Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.2002, Blaðsíða 28
28
FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 2002
Sport
Serena Wílliams er
komin í undanúrsiit á
Wimbledon-mótínu í
tennís. Hér faanar hún
sigrinum á Danielu
Hantúchova frá Slóveniu i
l\ iíW'i3
It HWll
li®
Wimbledon-mótið i tennis:
Báðar systurnar
komnar í undanúrslit
- Serena vann í gær - Capriati úr leik eftir tap gegn Mauresmo
Serena Williams tryggði sér sæti í
undanúrslitum á Wimbledon-mótinu
í tennis í gær með sigri á táningnum
Danielu Hantuchova frá Slóveníu í
tveimur lotum, 6-3 og 6-2, og þar
með eru báðar Williams- systurnar
komnar í undanúrslit. Serena þurfti
þó að hafa fyrir sigrinum en átti þó
alltaf svar við leik Danielu.
Amelie Mauresmo sigraði Jenni-
fer Capriati 6-3 og 6-2 og var sigur-
inn sæt hefnd fyrir þessa 22 ára
stúlku sem hafði tapað fyrir Capri-
ati tvisvar í fjórðungsúrslitum á sið-
asta ári, fyrst á Opna bandaríska
mótinu síðasta sumar og síðan á
Opna ástralska mótinu sem fór fram
í janúar.
„Það hjálpaði mér ekki í þessum
leik að andstæðingurinn var að
spila sinn besta leik í langan tíma,“
sagði Capriati eftir leikinn og bætti
við að Mauresmo hefði verið
stöðugri en áður.
Veðrið setti strik í reikninginn í
einliðaleik karla og náðist ekki að
spila þá leiki. -Ben
Verður þú
heppinn
áskrifandi?
Fimmtudaginn 4.júlí
munu TÍU heppnir DV-áskrifendur vinna
► glæsilega DVD-spilara.
Að auki munu tveir heppnir áskrifendur vinna
► pizzaveislu fyrir 8 manns á Pizza Hut.
RflÐIOBÆR
ÚMUU38 S3KSI 5531133
áskrift
- borgar sig
DV
Fyrirhafnar-
lítið hjá ÍBV
- gerði út um leikinn strax í upphafi
1- 0 Gunnar H. Þorvaldsson (5.)
2- 0 Bjami Geir Viðarsson (19.)
I Eyjum tóku heimamenn úr ÍBV
á móti 1. deildarliði Þróttara í sext-
án liða úrslitum bikarkeppninnar.
Eyjamenn mættu mjög ákveðnir til
leiks og voru í raun ekki lengi að
gera út um leikinn. Þegar aðeins
rúmlega átján mínútur voru liðnar
af leiknum má segja að úrslitin hafi
verið ráðin, Eyjamenn höfðu þá
skorað tvö mörk á meðan gestimir
komust lítið áleiðis.
Eyjamenn gátu ekki stillt upp
sínu sterkasta liði, Tómas Ingi Tóm-
asson á við meiðsli að stríða og
sömuleiðist Kjartan Antonsson, sem
hefur reyndar ekki leikið með ÍBV
lengi. Þá tók Bjamólfur Lárusson út
bann en lið gestanna var nánast
óbreytt frá því í leiknum gegn
Sindra í síðustu viku, Daði Árnason
kom inn í liðið fyrir Erling Guð-
mundsson.
Slökuðu á eftir annað markið
Eins og áður sagði gengu Eyja-
menn frá leiknum fyrstu tuttugu
mínútumar og það sem eftir lifði
leiks leyfðu þeir sér aö slaka á.
Þróttarar náðu í raun aldrei að
ógna marki ÍBV verulega, reyndar
áttu bæði Ingvi Sveinsson og vara-
maðurinn Hiálmar Þórarinsson
ágætis langskot en Birkir sá við
þeim í bæði skiptin. Sigur Eyja-
manna var fyllilega sanngjam en
leikmenn hefðu getað skemmt
stuðningsmönnum sínum með betri
leik en raunin varð.
Hjalti Jóhannesson sagði eftir
leikinn að þrátt fyrir að Þróttarar
væru í 1. deild þá væri alltaf erfitt
að spila í bikarkeppninni. „í bikar-
keppninni verður að sýna 100% bar-
áttu frá fyrstu mínútu því þetta er
bara einn leikur og ef þú ert ekki á
tánum þá getur farið illa. Einbeit-
ingin verður að vera í lagi og ég tel
að hana hafi ekki vantað hjá okkur
í fyrri hálfleik og mjög gott að skora
svona fljótt í leiknum, en í seinni
hálfleik ákváðum við að láta þá
sækja á okkur og sækja svo hratt á
þá en við náðum því miður ekki að
skora fleiri mörk í þetta skiptið."
Ásgeir Elíasson var raunsær eftir
leikinn og sagði að ÍBV hefði átt sig-
urinn skilið. „Við ætluðum að byrja
aftarlega og spila góða vörn en það
gekk ekki alveg upp. Við reyndum
að breyta aðeins um leikaðferð frá
því sem við höfum verið að gera
þannig að menn voru kannski ekki
alveg klárir á hlutunum. Við feng-
um á okkur eitt aulamark í byrjun
og eftir það var þetta erfltt. En við
máttum svo sem þakka fyrir á köfl-
um að fá ekki fleiri mörk á okkur
en ætli það hafi ekki verið sann-
gjarnt að Eyjamenn hafi skorað
þessi tvö mörk.“ -jgj
Dramatík
í Keflavík
0-1 Lúðvlk Gunnarsson (9.)
1-1 Guðmundur Steinarsson (18.)
1- 2 Garðar Gunnlaugsson (41.)
2- 2 Hólmar Öm Rúnarsson (81.)
3- 2 Guðmundur Steinarsson (94.)
3-3 Hálfdán Gislasoú (97.)
Það vantaði ekki dramatíkina í
Keflavík í gærkvöld þegar heima-
menn tóku á móti ungmennaliði
Skagamanna í 16-liða úrslitum Coca
Cola bikarkeppninnar. Það dugði
hvorki framlenging né hefðbundin
vítaspymukeppni til að fá úr því skor-
ið hvort liðið yrði í pottinum þegar
dregið verður í 8-liða úrslitin og það
var ekki fyrr en á þrettándu spymu
vítaspymukeppninnar að úrslit réð-
ust.
Tréverkið kom til bjargar
Gestirnir komu ákveðnir til leiks
og höfðu yfirhöndina fyrsta korterið
og á 9 minútu gerði Lúðvík Gunnars-
son skallamark, eftir aukaspymu þar
sem að Ómar missti hreinlega af send-
ingunni og Lúðvik skallaði í autt
markið. Keflvíkingar vöknuðu svo til
lífsins og eftir 18 mínútna leik hafði
Guðmundur Steinarsson jafnað með
skalla eftir góða fyrirgjöf Hauks Inga
Guðnasonar. I framhaldinu vom
heimamenn sterkari aðilinn en á 41.
mínútu áttu gestimir aukaspymu á
miðjum vellinum og upp úr henni
fékk Garðar Gunnlaugsson boltann
óvaldaður inn á teig og afgreiddi
knöttinn í netið.
Keflvíkingar voru mun betri í síð-
ari hálfleik og þeim virtist hreinlega
fyrirmunað að skora og Páll Gísli
bjargaði sinum mönnum ansi oft sem
og tréverkið. En eitthvað varð að láta
undan og 9 mínútum fyrir leikslok
jafnaði Hólmar Öm Rúnarsson leik-
inn og arkitektinn að því marki var
Guðmundur Steinarsson. Keflvíking-
ar héldu áfram að sækja eftir markið
en sigurmarkið kom ekki og því fram-
lenging staðreynd. I framlengingunni
byrja Keflvíkingar með látum og Þór-
arinn á skot í stöng og fær auka-
spymu skömmu síðar og skýtur í slá.
Skömmu síðar fá Keflvikingar hom-
spymu og eftir baráttu inni i teig náði
Guðmundur Steinarsson að koma
knettinum í netið. En Adam var ekki
lengi í paradís því Keflvíkingar sváfu
á verðinum eitt augnablik og Hálfdán
Gíslason var búinn að jafna. Keflvik-
ingar sóttu svo til leiksloka án þess að
ná að gera út um leikinn og því þurfti
vítaspymukeppni tO og annað eins
hafa menn varla séð því að þegar all-
ir leikmenn liðanna höfðu tekið
spymu stóð enn jafnt og Zoran Lju-
bicic þurfti því að byrja aðra umferð
og lét verja frá sér. En Skagamenn
náðu ekki að nýta næstu spymu og
heimamenn skoraðu og Skagamenn
skutu aftur yfir í þrettándu spyrnu og
lokatölur 10-9 í vítaspymukeppninni.
Keflvíkingar sterkari í heildina
I heildina voru Keflvíkingar mun
sterkari í leiknum en efnilegt lið
Skagamanna refsaði þeim ávallt þegar
einbeiting var ekki til staðar. Keflvík-
ingar hefðu þó með smáheppni getað
verið búnir að gera út um leikinn í
venjulegum leiktíma.
Guðmundur Steinarsson, Adolf
Sveinsson og Þórarinn Kristjánsson
voru að leika mjög vel hjá heima-
mönnum og þá kom Magnús Þor-
steinsson sterkur inn í síðari hálfleik
og Zoran átti einnig góðan leik eftir
að hann var færður á miðjuna i síðari
hálfleik.
Páll Gísli Jónsson átti mjög góðan
leik í marki Skagamanna og Garðar
Gunnlaugsson vann vel úr því sem
hann fékk.
Maður leiksins: Guðmundur
Steinarsson, Keflavík -EÁJ