess i nýtingu upplýsingatækni og sérhannaðs liugbúnaðar með það að leiðarljósi að ná framleiðniaukningu og stærðarhagkvæmni í innheimtu- starfsemi. Markmið Intrum á íslandi ehf. er að ná hámarksárangri við inn- heimtu vanskflakrafna á sem hag- kvæmastan hátt, bæði fyrir kröfuhafa og skuldara, án þess að skaða við- skiptasamband þessara aðfla þrátt fyrir tímaþundin vanskfl. í samvinnu við bankastofnanir og lögfræðinga býður Intrum á íslandi ehf. viðskipta- vinum sínum upp á heOsteypt inn- heimtuferli. 01.11.2001 kl. 9.15 KAUP SALA ftf'Pollar 104,140 104,670 j ^^Pund 151,380 152,160 Kan. dollar 65,390 65,800 BSÍPönsk kr. 12,6170 12,6870 j SB Norsk kr 11,7400 11,8050 | ESSænskkr. 9,8060 9,8600 j H—HfI. mark 15,8020 15,8969 | U|Fra. franki 14,3232 14,4093 i Belg. franki 2,3291 2,3431 i ^ M Sviss. franki 63,8500 64,2000 j d'Hoil. gyliini 42,6346 42,8908 P—|Þýskt mark 48,0380 48,3267 | ít. líra 0,04852 0,04881 G&Aust. sch. 6,8279 6,8690 BÍPort. oscudo 0,4686 0,4715 | 3SP*- peseti 0,5647 0,5681 | • jJap. yen 0,85100 0,85610 E Ijírskt pund 119,297 120,014 SDR 132,8500 133,6400 1 gECU 93,9543 94,5188 |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.