Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
Skoðun dv
Biðröð hjá Mæðrastyrksnefnd
Sinnir skjólstæöingum í Reykjavík.
Hjálparstarf kirkj-
unnar fyrir alla
ipurning dagsins
Hver er uppáhalds-
maturinn þinn?
Heiðrún Ólafsdóttir nemi:
Hamborgarhryggur.
Arnar Matthíasson nemi:
Nautafilie og piparsósa.
Gunnar Júlíus Guðmundsson:
Tower Zinger af Kentucky.
Guðmundur Hallgrímsson klippari:
Jóiamaturinn hennar mömmu.
Baldur Rafn, verslunarm. hjá Grasi:
Pastarétturinn hennar Röggu.
í lesendabréfi í DV
í gær, 9. desember,
skrifar maður að
nafni Jakob pistil
þar sem hann álasar
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur fyrir að
úthluta gjafafé sínu
til Hjálparstarfs
kirkjunnar og Ör-
yrkjabandalagsins.
Því vil ég koma eftir-
farandi á framfæri.
Það er misskiln-
ingur að Mæðra-
styrksnefnd sé að úthluta gjafakort-
um frá Bónus til Hjálparstarfs kirkj-
unnar og Öryrkjabandalagsins. í
gjafabréfi því sem Bónus afhenti
nefndinni var tekið fram að skjól-
stæðingar bæði öryrkjabandalags-
ins og Hjálparstarfs kirkjunnar
skyldu njóta góðs af gjöf fyrirtækis-
ins. Ástæðan var sú að Mæðra-
styrksnefnd sinnir eingöngu skjól-
stæðingum í Reykjavík en Hjálpar-
starf kirkjunnar og Öryrkjabanda-
lagið sinna öllu landinu.
Samstarf um úthlutun gjafakort-
ingibjörg Jóhannsdóttir
skrifar:
Ég var að lesa alveg sérlega mál-
efnalega grein í DV eftir Stefán
Hrafn Hagalín, undir yfirskrftinni
Níðstangir Garðars Sverrissonar. -
Stefán þessi (greinarhöfundurinn í
DV) er þarna að svara óhróðri sem
formaður Öryrkjabandalagsins hefur
haft uppi gagnvart greinarhöfundi
vegna misskilinna ummæla Stefáns í
nýlegum sjónvarpsþætti.
Það fer nú sannarlega að verða
hvimleitt þegar þeir sem helst telja
sig málsvara þeirra sem minna mega
sín, t.d. öryrkja, og stundum aldr-
aðra (mér finnst nú að aldraðir þurfi
svo sem ekki að hafa neina
„málsvara" á sínum snærum), leggja
sérstaklega út af eða túlka orðalag
anna frá Bónus er þannig að Hjálp-
arstarf kirkjunnar úthlutar til ein-
stæðra mæðra og fjölskyldna sem
búa utan Reykjavíkur t.d. í ná-
grannasveitarfélögunum Kópavogi,
Hafnarfírði og Mosfellsbæ, ásamt
matarpökkum úr eigin matarbúri.
Mceðrastyrksnefnd Reykja-
víkur styrkir einstæðar
mœður í Reykjavík.
Hjálparstarf kirkjunnar
sinnir konum og körlum
af öllu landinu. “
Aðrir sem sækja um til Hjálpar-
starfsins fá hefðbundna mataraðstoð
sem dugir í 4-5 máltíðir. Öryrkja-
bandalagið úthlutar Bónuskortum
eftir sínum reglum og Mæðrastyrks-
nefnd styður einstæðar mæður og
fjölskyldur - í Reykjavík.
Hjá Hjálparstarfmu er tekið á
móti umsóknum mánudaga og
þriðjudaga frá kl. 11-12 og 13-16 og
úthlutun er á fimmtudögum og
fóstudögum frá kl. 10-12 og 13-16.
„Sannleikurinn í þessum
málum er einfaldur. íslend-
ingar kunna ekki að um-
gangast þá sem minna
mega sín án þess að vera
með skinhelgi og fleðulœti
í þeirra garð. “
Péturs og Páls í þjóðfélaginu á þann
veg að þeir séu „á móti“ t.d. öryrkj-
um, ef sleppt er þeim slepjulegu frös-
um, sem gjarnan er kllifað á um
þessa hópa þjóðfélagsins.
Sannleikurinn í þessum málum er
einfaldur. íslendingar kunna ekki að
umgangast þá sem minna mega sín
Síðasti úhlutunardagur fyrir jól er
20. desember. Rétt er að geta þess að
á síðastliðnu ári endurskipulagði
Hjálparstarf kirkjunnar innanlands-
aðstoð sina og réð félagsráðgjafa til
starfa. Lögð er- áhersla á fagleg
vinnubrögð, ráðgjöf og hjálp til
sjálfshjálpar. Hjálparstarf kirkjunn-
ar sinnir innanlandsaðstoð árið um
kring.
Hjálparstarf kirkjunnar fær enga
fasta opinbera styrki og rekur
hvorki happdrætti né spilakassa.
Allar tekjur Hjálparstarfsins eru
frjáls framlög einstaklinga, sókna
og fyrirtækja. Mörg fyrirtæki
styrkja matarbúrið með matargjöf-
um. Hin árlega jólasöfnun Hjálpar-
starfs kirkjunnar stendur nú yfir og
hafa gíróseðlar og baukar verið
sendir inn á heimili landsmanna.
Söfnunin í ár er helguð vatnsverk-
efnum í Mósambík og ber yfirskrift-
ina Gefðu honum vatn fyrir lífstíð.
Þeir sem vilja sérstaklega leggja
innanlandsaðstoð Hjálparstarfsins
lið geta lagt framlög sín inn á reikn-
ing 27 í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis.
án þess að vera með skinhelgi og
fleðulæti í þeirra garð. Allir geta orð-
ið öryrkjar á skammri stundu, en
það þýðir ekki að þeir verði þar með
slik olnbogabörn að þá megi ekki
nefna með öðrum hætti en kalla þá
„smælingja" eða þaðan af verri nöfn-
um. Það er að reisa þessum þegnum
samfélagsins níðstöng. - Og svo eru
ekki allir „öryrkjar" þótt þeir t.d.
hafi orðið fyrir slysi eða veikist og
gangi við staf upp frá því. Þeir ættu
t.d. ekki að vera á „bóturn" fyrir lífs-
tíð. Margir í fullri vinnu.
Við skulum nefna hlutina réttum
nöfnum, en ekki reisa níðstangir að
óþörfu. Málsvarar litla mannsins,
hvort sem er í BYKO, Landssiman-
um eða á götunni, þurfa að þroskast
eins og aðrir.
Jónas Þórir
Þórisson,
framkvæmda-
stjóri Hjálpar-
starfs
kirkjunnar:
Níðstangir og málsvarar litla mannsins
Á launum við að drepa
Garri hefur fylgst af áhuga með umfjöllun fjöl-
miðla um hrottalega tölvuleiki sem seljast vist
eins og heitar lummur. Greint hefur verið frá
því að í einum þeirra fái leikmaður stig fyrir að
kaupa þjónustu vændiskonu, lemja hana síðan
til óbóta og raunar rúmlega það (en óþarft er aö
hafa það orðrétt eftir hér) og hirða síðan af
henni féð sem greitt var fyrir blíðuna. Það er
þokkalegt!
Spennandi mál
Umræddur tölvuleikur hefur að minnsta kosti
tvisvar sinnum verið sýndur í „aksjón“ í sjón-
varpsfréttum, og þannig fengið glæsilega auglýs-
ingu sem sennilega er metin á hundruð þúsunda
króna.
Garri býr reyndar við það lífsmynstur að
snæða kvöldverð á sjónvarpsfréttatíma - ekki
hefur hann sjónvarp í eldhúsinu, eins og tíska er
um þessar mundir og því er hlustað á útsend-
ingu sjónvarpsfréttanna í útvarpi. Síðan verður
reglulega mikiö uppnám og ófriður við eldhús-
borðið þegar auðheyrt er af lestrinum að „mynd-
ræn“ frétt sé í loftinu, og Garri ryðst í ofboði og
fáti að sjónvarpinu frammi í stofu.
Sú varð raunin þegar heyrðist í sjónvarps-
fréttamanninum segja:.eins og hér sést...“ í
frétt sinni um hið hrottalega ofbeldi, en við-
bragðið var ekki nægilega gott þannig að Garri
varð af mestu blóðsúthellingunum.
Merkasta fréttin
í kjölfar fréttanna var öllum flötum þessa máls
og tveimur til velt upp i fjölmiðlum. Fjallað var
um reglugerðir menntamálaráðuneytisins um
eftirlit með tölvuleikjum - eða öllu heldur skort
á þeim. Rætt var við sálfræðinga um áhrif slíkra
ofbeldisleikja á sálarlíf og skapgerð unglinga.
Verslunarmenn lýstu óseðjandi eftirspum.
En eitt viðtal þótti Garra fréttnæmara en önn-
ur. Það var pilturinn saklausi sem lýsti því fyrir
sjónvarpsfréttamanni, að til þess að hitta téða
vændiskonu í leiknum góða þyrfti óvenjulega
mikla fæmi í leiknum. Slíkt væri aðeins á færi
þeirra allra færustu - hann hefði sjálfur aldrei
náð svo langt í leiknum.
Hæfni umsækjenda
Þetta eru merkilegar upplýsingar frá innvígð-
um heimildarmanni. Og afleiðingarnar eru víð-
tækar. Þetta þýðir auðvitað að ef ráðuneyti
menntamála vill verða við kröfum um að eftirlit
verði haft með tölvuleikjum - og þeir flokkaðir
rétt eins og kvikmyndir - verður það að ráða til
sín snillinga í tölvuleikjum.
Ekki nóg með það; þessum rikisreknu snilling-
um dugar ekki að þrýsta á „play“ og prófa leik-
inn í nokkrar mínútur. Nei! Þeir verða öðlast
fullkomna fæmi í leiknum. Þeir verða að drepa
eins marga og mögulegt er til þess að komast að
hinu sanna í málinu; komast að hinu hrikalega
leyndarmáli leiksins um vændiskonuna. Og
þannig verða þeir að þrautprófa hvern einasta
leik.
Það er því þokkaleg stofnun embættismanna í
burðarliðnum og óvenjuleg verkefni sem bíða.
Spurning hvort það fæst nokkur til að sækja um.
Cjkrri
Vilhjálmur verst fimlega
Guðm. Guðmundsson skrifar:
Úr því sem komið
er hér í norðvestur-
kjördæminu, hvað
snertir klúðrið í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins, finnst mér,
og fjöldanum öllum
af fólki, alveg sjálf-
sagt að ógilda kosn-
inguna og kjósa upp
á nýtt og þá eftir
þeim nýju reglum
sem miðstjórn Sjátf-
stæðisflokksins hefur
nú sett. Þetta hlýtur kjördæmisráð að
fyrirskipa eftir að kæra Vilhjálms Eg-
ilssonar hefur borist því. Vilhjálmur
hefur varist vel, enda stjórnmálamað-
ur af lífi og sál og tekur starf sitt al-
varlega. Hann gæti engan veginn skil-
ið sína kjósendur eftir baráttulaust og
gerir það áreiðanlega ekki. Miðstjórn
Sjálfstæðisfiokksins hefur nú gripið
inn í málið með þeim afgerandi hætti
að látið verði reyna á breyttar reglur
í endurteknu prófkjöri.
Vilhjálmur
Egilsson
aiþingismaöur
stendur meö
kjósendum
sínum.
Bjargráðin birtist?
Halldór Árnason skrifar:
VG-menn hafa hamast út af Sem-
entsverksmiðjunni á Akranesi. Hvers
vegna? Jú, vegna þess að í því kjör-
dæmi eru nú tveir þingmenn sem
bara VERÐA að fá þingsæti með ein-
hverjum ráðum! Og þá er gott að
grípa til sementsins sem er löngu búið
að dæma úr leik vegna þess að það er
ekki samkeppnishæft í verði. En þing-
mennimir gefa sig ekki. - „Bjargráðin
birtist í desember"! Það er jú jólamán-
uður en þingmenn eru bara búnir að
ákveða hvaða jólagjöfum verður út-
hlutað. Og þær hafa allir þingmenn
nú einmitt samþykkt nýlega: hærri
styrki til handa flokkunum sínum. -
Það er því einfaldlega ekkert eftir í
tapreksturinn á Skaganum.
Sundabrautin
- framhjá Grafarvogi.
Forgangur Sundabrautar
Óskar Sigurðsson skrifar:
Sem íbúa á þéttbýlissvæðinu hér
við sunnanverðan Faxaflóa þykir mér
einsýnt að framkvæmdir við Sunda-
braut verði látnar hafa forgang hvað
snertir samgöngubætur á höfuðborg-
arsvæðinu - jafnvel umfram mislæg
gatnamót á Kringlumýrarbraut og
Miklubraut. Þar er þungi umferðar
tímabundinn og ekkert meiri en geng-
ur og gerist í erlendum borgum.
Sundabrautin mun hins vegar sinna
miklu stærra hlutverki. „Golden
Gate“-brú eða göng skiptir ekki meg-
inmáli, aöeins að þessi leið verði sam-
gönguvædd. - Og í lokin: Við þurfum
samgönguráðherra af þéttbýlissvæð-
inu; það kennir reynslan okkur.
Bænaákallið passar ekki
Guðrún Sigurjðns. skrifar:
Örfá orð um bænaákallið úr Lista-
safni Reykjavíkur. Það er enginn að
segja að múslímatrú sé eitthvað verri
en okkar lúterstrú. Það er bara þetta
að svona „bænaákall" úr Listasafninu
er ekki við hæfl, við þekkjum ekkert
til þessarar trúar og ætlum vonandi
ekki að taka hana upp almennt hér á
landi. íslendingar eru heldur ekki, tel
ég, sólgnir í að vita öllu meira um
múslíma, svona almennt talað, en við
vitum nú þegar. islenskar konm hafa
lent í vandræðum út af sínum sam-
böndum við menn úr þessum heims-
hluta og það eru ömurleg dæmi. Vit-
um vér enn eða hvat?
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.