Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.2002, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 2002 Fréttir DV Árni Mathiesen sjávarútvegsráðherra: Við gerðum klár- lega okkar mistök - með því að mótmæla ekki hvalveiðibanninu á sínum tíma Árni Mathiesen | sjávarútvegsráö- herra segir að is-1 lensk stjórnvöld hafi klárlega gert mistök með því að | mótmæla ekki hval- veiðibanninu á sín- um tíma líkt og1 Norðmenn gerðu. Alþjóða hvalveiði- ráðið hafnaði á ráðstefnu í Yoko- hama í gær umsókn íslendinga um fulla aðild að ráðinu með fyrirvara íslendinga um afnám hvalveiði- bannsins. Ráðherra telur ólíklegt að íslendingar muni nokkru sinni fá fulla aðild að ráðinu með ásætt- anlegum fyrirvörum. Arni Mathiesen Fulltrúi Islands Stefán Ásmundsson, formaöur íslensku sendinefndarinnar kynnir málstaö íslands meöal blaöamanna í gær. 25 ríki greiddu atkvæði með til- lögu Bo Fernholms, formanns ráðsins, um að framlengja áheyrn- araðild íslendinga án atkvæðis- réttar. Þrír sátu hjá en 20 vildu veita Islendingum fulla aðild. Árni segir að bolabrögð hafi verið við- höfð af hálfu formanns ráðsins en óljóst sé til hvaða leiða islensk stjórnvöld grípi í framhaldinu. - Hver er afstöðumunur ráðsins á annars vegar á veiðum íslend- inga og hins vegar veiðum Norð- manna? „Norðmenn mótmæltu 1983 þeg- ar hvalveiðibannið var sett á og þess vegna eru þeir óbundnir af banninu. Við erum að reyna að vinna það upp sem við gerðum ekki þá. Við erum búnir að vera úti i tíu ár,“ segir sjávarútvegsráð- herra. Sorglegt að sjá Árni segir afar sorglegt að sjá hve langt menn séu tilbúnir að ganga i brotum á fundarsköpum, alþjóðalögum og stefnusáttmála hvalveiðiráðsins til að koma I veg fyrir fulla aðild íslendinga að ráð- inu og það jafnvel eftir að íslend- ingar hafi aðlagaö fyrirvarann til að koma á móts við ráðið. Telur hann fullreynt með aðild íslend- inga að ráðinu i ljósi niðurstöð- unnar? „Það verður a.m.k. mjög erfitt að komast þarna inn með fyrirvar- ann. Það hefur sýnt sig tvisvar að menn eru reiðubúnir til að beita hvaða ráðum sem er til að koma í veg fyrir þetta og það er vafasamt að okkur muni nokkru sinni takast það,“ segir Árni. Á hinn bóginn telur hann ekki útilokað að veiðar á hval hefjist án þátttöku í ráðinu. ASBJORN BJORGVINSSON OG HELMUT LUGMAYR Hvalaskodun Stórkostleqar myndskreytlnqar . » í < . af öllum hvölunum eftlr Martin Camm VIO I S I 3 H U Hvalaskoðun Sagt á lifandi og aðgengilegan hátt frá lífsháttum hvala, atferli þeirra og hegðun. Einnig yfirlit yfir nokkrar fugla- og selategundir sem sjást í hvalaskoðunarferðum. Bókin er ríkulega myndskreytt, einkar fróðleg og nauðsynlegur ferðafélagi í hvalaskoðunarferð. f bóklnni eru upplýsingar um öll hvaiaskodunar- fyrirtæki á íslandi JjJÚ JPV ÚTGÁFA Bræðraborgarstfgur 7 Sími 575 5600 Formður hvalveiðiráðsins Svíinn Bo Fernholm stýrir Alþjóöa hvalveiöiráðinu og reyndist íslendingum óþægur Ijár í þúfu um helgina sem kann aö þýöa veruleg eftirmál í samskiptum íslands og Svíþjóöar. Bo er fyrir miöju á myndinni sem tekin er á fundsinum í gærdag. Mistök að mótmæla ekki - En voru mistök að ganga úr ráðinu á sínum tíma? „Það hefur eiginlega ekkert með þetta mál að gera. Ef við værum enn þá í ráðinu hefðum við aldrei haft fulla möguleika á að láta reyna á hvort við gætum fengið samþykktan fyrrvara. Hins vegar er alveg klárt að við gerðum mis- tök með því að mótmæla ekki þeg- ar hvalveiðibannið var sett á. Norðmenn geta veitt núna af því að þeir mótmæltu þá en Japanar veiða aftur í vísindaskyni og eiga þess vegna rétt á aðild að ráðinu. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að vera aðilar að ráðinu til að geta selt afurðirnar, hvort sem um ræð- ir veiðar í atvinnu- eða vísinda- skyni.“ Aðspurður hvort líkur á hval- veiðum íslendinga í atvinnuskyni hafi ekki dofnað mjög játar ráð- herra því en segir nauðsynlegt að hafa í huga að þótt íslendingar hefðu fengið fyrirvarann sam- þykktan hefðu þjóðir getað mót- mælt veiðum i atvinnuskyni með sérsamningum. Það eigi hins veg- ar ekki við um vísindaveiðarnar. Sjá einnig bls. 6 -BÞ Líkamsárás í Kaupmannahafnarflugi: Ráðist í tvígang á konu í flugtaki BOKIN KEMUR UT A ÞREMUR TUNGUMALUM BHM i Lögreglan á Kefla- víkurflugvelli rann- sakar nú líkamsárás sem átti sér stað í Kaupmannahafnar- flugi Flugleiða í fyrradag. Árásin varð með þeim hætti að maður veittist í tvígang að farar- stjóra íslenska lands- liðsins í knattpyrnu, Ingibjörgu Hinriks- dóttur, en hún var á heimleið eftir lands- leik liðsins í Rúss- landi. Að sögn Ingibjarg- ar var vélin í flug- taki þegar maðurinn veittist að henni í fyrra skiptið. „Ég sé allt í einu hvernig maðurinn, sem situr skáhallt fyrir framan mig, rís upp og reynir að slá til mín með þeim orðum að ég eigi að þegja. Ég næ ásamt samferðafólki mínu að stoppa hann og hann virðist róast. Það leið hins vegar ekki löng stund áður en maðurinn stökk upp og æddi af stað aftur. Þá tókst Jörundi Áka Sveinssyni, þjálfara landsliðs- ins, að stöðva hann,“ sagði Ingi- Ingibjörg Hinriksdóttir Hún hlaut skrámur í andlit viö árásina og mun gefa lögreglu skýrslu í dag. björg í samtali við DV. Hún sagði að sér og farþegum hefði brugðið mjög við árásina en flugliðum hefði tekist með yfir- veguðum hætti að koma á ró í vélinni. Flugfreyjur hefðu haft gott auga með manninum það sem eftir lifði ferðar og hann ekki verið til frekari vandræða. Ingibjörg hlaut nokkrar skrámur í andlit við árásina. Hún mun gefa rann- sóknarlögreglunni skýrslu um málið í dag. í framhaldi af því mun hún taka ákvörðun um hvort hún kærir manninn fyrir likamsárás. Lögreglunni á Keflavíkurflugvelli var gert viðvart og beið hún manns- ins við komuna. Guðjón Arngríms- son, upplýsingafulltrúi Flugleiða, sagði að atvik sem þetta væri litið alvarlegum augum. Það væri hins vegar lögreglu og yfirvalda að ljúka málinu. -aþ/BÞ Vísar ummælum á bug Gunnar I. Birgis- son, formaður bæj- arráðs Kópavogs og leiðtogi sjálfstæðis- manna í Kópavogi, vísar ummælum Ingibjargar Sólrún- ar Gisladóttur borg- arstjóra um skipu- lagsmál á bug. Borgarstjóri gagn- rýndi skipulagsmál í Kópavogi i við- tali við Morgunblaðið og sagði að mörg mistök hefðu verið gerð. Gunnar segir orð horgarstjóra sýna öfund í garð Kópavogsbúa. Aukatónleikar Vegna gífurlegrar eftirspumar á tónleika sígaunasveitarinnar Taraf de Haidouks hefur verið ákveðið að sveitin haldi aukatónleika í kvöld. Tónleikamir verða sem fyrr haldn- ir á Broadway og miðasala er í Bankastræti 11. Grafið í Skálholti Viðamesta fomleifarannsókn sem ráðist hefur verið í hérlendis er haf- in í Skálholti og mun standa næstu fimm árin. Fjöldi sérfræðinga, inn- lendra sem erlendra, vinnur að upp- greftinum. Hafnarfjörður fær mest Hæsta framlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna rekstrar gmnn- skóla á þessu ári fer til Hafnarfjarð- ar, eða rúmar 206 milljónir króna. Akureyri fær 134 milljónir, sveitar- félagið Skagafjörður fær 78 milljón- ir, Mosfellsbær 78 milljónir og Ár- borg 78 milljónir. Önnur sveitarfé- lög fá minna. Ný vopnaleit Um þessar mundir er unnið að uppsetningu vopnaleitartækis á Eg- ilsstaðaflugvelli. Tækið er sett upp vegna áætlunarflugs þýska flugfé- lagsins LTU en handfarangur far- þega verður gegnumlýstur auk þess sem þeir þurfa að ganga í gegnum málmleitarhlið. Hætt við undirritun Aðeins þremur stundum fyrir undirritun 170 milljóna samnings um endurbætur á Sjúkrahúsi Akra- ness var framkvæmdastjóra stofh- unarinnar tilkynnt að undirritun- inni væri frestað. Ástæðan var sögð sú að kveða þyrfti niður átök innan ríkisstjómarinnar. RÚV greindi frá. Hittir Arafat Halldór Ás- grímsson utanrik- isráðherra heldur til ísraels á næst- unni og mun eiga fund 29. maí með Ariel Sharon, for- sætisráðherra ísraels, Simon Per-1 es utanríkisráðherra og Moshe Qatzav, forseta landsins. Staðfest- ing þessa efnis hefur borist frá ísraelskum stjómvöldum. Að sama skapi hefur heimastjóm Palestínu staðfest að fundur Hall- dórs og Arafats verði tveimur dög- um síðar eða 31. maí. Þeir munu hittast í Ramallah. Barn fram af kletti Fimm ára bam setti bíl fram af kletti við Álfaborgir í Grafarvogi á áttunda tímanum í morgun. Bamið var eitt í bílnum, foreldri ókomið, og tókst því að koma bílnum af stað og rann hann fram af kletti. Bamið hlaut nokkur meiðsli og fjarlægja þurfti bilinn með kranabil. -GG/aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.