Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 21
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
21
JOV
Tilvera
ifmælisbarniö
Jennifer Connelly
32 ára
Jennifer Connelly á af-
mæli í dag. ConneUy var
aðeins 0órtán ára gömul
þegar Sergio Leone fekk
henni hlutverk í stórmynd
sinni, Once upon a Time in America. Hef-
ur hún leikið aliar götur síðan og oft sýnt
góðan leik í erflðum hlutvérkum. Það var
þó ekki fyrr en með A Beautiful Mind
sem hún skaust upp á stjömuhimininn.
Hlaut hún óskarsverðlaunin sem besta
leikkona í aðalhlutverki fyrr á þessu ári.
Um sama leyti var Requiem for a Dream
sýnd en leikur hennar er ein af þunga-
miðjum myndarinnar. Connelly á einn
son, Kai, sem er flmm ára.
Gildlr fyrlr föstudaglnn 13. desember
Vatnsberínn (20. ian.-18. febr.):
. Þú átt skemmtilegan
dag fram undan og
hver veit nema að
ástin leynist á næstu
grösum. Náinn vinur þinn
þarfnast þín.
Fiskarnlni9. febr.-20. marsl:
\ Þér gengur vel að ráða
Ifram úr minni háttar
vanda og hlýtur
' ( mikið lol fyrir. Þu
gengur í gegnum erfitt tímabil
í ástarmálum.
Hrúturinn (21. mars-19. aoríl):
. Deilur í fjölskyldunni
'hafa mikil áhrif á þig.
Deilurnar eru þó ekki
eins alvarlegar og á
horfðist og í kvöld verður aUt
fallið í ljúfa löð.
Nautlð (20. apríl-20. maíl:
Ekki vera að reyna að
sýna fram á yfirburði
þína í tima og ótíma,
litillæti er liklegra til
að vekja aðdáun. Ekki er ólíklegt
að þú farir í óvænt ferðalag.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúní):
V Þú gætir þurft að
//*'fresta einhverju vegna
— / i breyttrar áætlunar á
síðustu stundu. Það
verðiu- létt yfir deginum, þó að þú
lendir í smávægilegum illdeilum.
Krabbinn (22. iúni-22. iúiíl:
Það er litið að gera í
i félagslífinu um þessar
' mimdir og það er gott
þar sem er kominn
tími til að þú takir þig á i námi
eða starfi. Forðastu kæruleysi.
Liónið (23. iúlí- 22. áaúsú:
^ Það er mikið að gera
' hjá þér um þessar
mundir. Þér gengur þó
vel með allt sem þú
tekur þér fyrir hendur og hefur
gaman af því sem þú ert að gera.
Mevian (23. áeúst-22. seot.):
Þú ert í góðu skapi í
dag og færð góðar
^^^ÍLhugmyndir. Hresstu
^ r upp á minnið varðandi
ákveðin atriði sem eru að líða
úr minni þér.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Ekki vera of fljótur að
dæma fólk og felldu
allan vafa um ágæti
einhvers, manneskj-
xrnni í hag. Kvöldið verður rólegt.
Happatölur þínar eru 5,14 og 33.
Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nóv.l:
Það er gott að eiga
góða vini og þú
pþarft mikið á þeim
að halda um þessar
mundir. Ekki vera feiminn við
að leita til þeirra.
Bogmaðurinn 122. nóv.-21. des.):
i Gerðu eitthvað sem veit-
r ir þér útrás, þá á þér eft-
ir að líða betur. Kýldu á
það sem þú þarft að
gera í stað þess að eyða orkunni í
það að vera með áhyggjur yfir því.
Steingeitln (22. des.-19. ian,):
Þér hættir til að vera of
fús til að fórna þér fyrir
aðra og í dag ættir þú
að hugsa meira um
i þig. Reyndu að klára hluti
sem þú hefur verið að draga lengi.
Háskólabió - Hlemmur ★★★
Bíógagnrýni
Jaðar
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
samfélagsins
Þegar ég var að alast upp nálægt
miðbænum í Reykjavík var Amar-
hóll aðsetur útigangsmanna bæjar-
ins. Eftir að þeim var úthýst frá
styttu Ingólfs Amarsonar áttu þeir
engan fastan samstað og voru víðs
vegar um bæinn. Þegar byggð var
miðstöð fyrir Strætisvagna Reykja-
víkur á Hlemmi varð hún fljótt sam-
komustaður útigangsmanna þótt
einnig væri þá að fmna þar sem
styttra var í brennivínið, til að
mynda á ýmsum búllum sem hafa
orðið frægar einmitt fyrir það að
hýsa róna bæjarins. Hlemmur var
góð stoppistöð fyr-
ir þá. Á Hlemm
fóru einnig aðrir
sem minna mega
sín í þjgðfélaginu
að venja komu sín-
ar og fljótt barst
það um bæinn að á
Hlemmi væri „alls
konar fólk“, auk
farþega á leið í
strætó.
Það eru- sýnis-
hom af fólki sem
sækir Hlemm sem
Ólafur Sveinsson
er að flalla um í
góðri heimilda-
mynd sinni,
Hlemmur. Hann
tekur fyrir nokkra
einstaklinga sem
hefur verið útskúf-
að úr samfélaginu
og aðra sem eiga
við geðræn vanda-
mál að stríða - fólk
sem á það sameig-
inlegt að stór hluti
af veröld þess er
Hlemmur. Við
kynnumst harðri
og erfiðri lífsbar-
áttu fólksins. Sum-
ir eiga afturkvæmt
í samfélagið, aðrir
ekki.
Myndin byrjar á
viðtali við fyrrver-
andi útigangs-
mann, mann sem
búinn er að komast
yfir sín vandamál, er strætóbílstjóri
og búinn að eignast eigið húsnæði. í
honum kemur kannski í ljós að
þrátt fyrir allan vilja þá verður
maöur sem hefur verið háður
brennivíninu á þann hátt sem rónar
eru aldrei samur maður aftur. Það
er eitthvað í heilabúinu sem bregst.
Hjá honum kemur það fram í mót-
sagnakenndum og öfgafullum skoð-
unum. Frá honum förum við yfir í
eitt besta atriði myndarinnar og
kynnumst tveimur aðalpersónun-
um, Ómari og Hannesi, þar sem
þeir eru að leysa út bætur Ómars og
drekka á skipulagðan hátt vín og
meðul til að koma sér í gang. Sam-
töl Ómars og Hannesar eru þess eðl-
is að við getum skyggnst á bak við
tjöldin - séð fjölskyldumenn sem
gáfust upp á lífsleiðinni.
Saga þeirra Ómars og Hannesar
er ekki uppbyggjandi og því síður
brosleg. Ekki er þó annað hægt en
að brosa þegar þeir eru að ræðast
við. Þeir eru báðir miklir karakter-
ar og spekúlera á sinn hátt í veröld-
inni - til að mynda þegar þeir eru
myndaðir morgun einn eftir að hafa
dvalið í Hverfissteini um nóttina.
Þeir muna ekkert af hverju þeir
voru settir inn en ná í sameiningu
að púsla í götin á þann hátt að góð-
ir gamanleikarar gætu ekki gert
betur. Þetta atriði er fyndið á sinn
sorglega hátt.
Hinn hópurinn af viðmælendum
Ólafs eru þeir sem haldnir eru
þunglyndi og eiga við geðræn
vandamál að stríða, hafa yfirleitt
flosnað frá heimilum og vinnu og
hafa engan annan dvalarstað en
Hlemm. Einn slíkur, sem fáir koma
til með að eyða orðum á vegna sjúk-
dómsins, „hefur það ágætt“, að eig-
in sögn, peningalega séð. Það eru þó
örlög hans að enginn vill tala við
hann þó „allt sé í lagi á milli eym-
anna“ og hans eina skemmtun á
löngum einmanalegum dögum er að
ferðast með strætó.
Hlemmur er gerð á löngum tíma.
Ein aðalpersónan er látin þegar
lokakaflinn er myndaður. Önnur er
orðin nýnasisti og sú þriðja, Ómar,
sem er eftirminnilegastur, er edrú
og starfar í Byrginu - er þar í sjálf-
boðavinnu en langar að breyta til.
Hann er sá sem átti heima undir
trjárunna og var kippt upp úr snjón-
um á jólunum og tókst að rétta úr
kútnum. Hvað verður um aðra sem
eftir lifa og þá sem ekki geta hjálp-
að sér sjálfir er ekki vitað meðan
þjóðfélagið tekur ekki á málinu.
Ólafur Sveinsson hefur í tveimur
fyrri heimildamyndum sínum, Non-
stop og Braggabúum, forvitnast um
mannlíf, yfirleitt þeirra sem eru út
undan eihhverra hluta vegna. Hefur
honum farið fram með hverri mynd
og Hlemmur er tvímælalaust best.
Það fer enginn út í gerð heimilda-
kvikmyndar á borð við Hlemm
nema búa yfir mikilli þolinmæði.
Ólafur hefur slíka þolinmæði. Hann
hefur sagt að áður en hann tók til
við kvikmyndatökuna hafi hann
verið tímunum saman á Hlemmi og
kynnst „fastagestum". Þannig
myndaði hann samband sem skilar
sér í myndinni sem fyrir vikið skil-
ur mikið eftir sig og er ein áhrifa-
mesta íslenska heimildamynd sem
gerð hefur verið. Ólafur ætlar að
halda áfram á sömu braut og klára
trílógíu, þar sem Braggabúar og
Hlemmur eru fyrstu tvær myndim-
ar, og aðra þar sem Nonstop er
fyrsta kvikmyndin. Er ekki hægt
annað, miðað við þær þrjár sem til-
búnar eru, en að bíða með tilhlökk-
un eftir þeim. Hilmar Karlsson
Ólafur Sveinsson. Kvikmyndataka: Hall-
dór Gunnarsson. Hljóö og hljóöhönnun:
Þorbjörn Á. Erlingsson. Klipping: Ólafur
Jóhannesson. Tónlist: Sigur Rós.
Kinq
^ Koil
Qfífi Bílastæðasjóður
''--J * I r ...svo f borg sé leggjandi
Gott skjól
fýrír bílinn þinn
*) Ef þú kaupir 6 mánuði borgarðu aðeins fyrir 5.
Bílastæðahúsið við Vitatorg er ódýrt skjól á góðum stað
fyrir þá sem eiga erindi á Laugaveginn og næsta nágrenni.
Fyrsta klukkustundin kostar aðeins 80 kr. eða 1,33 kr.
mfnútan, síðan greiðir þú 10 kr. fyrir hverjar 12 mínútur
sem þú notar.
Fyrir þá sem starfa
eða búa í miðborginni
er í boði mánaðarkort
á aðeins 4.000 kr. *)
Það fæst varla betra
skjól en þetta fyrir Vitatorg
bílinn þinn. á homi Vitastígs og Hverfisgötu