Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2001, Blaðsíða 23
39 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 DV Tilvera The Others: Hryllingur á af- skekktu sveitasetri Móðirln Nicole Kidman leikur móöurina Grace og hefur fengiö hrós fyrir eik sinn. Kvikmyndin The Others sem frumsýnd verður i Háskóla- bíói og Sambíóunum á morgun er sannkölluð hrollvekja af bestu gerö. Myndin, sem á að gerast árið 1945 þegar seinni heimsstyrjöldin er í algleymingi, segir frá ungri konu sem býr á afskekktu sveitasetri á eynni Jersey. Eiginmaðurinn er á vígstöðvunum í Frakklandi, svo hún situr ein eftir með börn- in sín tvö, sem þjást af gífurlegu ljósofnæmi. Grace ákveður að ráða þrjá nýja þjóna á heimilið sem verða að læra mikil- væga reglu. Það má aldrei skína sól inn í húsið en það getur verið hægara sagt en gert að komast hjá því. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar er frá Chile og heitir Alej- andro Amenábar. Menn bíða nú spenntir eftir næstu mynd hans þvi þessi hefur víðast hvar fengið mjög góða dóma og er talin meðal betri hryllingsmynda síðustu ára. I aðalhlutverkinu er Nicole Kidman og hefur henni víða verið hrósað fyrir leik sinni í myndinni. Fyrrum eiginmaður hennar, Tom Cruise, er einmitt einn af framleiðendum mynd- arinnar. Um sjö mánuði tók að finna krakkana sem leika börn Grace og voru um 5000 börn í sjötíu skólum víða um Bret- landseyjar prófuð fyrir hlutverkin. Tvö óreynd börn sem stunda nám í London uðru síðan fyrir valinu. Þau heita Alak- ina Mann og James Bentley og höfðu þau ekki áður leikið þeg- ar þau tóku að sér hlutverkin í The Others. Meðal annarra leikara má nefna Fionnula Flanagan sem birtist í hlutverki irsku þjónustukonunnar, Mrs. Mills, sem á sér leyndarmál eins og svo margir aðrir. -MA ^ Börnin Alakina Mann og James Bentley heita börnin sem valin voru úr fjölda umsækjenda til aö leika Anne og Nicholas. Angels Eyes: s Astfangin af b j argvættinum Kvöld eitt lendir lögreglukonan Sharon Pogue í mikilli lífshættu þegar hún er að elta uppi grunaðan glæpamann. Dularfullur maður, Catch, blandar sér hins vegar í mál- ið, nær að afvopna hinn grunaða og bjarga þannig lifi Sharon. Enginn veit hvort örlögin komu við sögu eða tilviljunin ein en þau Sharon og Catch fella hugi saman. Smám sam- an komast þau að sannleikanum um hvort annað og verða í leiðinni að takast á við leyndarmál sín úr for- tíðinni. Þannig hljómar söguþráður myndarinnar Angel Eyes sem frum- sýnd verður í Sambíóunum á morg- un. Hin nýgifta Jennifer Lopez leikur Sharon enda hefur hún ekki hætt að leika þrátt fyrir að hafa selt milljón- ir platna um víða veröld. Lopez komst í sögubækurnar i janúar á þessu ári þegar hún varð fyrsta kon- an til að eiga mest sóttu myndina og vinsælustu plötuna sömu vikuna. Lopez sló fyrst í gegn sem kvik- myndaleikkona þegar hún lék í sannsögulegri mynd um söngkon- una Selenu sem var myrt aðeins rúmlega tvítug að aldri. Meðal ann- arra mynda hennar má nefna Out of Sight, The Cell og The Wedding Planner. Með hlutverk Catch fer Jim Caviezel sem hefur fengið hvert hlutverkið á fætur öðru eftir að hann sló í gegn í myndinni The Thin Red Line. Eftir það hefur hann sést í myndum á borð við Frequency og Pay it Forward og mun næst sjást í aðalhlutverki í The Count of Monte Cristo og High Crimes. Leikstjóri Angel Eyes er Luis Mandoki sem er einn fremsti leikstjóri Hollywood. Meðal mynda hans eru Bom Yesterday, When A Man Loves A Women, White Palace og Message in a Bottle. -MA Fella hugi saman Jennifer Lopez og Jim Caviezel leika lögreglukonuna og dularfulla manninn sem fella hugi saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.