Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2002, Blaðsíða 34
Ótrúlegur leikur
- 3ja stiga karfa Keflavíkur á síöustu sekúndunni
Það var ótrúlegur leikur sem Snæ-
-5 fell og Keflavík buðu upp á í gær-
kvöld. Heimamenn léku frábærlega í
fyrri hálfleik og staðan eftir fyrsta
leikhluta var 25-9 fyrir Snæfell. Á
fyrstu fjórum mínútum annars leik-
hluta skoruðu Snæfellingar 14 stig
gegn einu stigi gestanna og staðan
ótrúleg eða 39-10 og þá var staðan í
hátfleik 56-33.
Keflvikingar komu tvíefldir til leiks
í síðari hálfleik á meðan heimamenn
virtust frekar leika upp á að halda for-
skotinu en sækja meira á. Með góðri
vörn og hröðum sóknum náðu þeir að
saxa á forskot Snæfellinga. Guðjón
Skúlason setti fjórar þriggja stiga
körfur í þriðja leikhlutanum en sókn-
ar- og varnarleikur Snæfells var
t slakur og Keflavík vann leikhlutann
20-34 og staðan við lok hans því 76-67.
Þegar sex mínútur lifðu leiks
komust Keflvíkingar yfir í fyrsta
skiptið, 80-81, og og þegar 3 mínútur
voru eftir náðu þeir sínu stærsta for-
skoti í leiknum, 82-94. Snæfellingar
settu nú í íluggírinn aftur og skoruðu
næstu 13 stig. Jón Ólafur jafnaði leik-
inn, 94-94, og fékk í næstu sókn tvö
vítaskot. Hann nýtti annað og kom
heimamönnum yfir, 95-94, og um 10
sekúndur eftir. Keflvíkingar hreins-
uðu fyrir Damon Johnson sem keyrði
upp að körfunni, dró til sín varnar-
menn og sendi boltann á Magnús
Gunnarsson sem setti niður þriggja
stiga skot þegar 1,7 sekúndur voru eft-
ir, sem dugði til sigurs
Fyrri hálfleikur hjá heimamönnum
var hreint út sagt frábær. Sterk liðs-
heild skóp forskotið og erfitt að fara
að taka einhvem einn út. Þó verður
að minnast á leik Jóns Ólafs Jónsson-
ar sérstaklega undir lokin en þá skor-
aði hann 10 stig og var maðurinn á
bak við að koma heimamönnum inn í
leikinn aftur á lokamínútunum.
Hjá Keflavík stóð vart steinn yfir
steini í fyrri hálfleik en hraðlestin fór
í gang í þeim síðari. Þá komu til skjal-
anna Guöjón og Damon og Magnús
setti nær öll sin stig í síðasta leikhlut-
anum og sigurkörfuna. -KJ
Góður endaprett-
ur tryggði sigur
- Antropov með stórleik hjá Stólunum
Leikurinn á Króknum í gær var
lengi vel hnífjafh og skemmtilegur á
að horfa, baráttan mikil og mikið
skorað. Heimamenn voru ekki með á
nótunum fyrstu mínútur leiksins og
gestirnir mun ákveðnari. ÍR-ingar
náðu mest níu stiga forskoti í fyrsta
leikhlutanum, 8-17. Tindastól tókst
að minnka muninn í fjögur stig áður
en annar leikhluti hófst. Eftir það
varð leikurinn hnííjafn og jafnt var i
leikhléi, 45-45.
Eiríkur Önundarsson fór mikinn
fyrir gestunum og gerði 19 stig í fyrri
hálfleiknum, en Rússinn Antropov
hélt Tindastól mikið til á floti með 13
stigum, góðri vöm og hirti mörg frá-
köst.
Leikurinn hélt áfram að vera jafn í
síðari hálfleik og það var ekki fyrr en
síðasti leikhluti var kominn vel af
stað að Tindastóll náði tíu stiga mun
og skömmu síðar jókst hann í 14 stig,
84-72. Niðurstaðan varð öruggur sig-
ur Tindastóls, 99-89.
Hjá Tindastól var Michail An-
tropov langbestur, en hann gerði 31
stig, auk fjögurra varinna skota. Þeir
Axel, Helgi Rafn og Cook voru einnig
sterkur.
Hjá ÍR-ingum var Eirikur Önund-
arsson langbestur og þá átti Eugene
Christopher góðan leik. Sigurður
Þorvaldsson átti góða spretti, en aðr-
ir fundu sig ekki og voru talsvert frá
sínu besta. -ÞÁ
Snæfell-Keflavík 95-97
a-0, 13-2, 24-5, (25-9), 39-10, 39-20, 49-23,
(56-33). 63-45, 67-54, 71-59, (76-67), 80-72,
80-81, 82-94, 95-94, 95-97.
Tindastóll-ÍR 99-89
0-2, 4-9, 8-17, 14-18, (17-21), 23-23, 28-23,
28-28, 36-36, (45-45). 54-53, 59-56, 66-61,
(68-66), 68-69, 80-69, 84-72, 91-78, 99-89.
Stig Sruefells: Jón Ólafur Jónsson 24,
Clifton Bush 23, Helgi Reynir
Guðmundsson 16, Hlynur Bæringsson 15,
Lýður Vignisson 10, Georgi Bujukliev 7.
Stig Keflavikur: Damon Johnson 24,
Guðjón Skúlason 22, Kevin Grandberg 17,
Gunnar Einarsson, Magnússon
Gunnarsson 9, Sverrir Sverrisson 6, Jón N.
Hafsteinsson 4, Falur Harðarson 3, Amar
Jónsson 2..
Dómarar
(1-10): Jón
Bender og Egg-
ert Þ. Aðal-
steinsson (7).
GϚi leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur:
230.
Ma&ur leiksins:
Jón Ólafur Jónsson, Snæfelli
Fráköst: Snæfell 34 (10 1 sókn, 24 i vöm,
Cliflon 11), Keflavík 23 (3 i sókn, 20 i vöm,
Grandberg 9).
Stoösendingar: Snæfell 14 (Helgi 5),
Keflavik 13 (Davið Jónsson 5).
Stolnir boltar: Snæfell 10 (Jón Ólafur 3),
Keflavík 9 (Jón, Sverrir og Magnús allir með
3).
Tapaóir boltar: Snæfell 13, Keflavik 15.
Varin skot: Snæfell 0, Keflavík 2.
3ja stiga: Snæfell 6/23, Keflavik 13/36.
Víti: Snæfell 25/30, Keflavík 18/23.
Stig Tindastóls: Michail Antropov 31,
Clifton Cook 15, Maurice Carter 14, Axel
Kárason 10, Helgi R. Viggósson 9, Kristinn
G. Friðriksson 8, Sigurður G. Sigurðsson 6,
Einar Ö. Aðalsteinsson 6.
Stig lR: Eugene Christopher 31, Eiríkur
Önundarsson 26, Sigurður Á. Þorvaldsson
8, Fannar F. Helgason 8, Hreggviður S.
Magnússon 5, Ómar Ö. Sævarsson 3, Ólafur
J. Sigurðsson 3, Pavel Ermolinskij 2.
Dómarar
(1-10): Kristinn
Albertsson og
Leifur
Garðarson (8).
Gceöi leiks
(1-10): 8.
Áhorfendur:
Um 170.
Ma&ur leiksins:
J\
Michail Antropov, Tindastól
Fráköst: Tindastóll 49 (29 í sókn, 20 í
vöm, Antropov 16), ÍR 39 ( 14 í sókn, 25 í
vöm, Ómar 14).
Stoósendingar: Tindastóll 19 (Clifton
Cook 5), ÍR 17 (ólafur J. 5).
Stolnir boltar: Tindastóll 17 (Helgi R. 7),
ÍR 15 (Cristopher og Eiríkur 4).
Tapaóir boltar: Tindastóll, ÍR 31.
Varin skot: Tindastóll 8 (Antropov 4), ÍR
1( Ómar).
3ja stiga: Tindastóll 8/39, ÍR 9/24.
Víti: Tindastóll 21/24, ÍR 15/19.
FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002
Neitar að tjá sig um Bosnich
Forsvarsmenn enska knatt-
spyrnusambandsins neita að tjá
sig um það hvort Mark Bosnich,
markvörður Chelsea í knatt-
spyrnu, hafi I raun fallið á lyfja-
prófi, en það er talið að leifar af
kókaíni hafi fundist í prufum sem
teknar voru af leikmanninum.
Samkvæmt heimildum enskra
fjölmiöla þá mun síðara próf hafa
staðfest það fyrra og ef rétt reynist
á leikmaðurinn yfir höfði sér sekt-
ir og leikbönn af hálfu samandsins
og Chelsea.
Forsvarsmenn Chelsea segjast
ekkert hafa heyrt frá
knattspyrnusambandinu og geti
því ekki tjáð sig. -PS
KR tryggði sér áframhaldandi
veru í toppsæti Intersportdeildar-
innar í körfubolta með sigri á Hauk-
um, 93-91, í DHL-höllinni í gær-
kvöld. Toppsætið verður því þeirra
fram á næsta ár og jólasteikin á ef-
laust eftir að smakkast KR-ingum
enn þetur fyrir vikið. Haukamir
voru reyndar betri aðilinn lungann
úr leiknum þar sem Stevie Johnson
fór hamförum og svo virtist sem
hann ætlaði að klára leikinn upp á
eigin spýtur.
KR-ingar voru þó ekki á því og
með því að setja Óðin Ásgeirsson á
Johnson í fjórða leikhluta tókst
þeim að ná frumkvæðinu og í raun
seiglast á hörkunni og baráttunni
og tryggja sér þannig stigin tvö og
toppsætiö. Vissulega voru aðrir
vamarmenn búnir að þreyta John-
son en þeim tókst ekki að stöðva
hann. Vamarleikur Óðins gerði það
að verkum að skotval Johnsons fór
versnandi og hann fór að reyna
alltof erfiða hluti og aðrir leikmenn
Hauka náðu ekki að fylla þetta gap
sem myndaðist í sókn þeirra f kjöl-
farið.
Marel Guðlaugsson reyndi hvað
hann gat en hann var einnig að
reyna of erfiða hluti. KR-ingar vom
dálítið eins og sofandi risi í þessum
leik sem vaknaði ekki almennilega
fyrr en lítið var eftir en það segir
margt um styrk liðsins að þessi
lokakafli dugði til sigurs. Liöiö er
afar þétt í heildina litið og fátt um
veika bletti og samt eiga þeir góða
leikmenn inni sem koma væntan-
lega sterkir inn eftir áramót.
Óðinn Ásgeirsson var þeirra best-
ur að þessu sinni, afar sterkur í
vörninni, eins og áður var vikið að,
og þá skoraði hann körfur á mikil-
vægum timapunktum og var maður-
inn á bak við þennan sigur. Skarp-
héðinn Ingason kom sterkur upp
eftir rólega byrjun og hér er alvöru
keppnismaður á ferð. Darrell Flake
skilaði sínu að venju og Magnús
Helgason og Steinar Kaldal gerðu
sitt.
Hjá Haukum var Stevie Johnson
algjör yfirburðamaður og þetta er
besti leikmaður sem klæðst hefur
Haukabúningnum frá því að Pálmar
Sigurðsson var upp á sitt besta!
Marel Guðlaugsson var síðan ágæt-
ur og Sævar I. Haraldsson stjórnaði
leik sinna manna nokkuð vel. Pre-
drag Bojovic barðist vel og Ottó
Þórsson átti spretti. Ingi Þór Stein-
þórsson, þjálfari KR, var ekki alveg
sáttur við leik sinna manna en stig-
in hins vegar vel þegin: „Við vorum
ekki tilbúnir í byrjun leiks og vor-
um síðan að elta þá lengstum. Við
fundum þó taktinn í fjórða leikhluta
og með mikilli baráttu og góðri
vöm á Stevie, sem var algjört lífs-
spursmál, þá seigluðumst við á sig-
urinn. Það er ánægjulegt að vera á
toppnum en við megum ekki tapa
okkur í gleðinni," sagði Ingi.
-SMS
KR-Haukar 93-91
2-0, 2-6, 7-8, 12-16, (18-20), 18-23, 22-30,
24-34, 32-40, (39-43), 3945, 45-51, 53-53,
60-63, (70-73), 70-75, 76-79, 83-80, 85-86,
91-86, (93-91).
Stig KR: Darrell Flake 29. Óöinn
Ásgeirsson 17, Skarphéðinn Ingason 15,
Magnús Helgason 12, Steinar Kaldal 10,
Baldur Ólafsson 6,1. Magni Hafsteinsson 2,
Jóel Ingi Sæmundsson 2,
Stig Haukar: Stevie Johnson 42, Marel
Guðlaugsson 16, Sævar I. Haraldsson 11,
Ottó Þórsson 9, Predrag Bojovic 8, Ingvar
Guðjónsson 3, Davíð Ásgrimsson 2.
Dómarar
(1-10): Kristinn
Óskarsson og
Erlingur Snær
Erlingsson (6).
GϚi leiks
(1-10): 7.
Áhorfendur:
Um 100.
Ma&ur leiksins:
Ó&inn Ásgeirsson, KR
Fráköst: KR 38 (8 í sókn, 30 í vöm, Flake
10), Haukar 34 (14 í sókn, 20 í vöm, Johnson
13).
Stoósendingar: KR 28 (Steinar 6),
Haukar 15 (Sævar 4, Johnson 4).
Stolnir boltar: KR 5 (Stelnar 2), Haukar
9 (Johnson 3).
Tapaöir boltar: KR 13, Haukar 10.
Varin skot: KR 11 (Baldur 5), Haukar 3
(Bojovic 3).
3ja stiga: KR 19/7, Haukar 25/9.
Vfti: KR 20/16, Haukar 28/18.