Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002
DV
25
Tilvera ^
íí f ið
•Uppákomur
BEIvis-svning
Á föstudag og laugardag verður Elvis-sýning á
Broadway. Ath. Aðeins þessa einu helgi. Við höf-
um fengið einn fremsta Elvis f heiminum í dag,
Kjell Elvis, til að koma og syngja við undirleik
hljómsveitar Gunnars Þórðar (11 manna band).
Kjell Elvis var kosinn einn af fimm bestu ELVIS
skemmtikröftum í Las Vegas fyrir nokkrum árum
og í fyrra var hann kosinn besti ELVIS-skemmti-
krafturinn í Evrópu og Skandinavíu. Ekki láta
þetta tækifæri fara fram hjá ykkur fara. Hljóm-
sveitin Sixties leikur fyrir dansi eftir sýninguna.
■Samverk í Borgarleikhúsinu
Pars Pro Toto, í samstarfi við Borgarleikhús,
Rússibana og Bendu, sýnir fjögur dansverk á
Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu kl. 20 í kvöld. Jó-
hann Freyr Björgvinsson dansar dansverkið Jói
e. Láru Stefánsdóttur. Annað verk á sýningu
Pars Pro Toto í Borgarleikhúsinu er „Til Láru" e.
Per Jonsson danshöfund og Hjálmar H. Ragnars-
son tónskáld en Lára Stefánsdóttir dansar.
Þriðja verk kvöldsins heitir Hræringar, samið af
Láru Stefánsdóttur og Guðna Franzsyni. Verkið
er dansað af Sveinbjörgu Þórhallsdóttur. Loka-
verk sýningarinnar er Cyrano, tónlist Hjálmars H.
Ragnarssonar í lifandi flutningi Rússíbana og
dansgerð Láru Stefánsdóttur. Dansarar í Cyrano
eru m.a. Guðmundur Helgason, Lára Stefáns-
dóttir, Emilía Benedikta, Steve Lorenz o.fl.
■Stiörnumessa i Grafarvogi
Hin árlega Stjömumessa verður haldin á bíla-
verkstæðinu Bílastjömunni, Gylfaflöt 101 Grafar-
vogi, milli klukkan 18 og 20 I kvöld. Fjölmennur
hópur listamanna kemur fram. Þeir sem lesa úr
verkum sínum eru Aöalsteinn Ingölfsson, Ari
Trausti Guömundsson, Einar Már Guömunds-
son, Gyröir Elíasson, Kristín Marja Baldursdótt-
ir, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Sigurbjörg
Þrastardóttir. Einar Kárason og KK troða upp í
tilefni af bók Einars um tónlistarmanninn. Stef-
án Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson flytja
nokkur lög. Leynigestur samkomunnar verður
einn af virtustu rithöfundum landsins. Rmm
myndlistarmenn, starfandi á Korpúlfsstöðum,
sýna myndlistarflæði f skjávarpa, þau Ása Ólafs-
dóttir, Bryndís Jónsdöttir, Kristín Geirsdóttfr,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir og Þorgerö-
ur Sigurðardóttir. Kynnir er séra Vigfús Þór
Árnason, léttar veitingar verða á boðstólum. Að-
gangur er ókeypis og samkomunni lýkur með
glæsilegri flugeldasýningu.
•Fundir og
fyrirlestrar
■Kreml.is 2 ára
i tilefni af tveggja ára afmæli Kreml.is verður
haldin opin afmælishátíð í kvöld á Ölstofu Kor-
máks og Skjaldar við Vegamótastfg. Dagskráin
hefst ki. 20, aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir meöan húsrúm leyfir. Aðalræðumaður
kvöldsins er guðfaðir Kremlar, Jón Baldvin
Hannibalsson. Kremlarkvöldin eru að jafnaði
afslappaður umræðuvettvangur þar sem þjóð-
málin eru krufin í léttu andrúmslofti.
•Krár
■Oefr Ólafs og Raggj Biarna
Gelr Ólafs og Furstarnir skemmta á Champions
kaffi f Grafarvogi f kvöld og annað kvöld.
Sérstakur gestur er Ragnar Bjarnason.
■Próflokadiamm á Þórscafé
Það er próflokadjamm fýrir framhaldsskólanem-
endur á Þórscafé í kvöld. XXX Rottweiler, írafár
og Robbi Chronic sjá um að skemmta, það er
18 ára aldurstakmark en 20 ára á barinn. For-
saia er þegar hafin f BT Skeifunni,
Krossgáta
Lárétt: 1 rausa,
4 sannleik, 7 hnífar,
8 krampi, 10 hnjóðsyrði,
12 pinni, 13 minnast,
14 afar, 15 svip,
16 málmur, 18 blað,
21 skoru, 22 hyski,
23 elja..
Lóðrétt: 1 þvarg,
2 sjáðu, 3 andartak,
4 lastaði, 5 heiður,
6 planta, 9 sló, 11 vitru,
16 kúst, 17 þramm,
19 fjármuni, 20 feyskja.
Lausn neöst á síöunni.
Skák
Núna stendur yfir heimsmeistara-
mót unglinga á Indlandi. 2 íslenskir
keppendur taka þátt, Þeir Stefán Krist-
jánsson, alþjóðlegur meistari, og Davið
Kjartansson, íslandsmeistari unglinga
2002. Eftir 5 umferðir hafði Stefán stað-
ið sig mjög vel, teflt við sterka skák-
menn, stórmeistara og alþjóðameistara
og hafði fengið 3,5 v. af 5 og ekki tapað
skák. Davíð Kjartansson var einnig
með ágætisárangur, 2,5 v. af 5. Stefán
vann ævintýralega skák i 1. umferð,
tefldi mjög djarft í endatafli og yfirspil-
aði andstæðing sinn frá Indlandi eftir
öllum kúnstarinnar reglum. Hér er
baráttan í algleymingi en endaði með
að Stefán hafði biskup upp úr krafsinu
sem dugði til vinnings.
Hvítt: Stefán Kristjánsson (2431).
Svart: G N Gopal (2174).
Sikileyjarvörn.
41. Heimsmeistaramót unglinga.
Goa, Indlandi (1), 2002
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4.
d4 Rf6 5. Rf3 Bg4 6. dxc5 Dxdl+ 7.
Kxdl e5 8. b4 e4 9. h3 Bh5 10. g4
Rxg4 11. hxg4 Bxg4 12. Rbd2 exf3
13. Bd3 Rc6 14. Hel+ Be7 15. Kc2
a5 16. b5 Rd8 17. a4 Re6 18. Ba3 0-
0-0 19. Rb3 Bh4 20. Be4 Rg5 21.
Bxb7+ Kxb7 22. He7+ Kc8 23. b6
Re6 24. Ha7 Bf5+ 25. Kb2 Be4 26.
Hel Bd5 27. c4 Bf6+ 28. Kbl Bb7
29. Rxa5 Bc3 (Stöðumyndin) 30. c6
Bxa5 31. cxb7+ Kb8 32. Hxa5 Kxb7
33. Ha7+ Kxb6 34. Hxf7 Hhe8 35.
Be7 Rc7 36. Bxd8 Hxel+ 37. Kc2
He2+ 38. Kd3 Hxf2 39. Bxc7+ Kc6
40. Bg3 Ha2 41. Hxf3 Ha3+ 42. Ke4
Hxa4 43. Kd4 Ha7 44. He3 Hd7+ 45.
Kc3 Hf7 46. He6+ Kc5 1-0.
Lausn á krossgátu________
•mj oz ‘Qne 61 ‘3-re ii ‘dos 91
‘n^jods ii þsnei 6 ‘pm 9 ‘eræ e ‘Tijæutjieq \ ‘jpiqeuSne e ‘oqs z 'jocj 1 ujaroo'i
•iugi ez ‘Hd zz ‘nisu \z ‘jneiin Jeis 91 ‘æjq si
‘Spfui \\ ‘eunui ei ‘I?u zi ‘isei oi ‘3ou 8 ‘rejmi 1 ‘njæq \ ‘esnd 1 :jJ?Jn
Pagfarí
Á morgun
Ertu Mangi? spurði mamma
mig stundum stríðnislega þeg-
ar ég frestaði einhverju verki
til morguns sem ég gat gert
þann daginn. Þar var hún að
vísa í barnakvæði um hyskinn
strák sem Mangi hét. Væri
hann beðinn um viðvik var
svarið ávallt: „Ég ætla að gera
það á morgun.“ En sá dagur
leið líka án þess að nokkuð
væri gert.
Ég var Mangi um síðustu
helgi. Þetta var þó helgin sem
ég hafði ætlað að hespa öllu af.
Það var kominn tími á útiljósa-
seríuna, þrif á gluggum, gard-
ínum, húsgögnum. Laufa-
brauðssteiking var á listanum,
ásamt svosem einni smáköku-
sort. Randalínurnar? ég var
ekki búin að gleyma þeim. Auð-
vitað þurfti að kíkja í búðir,
bækur víða á afsláttarkjörum,
kjötið líka. Jólakortaskrif eru
með mikilvægustu verkefnum á
þessum árstíma. Þau átti að af-
greiða um þessa helgi líka.
Laugardagurinn er alltaf dá-
lítið erfiður hvað varðar fram-
kvæmdir, finnst mér. Þá berst
svo mikið af þykkum og efnis-
miklum helgarblöðum. Þannig
var það líka núna. Þegar sá
lestur var afstaðinn var sól far-
in að lækka á lofti. Aðaivanda-
málið var samt hvað sjónvarps-
dagskráin var góð eins og æv-
inlega á laugardagskvöldum.
Gísli Marteinn, Spaugstofan,
Popppunktur. Þættir sem ég má
alls ekki missa af. Þannig að
útkoman hjá mér varð eins og
hjá Manga. Það frestaðist allt
til morguns. Samlíkingin við
hann var í fullu gildi þann dag
líka enda lokasetningar kvæð-
isins: „Hann var ónytjungsræf-
ill hvern einasta dag - og eins
á morgun."
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
blaöamaöur