Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.2002, Blaðsíða 15
MIÐVKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2002
15
DV
Menning
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
Kvikmyndir, olífur og ostur
- opnunarmynd spænskrar kvikmyndahátíöar er ný kvikmynd eftir Pedro Almodóvar
Spœnsk kvikmyndahátíö, hin fyrsta í
Reykjavík, hefst á morgun í Regnboganum og
stendur í tíu daga. Á dagskrá eru 12 kvik-
myndir, og nokkrar heimildarmyndir og
stuttmyndir. Hátíöin er fyrsta verkefni Menn-
ingarfelags áhugamanna um hinn spœnsku-
mœlandi heim sem á aö endurvekja formlega
á morgun kl. 17 í Alþjóöahúsinu viö Hverfis-
götu, en þaö hefur legiö í dvala í mörg ár.
Margrét Hlöðversdóttir sem búsett er á Spáni
og Hrönn Marínósdóttir blaöamaöur sjá um
skipulagningu og framkvœmd. Að þeirra
mati er mikill áhugi á Spáni hér á landi, til
dœmis hafa vinsœldir spœnskunnar aldrei
veriö meiri, en þessi áhugi endurspeglast ekki
í vali kvikmyndahúsanna. Þetta er skaöi því
margar spœnskar myndir eru stórgóöar og
eiga fullt erindi til íslendinga.
Samhliða hátíðinni verður haldið málþing
um spænska kvikmyndagerð með þátttöku ís-
lenskra kvikmyndagerðarmanna og spænska
rithöfundarins Manuel Rivas. Málþingið hefst
kl. 15 fóstudaginn 20. september í Menntaskólanum
við Hamrahlíð.
Verðlaunamyndir
Ræddu málin eða Hable con ella, nýjasta mynd
Pedros Almodóvars, er opnunarmynd hátíðarinnar,
og af því tilefni koma til landsins aðalleikari mynd-
arinnar, Javier Camára, sem er bæði frægur og vin-
ildanna) eftir José Luis Cuerda, byggð á sam-
nefndu bókmenntaverki eftir Manuel Rivas
sem hingað kemur á málþing eins og áður
sagði, Juana la loca (Jóhanna brjálaða), eftir
Vicente Aranda, um ævi og ástir þessarar
ógæfusömu Kastilíudrottningar og fjöl-
skyldudramað Cuando vuelvas a mi lado
(Þegar þú kemur aftur til mín) um drama-
tískan endurfund þriggja systra eftir eina af
athyglisverðustu leikstýrum Spánar, Graciu
Querejeta. Þessi mynd hlaut þrenn Goya-
verðlaun spænsku akademíunnar árið 2000,
sem besta myndin, íyrir bestu leikstjórn og
besta leik. Einnig verður sýnd rómantíska
gamanmyndin Lluvia en los zapatos (Það
rignir i skóna mína) eftir Mariu RipoO, með
Penélope Cruz i aðalhlutverki, og lokamynd
hátíðarinnar er spænsk-argentínska kvik-
myndin E1 Hijo de la novia (Gifstu mér loks-
ins), eftir Juan José Campanella, en hún var
verðlaunuð sem besta mynd Rómönsku-Am-
eríku 2002 á Montréal- hátíðinni og tilnefnd
til óskarsverðlauna sem besta erlenda mynd-
in 2002.
Að auki verða sýndar nokkrar leiknar heimilda-
myndir og stuttmyndir sem sumar hafa verið verð-
launaðar í bak og fyrir. Vert er að geta þess að hægt
er að kaupa kort sem gildir á sex bíómyndir tyrir að-
eins 3000 kr. eða kr. 500 á mynd. Á undan sýningum
er gestum boðið að smakka á spænskum olífum og
geitaosti.
Spænskir taktar
Pedro Almodóvar stýrir Rosario Flores, flamenco-rokksöngkonunni
sem leikur nautabana í Ræddu málin.
sæll í heimalandi sinu, og umboðsmaður
Almodóvars, Paz Sufrategi.
Meðal annarra mynda má nefna spennu- og hryll-
ingsmyndina Tesis (Lokaverkefnið) eftir hinn fræga
Alejandro Amenábar og melódramað Solas (Ein-
mana) eftir Benito Zambrano sem fékk áhorfenda-
verðlaunin í Berlín 1999 auk sérstakra verðlauna
dómnefndar, La lengua de las mariposas (Tunga fiðr-
Leiklist
Gaman í bólinu með Bjarna
Því var einu sinni haldið fram við mig að hlátur
væri betri en kynlíf: hægt væri að hlæja oftar,
hlæja mætti með mörgum í einu, það væri í lagi að
hlæja á abnannafæri, til dæmis í vinnunni, og síð-
ast en ekki síst væri ekkert stress með að þurfa að
halda hlátrinum áfram út í hið óendanlega. Þessi
skoðun er ekki verri en hvað annað.
Það var hlegið í Loftkastalanum á laugardags-
kvöldið þegar Leikfélagið Þrándur frumsýndi fars-
ann Fullkomið brúðkaup eftir Robin Hawdon,
manninn sem gerði leikgerðina að Sex í sveit sem
gekk lengi fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu fyrir
fáum misserum. Þetta er alvöru farsi með misskiln-
ingi, framhjáhaldi og hlaupum út og inn úr her-
bergjum. í viðbót við hinn hefðbundna farsa hafa
verið samin söngatriði sem ramma inn þættina.
Fullkomið brúðkaup fjallar um ungan mann,
Bjama, sem er að fara að gifta sig en í steggjapart-
íinu, sem er haldið kvöldið fyrir brúðkaupið á
Hótel Valhöll, fær Bjami sér aðeins of mikið að
drekka. Fyrir röð óheppilegra tilviljana vaknar
hann með ókunnri konu í brúðarsvítunni sem
hann hafði ætlað sér og brúði sinni nóttina eftir.
Þetta er ekki gott. Og hefst nú hröð atburðarás þar
sem Bjami reynir að bjarga sér úr klipunni.
Verkefni Magnúsar Geirs Þórðarsonar leik-
stjóra var langt frá því að vera auðvelt. Farsar
hafa oft reynst áhugafólki í leiklist þungir í
skauti, enda hraðinn mikUl og allar tímasetningar
þurfa að vera fullkomnar. En verkið og húmorinn
skilar sér að þessu sinni fullkomlega til áhorfenda
Tónlist
Brúðhjónin Hilmar og Ástrós
Þaö veröur ekki hjá því komist aö benda á þátt
Magnúsar Geirs og leikhúsa honum tengd í því aö
draga mikinn fjölda af ungu fólki í leikhús og stuöla
þannig aö nýliöun í hópi íslenskra leikhúsáhorf-
enda. Þaö kom berlega í Ijós á laugardaginn þegar
Loftkastalinn var stappfullur af ungu fólki.
sem voru oft við það að rifna úr hlátri.
Mest mæddi á Hilmari Guðjónssyni sem fór
með hlutverk brúðgumans Bjama. Hilmar stóð sig
vel, leikur hans var mjög líkamlegur og náði að
spila á hláturtaugar áhorfenda. Stjömur sýningar-
innar eru þó Marta Goðadóttir, sem leikur hina
innskeifu þernu, Nönnu, og Kristín Þóra Haralds-
dóttir, sem fer með hlutverk Ninu, konunnar sem
Bjami vaknar hjá í brúðarsvítunni. Báðar eru
þær svo fyndnar að undirritaður er enn með verki
í þindinni eftir hláturinn. Hannes Þórður Þor-
valdsson leikur Trausta, besta vin Bjama, og stóð
sig feikivel. Ástrós Elíasdóttir lék verðandi brúði
af yfirvegun og Helga Lára Haarde móður hennar
með skemmtilegum skvettugangi. Þá eru ótaldir
söngvaramir Lydía Grétarsdóttir og Sólmundur
Hólm sem áttu salinn inn á milli atriða og sýndi
Sólmundur einstaka takta.
Fullkomið brúðkaup er sýning sem allir að-
standendur geta verið stoltir af. Hún er spreng-
hlægileg og gæti til dæmis nýst vel í endurhæf-
ingu síbrotafólks í flokki fýlupúka. Og kannski er
hlátur næstum því jafngóður og kynlíf.
Sigtryggur Magnason
Leikfélagiö Þrándur sýnir I Loftkastalanum: Fullkomiö
Brúðkaup. Höfundur: Robin Hawdon. Þýöandi: Örn Árna-
son. Leikmynd: Frosti Friöriksson. Búnlngar: Ragna Þor-
björg Úlfarsdóttir. Ljósahönnuöur: Jón Þorgeir Kristjáns-
son. Tónllst: Hljómsveitin Hanz. Leikstjóri: Magnús Geir
Þóröarson.
mm
Heimilisleg kammertónlist
Nýtt starfsár hófst hjá Tríói Reykja-
vikur með tónleikum í Hafnarborg á
sunnudagskvöldið. Á efnisskránni voru
lítið þekkt verk frá öldinni sem leið og
lék Nina Flyer sellóleikari með Tríóinu
en sellóleikari hópsins, Gunnar Kvaran,
sat hjá. Gunnar var þó á tónleikunum og
kynnti öll verkin með sinni þægilegu
rödd, sem er hefð hjá Tríóinu. Það skap-
ar ávallt ljúfa, heimilislega stemningu
sem hentar einkar vel kammertónlist-
inni en eins og kunnugt er var hún aðal-
lega leikin á heimOum heldra fólksins í
gamla daga.
Tónleikamir hófust á tríói í d-moll eft-
ir Bohuslav Martinu (1890-1959). Var
leikur þremenninganna, þeirra Guðnýj-
ar Guðmundsdóttur fiðluleikara og Pet-
er Máté píanóleikara, auk fyrmefnds
gestaseUóleikara, einstaklega frísklegur
og grípandi. Tónverk Martinus er óvana-
legt, hljómagangurinn er sérkennUegur
og aUs kyns hendingar koma fyrir sem
maður á ekki von á og var það ákaflega
skemmtUegt í markvissri túlkun Tríós-
ins. SamspUið var fullkomið og var verk-
ið frábær byrjun á tónleikunum.
Nina Ryer, Peter Máté og Guðný Guðmundsdóttir
Leikurþeirra var einstaklega frísklegur oggrípandi.
Næst á dagskrá var tónsmíð sem Sjosta-
kóvitsj samdi þegar hann var sextán ára,
tríó ópus 8. Gunnar Kvaran fræddi áheyr-
endur um að verkið hefði verið innblásið
af ástarævintýri tónskáldsins, sem pen-
ingamál og ströng móðir þurftu endilega
að eyðUeggja, og heyrðist það greinUega á
tónlistinni, sem var aUt að þvi rómantísk
á köfium. Var ekki laust við að maður sæi
fyrir sér turtUdúfur í sokkabuxum og
tjuUpUsi svífa um í hápunktum verksins,
enda var leikur hljóðfæraleikaranna afar
tilfmningaþrunginn, kraftmikill þegar við
átti en annars ljúfur og dreymandi, án
þess að það væri á kostnað nákvæmninn-
ar.
Sama má segja um atriðin á efnis-
skránni eftir hlé, hina ofurfógru Elegíu
eftir Josef Suk (1874-1935) og Tríó í g-moU
eftir Debussy. Bæði verkin léku í höndum
hljóðfæraleikaranna og var túlkunin hnit-
miðuð og glæsUeg, sérstaklega var flutn-
ingurinn á síðarnefnda verkinu sannfær-
andi og komst þar hin litríka náttúru-
stemning, sem einkennir þessa tónlist,
sérlega vel tU skUa.
Jónas Sen
Tolkien,
Laxness, Undset
Stofnun Sig-
urðar Nordals og
Norræna húsið
gangast fyrir al-
þjóðlegri ráð-
stefnu um
Hringadróttins
sögu eftir J.R.R.
Tolkien og tengsl
hennar við norrænan menningar-
arf í tUefni af því að gerðar hafa
verið þrjár kvikmyndir eftir sög-
unni. Ráðstefnan fer fram í Nor-
ræna húsinu í Reykjavík núna í
vikulokin, 13.-14. september. Þátt-
töku þarf að tilkynna Stofnun Sig-
urðar Nordals, sími 562 6050.
Viðfangsefhi
ráðstefnunnar
verða: a) Hringa-
dróttins saga og
helstu mýtur
hennar; b) tengsl
hennar við nor-
rænan menning-
ararf; c) saman-
burður á úr-
vinnslu Tolkiens og nóbelsverð-
launahafanna Halldórs Laxness og
Sigrid Undset á þessum arfi; d)
skírskotim verka
þeirra tU ritunar-
tímans og e) sið-
fræði skáldverk-
anna.
Ráðstefnan
hefst kl. 9 árdegis
á föstudaginn.
Fyrsti iyrirlesar-
inn er prófessor
Tom Shippey frá Saint Louis há-
skólanum í Missouri i Bandaríkj-
unum sem hefur m.a. skrifað bók-
ina „J.R.R. Tolkien: Author of the
Century". Hann er einn helsti
Tolkienfræðingur samtímans.
Aðrir fyrirlesarar verða Armann
Jakobsson, Liv Bliksrud, Terry
GunneU, Helga Kress, Lars
Huldén, Jón Karl Helgason, Gun-
hild Kværness, Olav Solberg,
Sveinn Haraldsson, Andrew
Wawn og Matthew Whelpton.
Frekari upplýsingar fást á skrif-
stofu Stofnunar Sigurðar Nordals
og á heimasíðu hennar:
http://www.nordals.hi.is Á heima-
síðunni er einnig að finna dagskrá
þingsins og útdrætti úr erindum.
Gershwin
og Cole Porter
Sinfóníuhljóm-
sveit íslands hef-
ur starfsárið á
tvennum tónleik-
um, fimmtudags-
og föstudags-
kvöld, í Háskóla-
bíói, með léttum
og skemmtUegum
tónleikum sem
helgaðir eru söngleikjatónUst eftir
George Gershwin og Cole Porter.
Það eru söngvararnir Kim CrisweU
og George Dvorsky
sem ætla að túlka
helstu söngperlur
landa sinna og
David Charles
AbeU stýrir hljóm-
sveitinni.
Kim CrisweU er
íslendingum að
góðu kunn og kemur nú i þriðja
sinn tU að syngja með hljómsveit-
inni. Hún söng lög Richards
Rogers á tónleikum SÍ vorið 1997
og kom svo aftur í mars ‘98 og fór
á kostum á skemmtilegum tónleik-
um byggðum á West-End söng-
leikjatónlist. George Dvorsky sæk-
ir okkur heim i fyrsta sinn og verð-
ur gaman að sjá þennan sjarmer-
andi söngvara hér á sviði.
Á efnisskrá tónleikanna eru m.a.
Forleikurinn og Wunderbar úr
Kysstu mig Kata, Another Openin’,
Another Show og Night and Day
eftir Porter og Somebody Love Me,
I Got Rythm, Embracable You,
Nice Work if You can get it og
Sweet and Low Down eftir Gers-
hwin.
Tónleikarnir hefjast klukkan
19.30 bæði kvöldin. AUar upplýs-
ingar um miðasölu og áskriftar-
leiðir er að finna á sinfonia.is eða í
síma 545 2500.