Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Síða 23
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
DV
_______23
Tilvera
4>
Billy Bob sér
eftir Angelinu
Nú sér Billy Bob Thornton mikið
eftir því að hafa yfirgefið unnustu
sina, engilfríðu leikkonuna Angelinu
Jolie. Og þess vegna rær kappinn að
því öllum árum að ná stúlkunni aftur
til sín.
Billy Bob yfirgaf konuna og ungan
dreng sem þau höfðu nýlega ættleitt
frá Kambódíu af því að honum fannst
hann falla í skuggann af konu sinni.
Hann leitaði huggunar hjá gömlum
kærustum, nú síðast liðlega tvítugri
íyrirsætu, Danielle Dotzenrod.
En Billy Bob karlinn var aldrei al-
mennilega ánægður og hugurinn leit-
aði æ meir til gömlu góðu daganna
sem hann vill nú endurheimta.
Jennifer Lopez
er alls staðar
Vestanhafs eru
ýmsir farnir að
hafa áhyggjur af
því að latínubomb-
an Jennifer Lopez
sé hreinlega of
mikið í sviðsljós-
inu og að þetta
kunni hreinlega
að verða frama
hennar skaðlegt
þegar til lengri
tíma sé litið.
Jennifer kemur að sjálfsögðu fram í
nýjasta myndbandinu með eigin tón-
list, í auglýsingunni tyrir nýju mynd-
ina sem hún leikur í, auk þess sem
hún hefur verið gestur í öllum helstu
kjaftaþáttum í amerísku sjónvarpi. Og
ekki má gleyma því að hún sést oft í
fylgd með unnusta sínum, stórleikar-
anum Ben Afíleck.
Enda þótt Jennifer hafi ekki alltaf
fengið lofsamlega dóma fyrir frammi-
stöðu sína á hvíta tjaldinu eða í hljóð-
veri hefur hún engu að síður siglt
hraðbyri upp á stjörnuhimininn þar
sem hún skín nú einna skærast amer-
ískra stjarna.
Jack Nicholson
segist frelsaöur
Hollywood-töffarinn Jack Nichol-
son, sem þekktur er fyrir allt annað en
hreinlífi, segir aö hann eigi í sífellt
meiri erfiðleikum með að ná „litla
manninum" upp og að með sama
áframhaldi stefni í algjört getuleysi.
Hann segist þó ekki haldinn neinni ör-
væntingu og sér finnist þetta ekkert
skelfilegt. „Það eina sem ég óttaðist
var fyrirsjáanleg einsemd i bælinu en
nú er ég farinn að venjast þessu og lík-
ar bara vel að sofa einn. Ég er breytt-
ur maður á sextugsaldri og hef ekki
sömu reisn og áður. En þetta er bara
gangur lífsins sem maður verður að
sætta sig við. Áður gat ég ekki hugsað
mér að leggjast upp í nema hafa eitt-
hvað mjúkt að nudda mér upp við. Það
er af sem áður var, en ég lít frekar á
þetta sem frelsun,“ segir Jack.
Ljósadýrð í kirkjugörðunum
- ljósakrossar verða sífellt vinsælli
Svokallaðir ljósakrossar til að setja
á leiði hafa tíðkast í nokkrum mæli
hér á landi enda góð leið til að lýsa
upp dimmasta tíma ársins og minnast
um leið látinna ástvina. Með hverjum
jólum hefur ljósakrossum verið að
fiölga en Kirkjugarðar Reykjavikur
hafa boðið upp á þessa þjónustu síð-
astliðin 10 ár og hafa verið með samn-
inga við tvö verktakafyrirtæki um að
leiða rafmagn í krossana svo verði
ljós. Það er Rafþjónustan Ljós sem sér
um þjónustuna í Gufunesi en fyrir-
tækið Heim ehf. sér um þjónustuna í
Fossvogskirkjugarði. Björn Sveins-
son, skrifstofustjóri Kirkjugarða
Reykjavíkur, segir að einungis sé
hægt að hafa hvít ljós í Gufunesinu en
hægt sé að velja um margs konar ljós
í Fossvogskirkjugarði. Eftirspurnin
eftir ljósakrossunum hefur aukist og
samkeppnin hefur því harðnað.
Fyrirtækið Búrek ehf., í samvinnu
við vinnustaði Öryrkjabandalags ís-
lands, býður einnig upp á ljósakrossa
á leiði fyrir jólin.
Ljósakrossamir eru hvítir plast-
krossar og, eins og búast má við, með
ljósi. Búrek sér um framleiðslu rör-
anna sem notuð eru i krossana en
starfsfólk vinnustaða Öryrkjabanda-
lagsins sér um að setja þá saman og
útvega ljós og tengingar.
Ljósakrossarnir eru tvenns konar.
Annars vegar krossar sem tengja má
við venjulegt rafmagn í kirkjugörðum
en aðstandendur leggja þá sjálfir til
krossana. Hins vegar er um að ræða
krossa sem fá rafmagn frá venjulegum
rafhlöðum sem er nýjung á markaðn-
um. Fjórar perur (díóður) lýsa kross-
inn upp og endast rafhlöðumar í allt
að 20 daga. Krossamir kosta um 6.000
krónur út úr búð og rafhlöðumar
kosta rúmar 1.000 krónur. -ss
Ljósakross
Þeim fjölgar hratt Ijósakrossunum <-*
sem settir eru á leiöi enda falleg
birta í skammdeginu.
mia Brauðrist hvít eða blá með afþíðingu,
stopphnappi og myisnubakka.
H1 Electrolux Vandaðurtvískipturkæli-og
frystiskápur með glertiillum. 222 lítra kælir og 88 lítra
frystir með þremur skúffúm. HxBxD: 175x59,5x60
ZANUSSI
___________Baikalausþurrkarafbestugerö.
Krumpuvöm og tímastillir. Kerfi fyrir viðkvæman þvott
Stór og aðgengileg taulúga.
Radettegrillmeð6
Stál hraðsuðuketill 2,2 litrar.
Si
Þ&»lfX'g%g\í\
^U990
Eldhúsvog með skál.
ffija Rafmagnstannbursti með
""q4burstum.
Kaffivél 12-15 bolla
Nuddtæki með innrauðu Ijósi
og titringi. Frábær jólagjöf!
■* 1 Innbyggðurveggofn
með fjölkerfa blástursofni, undir- og yfirhrta
ásamt grilli og grillmótor.
Ferðagufustraujám
Stafnæn baðvog með þykkum
glerfleti. LCD skjár.
1500W ofurkraflmikil ryksuga með fýlgihlutum.
Stillanlegur sogkraftur og stálrör.
Suðurlandsbraut 16 »108 Rvk • Sími 5880500
«